Morgunblaðið - 06.03.2013, Page 1
Morgunblaðið/Ómar
Noregur Gunnar Magnússon verður allavega eitt ár til viðbótar í Noregi.
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Þetta var einföld ákvörðun, ekki síst
þar sem það er alltaf auðveldara að
taka ákvörðun um að vera um kyrrt
með fjölskyldu en að flytja sig um set,“
sagði Gunnar Magnússon, þjálfari
norska handknattleiksliðsins Kristian-
sund HK sem hefur skrifað undir eins
árs samning við félagið með möguleika
á eins árs framhaldi að ári liðnu ef
áhugi verður fyrir hendi. Gunnar hef-
ur fundið fyrir áhuga frá öðrum fé-
lögum og m.a. hefur Morgunblaðið
heimildir fyrir því að úrvalsdeildarliðið
Bodö hafi átti í alvarlegum viðræðum
við Gunnar í vetur.
Gunnar hefur þjálfað liðið síðustu
þrjú árin. Á þeim tíma hefur það flust
upp úr 2. deild upp í toppbaráttu í 1.
deild og ekki er loku fyrir það skotið
að Kristiansund HK fari alla leið upp í
úrvalsdeild í vor.
Auðveldar landsliðsvinnuna
„Ég er heldur ekki búinn með það
verkefni sem ég tók að mér hjá félag-
inu fyrir þremur árum. Mig langar að
ljúka því að koma liðinu upp í úrvals-
deild áður en ég ræ á önnur mið,“
sagði Gunnar sem heldur einnig áfram
að vera aðstoðarlandsliðsþjálfari
karlalandsliðs Íslands en við því starfi
tók hann í haust.
„Það má segja að það auðveldi mér
einnig að vinna með landsliðinu að
vera hjá liði sem er í 1. deild. Hjá
Kristiansund hef ég góðan tíma til
þess að sinna starfi mínu með landslið-
inu. Forráðamenn félagsins eru afar
liðlegir við mig í þeim efnum,“ sagði
Gunnar.
Kristiansund er sem stendur í
fjórða sæti deildar en keppni er afar
jöfn og hörð á milli þeirra sem eru nú í
öðru til sjötta sæti, aðeins munar
þremur stigum á liðinu í öðru sæti og
því sjötta. „Við verðum að vinna alla
þá leiki sem við eigum eftir auk þess
að treysta á hagstæð úrslit í leikjum
annarra liða til þess að fara upp í úr-
valsdeildina í vor. Að sjálfsögðu mun-
um við leggja allt í sölurnar til þess að
tryggja okkur sæti í úrvalsdeildinni en
takist það verður enginn heimsendir.
Þá höldum við áfram að byggja upp og
komum sterkari til leiks á næstu leik-
tíð,“ segir Gunnar sem reiknar með að
styrkja liðið í sumar, hvort sem það fer
upp í úrvalsdeildina eða situr eftir.
Fjórir Íslendingar í liðinu
Fjórir íslenskir handknattleiks-
menn hafa leikið með Kristiansund í
vetur, Birkir Fannar Bragason, mark-
vörður, Jónatan Þór Magnússon, Pét-
ur Pálsson og Sigurgeir Árni Æg-
isson. Gunnar segist ekki eiga von á
öðru en að þeir haldi allir áfram að
leika með liðinu. Fimmti Íslending-
urinn, Ragnar Hjaltested, hefur hins-
vegar ekkert verið með í vetur vegna
hnémeiðsla. „Ragnar hefur verið mjög
óheppinn og verður sennilega að
leggja skóna á hilluna vegna brjó-
skeyðingar í hné,“ sagði Gunnar
Magnússon, þjálfari Kristiansund HK.
„Var einföld ákvörðun“
Gunnar Magnússon samdi til eins árs við Kristiansund með möguleika á
framlengingu Langar að ljúka við verkið og koma liðinu í úrvalsdeildina
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Þetta er svo sem engin óskastaða
að vera í en eins og Miðjan söng þá
verður maður að vera tilbúinn að
deyja fyrir klúbbinn þegar leitað er
til manns,“ sagði Finnur Freyr Stef-
ánsson, þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær. Finnur þjálfar
kvennalið KR í körfuboltanum en er
nú einnig orðinn aðstoðarþjálfari
karlaliðs KR, og kannski rúmlega
það, því Helgi Már Magnússon er
spilandi þjálfari hjá karlaliðinu.
„Það vildi sjálfsagt enginn að
málin þróuðust á þennan veg en ár-
angur karlaliðsins hefur ekki verið
eftir væntingum. Menn virðast því
hafa ákveðið að
grípa í taumana af
þeim sökum,“
bætti Finnur við.
Hann mun stjórna
æfingum hjá KR
meðal annars til
þess að Helgi geti
betur einbeitt sér
að spilamennsk-
unni. „Ég kem inn
í þetta og stýri æf-
ingunum. Helgi hefur ekki náð að
finna sig sem spilandi þjálfari og
mitt hlutverk er að minnka hans
ábyrgð í þessu daglega amstri og á
æfingum og í leikstjórn í leikjum.
Hann verður hins vegar áfram að-
alþjálfari liðsins og áfram verður
farið eftir hans áherslum. Ég mun
koma að mínum áherslum að ein-
hverju leyti að en við reynum að
byggja á því sem vel var gert fyrir
og reyna að bæta við.“
Finnur hefur starfað nokkuð
lengi hjá KR og hefur til að mynda
þjálfað yngra flokka hjá félaginu í
mörg ár og hefur auk þess verið
með leikmenn á séræfingum. „Það
er svo sem fordæmi fyrir þessu hjá
KR að þjálfari sé með aðkomu að
báðum meistaraflokksliðunum. Ég
er reyndar í aðeins annarri stöðu en
Hrafn Kristjánsson var í þegar
hann var aðalþjálfari beggja liða.
Ég er aðalþjálfari kvennaliðsins en
kem að karlaliðinu sem aðstoð-
arþjálfari. Í þessari viku á kvenna-
liðið leik á morgun (í kvöld) og
karlaliðið á leik á fimmtudag (á
morgun) og þá mun ég sleppa æf-
ingunni hjá körlunum á morgun (í
kvöld) og einbeita mér að kvenna-
leiknum.
Það er mikill skilningur á minni
aðstöðu hjá báðum liðum og ég er
mjög þakklátur fyrir þann stuðning
sem stelpurnar hafa sýnt þessu.
Þær skilja þetta og vita að ég með
mitt KR-hjarta gat einfaldlega ekki
sagt nei þegar klúbburinn leitaði til
mín og bað mig um þetta. Eins og
við höfum sett þetta upp þá ætti
þetta ekki að hafa nein áhrif á stelp-
urnar enda eru markmið okkar
skýr. Ég kem náttúrlega bara inn í
þetta hjá karlaliðinu á lokasprett-
inum og geri eins og ég get til að
hjálpa félaginu mínu. Það kemur í
ljós hvort ég get gert eitthvað til að
bæta leik liðsins. Eins og staðan er
núna þá er aðkoma mín að karlalið-
inu bara fram á vorið en maður veit
svo sem aldrei hvað gerist,“ sagði
Finnur Freyr Stefánsson í samtali
við Morgunblaðið.
„Engin óskastaða að vera í“
Finnur Freyr
Stefánsson
Þjálfun tveggja liða
» Fordæmi eru fyrir því hjá KR
að sami þjálfari sé með bæði
meistaraflokksliðin en það
gerði Hrafn Kristjánsson tíma-
bilið 2010 – 2011.
» Þrír kunnir þjálfarar þjálfa
tvö meistaraflokkslið í vetur en
það eru þeir Ágúst Björg-
vinsson Val, Ingi Þór Stein-
þórsson Snæfelli og Sigurður
Ingimundarson Keflavík.
Finnur Freyr Stefánsson sagði KR-hjartað ekki hafa leyft sér að segja nei Skilningur á hans
stöðu hjá báðum meistaraflokksliðunum Finnur vitnar í Miðjuna, stuðningsmannakjarna KR
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013
ÍÞRÓTTIR
United úr leik Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Real Madrid
á heimavelli í gærkvöldi. Portúgalinn Nani sá rautt í seinni hálfleik fyrir afar litlar sakir. 3
Íþróttir
mbl.is
Katrín Jóns-
dóttir, fyrirliði
íslenska kvenna-
landsliðsins í
knattspyrnu,
hefur leikið alla
32 leiki Íslands í
Algarve-
bikarnum frá
upphafi. Hún er í
íslenska liðinu
sem mætir Ól-
ympíumeisturum Bandaríkjanna á
fyrsta leikdegi mótsins í Portúgal á
morgun.
Katrín var 18 ára gömul þegar
hún var í íslenska liðinu sem tók
fyrst þátt í mótinu fyrir sautján ár-
um, árið 1996, og aftur árið eftir.
Hún lék alla átta leiki Íslands í
mótinu þessi tvö ár og er eini nú-
verandi leikmaður landsliðsins sem
þá var í liðinu.
Ísland mætti aftur í Algarve-
bikarinn eftir tíu ára hlé, árið 2007,
og hefur verið fastagestur þar síð-
an. Á undanförnum sex árum hefur
Katrín leikið alla 24 leiki Íslands og
þeir eru því orðnir 32 samtals hjá
henni í þessu sterka móti.
Katrín er langleikjahæsta lands-
liðskona Íslands með 122 leiki að
baki. Leikir hennar á Algarve eru
því rúmlega fjórðungur af öllum
hennar landsleikjum. Edda Garð-
arsdóttir gæti orðið önnur í röðinni
til að ná 100 leikjum. Hún hefur
spilað 97 landsleiki og gæti því
leikið 100. landsleikinn á mánudag-
inn kemur þegar Ísland mætir
Kína.
Nánar um Algarve-bikarinn á
bls. 2. vs@mbl.is
Katrín hefur
spilað alla
á Algarve
Katrín
Jónsdóttir