Morgunblaðið - 04.01.2013, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2013
Tenniskappinn Novak Djokovic frá Serbíu og sjö-
þrautarkonan Jessia Ennis frá Bretlandi hafa ver-
ið útnefnd íþróttakarl og íþróttakona ársins 2012 í
Evrópu af Alþjóðasamtökum íþróttafréttamanna,
AIPS. Það er Evrópudeild samtakanna, AIPS Eu-
rope, sem stendur að kjörinu.
Þetta er annað árið í röð sem Djokovic verður
fyrir valinu en í fyrsta sinn sem Ennis hlýtur
þessa viðurkenningu.
Djokovic vann meðal annars sigur á opna ástr-
alska mótinu og opna franska mótinu. Hann komst
í úrslit á opna bandaríska mótinu og vann loka-
mótið í ATP-mótaröðinni.
Farah og Björgen í öðru sæti
Í öðru sæti hjá körlunum varð breski hlauparinn
Mo Farah, sem vann til tvennra gullverðlauna á
Ólympíuleikunum í London síðastliðið sumar og í
þriðja sæti þýski ökuþórinn Sebastian Vettel,
heimsmeistari í Formúlu 1 kappakstrinum.
Ennis vann til gullverðlauna í sjöþraut á Ólymp-
íuleikunum og varð í öðru sæti á HM innanhúss
auk þess sem hún vann sigur á nokkrum mótum.
Norska skíðagöngukonan Marit Björgen varð í
öðru sæti á eftir Ennis og Viktoria Azarenka,
tenniskona frá Hvíta-Rússlandi, hafnaði í þriðja
sæti í kjörinu.
Íþróttamenn ársins hjá AIPS frá árinu 2000
eru:
2012 Novak Djokovic, tennis
2011 Novak Djokovic, tennis
2010 Sebastian Vettel, kappakstur
2009 Roger Federer, tennis
2008 Rafael Nadal, tennis
2007 Roger Federer, tennis
2006 Roger Federer, tennis
2005 Roger Federer, tennis
2004 Roger Federer, tennis
2003 Michael Schumacher, kappakstur
2002 Michael Schumacher, kappakstur
2001 Michael Schumacher, kappakstur
2000 Pieter van Hoogenband, sund
Íþróttakonur ársins hjá AIPS frá árinu 2000:
2012 Jessica Ennis, frjálsar
2011 Federica Pellegrini, sund
2010 Blanka Vlasic, frjálsar
2009 Blanka Vlasic, frjálsar
2008 Jelena Isinbajeva, frjálsar
2007 Justine Henin, tennis
2006 Justine Henin, tennis
2005 Jelena Isinbajeva, frjálsar
2004 Kelly Holmes, frjálsar
2003 Justine Henin, frjálsar
2002 Justine Henin, frjálsar
2001 Svetlana Khorkina, fimleikar
2000 Inge de Bruijn, sund
gummih@mbl.is
AFP
Bestur Novak Djokovic var sigursæll í tennisheiminum árið 2012.
Djokovic og Ennis íþrótta-
fólk ársins hjá AIPS
Annað árið í röð hjá Serbanum en sú breska fær titilinn í fyrsta sinn
AFP
Best Jessica Ennis krækti í gullverðlaun í sjöþrautinni á Ólympíuleikunum.
Skotland
St. Johnstone – Dundee........................... 1:0
Aberdeen – Dundee United..................... 2:2
Celtic – Motherwell.................................. 1:0
St. Mirren – Kilmarnock ......................... 1:1
Hearts – Hibernian .................................. 0:0
Staðan: Celtic 43, Inverness 34, Mother-
well 34, Hibernian 32, Aberdeen 31, St. Jo-
hnstone 30, Kilmarnock 28, Dundee United
26, Hearts 26, St. Mirren 25, Ross County
21, Dundee 12.
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikur
Svíþjóð – Þýskaland............................ 20:26
Daniel Tellander 5, Jonathan Stenbäcken
4, Johan Jakobsson 3 – Patrick Wiencek 3,
Kevin Schmidt 3/3, Adrian Pfahl 3.
HANDBOLTI
NBA-deildin
Toronto – Portland............................. 102:79
Orlando – Chicago ................................ 94:96
Cleveland – Sacramento ...................... 94:97
Indiana – Washington.......................... 89:81
Boston – Memphis................................ 83:93
Miami – Dallas .................................. 119:109
Eftir framlengingu.
Milwaukee – San Antonio ................ 110:117
Houston – New Orleans..................... 104:92
Oklahoma City – Brooklyn ................ 93:110
Utah – Minnesota ............................... 106:84
Phoenix – Philadelphia ........................ 95:89
Golden State – LA Clippers .............. 115:94
Staðan í Austurdeild:
Miami Heat 30 22 8 73,3%
New York Knicks 31 21 10 67,7%
Atlanta Hawks 30 20 10 66,7%
Indiana Pacers 32 19 13 59,4%
Chicago Bulls 30 17 13 56,7%
Milwaukee Bucks 30 16 14 53,3%
Brooklyn Nets 32 17 15 53,1%
Philadelphia 76ers 33 15 18 45,5%
Boston Celtics 31 14 17 45,2%
Toronto Raptors 32 12 20 37,5%
Orlando Magic 32 12 20 37,5%
Detroit Pistons 34 12 22 35,3%
Charlotte Bobcats 31 8 23 25,8%
Cleveland Cavs 33 7 26 21,2%
Washington Wiz. 30 4 26 13,3%
Staðan í Vesturdeild:
Oklahoma Thunder 31 24 7 77,4%
San Antonio Spurs 34 26 8 76,5%
Los Angeles Clippers 33 25 8 75,8%
Memphis Grizzlies 29 20 9 69,0%
Golden St. Warriors 32 22 10 68,8%
Houston Rockets 32 18 14 56,3%
Denver Nuggets 33 18 15 54,5%
Portland T-Blazers 31 16 15 51,6%
Minnesota T-wolves 28 14 14 50,0%
Utah Jazz 33 16 17 48,5%
Los Angeles Lakers 31 15 16 48,4%
Dallas Mavericks 33 13 20 39,4%
Sacramento Kings 32 12 20 37,5%
Phoenix Suns 33 12 21 36,4%
New Orl. Hornets 32 7 25 21,9%
Átta efstu liðin í hvorri deild að loknum
82 umferðum fara í úrslitakeppnina þar
sem leikin er útsláttarkeppni, fyrst um sig-
ur í hvorri deild fyrir sig og síðan leika sig-
urliðin tvö um meistaratitil NBA.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Njarðvík: Njarðvík – Snæfell .............. 19.15
Hertzhellirinn: ÍR – Keflavík .............. 19.15
Grindavík: Grindavík – Tindastóll ...... 19.15
Ásgarður: Stjarnan – Fjölnir .............. 19.15
DHL-höllin: KR – KFÍ ........................ 19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Skallagrímur ... 19.15
KNATTSPYRNA
Norðurlandsmótið, Kjarnafæðisdeildin:
Boginn: Þór – KF ...................................... 20
Í KVÖLD!
Helga María Vilhjálmsdóttir, landsliðskona á skíð-
um, hafnaði í sjötta sæti á alþjóðlegu svigmóti í
Oppdal í Noregi í gær. Hún var aðeins 0,52 sek-
úndum á eftir sigurvegaranum, Maren Skjöld, og
náði fjórða besta tíma í seinni ferð. Samanlagður
tími Helgu var 1:48,17 mínútur.
Fyrir þetta fékk hún 36,97 FIS-punkta, sem er
frábær árangur samkvæmt frétt á vef Skíða-
sambands Íslands og mikil bæting hjá henni, eða um
2,84 stig.
Einar Kristinn Kristgeirsson, landsliðsmaður,
keppti einnig á mótinu og varð í 14. sæti í karla-
flokki, 3,63 sekúndum á eftir fyrsta manni. Samanlagður tími var
1:48,92 mínútur. Hann fékk 43,10 FIS-punkta sem er nokkuð frá hans
besta en þó næstbesti árangur hans erlendis.
Þau Helga og Einar keppa aftur í svigi í Oppdal í dag. vs@mbl.is
Helga varð sjötta í Oppdal
Helga María
Vilhjálmsdóttir
Srecko Katanec var í gær ráðinn þjálfari knattspyrnu-
landsliðs Slóveníu, sem er næsti mótherji Íslands í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins. Fyrsti mótsleikur Kat-
anec með lið Slóveníu verður gegn Íslandi 22. mars og
svo aftur þegar liðin mætast á Laugardalsvellinum 7.
júní.
Slóvenar fóru illa af stað í keppninni í haust, töpuðu
þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum, og í kjölfarið
var þjálfaranum, Slavisa Stojanovic, sagt upp störfum
fyrir jól.
Samherji Ásgeirs hjá Stuttgart
Katanec er einn þekktasti knattspyrnumaður og síðan
þjálfari Slóvena. Hann er 49 ára gamall og var lands-
liðsmaður Júgóslavíu og síðan Slóveníu en hann var um
skeið samherji Ásgeirs Sigurvinssonar hjá Stuttgart í
Þýskalandi. Hann þjálfaði áður lands-
lið Slóveníu á árunum 1998 til 2002 og
kom því bæði í lokakeppni EM 2000 og
lokakeppni HM 2002, en þetta var
frumraun Slóvena á báðum þessum
mótum.
Hann þjálfaði síðan Olympiacos í
Grikklandi, landslið Makedóníu frá
2006 til 2009 og landslið Sameinuðu
arabísku furstadæmanna frá 2009 til
2011 en var rekinn frá síðarnefnda lið-
inu í september 2011 eftir tvo ósigra í
röð í undankeppni HM.
Fyrsti leikur Slóvena undir stjórn Katanec verður
vináttulandsleikur gegn Bosníu sem fram fer í Koper í
Slóveníu 6. febrúar. vs@mbl.is
Katanec stýrir Slóvenum gegn Íslandi
Srecko
Katanec