Morgunblaðið - 21.03.2013, Page 4
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
■ Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
■ Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn
– alla daga ársins.
■ Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
■ Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
62
68
8
0
2
/2
01
3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2013
4 VIÐSKIPTI
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Uppgangurinn í Asíu hefur áhrif víða. Í vest-
urhluta Ástralíu hefur námavinnsla ýtt undir
meiri velmegun en þar hefur áður þekkst.
Gina Rinehart er í hópi þeirra, sem mest hafa
hagnast á uppsveiflunni. Hún er eigandi fyr-
irtækisins Hancock Prospecting og hefur veg-
ur hennar farið vaxandi á umliðnum árum. Ár-
ið 2010 var hún ríkasta kona Ástralíu
samkvæmt vikulega viðskiptablaðinu BRW,
árið 2011 var hún ríkasti maður Ástralíu og
2012 ríkasta kona heims. Var auður hennar þá
metinn á hartnær 30 milljarða dollara (3.788
milljarða króna).
Rinehart býr í Perth, höfuðborg Vestur-
Ástralíuríkis. Hún er 58 ára ekkja og á fjögur
börn, forðast fjölmiðla og sést sjaldan op-
inberlega. Hún er mjög viðkvæm fyrir um-
fjöllun um sig og hún er ekki lítil. Í grein um
hana eftir William Finnegan í vikuritinu New
Yorker segir að Ástralar séu með Rinehart á
heilanum ef marka megi allt það blek, klukku-
tíma í ljósvakamiðlum, pláss á vefsíðum, texta
popplaga og umræðu á krám, sem snýst um
hana. Þar segir að hún sé viðkvæmust fyrir
tvennu, annars vegar að hún sé kölluð erfingi
auðæfa sinna, hins vegar að arfleifð föður
hennar, Lang Hancock, sé ekki metin að verð-
leikum.
Hancock hóf starfsævi sína sem bóndi,
asbestnámamaður og málmleitarmaður í Pil-
bara í norðvesturhluta Ástralíu. Dag einn var
hann á flugi á afskekktum slóðum í úrhelli, að
því er sagan segir, og sá þá hvernig ryðrauður
litur kom fram á blautum klettaveggjum. Lit-
urinn var vísbending um járn. Hancock sneri
aftur og varð þessi fundur upphafið að vel-
gengni hans.
Náin feðgin sem sinnaðist
Gina var hans eina barn og feðginin voru mjög
náin framan af. Hún fékk frá honum áhugann
á námavinnslu og Pilbara. Gina giftist tvisvar,
eignaðist tvö börn með fyrri manninum og tvö
með þeim síðari, Frank Rinehart, bandarísk-
um lögmanni, sem var 37 árum eldri en hún og
hafði verið sviptur lögmannsréttindum í
Bandaríkjunum fyrir skattsvik. Lang Han-
cock mun hafa verið tortrygginn í garð
tengdasonarins frá upphafi og talið að hann
ásældist fyrirtæki sitt. Ekki skánaði sam-
bandið milli feðginanna þegar Hope Hancock,
móðir Ginu, lést og faðir hennar tók saman við
Rose Lacson, unga heimilishjálp frá Filipps-
eyjum sem Gina hafði ráðið. Hancock kvænt-
ist Larson, reisti henni höll, sem hann nefndi
Prix d’Amour. Brúðkaupsferðin var heims-
reisa í einkaþotunni hans.
Árið 1990 lést Frank Rinehart og tveimur
árum síðar var Lang Hancock allur. Við tók 11
ára þref um eignir Hancocks milli Ginu og
stjúpmóður hennar. Reyndi Gina meðal ann-
ars að færa sönnur á að hún hefði verið völd
að dauða föður síns. Fjölmiðlar veltu sér upp
úr málinu og var ekkert smáatriði of ómerki-
legt til að smjatta mætti á því. Að lokum fékk
Rose að halda nokkrum eignum, en Rinehart
fékk öll yfirráð yfir Hancock Prospecting þar
sem arðgreiðslurnar streymdu inn.
Fyrirtækið er ekki stórt. Þar starfa um
40 manns. Fyrir utan að taka á móti arð-
greiðslum fyrir námaréttindi leitar það að
málmum, nær í námaréttindi og gerir samn-
inga um vinnslu. Þegar faðir Ginu Rinehart
lést var fyrirtækið metið á 75 milljónir dollara.
Að auki voru réttargreiðslur frá Rio Tinto frá
því að faðir hennar fann járnæðarnar í úrhell-
inu. Með aukinni framleiðslu og hækkandi
járnverði hafa þær greiðslur vaxið verulega.
Þá erfði Rinehart eða náði sér í réttindi til
umfangsmikillar málmvinnslu í Pilbara, sem
talin eru ná til margra milljarða tonna af vinn-
anlegu járngrýti. Hún á öll hlutabréfin í fyr-
irtækinu. 2011 var gerður listi yfir tíu um-
fangsmestu námaverkefnin í bígerð og voru
þrjú þeirra á vegum Rinehart.
Réttinn til tveggja af þessum námaverk-
efnum seldi hún indversku fyrirtæki. Því
þriðja ætlar hún að fylgja eftir sjálf. Þar er
um að ræða námu, sem hún er nú að undirbúa
í Roy Hill í Pilbara og ætlar að reka og láta
draum föður síns rætast. Talið er að náman
muni gefa af sér í tuttugu ár. Samkvæmt nýj-
asta lista Forbes er Rinehart nú sjötta ríkasta
kona heims og ræður því verð á járni, sem
hefur lækkað þótt nú sé það á uppleið á ný.
Gangi fyrirætlanir hennar í Roy Hill eftir gæti
hún hins vegar orðið ríkasti maður heims þar
sem hún á öll hlutabréfin í Hancock Prospect-
ing.
Finnegan segir í New Yorker að vissu-
lega hafi hún notið arfs síns, en hún hafi
margfaldað verðmæti hans með því að leggja
hart að sér og vera útsjónarsöm auk þess að
njóta sögulegra aðstæðna. Karlkyns erfingjar
auðugra feðra sinna þurfi ekki að hlusta á
sama söng og hún, segir hann hins vegar og
bendir á Lachlan Murdoch, son fjölmiðla-
kóngsins Rupert Murdochs, sem dæmi.
Börnin fara í mál við móður sína
Finnegan lýsir því að erfitt sé að fá fólk til að
ræða Rinehart. Hún sigi lögfræðingum á
hvern þann, sem baktali hana og fyrrverandi
starfsmenn eru látnir skrifa undir þagn-
arsamkomulag þess efnis að þeir muni aldrei
ræða hana eða fyrirtækið við fjölmiðla.
Það hlýtur því að vera erfitt fyrir hana að
horfa upp á þá umfjöllun, sem verið hefur um
deilur hennar við börn sín um fjölskylduauð-
inn. Um þessar mundir er hún í sátt við
yngstu dóttur sína, en á í átökum við hin börn-
in þrjú, sem hafa stefnt móður sinni til að fá
yfirráð yfir sjóði, sem afi þeirra stofnaði fyrir
þau í nafni ömmu þeirra. Lang fyrirskipaði að
Rinehart skyldi stjórna sjóðnum þar til yngsta
barnabarnið yrði 25 ára. Í sjóðnum eru tæp-
lega 24% af Hancock Prospecting að andvirði
nokkrir milljarðar dollara.
Rinehart framlengdi hins vegar umboðið
til 2068, að sögn af skattaástæðum. Þá verður
elsti sonur hennar, John, 92 ára gamall. Son-
urinn var svo reiður að hann fór og fékk útrás
í fjölmiðlum. Síðan hefur ýmislegt óþægilegt
komið í ljós í kringum málaferlin og verið
slegið upp í fjölmiðlum.
Ríkidæmi járnfrúarinnar
Gina Rinehart var í fyrra metin auðugasta kona heims og gæti orðið ríkasti maður heims gangi námaáætlanir eftir Uppgangurinn í Asíu
undirstaða velmegunar kringum námavinnslu í Ástralíu Reynir að forðast fjölmiðla en er á allra vörum Margfaldaði arfinn eftir föður sinn
AFP
Auður og völd Gina Rinehart talar á fundi í Perth 2010. Hún var í fyrra sögð auðugusta kona
heims og gæti orðið mesti auðkýfingur heims gangi fyrirætlanir hennar um námavinnslu eftir.
Gina Rinehart getur verið ómyrk í
máli. Í viðtali í fyrra sagði hún að það
væri „engin einokun á að verða millj-
ónamæringur“ og bætti við: „Ef þú
öfundar þá sem eiga meiri peninga,
ekki sitja og kvarta, gerðu eitthvað til
að eignast sjálf meiri peninga, eyddu
minni tíma í að drekka, reykja eða
stunda félagslíf og meiri tíma í að
vinna.“
2010 ætlaði Verkamannaflokkurinn
að setja ofurskatt á námagróða. Ri-
nehart og félagar hennar settu af
stað fordæmalausa fjölmiðlaherferð
gegn skattinum. Hægri armur flokks-
ins lét Kevin Rudd forsætisráðherra
fara og í hans stað kom Julia Gillard,
sem útþynnti skattinn svo að enn
hafa tvö stærstu námafélög landsins
ekki borgað krónu. Rinehart byrjaði
2010 að fjárfesta í fjölmiðlum og á nú
tæp 20% í Fairfax Media, næst
stærsta fjölmiðlafyrirtæki Ástralíu á
eftir Newscorp, sem er í eigu Ruperts
Murdochs.
Eyddu minni tíma í að drekka og reykja
AUÐKÝFINGUR ÁVARPAR ÞÁ SEM ÖFUNDA MILLJÓNAMÆRINGA
Járnnám í Ástralíu.