Morgunblaðið - 21.03.2013, Qupperneq 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 2013
Twilight-spurningaleikinn. Gekk það
verkefni hreint ótrúlega vel og erum
við þegar komnir með hátt í milljón
skráða notendur í kerfinu okkar.“
Samfélagsvefur í fæðingu
Í gegnum þróunarvinnuna segir Þor-
steinn að Plain Vanilla hafi uppgötv-
að nýja möguleika og verður spurn-
ingaleiks-grunnurinn þróaður í
áhugaverða átt. „Næsta skref er að
búa til n.k. samfélagsvef sem byggist
á því að tengja fólk í gegnum sameig-
inleg áhugamál. Hugsunin er sú að í
nútímasamfélagi rekumst við mörg á
þann þröskuld að eiga erfitt með að
kynnast nýju fólki og geta leikir í
kringum sameiginleg áhugamál ver-
ið góður ísbrjótur. Þannig gæti t.d.
áhugamaður um knattspyrnu notað
snjallsímaleiki frá Plain Vanilla til að
leika við og komast í kynni við fólk í
sínu næsta nágrenni – eða í öðrum
löndum ef því er að skipta – sem deil-
ir áhuganum á fótbolta,“ útskýrir
Þorsteinn. „Þessi nýstárlega nálgun
á samfélagsnet hefur skapað mikinn
spenning meðal fjárfesta í Banda-
ríkjunum og erum við nú þegar langt
komnir með tryggja enn meira fjár-
magn til þess að standa undir slíku
verkefni.“
Plain Vanilla náði mjög góðum ár-
angri við að afla fjármagns í Kali-
forníu og segir Þorsteinn ekki úti-
lokað að fleiri íslensk
hugbúnaðarfyrirtæki geti notað
sömu aðferð til að sækja sér bak-
hjarla. Hann segir einn helsta
veikleika íslenska hugbún-
aðargeirans hvað aðgangur
sprotafyrirtækja að fjármagni er
erfiður. Það geri Bandaríkin líka
að meira spennandi stað að þar
virðist annað hugarfar meðal fjár-
festa og einnig að allt annað
form er á því hvernig peningar
eru lagðir inn í sprotarekstur.
Þorsteinn útskýrir: „Við fund-
um það greinilega hér á Íslandi
að áhugi fjárfesta minnkaði hratt
þegar við sögðum þeim frá að
okkar fyrsti leikur hefði ekki sleg-
ið í gegn. Á meðan það að eiga
misheppnuð verkefni að baki er
neikvætt á Íslandi er það jákvætt
í Bandaríkjunum og má nánast
segja að fjárfestar vilja helst ekki
veita frumkvöðlum peninga nema
þeir eigi a.m.k. nokkur mistök að
baki. Á fundum með íslenskum
aðilum var Moogies-leikurinn
feimnismál og veikleiki en á fund-
um í Kaliforníu var Moogies verð-
mæt reynsla og styrkleiki til að
vera stoltur af.“
Hvað fær fjárfestirinn?
Þá segir Þorsteinn að vestanhafs
sé grunnfjármögnun sprotafyr-
irtækja í hugbúnaðargeira nær öll
með sama sniði og umgjörðin
mjög skýr, skilvirk og sniðug fyrir
alla sem að rekstrinum koma. „Á
Íslandi er það vaninn að fjárfestar
leggja fram fjármagn sem hlutafé
og vilja fá í staðinn ákveðna pró-
sentu, ákveðinn eignarhlut í
rekstrinum. Þar strax kemur upp
mikill vandi við að reikna út virði
fyrirtækisins. Ef íslenskum fjár-
festi væri boðið að leggja fram
100 milljónir í sprotarekstur yrði
hreinlega hlegið að því ef honum
yrði boðinn 20% hlutur í staðinn
enda með því verið að segja að
splunkunýtt sprotafyrirtæki með
2-3 starfsmenn sé í raun 500
milljóna virði. Það sem vill þá
gerast er að eignarhlutur frum-
kvöðlanna verður oft að engu,
minna svigrúm verður eftir til að
laða að fleiri fjárfesta á seinni
stigum og góðar hugmyndir kom-
ast ekki á flug,“ segir Þorsteinn.
„Í Bandaríkjunum er svona starf-
semi fjármögnuð með s.k. „seed
round“ og þar er öllu verðmati á
sprotafyrirtækinu frestað. Pen-
ingarnir eru teknir inn sem breyt-
anleg skuld sem síðan breytist í
hlutafé með ákveðnum afslátt-
arkjörum þegar reksturinn er
kominn almennilega á legg. Þeir
sem voru fyrstir inn fá þá betri
kjör og fá þannig meira fyrir sinn
snúð en þeir sem lögðu til fjár-
magn á seinni stigum.“
Umgjörðin öll er líka einfaldari í
Bandaríkjunum. „Maður fær
kannski 15-20 mínútna fund með
hverjum fjárfesti og þarf heldur
betur að kunna að koma hug-
myndinni til skila og vekja áhuga.
En svarið fæst líka oft strax á
fundinum eða í síðasta lagi
næsta dag. Þegar sótt er um
styrk í íslenskum nýsköpunarsjóði
er það ferli sem reikna má með
að taki marga mánuði þar til loks
að endanleg niðurstaða liggur
fyrir.“
Ísland verður að breytast
REYKJAVÍK OG SÍLÍKONDALUR EINS OG SVART OG HVÍTT
Plús Stærðfræðileikur Plain Vanilla þykir vel heppnaður.
Það eitt að vera Íslendingur dugir ekki til að heilla fjár-
festana í Kaliforníu upp úr skónum. Þorsteinn segir
hugbúnaðarheiminn vestanhafs ekki tengja Ísland neitt
sérstaklega við framúrskarandi forritun eða frum-
kvöðlastarfssemi. „Á fyrstu fundunum reyndi ég þenn-
an vinkil: að tala um Ísland, tungumálið og náttúruna,
en það var ekkert að virka og áherslan færðist fljótt al-
farið yfir á viðskiptahugmyndina.“
Íslendingar segir Þorsteinn að hafi þó þann styrk-
leika að geta oft leitað til annarra Íslendinga í útlönd-
um um aðstoð og ráð. „Það hjálpar okkur á vissan hátt
hvað við höldum sjálf að við séum, frábær og sækjumst
þess vegna eftir því að umgangast aðra Íslendinga“
segir Þorsteinn og hlær. „Við komumst fljótt í samband
við marga Íslendinga á svæðinu sem voru boðnir og
búnir að leggja okkur hjálparhönd, aðstoðuðu okkur við
að komast í samband við rétta fólkið og fá boltann til
að rúlla.“
Þorsteinn ráðleggur öðrum hugbúnaðarfyrirtækjum
að fara ekki sömu leið nema með góðri aðstoð. „Ef ég
hefði vitað hvað þetta ætti eftir að verða erfitt og
áhættusamt hefði ég sennilega ekki þorað að taka
stökkið á sínum tíma. Að miklu leyti vorum við heppnir
að komast í samband við rétta fólkið sem svo kom okk-
ur að hjá réttu fjárfestunum og fyrirtækjunum. Þeir
sem vilja freista gæfunnar í Sílikondal ættu a.m.k. að
finna einhvern sem hefur reynslu af þessum heimi til
að greiða brautina þegar komið er á staðinn.“
Komast upp með ýmisegt með íslensku klíkunni
ORÐSPOR ÍSLENSKRA FORRITARA NÆR EKKI ALLA LEIÐ TIL VENICE BEACH
Vampírur Skjáskot af Twilight leiknum.
AWorld of Service
Við erum í hádegismat
Við bjóðumupp á hollan og
góðan hádegisverð alla virka
daga fyrir fjölbreyttan hóp
viðskiptavina.
Þrjá daga vikunnar
bjóðum við að auki upp á
grænmetisrétt – til að
mæta þörfum semflestra.
Skoðaðumatarmálin hjá
þér og vertu í samband við
veitingasvið ISS.
www.iss.is - sími 5 800 600.
”Hádegið er
hápunktur
dagsins
hjá okkur”
Skipholt 17 - 105 Reykjavík Sími 588 4699 Fax 588 4696 www.oba.is oba@oba.is
Þjónusta til
frambúðar.....
olivetti
Lita-fjölnotatækið
D-COLOR MF2604EN
Kr. 281.900
Með Olivetti d-Color
MF2604EN fjölnota-
tækinu má prenta,
ljósrita, skanna og
senda fax, allt með
sama tækinu.
Sérlega hentugt
fyrir deild innan
fyrirtækis. Hagvæmt
í rekstri
MARS
TILBOÐ
kr. 249.74
2