Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 3
FÓTBOLTI
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Þeir ríflega 76.000 áhorfendur sem
borguðu morð fjár fyrir aðgöngumiða
og flugu jafnvel langt að til að sjá stór-
leik Manchester United og Real Ma-
drid í seinni leik liðanna í Meist-
aradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöldi
voru illa sviknir eftir 56 mínútur þegar
tyrkneskur dómari leiksins, Cüneyt
Cakir, eyðilagði leikinn.
Cakir rak þá Portúgalann Nani af
velli með rautt spjald fyrir afar litlar
sakir en Nani sparkaði óviljandi í Ál-
varo Arbeloa, leikmann Real Madrid,
án þess að hafa hugmynd um að Spán-
verjinn væri fyrir aftan hann.
Manchester United hafði skömmu
áður komist yfir, 1:0, og var í fínni
stöðu en José Mourinho, þjálfari Real
Madrid, var snöggur að bregðast við.
Hann setti inná Króatann Luka Mo-
dric sem þrumaði boltanum í stöngina
og inn á 67. mínútu og tveimur mín-
útum síðar skoraði Cristiano Ronaldo á
sínum gamla heimavelli eftir þunga
sókn gestanna.
Á einu augabragði snerist leikurinn.
Manchester United þurfti allt í einu að
skora tvisvar sinnum til að komast
áfram en var manni undir eftir glóru-
lausan dóm Tyrkjans.
Heimamenn fengu færi
Leikurinn var að spilast vel fyrir
Manchester United áður en Nani var
rekinn af velli og hélt liðið aftur af öfl-
ugum sóknarlotum Real Madrid. Skot
Cristianos Ronaldos drifu ekki einu
sinni á markið því þau voru stöðvuð af
miðvörðum heimamanna.
Þrátt fyrir að vera manni færri fékk
United sæg af færum, sérstaklega
undir lok leiksins. Robin van Persie,
Nemanja Vidic, Michael Carrick og
Wayne Rooney fengu allir tækifæri til
að skora en alltaf var Diego López fyr-
ir í marki gestanna. Sá stóð sig frábær-
lega í þessum tveimur leikjum og ekki
saknar Real Ikers Casillas þessa dag-
ana.
Real Madrid spilaði frábærlega úr
stöðunni sem það komst í eftir að Nani
var rekinn af velli en tyrkneski dóm-
arinn þarf að taka það á sig að eyði-
leggja það sem hefði átt að vera 90
mínútur af stórkostlegu einvígi tveggja
af stærstu liðum heims.
Mætti ekki á blaðamannafund
Eins og stundum áður þegar honum
líkar ekki hvernig er farið með hann og
hans menn mætti Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester United,
ekki á blaðamannafund. Mike Phelan,
aðstoðarmaður Fergusons, mætti í
hans stað og byrjaði á að segja:
„Ég var að yfirgefa niðurbrotinn
búningsklefa og niðurbrotinn knatt-
spyrnustjóra. Þess vegna sé ég um
fjölmiðlana í kvöld.“
Leikmenn Manchester United
gengu einnig niðurlútir í gegnum
blaðamannasvæðið og töluðu ekki við
nokkurn mann. „Við megum ekkert
segja,“ sagði Nani áður en hann fór út í
rútu.
„Við vorum að gera allt rétt og kom-
umst í góða stöðu þegar við skorum.
En svo breyttist leikurinn algjörlega.
Þetta var hreint ótrúleg ákvörðun en
við urðum að halda áfram. Að spila tíu
gegn Real Madrid er mjög erfitt en við
erum svekktir með að hafa þurft að
spila tíu,“ sagði Mike Phelan.
Öruggt í Dortmund
Í leiknum sem gleymdist í gærkvöldi
vegna allrar umræðunnar um stórleik-
inn á Old Trafford vann Dortmund
öruggan sigur á úkraínska liðinu Shak-
htar Donetsk, 3:0, á heimavelli. Þýska
liðið vann samanlagt, 5:2, og fer áfram í
átta liða úrslitin eins og Real Madrid.
Felipe Satana, Mario Götze og Jakub
Blaszczykowski skoruðu mörk heima-
manna.
Leikurinn eyðilagður
AFP
Rauða spjaldið Nani gengur ósáttur af velli eftir rauða spjaldið sem hann fékk en José Mourinho, þjálfari Real Madrid, réttir fram hönd til að hugga landa sinn.
Real Madrid vann Man. United og er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar
Nani fékk rautt spjald fyrir litlar sakir United-menn töluðu ekki við neinn
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013
Ítalska A-deildarliðið
Pescara sem
landsliðsmað-
urinn Birkir
Bjarnason leikur
með réð í gær
Cristian Bucchi
þjálfara liðsins en
hann tekur við
starfinu af Cristiano Bergodi sem
var rekinn á sunnudaginn. Pescara
hefur gengið afleitlega undanfarnar
vikur en liðið hefur aðeins halað inn
eitt stig í síðustu átta umferðum.
Bergodi var annar þjálfari Pescara á
tímabilinu og Bucchi verður sá
þriðji. Bucchi er þó ekki með næga
þjálfaramenntun og því ekki tilskilin
leyfi til að þjálfa í efstu deild en hann
fékk því aðeins 30 daga starfsleyfi.
Bucchi lék ellefu leiki með Pescara
sem lánsmaður seinni hluta tímabils-
ins 2010/11 en lagði skóna á hilluna
eftir það. Hann er 36 ára gamall.
Hans bíður ærið verkefni því Pesc-
ara er á botni deildarinnar með 21
stig, fimm stig frá öruggu sæti.
Karl Sigurðs-son lands-
liðsþjálfari í
strandblaki hefur
valið karla- og
kvennalið Íslands
sem keppa í
greininni á Smá-
þjóðaleikunum í
Lúxemborg í lok
maí. Kvennaliðið skipa þær Laufey
Björk Sigmundsdóttir úr HK og
Lilja Jónsdóttir úr Stjörnunni en
karlaliðið skipa Stjörnumennirnir
Emil Gunnarsson og Eiríkur Ragn-
ar Eiríksson. Liðin æfa í Sporthús-
inu í Kópavogi en þar hafa verið
settir upp strandblakvellir innan-
húss, sem gera íslensku keppend-
unum kleift að æfa íþróttina allan
ársins hring.
Bjarki Guðjónsson frá Akureyri,Arnar Ingi Kristgeirsson frá
Reykjavík og María Eva Eyjólfs-
dóttir frá Reykjavík unnu öll tvö-
falda sigra á bikarmóti Skíða-
sambands Íslands fyrir 14-15 ára
ungmenni sem haldið var á Dalvík
um síðustu helgi. Bjarki sigraði í
stórsvigi og svigi 14 ára pilta, Arnar
Ingi í stórsvigi og svigi 15 ára pilta
og María Eva í stórsvigi og svigi 15
ára stúlkna. Hólmfríður Dóra Frið-
geirsdóttir frá Reykjavík sigraði í
stórsvigi 14 ára stúlkna og Andrea
Björk Birkisdóttir frá Dalvík sigraði
í svigi 14 ára stúlkna.
Jernej Leskovar, knattspyrnu-maður frá Slóveníu, hefur samið
við Víkinga frá Ólafsvík, nýliðana í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu, og
leikur með þeim í sumar. Þetta kem-
ur fram á heimasíðu Víkings. Les-
kovar, sem er 24 ára gamall, getur
leikið bæði á vinstri kantinum og
fremstur á miðjunni. Hann kemur
frá B-deildarliðinu Simer Sampion
Celje í heimalandi sínu en hann hef-
ur leikið með því liði frá 2010.
Fólk folk@mbl.is
Íslendingaliðið Guif tapaði afar óvænt fyrir
næstneðsta liði deildarinnar, HK Varanäs,
25:28, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í
gærkvöldi.
Línumaðurinn öflugi Heimir Óli Heimisson
skoraði eitt mark fyrir Guif en Haukur Andr-
ésson er enn frá vegna meiðsla.
Tapið kemur sér afskaplega illa fyrir Guif
sem er í harðri baráttu við Sävehof og Lugi
HF um deildarmeistaratitilinn.
Lugi er efst í deildinni með 40 stig eftir 30
leiki, Sävehof er í öðru sæti með 38 stig eftir 39
leiki og Guif í þriðja sæti með 37 stig eftir 29 leiki.
Óvænt úrslit urðu einnig á mánudagskvöldið en þá tapaði Lugi
fyrir Ólafi Guðmundssyni og samherjum í Kristianstad 23:25 á
heimavelli toppliðsins. tomas@mbl.is
Óvænt tap hjá Guif
Heimir Óli
Heimisson
Stuðningsmenn norska knattspyrnufélagsins
Start tóku þátt í að fjármagna kaupin á Matt-
híasi Vilhjálmssyni og samninginn sem gerð-
ur var við hann í vetur, samkvæmt því sem
fram kemur í umfjöllun um hann í Nett-
avisen. Þar er rætt við Matthías, þjálfara liðs-
ins, Mons Ivar Mjelde, og samherja hans,
Espen Hoff, og skýrt frá því að hjá Start sé
Ísfirðingurinn kallaður „leikmaður fólksins.“
Ástæðan sé sú að stuðningsmenn liðsins hafi
ásamt minni styrktaraðilum gert félaginu
kleift að fá hann í raðir Start í vetur en Matt-
hías var í láni hjá félaginu á síðasta ári, frá FH, og skoraði þá 18
mörk fyrir liðið í B-deildinni. „Ég get skorað mikið í þessari
deild og tel að ég eigi talsvert inni,“ sagði Matthías meðal ann-
ars í samtali við Nettavisen. vs@mbl.is
„Leikmaður fólksins“
Matthías
Vilhjálmsson
Danska handknattleiksliðið GOG, sem Snorri
Steinn Guðjónsson landsliðsmaður leikur með,
hefur tryggt sér sæti í dönsku úrvalsdeildinni
á nýjan leik eftir nokkurra ára fjarveru.
GOG vann Stoholm, 33:15, um liðna helgi og
hefur þar með unnið 21 af 22 leikjum sínum í 1.
deildinni á keppnistímabilinu. Liðið hefur sjö
stiga forskot í efsta sæti þegar þrjár umferðir
eru eftir og þar af leiðandi er GOG öruggt um
að hreppa efsta sætið þegar upp verður staðið
þótt liðið tapaði leikjunum sem það á eftir.
GOG, sem hefur bækistöðvar á Svendborg á
Fjóni og er eitt sigursælasta handknattleikslið Danmerkur síð-
ustu áratugi, varð gjaldþrota í byrjun árs 2010 en þá var það í úr-
valsdeild. Snorri Steinn skrifaði undir þriggja ára samning við
GOG á síðasta hausti. iben@mbl.is
GOG í úrvalsdeildina
Snorri Steinn
Guðjónsson