Morgunblaðið - 21.03.2013, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2013
10
Við bjóðum upp á ALHLIÐA LAUSNIR
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Kerfisveggir frá DEKO•
Felliveggir•
Stofnanahurðir•
Skrifstofuhúsgögn•
Alhliða sérsmíði•
fyrir fyrirtæki
Framtíðin er á netinu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Reksturinn hjá leikjafyrirtækinu
Plain Vanilla var ekki alltaf dans á
rósum. Þegar virtist fokið í flest skjól
gripu aðstandendur fyrirtækisins til
ævintýralegs örþrifaráðs, héldu af
stað til Kaliforníu og tókst á undra-
verðan hátt að tryggja rekstrinum
fjármögnun að jafnvirði um 150
milljónir króna.
Í dag er mikill uppgangur hjá
Plain Vanilla sem m.a. á í samstarfi
við stór kvikmyndaver í Hollywood
og sló nýverið í gegn með leik um
Twilight-seríuna.
Þorsteinn Baldur Friðriksson
segir söguna: „Ég sný aftur til Ís-
lands árið 2010 eftir nám í Bretlandi,
áhugasamur um að stofna fyrirtæki
sem gæti átt erindi við alþjóðlega
markaði. Spjaldtölvur og snjallsímar
voru þegar orðin mál málanna á
þessum tíma og spennandi markaður
fyrir fyrirtæki hvar sem er í heim-
inum. Úr varð að Plain Vanilla var
stofnað og fyrsta verkefnið varð leik-
urinn „The Moogies“.
Ris og fall Moogies
The Moogies leit dagsins ljós árið
2011 en leikurinn var einkum hugs-
aður fyrir yngsta aldurshópinn.
Framan af gekk leikurinn vel á
markaði. „Mikið af orku og fjár-
munum hafði farið í að gera þennan
leik og viðtökurnar voru góðar. Við
störfuðum með góðu útgáfufyrirtæki
og vorum á forsíðu app-búðarinnar í
um tvær vikur. En svo gerist það að
við hverfum af forsíðunni hjá Apple
og þá gjörsamlega hrynur salan. Það
var þá sem við lærðum dýrmæta
lexíu um hversu margir eru um hit-
una í þessum heimi, hversu miklu
máli sýnileikinn skiptir og hversu of-
boðslega erfitt það getur verið að ná
til neytenda um leið og leikur dettur
út af topp-tíu listum app-verslana,“
segir Þorsteinn.
Það var á þessum tímapunkti
sem aðstandendur Plain Vanilla urðu
annaðhvort að duga eða drepast.
„Við fórum að velta fyrir okkur nýj-
um möguleikum og leituðum m.a. að
leikjalausn sem gæti verið skalanleg.
Ákveðið var að búa til spurninga-
leikja-umhverfi fyrir snjallsíma þar
sem fólk getur keppt á móti öðrum í
rauntíma. Þetta reyndist vera alveg
ný nálgun því þó að mikið sé af
spurningaleikjum þar sem leikmað-
urinn keppir á móti sjálfum sér hefur
snjallsíma- og spjaldtölvuheiminn
vantað spurningaleiki þar sem leik-
maðurinn fær lifandi andstæðing til
að etja kappi við.“
Vogun vinnur
Þorsteinn segir félagana hafa leitað
að fjármagni fyrir reksturinn hér á
landi en gengið mjög treglega. „En
okkur fannst hugmyndin góð og
sáum að núna var ekkert annað í
stöðunni en að leggja allt undir eða
loka sjoppunni. Sú fífldjarfa hug-
mynd kviknaði að við þyrftum ein-
faldlega að komast í hjarta tækni-
heimsins í Sílíkondal til að láta
hlutina gerast. Það var fyrir u.þ.b.
ári að við keyptum þrjá þriggja mán-
aða flugmiða til San Francisco undir
sjálfan mig og tvo forritara. Þessa
þrjá mánuði ætluðum við að nota til
að klára að forrita leikinn okkar og
afla fjármagns.“
150 milljónir króna á þremur
mánuðum er heldur betur góður ár-
angur og myndu margir frumkvöðlar
á Íslandi prísa sig sæla að geta
krækt í mun minni upphæð á mun
lengri tíma. Þorsteinn segir tímann í
Kaliforníu þó hafa verið erfiðan og
hafi það bæði kallað á mikla vinnu og
mikla heppni að ná í áhugasama fjár-
festa. „Ég hélt fyrst að við værum
með svo góða hugmynd að Sílíkon-
dalur myndi hreinlega leggja út
rauða dregilinn fyrir okkur en sú
varð ekki raunin. Mjög margir eru
um hituna, erfitt að standa upp úr og
ég hugsa að ég hafi átt um 200-300
fundi með fjárfestum þegar allt er
talið. Stundum þurfti maður hrein-
lega að svindla sér inn á fundi eða
rekast „óvart“ á fólk á förnum vegi
til að komast að.“
Að baki fjármögnun Plain Van-
illa standa nú 20 fjárfestingarfyr-
irtæki héðan og þaðan: frá Singapúr,
London, Kína, New York og svo auð-
vitað Sílíkondal. „Við héldum hróð-
ugir heim, gátum byrjað að ráða fólk,
erum núna með 11 manns í vinnu og
mörg járn í eldinum. Dvölin í Kali-
forníu var einnig notuð til að selja
vöruna og gerðum við samninga við
kvikmyndaverin um leiki eins og
Standa mun betur að vígi með
annan fótinn í San Francisco
Lögðu af stað til Sílíkondals upp á von og óvon og tókst að afla um 150 milljóna Umgjörðin utan um fjárfestingu í sprota-hugbúnaðarfyrirtækjum
mun betri í Kaliforníu en á Íslandi og hugarfarið allt annað Fjárfestar hafa mikinn áhuga á nýju verkefni sem tvinnar saman leiki og samfélagsvef
Morgunblaðið/Rósa Braga
Erfiði „Mjög margir eru um hituna, erfitt að standa
upp úr og ég hugsa að ég hafi átt um 200-300 fundi
með fjárfestum þegar allt er talið. Stundum þurfti
maður hreinlega að svindla sér inn á fundi eða rek-
ast „óvart“ á fólk á förnum vegi til að komast að,“
segir Þorsteinn Baldur Friðriksson um það þegar
hann hélt ásamt tveimur forriturum í óvissuerð til
Sílíkondals til að bjarga fjármögnun fyrirtækisins.