Morgunblaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.01.2013, Blaðsíða 2
Í SEVILLA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Dönsku Evrópumeistararnir sem margir telja að standi uppi sem heims- meistarar í fyrsta sinn í sögunni reynd- ust allt of stór biti fyrir Íslendinga þeg- ar frændþjóðirnar mættust á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Sevilla í gærkvöld. Frábært danskt lið vann átta marka sigur, 36:28, og tryggði sér með sigrinum sigurinn í riðlinum en Íslendingar geta enn lent í 3., 4. eða 5. sæti riðilsins. Krafan er að sjálfsögðu að íslenska liðið vinni sigur á Katar og gangi það eftir og Danir komi okkur til aðstoðar og vinni Makedón- íumenn enda Íslendingar í 3. sæti. Vinni hins vegar Makedóníumenn Dani í lokaumferðinni bíða Frakkar íslenska liðsins í 16-liða úrslitunum sem liðið í fjórða sæti þarf að etja kappi við. Gríðarlega öflugt vopnabúr Dana Fyrri hálfleikurinn var lengi vel í ágætu jafnvægi. Danir voru þó alltaf skrefinu á undan en snemma leiks mátti merkja að sá varnarleikur sem ís- lenska liðið sýndi á móti Makedóníu var ekki til staðar. Íslenska vörnin réð illa við gríðarlega gott vopnabúr danska liðsins þar sem hver fallbyssan á fætur annarri þrumaði boltanum í íslenska markið þar sem þeir Björgvin Gúst- avsson og Aron Rafn Eðvarðsson voru oftar en ekki varnarlausir með hálfgöt- ótta vörn fyrir framan sig. Klipptu Aron út Sóknarleikurinn var hins töluvert betri en í leikjunum á móti Rússum og Makedóníumönnum. Aron Pálmarsson hafði sig mikið í frammi í fyrri hálf- leiknum þar sem hann mataði Kára Kristján Kristjánsson með hverri glæsisendingunni á fætur annarri. Ul- rik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, Danirnir of  Íslendingar áttu engin svör við stórleik Ev að detta út og komast ekki áfram í 16-liða ú San Pablo-höllin í Sevilla, lokakeppni HM karla, miðvikudaginn 16. janúar 2013. Gangur leiksins: 1:0, 2:4, 5:8, 8:11, 11:13, 13:16, 13:18, 17:24, 22:29, 25:34, 28:36. Mörk Íslands: Kári Kristján Kristjánsson 7, Snorri Steinn Guðjónsson 6, Guðjón Valur Sigurðsson 5/1, Ásgeir Örn Hall- grímsson 3, Aron Pálmarsson 2, Ólafur Gústafsson 2, Arnór Þór Gunnarsson 1, Ernir Hrafn Arnarson 1, Þórir Ólafsson 1/1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8 (þar af 2 til mótherja). Aron Rafn Eð- Ísland – Danm 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2013 Spennan fyrir lokaumferðina í A- riðlinum á heimsmeistaramótinu í handbolta er mikil og þar er ekkert komið á hreint. Heims- og ólympíu- meistarar Frakka sýndu klærnar í gær og unnu Argentínu örugglega, 35:23, og eru með fullt hús stiga eða átta talsins á toppi riðilsins. Hornamennirnir Samuel Hon- rubia og Michael Guigou voru at- kvæðamestir Frakka í kvöld. Hon- rubia skoraði sjö mörk en Guigou sex. Omeyer varði tólf skot í mark- inu og Daouda Karaboue fimm skot. Federico Vieyra skoraði sex mörk fyrir Argentínu. Þjóðverjar, sem unnu auðveldan 29:21-sigur á Svartfjallalandi í gær, geta enn náð efsta sætinu með sigri gegn Frökkum á morgun, þó ekki myndu margir veðja á það. Þjóð- verjar dreifðu markaskorinu vel á móti Svartfellingum en þar skoruðu Christoph Theuerkauf og Dominik Klein fjögur mörk hvor. Þá unnu Brasilíumenn góðan fimm marka sigur gegn Túnis, 27:22. Hornamaðurinn Lucas Candido var markahæstur hjá Brasilíu í leiknum með fimm mörk en Kamel Alouini skoraði sex mörk fyrir Túnis. Staðan í riðlinum er mjög áhuga- verð því liðin hafa skipst á að vinna hvert annað. Frökkum nægir jafn- tefli gegn Þjóðverjum til að vinna riðilinn og má ætla að þeim takist það. Baráttan um næstu sæti er mikil. Í lokaumferðinni mætir Argentína liði Túnis, Brassar spila við Svart- fellinga sem eru úr leik og þá eigast við Þjóðverjar og Frakkar eins og áður segir. Svo gæti farið að Túnis, Brasilía og Þýskaland endi öll með sex stig en Túnis vann Þýskaland, Brasilía vann Túnis og Þýskaland vann Bras- ilíu. Innbyrðis markatala mun því gilda. Einnig dugar Argentínu að vinna Túnis til að taka sæti þess í 16-liða úrslitunum þannig að möguleikarnir eru margir í A-riðli fyrir loka- umferðina. tomas@mbl.is Mikil barátta í A-riðlinum  Fjögur lið berjast um þrjú sæti AFP Brot Zoran Roganovic, leikmaður Svartfjallalands, rífur í treyju Martins Strobels, leikmanns Þýskalands, í leik liðanna á HM í handbolta í gær. Keflavík heldur áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild kvenna í körfu- knattleik, Dominos-deildinni. Liðið vann í gær sinn 16. leik í deildinni þegar það lagði KR, 75:66, eftir framlengdan leik í Toyotahöllinni í Keflavík. Staðan að loknum venju- legum leiktíma var 64:64. Í fram- lengingu tóku leikmenn Keflavíkur öll völd á leikvellinum og unnu með níu stiga mun. KR-liðið var sterkara lengi fram- an af leiknum og hafði m.a. 12 stiga forskot í hálfleik, 39:27. Keflavík- urliðið sótti í sig veðrið í þriðja leik- hluta og minnkaði muninn í sex stig að honum loknum, 52:46. Keflavík komst fyrst yfir, 62:60. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 21 stig og tók 11 fráköst fyrir Keflavík- urliðið og Jessica Ann Jenkins skor- aði 19 stig og Pálína Gunnlaugs- dóttir skoraði 17 stig. Shannon McCallum skoraði 22 stig fyrir KR og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skor- aði 13 stig, tók 12 fráköst og átti fimm stoðsendingar. Snæfell heldur sínu striki í öðru sæti úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir Keflavíkurliðinu. Snæfell lagði Hauka, 77:65, í Stykkishólmi. Leikurinn var framan af í járnum en í þriðja leikhluta komust Snæfell- ingar fram úr og tóku afgerandi for- ystu í fjórða leikhluta. Kieraah Mar- low skoraði 23 stig fyrir Snæfell og tók auk þess níu fráköst. Rósa Indriðadóttir skoraði 12 stig og Helga Hjördís Björgvinsdóttir skor- aði 11 stig. Siarre Evans var með 18 stig og 12 fráköst fyrir Hauka og þær Margrét Rósa Hálfdánardóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir skor- uðu 13 stig hvor. Íslandsmeistarar Njarðvíkur höfðu hamskipti í hálfleik í viðureign sinni við Grindavík. Fyrri hálfleikur var jafn og voru Njarðvíkingar með eins stig forskot að honum loknum 44:43. Í síðari hálfleik skildi leiðir og Grindvíkingar áttu ekkert svar við leik Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni, lokatölur 99:70. Lele Hardy skoraði 29 stig og tók 18 fráköst, átti sex stoðsendingar og stal boltanum sjö sinnum. Salbjörg Sævarsdóttir skor- aði 14 stig. Crystal Smith skoraði 30 stig fyrir Grindavík. iben@mbl.is Keflavík sneri við blaðinu  Meistararnir lögðu Grindavík A-RIÐILL Brasilía – Túnis.................................... 27:22 Lucas Candido 5, Felipe Borges 4, Fern- ando Pacheco 4 - Kamel Alouini 6, Mosbah Sanai 4, Abdelhak Ben Salah 4. Þýskaland – Svartfjallaland .............. 29:21 Dominik Klein 4, Christoph Theuerkauf 4 – Fahrudin Melic 7, Stevan Vujovic 4. Argentína – Frakkland....................... 23:35 Pablo Simonet 8, Federico Vieyra 6, Franc- isco Schiaffino 4 – Samuel Honrubia 7, Michael Guigou 6, Nikola Karabatic 5. Staðan: Frakkland 4 4 0 0 124:92 6 Þýskaland 4 3 0 1 116:96 6 Túnis 4 2 0 2 101:105 4 Brasilía 4 2 0 2 96:102 4 Argentína 4 1 0 3 98:114 2 Svartfjallaland 4 0 0 4 92:116 0 Lokaumferð á morgun: 15.00 Argentína – Túnis 17.15 Frakkland – Þýskaland 19.45 Svartfjallaland – Brasilía B-RIÐILL Makedónía – Rússland ........................ 29:29 Kiril Lazarov 10, Stojanche Stoilov 5, Dej- an Manaskov 4 – Sergei Gorbok 6, Daniil Shishkarev 4, Pavel Atman 4, Konstantin Igropulo 4. Síle – Katar .......................................... 23:31 Rodrigo Salinas 7, Emil Feuchtmann 5, Es- teban Salinas 4 – Sahbi Aziza 8, Bassel Alrayes 6, Charafeddine Boumendjel 5. Ísland – Danmörk................................ 28:36 Kári Kristján Kristjánsson 7, Snorri Steinn Guðjónsson 6, Guðjón Valur Sigurðsson 5 – Mikkel Hansen 7, Hans Lindberg 7, And- ers Eggert 7. Staðan: Danmörk 4 4 0 0 151:106 6 Rússland 4 2 1 1 115:107 5 Makedónía 4 2 1 1 112:110 5 Ísland 4 2 0 2 114:107 4 Katar 4 1 0 3 110:127 2 Síle 4 0 0 4 97:142 0 Lokaumferð á morgun: 14.45 Rússland – Síle 17.00 ÍSLAND – Katar 19.15 Danmörk – Makedónía C-RIÐILL Staðan: Serbía 3 3 0 0 95:70 6 Slóvenía 3 3 0 0 91:73 6 Pólland 3 2 0 1 76:61 4 Hvíta-Rússland 3 1 0 2 76:78 2 Suður-Kórea 3 0 0 3 69:91 0 Sádi-Arabía 3 0 0 3 56:90 0 Leikir í dag: 14.45 Slóvenía – Hvíta-Rússland 17.00 Sádi-Arabía – Suður-Kórea 19.15 Pólland – Serbía Lokaumferð á laugardag: 14.45 Hvíta-Rússland – Sádi-Arabía 17.00 Pólland – Suður-Kórea 19.15 Serbía – Slóvenía D-RIÐILL Staðan: Spánn 3 3 0 0 107:49 6 Króatía 3 3 0 0 97:54 6 Ungverjaland 3 2 0 1 96:66 4 Egyptaland 3 0 1 2 71:85 1 Alsír 3 0 1 2 58:82 1 Ástralía 3 0 0 3 37:130 0 Leikir í dag: 15.45 Ástralía – Alsír 18.00 Ungverjaland – Spánn 20.15 Króatía – Egyptaland Lokaumferð á laugardag: 15.45 Egyptaland – Ástralía 18.00 Spánn – Króatía 20.15 Ungverjaland – Alsír Framhaldið Sextán liða úrslitin hefjast á sunnudag þeg- ar liðin úr A- og B-riðlum leika sín á milli, A1–B4, A2–B3, A3–B2 og A4–B1. Á mánu- dag leika síðan liðin úr C- og D-riðlum sín á milli á sama hátt, þ.e. C1–D4, C2–D3, C3– D2 og C4–D1. Noregur A-deild kvenna: Tertnes – Byåsen..................................25:29  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki mark fyrir Tertnes sem er í 4. sæti. Danmörk A-deild kvenna: Esbjerg – Viborg ..................................28:25  Óskar Bjarni Óskarsson er þjálfari Vi- borg sem situr í efsta sæti deildarinnar. HM Í HAND- BOLTA 2013 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Þorlákshöfn: Þór – ÍR...........................19.15 Stykkishólmur: Snæfell – Grindavík ...19.15 Toyotahöllin: Keflavík – Stjarnan .......19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – KR ...........19.15 Njarðvík: Njarðvík – Skallagrímur .....19.15 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót karla, B-riðill: Egilshöll: Fram – Víkingur .......................19 Egilshöll: Fylkir – Leiknir R ....................21 Fotbolti.net-mótið: Reykjaneshöllin: Njarðvík – HK .........18.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.