Morgunblaðið - 04.01.2013, Side 4

Morgunblaðið - 04.01.2013, Side 4
KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Dominos-deild karla í körfuknatt- leik hefst á ný í kvöld með sex leikjum eða heilli umferð. Þórs- arar frá Þorlákshöfn sátu í topp- sæti deildarinnar yfir jól og ára- mót og taka á móti Skallagrími í kvöld. „Við erum á svipuðu róli og í fyrra. Í deildinni erum við aðeins ofar en við vorum á sama tíma í fyrra. Þá fórum við einnig í und- anúrslit í Lengjubikarnum og duttum út fyrir áramót í stóra bik- arnum. Við getum sagt að þetta sé á pari við það hvernig tímabilið í fyrra þróaðist,“ sagði bakvörð- urinn Guðmundur Jónsson, í sam- tali við Morgunblaðið í gær, en hann hefur skorað tæplega fjórtán stig að meðaltali í deildaleikjum Þórs í vetur. Telur liðið betra en í fyrra Þórsarar voru ekki uppteknir af því að þeir væru nýliðar á síðasta tímabili og fóru þá alla leið í úrslit Íslandsmótsins en töpuðu þar fyrir Grindvíkingum. Guðmundur segist telja að Þór sé með betra lið á þessu tímabili. „Við erum með mjög svipað lið. Kosturinn er sá að við erum reynslunni ríkari og fæstir þessara stráka höfðu kynnst því að komast í úrslitakeppnina þar til í fyrra. Núna höfum við reynsluna og höfum spilað einu ári lengur saman. Við þekkjum betur hver inn á annan og menn eru allt- af að læra betur inn á sín hlutverk innan liðsins. Í fyrra komu kaflar þar sem menn voru að leita að sínu hlutverki og þá gengu hlut- irnir ekki alltaf upp. Þar af leið- andi held ég að við séum betra lið en í fyrra,“ útskýrði Guðmundur. Heimavallarrétturinn getur skipt miklu máli í jafnri deild Áhuginn fyrir liðinu virðist vera mikill í Þorlákshöfn því liðið fær mikinn stuðning í heimaleikjum sínum. Fyrir vikið er eftir miklu að slægjast fyrir Þórsara þegar heimavallarrétturinn í úr- slitakeppninni er annars vegar. „Deildin er hrikalega jöfn og það eru allir að taka stig af öllum. Heimavallarrétturinn í úr- slitakeppninni myndi því gefa al- veg rosalega mikið. Þó við séum efstir eins og stendur þá töpuðum við til dæmis fyrir Njarðvík í fyrsta leik tímabilsins. Það er ekk- ert gefið að vinna leikina í þessari deild og það myndi hjálpa helling að vera með heimaleikjaréttinn. Með því að tapa einum leik er hægt að detta niður um þrjú til fjögur sæti. Menn þurfa að vera vakandi fyrir því og reyna að verja heimavöllinn eins og menn geta,“ sagði Guðmundur og hann á ekki von á því að auðvelt verði að slíta sig frá þeim pakka sem hefur myndast í efri hluta deildarinnar. „Ég sé fyrir mér að það verði sex lið sem muni skera sig aðeins úr í efstu sætunum. Þar á eftir koma væntanlega fjögur lið sem munu berjast um tvö síðustu sætin inn í úrslitakeppnina,“ sagði Guð- mundur Jónsson við Morgunblaðið en hann gekk í raðir Þórs frá Njarðvík sumarið 2011. Morgunblaðið/Kristinn Lykilmaður Guðmundur Jónsson hefur tekið þátt í körfuboltaævintýrinu í Þorlákshöfn í hálft annað ár. Kosturinn er sá að við erum reynslunni ríkari  Þórsarar úr Þorlákshöfn á toppnum um jól og áramót  Guðmundur segir liðið á pari  Körfuboltamenn af stað eftir jólafríið  Skotið á tólf körfur í kvöld Körfuboltinn » Eftir 10 umferðir af 22 eru Þór Þ. og Grindavík með 16 stig á toppnum, Snæfell 14, Stjarnan 14, KR 12, Keflavík 10, Njarðvík 8, Fjölnir 8, Skalla- grímur 6, ÍR 6, KFÍ 4 og Tinda- stóll 4 stig. » Leikir kvöldsins, allir kl. 19.15, eru: Njarðvík – Snæfell ÍR – Keflavík Grindavík – Tindastóll Stjarnan – Fjölnir KR – KFÍ Þór Þ. – Skallagrímur 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2013 Leikmenn ítalska knattspyrnuliðs- ins AC Milan, með Kevin Prince Boateng í fararbroddi, gengu af velli í gær þegar nokkrir þeirra urðu fyrir kynþáttaníði frá áhorf- endum í æfingaleik gegn D- deildarliðinu Pro Patria. Þegar 26 mínútur voru liðnar af leiknum tók Boateng boltann skyndilega upp, sparkaði honum af krafti í átt að áhorfendum og gekk síðan af velli. Samherjar hans fylgdu honum og leiknum var hætt. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum hafði hópur áhorfenda viðhaft ósæmilegt orðbragð þegar Boa- teng, Sulley Muntari, Urby Em- anuelson og M’baye Niang, leik- menn AC Milan, voru með boltann. Ítalska knattspyrnusambandið tilkynnti strax í gær að málið yrði rannsakað ofan í kjölinn. vs@mbl.is Gengu af velli vegna kyn- þáttaníðs Hollenska goðsögnin Johan Cruyff hefur ákveðið að láta af störfum sem þjálfari hins óopinbera lands- liðs Katalóníu í knattspyrnu. Hann hefur ekki í hyggju að halda áfram í þjálfun en Cruyff, sem er 65 ára gamall, lék á árum áður með Ajax og Barcelona og tók síðan við þjálf- un Barcelona og gerði liðið að Spánarmeisturum fjögur ár í röð frá 1991-94. Síðustu þrjú árin hefur Cruyff þjálfað Katalóníumenn en eftir vin- áttuleik á móti Nígeríumönnum í fyrrakvöld ákvað Hollendingurinn að láta staðar numið. „Ég hef enga trú á að ég taki að mér þjálfun aftur. Ég hef haft gam- an af þessu starfi og er stoltur að hafa þjálfað landslið Katalóníu,“ sagði Cruyff en leikur Katalón- íumanna og Nígeríu endaði með 1:1 jafntefli. Með Katalóníu, sem er eitt af héruðum Spánar og með Barce- lona sem höfuðstað, léku m.a. Xavi, Carles Puyol og Bojan Krkic. gummih@mbl.is Cruyff hættir hjá Katalóníu Ert þú frjáls? Handfrjáls höfuðtól SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Dasan Létt og þægilegt höfuðtól frá Dasan sem hægt er að teng ja með USB við tölvu eða hefðbundnu síma- tengi við borðsíma. Jabra Pro 920 / 930 - þráðlaust Þráðlaust DECT höfuðtól sem tengist nær öllum gerðum símtækja og skiptiborða. Allt að 120m drægni. Falleg og stílhrein hönnun. USB 12.900 kr. Borðsíma eða USB - 33.900 kr.Borðsíma 9.900 kr. Við bjóðum mikið úrval af handfrjálsum og þráðlausum höfuðtólum. Kíktu til okkar, við tökum vel á móti þér. Kvennalið Vals í körfuknattleik hefur fengið góðan liðsstyrk en bandaríska körfuknattleikskonan Jaleesa Butler er búin að semja við Val og mun leysa Alberta Auguste sem lék með liðinu fyrir áramót. Butler er íslensku körfubolta- áhugafólki vel kunnug en hún hef- ur leikið með liðum Hamars og Keflavíkur. Á síðustu leiktíð spilaði hún með Keflavík þar sem hún skoraði 20 stig að meðtali í leik. Þjálfari Vals er Ágúst Björg- vinsson en Butler lék undir hans stjórn hjá Hamri. gummih@mbl.is Jaleesa Butler til liðs við Val

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.