Morgunblaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2013
Reykjavíkurmót karla
B-RIÐILL:
Fram – Leiknir R. .................................... 1:0
Almarr Ormarsson 67.
Víkingur R. – Fylkir................................ 1:0
Ívar Örn Jónsson 5.
Lokastaðan:
Víkingur R. 3 1 2 0 2:1 5
Leiknir R. 3 1 1 1 3:1 4
Fram 3 1 1 1 2:3 4
Fylkir 3 1 0 2 2:4 3
Víkingur R. og Leiknir R. fara í undan-
úrslit og mæta tveimur efstu liðum A-riðils
en úrslit í honum ráðast í dag.
Ítalía
A-DEILD:
Roma – Cagliari........................................ 2:4
B-DEILD:
Reggina – Verona.................................... 1:1
Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Ve-
rona og átti þátt í marki liðsins.
Spánn
Valladolid – Athletic Bilbao..................... 2:2
Þýskaland
A-DEILD:
Werder Bremen – Hannover .................. 2:0
Staða efstu liða:
Bayern M. 19 15 3 1 48:7 48
Leverkusen 19 11 4 4 36:23 37
Dortmund 19 10 6 3 43:20 36
E.Frankfurt 19 10 3 6 36:31 33
Mainz 19 9 3 7 27:21 30
Schalke 19 8 5 6 32:29 29
M’gladbach 19 7 8 4 27:27 29
Freiburg 19 7 7 5 24:18 28
Hamburger 19 8 4 7 22:24 28
Hannover 20 8 2 10 38:39 26
W.Bremen 20 7 4 9 32:37 25
B-DEILD:
Aalen – Bochum....................................... 2:2
Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Bochum var
í leikbanni.
Holland
RKC Waalwijk – Heerenveen ................ 0:1
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði
Heerenveen en var tekinn af velli á 58. mín-
útu.
Tyrkland
Akhisar – Kayserispor............................ 1:2
Grétar Rafn Steinsson lék ekki með
Kayserispor vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2012 námu 842 milljónum
króna samanborið við 777 milljónir króna á árinu 2011.
Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ en sambandið birti
ársreikning sinn fyrir árið 2012 í gær. Ársþingið er síðan
haldið næsta laugardag en þar verður stjórn KSÍ, með
Geir Þorsteinsson sem formann, endurkjörin í heild sinni
því engin mótframboð komu fram fyrir tilsettan tíma.
Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af
auknu framlagi frá UEFA. Rekstrarkostnaður KSÍ var
um 795 milljónir króna og var nokkru hærri en áætlun
gerði ráð fyrir.
Ástæður þess eru fyrst og fremst aukinn kostnaður
við landsliðsverkefni sem voru fleiri á árinu en gert var
ráð fyrir.
Rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 48 milljónum
króna, en áætlanir gerðu ráð fyrir rúmlega 63 milljóna
króna hagnaði. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er hagn-
aður af starfsemi KSÍ ríflega 72
milljónir króna.
Styrkir og framlög til aðild-
arfélaga á árinu námu 72 millj-
ónum króna vegna barna- og ung-
lingastarfs, leyfiskerfis og fleira.
Samþykkt áætlun gerði ráð fyrir
styrkjum og framlögum að fjárhæð
77 milljónir króna. Að teknu tilliti
til styrkja og framlaga til aðild-
arfélaga nam hagnaður ársins því
um hálfri milljón króna.
Fjárhags- og eignastaða KSÍ er traust við áramót og
lausafjárstaða góð. Handbært fé hækkar á milli ára og
var nú í árslok um 473 milljónir króna.
Eignir eru metnar á 892 milljónir króna. Eigið fé
KSÍ var ríflega 228 milljónir króna í árslok.
Rekstrarhagnaður KSÍ var 48 milljónir
Geir
Þorsteinsson
Víkingur vann gríðarlega mik-
ilvægan sigur á toppliði
Stjörnunnar, 24:18, í 1. deild
karla í handbolta en keppni
þar hófst aftur á fimmtudag-
inn. Með sigrinum náðu Vík-
ingar að minnka bilið á milli
sín og Stjörnunnar í tvö stig.
Stjarnan er á toppnum með 19
stig, ÍBV í öðru með 18 og Vík-
ingur í því þriðja með 17 stig
eftir sigurinn í gærkvöldi.
Leikurinn í Víkinni í gær var æsispennandi
lengi vel. Jafnt var í hálfleik, 11:11, en það var
undir lokin sem heimamenn sigu fram úr.
Varnarleikur Víkinga lagði grunninn að sigr-
inum en þá var Halldór Rúnarsson í miklu stuði í
Sterkur sigur Víkings
Egill
Björgvinsson
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
„Þetta er mjög leiðinlegt og neyðir
mig til að taka skref afturábak á mín-
um ferli,“ segir Ari Freyr Skúlason,
landsliðsmaður í fótbolta, í viðtali við
Morgunblaðið en sænska B-deild-
arliðið GIF Sundsvall sem hann er á
mála hjá hafnar hverju tilboðinu í
hann á fætur öðru þrátt fyrir loforð
um annað.
Í viðtali við sænska fjölmiðla var
Ari Freyr harðorður í garð forráða-
manna Sundsvall og sagði þá vera
búna að læsa sig inni og henda lykl-
inum. Þeir virðast ætla að neyða Ara
Frey til að spila í B-deildinni sem gæti
haft stórfelld áhrif á hans feril, þá sér-
staklega með landsliðinu.
Svikin loforð
Ari Freyr framlengdi samning sinn
við Sundsvall fyrir rúmu ári þegar lið-
ið vann sér inn sæti í efstu deild. Hann
hefur spilað afbragðsvel fyrir liðið og
ber nú fyrirliðabandið. Þegar hann
samdi aftur vildi hann fá það í samn-
inginn að hann mætti fara ef liðið félli
sem og gerðist.
„Þeir vildu það ekki en það var
komist að samkomulagi um að þeir
þyrftu að taka besta tilboðinu sem
bærist í mig,“ segir Ari Freyr en
Sundsvall getur í raun ákveðið hversu
hátt „besta tilboðið“ þarf að vera og
stýrir því ferlinu algjörlega.
„Þeir vilja fá allt of mikið fyrir mig.
Það er gaman að þeir skuli verðleggja
mig of hátt og hafa trú á mér en þeir
höfðu lofað að hjálpa mér. Þetta eru
einhverjar 3-4 milljónir kannski sem
þeir vilja fá fyrir mig sem er allt of
mikið miðað við að við féllum,“ segir
Ari Freyr.
Arftakinn var í sigtinu
Rúnar Már Sigurjónsson, leik-
maður Vals, sem var einn besti leik-
maður Pepsi-deildarinnar síðasta
sumar, virtist vera ansi nálægt því að
ganga í raðir Sundsvall en ekkert varð
úr því. Með því að selja Ara og fá Rún-
ar hefði sænska félagið auðveldlega
getað fyllt skarðið en peningar virðast
af skornum skammti hjá félaginu.
„Þeir hefðu getað tekið Rúnar fyrir
löngu en svo virðist sem fjárhags-
staðan sé ekki sú besta,“ segir Ari
Freyr sem útskýrir að einhverju leyti
af hverju þeir vilja fá svona mikið fyr-
ir fyrirliðann sinn.
Halda kjafti og fara á æfingu
Ari vill ólmur losna frá Sundsvall til
að passa upp á framtíð sína með
landsliðinu. „Það er mikilvægt fyrir
mig að spila í efstu deild til að halda
sætinu í landsliðinu þar sem ég hef
staðið mig ágætlega,“ segir Ari Freyr
sem er eðlilega hundóánægður með
félagið sem hann hefur sýnt svo mikla
tryggð.
„Þetta er leiðinlegt því ég er búinn
að vera tryggur félaginu í fimm ár og
skrifa undir þrjá samninga. Ég hef
farið upp um deild með því og niður
tvisvar. Ég hef alltaf borið miklar til-
finningar til Sundsvall en þegar svona
gerist er maður fljótur að snúa
blaðinu við,“ segir Ari Freyr sem sér
þó ekki annað í stöðunni en að spila
áfram með Sundsvall.
„Svona getur þetta verið. Nú verður
maður bara að halda kjafti og fara á
æfingu og gera það sem maður er van-
ur að gera. Vonandi get ég losnað í
sumar,“ segir Ari Freyr Skúlason.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Landsliðið Ari Freyr Skúlason er orðinn fastamaður í landsliðshópi Lars Lagerbäck og hann vill ekki detta úr landsliðinu.
Fimm ár af tryggð
launuð með svikum
Ari Freyr Skúlason hefur áhyggjur af landsliðsferlinum
1. deild karla
Fjölnir – Selfoss ....................................18:27
Víkingur – Stjarnan ..............................24:18
Staðan:
Stjarnan 12 8 3 1 354:280 19
ÍBV 11 8 2 1 348:251 18
Víkingur 12 8 1 3 311:262 17
Selfoss 12 7 0 5 316:294 14
Grótta 12 6 0 6 328:316 12
Fjölnir 12 3 1 8 283:346 7
Þróttur 12 2 0 10 275:368 4
Fylkir 11 1 1 9 249:347 3
HANDBOLTI
KFÍ – Tindastóll 92:85
Ísafjörður, Dominos-deild karla:
Gangur leiksins: 6:9, 12:12, 16:15, 22:23,
28:23, 31:30, 38:36, 41:41, 51:45, 58:49,
62:52, 66:58, 70:63, 77:69, 82:74, 92:85.
KFÍ: Damier Erik Pitts 33/8 fráköst/5
stoðsendingar, Kristján Pétur Andrésson
20/5 fráköst, Tyrone Lorenzo Bradshaw
19/6 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 17/15
fráköst, Hlynur Hreinsson 3.
Fráköst: 27 í vörn, 7 í sókn.
Tindastóll: Þröstur Leó Jóhannsson 25,
Roburt Sallie 24/13 fráköst/6 stoðsending-
ar/5 stolnir, George Valentine 12/11 frá-
köst/5 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggós-
son 10/5 fráköst, Svavar Atli Birgisson 5,
Pétur Rúnar Birgisson 3, Sigtryggur Arn-
ar Björnsson 3, Helgi F. Margeirsson 3.
Fráköst: 26 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Krist-
inn Óskarsson, Davíð Tómas Tómasson.
Áhorfendur: 200
KR – Keflavík .................................... 85:100
Staðan:
Grindavík 14 11 3 1362:1230 22
Þór Þ 14 10 4 1289:1168 20
Snæfell 14 10 4 1359:1215 20
Stjarnan 14 9 5 1317:1237 18
Keflavík 14 9 5 1272:1227 18
KR 14 8 6 1202:1191 16
Njarðvík 14 6 8 1222:1205 12
Skallagrímur 14 6 8 1167:1217 12
KFÍ 14 5 9 1216:1357 10
Fjölnir 14 4 10 1152:1282 8
Tindastóll 14 3 11 1117:1224 6
ÍR 14 3 11 1164:1286 6
1. deild karla
Hamar – Reynir S. .............................109:88
Örn Sigurðarson 23/9 fráköst, Jerry Lewis
Hollis 22/16 fráköst, Þorsteinn Már Ragn-
arsson 19. – Reggie Dupree 34/6 fráköst,
Guðmundur Auðunn Gunnarsson 15.
ÍA – FSu.................................................70:68
Hörður Kristján Nikulásson 28/4 fráköst,
Kevin Jolley 14/8 fráköst/6 stolnir, Áskell
Jónsson 10/6 fráköst. – Matthew Brunell
27/11 fráköst, Ari Gylfason 16/5 fráköst.
Þór Ak. – Haukar...............................60:108
Bjarni Konráð Árnason 14, Sindri Dav-
íðsson 8, Darco Milosevic 7/5 fráköst. –
Terrence Watson 27/14 fráköst, Emil
Barja 20/5 fráköst, Elvar Steinn Trausta-
son 12.
Staðan:
Valur 11 11 0 1006:833 22
Haukar 12 9 3 1084:891 18
Hamar 11 8 3 998:875 16
Höttur 11 7 4 952:883 14
Þór Ak. 11 6 5 946:978 12
FSu 12 5 7 993:1036 10
Breiðablik 11 5 6 944:907 10
Augnablik 11 2 9 819:960 4
ÍA 12 2 10 867:996 4
Reynir S. 12 2 10 855:1105 4
Svíþjóð
KFUM Nässjö – Sundsvall ................. 81:76
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 21 stig
fyrir Sundsvall, Hlynur Bæringsson skor-
aði fimm stig og tók tólf fráköst.
Norrköping – Södertälje.....................78:71
Pavel Ermolinskij skoraði tvö stig og
tók tíu fráköst fyrir Norrköping.
NBA-deildin
Oklahoma City – Memphis ............... 106:89
Golden State – Dallas ........................ 100:97
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Austurberg: ÍR – Valur.......................... L16
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Selfoss: Selfoss – HK ........................ L13.30
Mýrin: Stjarnan – Grótta.................. L13.30
Strandgata: Haukar – FH ..................... L16
Varmá: Afturelding – Fylkir ................. L16
1. deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fylkir ........ L13.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Keflavík....... L15
Dalhús: Fjölnir – Haukar ................. L16.30
Grindavík: Grindavík – Valur ........... L16.30
Njarðvík: Njarðvík – KR................... S19.15
1. deild karla:
Kórinn: Augnablik – Breiðablik ............ S18
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Fjölnir – Valur....................... L15
Egilshöll: ÍR – KR.................................. L17
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: KR – Fylkir ............................ S14
Egilshöll: Fjölnir – Valur ....................... S16
Egilshöll: HK/Víkingur – Þróttur R ..... S18
Fótbolta.net mót karla:
Kórinn: Breiðablik – Keflavík .......... L13.30
Akraneshöllin: ÍA – FH ......................... L12
Kórinn: Stjarnan – Víkingur Ó.............. L12
Kórinn: HK – Tindastóll .......................... L9
Kórinn: Aftureld. – BÍ/Bolung.......... S17.15
Faxaflóamót kvenna:
Fífan: Breiðablik – FH...................... L12.30
Schenkervöllur: Grindavík – Álftanes .. L15
Varmárvöllur: Afturelding – ÍBV.......... S14
Norðurlandsmót karla, Kjarnafæðismót:
Boginn: Völsungur – KA ........................ S15
Boginn: Þór – Dalvík/Reynir ................. S17
SKAUTAR
Norðurlandamótið í listhlaupi á skautum
heldur áfram í Egilshöll. Í dag keppa
drengir kl. 12, stúlkur kl. 13.20, unglinga-
flokkur pilta kl. 16.30 og karlaflokkur kl.
18. Á morgun er unglingaflokkur stúlkna
kl. 10.10 og kvennaflokkur kl. 13.20.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands fyrir 15-22 ára fer
fram í Laugardalshöllinni. Keppt er í dag
og á morgun kl. 10 til 16.30.
FIMLEIKAR
Þrepamót FSÍ fer fram í Versölum í Kópa-
vogi, kl. 9-13 og 15-19 í dag og kl. 15-18 á
morgun.
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla:
Akureyri: SA Víkingar – SR............. L19.30
UM HELGINA!