Morgunblaðið - 21.03.2013, Qupperneq 2
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, segist reikna með því
að fyrirtækinu verði lagðar til 40 millj-
ónir dollara á ári eða sem samsvarar
fimm milljörðum króna til að fjár-
magna rannsóknir. Lyfjarisinn Am-
gen keypti fyrirtækið í lok síðasta árs.
Hann segir erfitt að slá því föstu hve
lengi þessi háttur verði hafður á, en
sér fyrir sér að svona verði þetta
næstu tíu árin. Rannsóknir fyrirtæk-
isins kalli á fjárfestingu í ýmsum
tækjum, til að mynda tölvum og bún-
aði til að geyma og greina upplýs-
ingar. „Þegar kemur að innflutningi á
erlendum gjaldeyri erum við mjög
stór aðili,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið.
580 milljónir til
landsins í febrúar
Íslensk erfðagreining kom með 580
milljónir króna í gegnum fjárfesting-
arleið Seðlabankans í febrúar með því
að gefa út skuldabréf. Á síðasta ári fór
fyrirtækið tvisvar fjárfestingarleiðina
og kom með 5,5 milljarða króna til
landsins, líkt og Morgunblaðið hefur
greint frá. Eignarhald fyrirtækisins
var þá með öðrum hætti en um er að
ræða fjármagn sem kemur frá eig-
endum. Þá áttu bandarískir fjárfest-
ingarsjóðir félagið að mestu, en þeir
keyptu fyrirtækið árið 2010.
Fjárfestingarleið Seðlabankans
gengur út á að fjárfestar komi með er-
lendan gjaldeyri til landsins, skipti
honum í krónur og fjárfesti hér til
lengri tíma, en gulrótin fyrir fjár-
magnseigendur er að krónurnar eru
um 20% ódýrari en ef þær hefðu verið
keyptar með hefðbundnum hætti.
Þessi leið er liður í því að reyna að
leysa hinn svokallaða aflandskrónu-
vanda, svo hægt sé að aflétta gjald-
eyrishöftunum.
Bandaríska líftækni- og lyfja-
framleiðslufyrirtækið Amgen keypt
Íslenska erfðagreiningu fyrir 415
milljónir dollara eða 52 milljarða
króna í desember. Íslenska fyrirtækið
var þá að mestu í eigu erlendra fjár-
festa, en 15 starfsmenn áttu lítinn
hlut í fyrirtækinu, þar á meðal Kári
Stefánsson. Fyrirtækið var að mestu
í eigu tveggja bandarískra áhættu-
fjárfestingasjóða, Polaris Ventures
og ARCH Venture Partners, þekktra
fjárfesta í Bandaríkjunum á sviði líf-
tækni. Amgen er meðal stærstu líf-
tæknifyrirtækja í heimi með um 17
þúsund starfsmenn. Íslensk erfða-
greining er rekið sem dótturfyrirtæki
Amgen á Íslandi. Heildartekjur Am-
gen árið 2011 námu tæplega tvö þús-
und milljörðum íslenskra króna, þar
af var 400 milljörðum varið í rann-
sóknar- og þróunarstarf.
Kaupin tryggja fjármögnun ÍE
Þegar tilkynnt var um kaupin sagði
Kári við Morgunblaðið að kaupin
leiddu til þess að búið væri að tryggja
fjármögnun Íslenskrar erfðagrein-
ingar um fyrirsjáanlega framtíð. Það
mundi laða til sín erlendan gjaldeyri.
Kaupin væru mjög jákvæð fyrir ís-
lenskt samfélag. Hann tekur í sama
streng nú í samtali við Morgunblaðið
og nefnir að kaupin séu einhver já-
kvæðustu tíðindin úr íslensku efn-
hagslífi eftir bankahrun.
Sean Harper, yfirmaður rann-
sókna og þróunar hjá Amgen, sagði
við Morgunblaðið að ráðist hefði verið
í kaupin vegna þeirrar þekkingar sem
Íslensk erfðagreining byggi yfir. Litið
væri á kaupin sem langtímafjárfest-
ingu og þeim fylgdi mikil samlegð. Ís-
lensk erfðagreining er sögð hafa sér-
stöðu í rannsóknum í mannerfðafræði
í heiminum.
Morgunblaðið hefur sagt frá því
að fyrirtækið hafi tvisvar áður nýtt
sér þessa leið. Það gaf út 413 milljón
króna skuldabréf í nóvember á síðasta
ári og 5,1 milljarð í febrúar það ár.
40 milljónir dollara verði
lagðar árlega í rannsóknir ÍE
Morgunblaðið/Kristinn
Bandarískur risi Amgen Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Sean Harper,
yfirmaður rannsókna og þróunar hjá Amgen. Amgen keypti Íslenska erfðagreiningu fyrir 415 milljónir dollara.
Fyrirtækið kom með 580 milljónir til landsins í febrúar í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans
Hefur þrisvar farið
fjárfestingarleiðina
»Íslensk erfðagreining
kom með 580 milljónir til
landsins í febrúar í gegnum
fjárfestingarleið Seðlabank-
ans.
»Amgen keypt Íslenska
erfðagreiningu fyrir 415 millj-
ónir dollara eða 52 milljarða
króna í desember, að mestu
af erlendum fjárfestum sem
keyptu fyrirtækið árið 2010.
»Á síðasta ári kom Íslensk
erfðagreining með 5,5 millj-
arða króna í gegnum fjár-
festingarleiðina.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2013
2 VIÐSKIPTI
Aflaverðmæti
íslenskra skipa
nam 160,4
milljörðum
króna á árinu
2012 en var
153,9 millj-
arðar árið
2011. Aflaverð-
mætið hefur
því aukist um 6,6 milljarða eða um
4,3% á milli ára.
Þetta kom fram í tölum Hagstof-
unna í gær.
Aflaverðmæti botnfisks var 96,5
milljarðar, þorskafla 49,5 millj-
arðar, ýsu 12,2 milljarðar, karfa
14,5 milljarðar og ufsa 9,4 millj-
arðar króna.
Aflaverðmæti
160 milljarðar
Þýski bifreiðaframleiðandinn
Volkswagen greindi frá því í gær,
að fyrirtækið hygðist innkalla
384,181 bíl í Kína vegna galla í gír-
kössum þeirra.
Breska ríkisútvarpið, BBC
greindi frá því í gær, að í síðustu
viku hefði kínverska ríkissjón-
varpið sýnt kínverska Volkswagen-
eigendur sem greindu frá því að
þeir hefðu skyndilega upplifað
ákveðna hraðaaukningu í bílum sín-
um, jafnframt því sem vélarnar
hefðu misst kraft.
Volkswagen framleiðandinn út-
skýrði að beinskipting í gírkössum
Volkswagen bílanna gæti orðið fyr-
ir straumrofi og þeir misst þannig
kraft. Ökumenn misstu þó ekki
stjórn á bílunum og gætu stöðvað
þá.
Kína er stærsta einstaka mark-
aðssvæði Volkswagen. Innköllunin
mun hefjast þann 2. apríl næstkom-
andi og í yfirlýsingu frá Volkswag-
en í gær kom fram að meðal teg-
unda sem yrðu innkallaðar í Kína
væru Volkswagen Passat,
Volkswagen Bora, Volkswagen To-
uran og Volkswagen Golf.
Volkswagen er í samstarfi við tvö
kínversk bílaframleiðslufyrirtæki í
Kína, SAIC Motor og FAW Group.
Volkswagen seldi 2,8 milljónir
bíla í Kína í fyrra og áform eru uppi
um að selja fjórar milljónir á ári.
Volkswagen innkallar
384 þúsund bíla í Kína
Stærsta innköllun í sögu Volkswagen í Kína Framleiðslugalli í gírkassa
AFP
Innköllun Volkswagen innkallar 384 þúsund bíla í Kína.
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Agnes
Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.//
+01.,0
+,,.-2
,+.223
,+.-34
+0.-+-
+4,.32
+.4+/3
+33.-0
+/,.45
+,-.0/
+01.2-
+,,.04
,+.35,
,+./52
+0.-2,
+44.,5
+.4,12
+30.+-
+/,.20
,,,.5+53
+,/.,/
+0+.,+
+,4.,0
,+.01/
,+.2++
+0./,0
+44./+
+.4,5/
+30.2+
+/4.,5
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands ákvað í gær að halda
vöxtum bankans óbreyttum eða í
7%.
Fyrstu mælingar á hagvexti
síðasta árs sýna minni vöxt en
spáð var í febrúar síðastliðnum,
segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Hagvöxtur á árinu 2011 hefur
aftur á móti verið endurmetinn
til hækkunar. Áfram eru horfur á
hægum efnahagsbata. Verðbólga
reyndist töluvert meiri í febrúar
en reiknað hafði verið með. Á
móti vegur hækkun á gengi
krónu í febrúar.
Halda stýrivöxt-
um óbreyttum
Vélstjóri
Ísfélag Vestmannaeyja hf. óskar eftir
að ráða vélstjóra í frystihús félagsins
á Þórshöfn.
Helstu verkefni:
• Almenn vélstjórn og eftirlit með vélbúnaði
• Umsjón með frystikerfi og vinnslubúnaði í frystihúsi
• Þátttaka í viðhald og nýframkvæmdum
• Umsjón með lager og innkaupum
Hæfni og menntun:
• Reynsla af vélstjórn nauðsynleg
• Vélstjóramenntun er æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar og snyrtimennska
• Rík ábyrgðarkennd
Í frystihúsi félagsins á Þórshöfn er rekinn öflug vinnsla á
uppsjávarfiski og bolfiski.
Ítarleg starfsferilsskrá skal fylgja umsóknum. Umsóknir skulu
sendast á siggeir@isfelag.is. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf fljótlega.
Nánari upplýsingar veitir Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri
í síma 894-2608.