Morgunblaðið - 18.03.2013, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 18. MARS 2013
Steinþór Freyr
Þorsteinsson,
leikmaður
norska úrvals-
deildarliðsins
Sandnes Ulf, hef-
ur verið kallaður
inn í landsliðshóp
Íslands sem mæt-
ir Slóveníu á
föstudaginn.
Enginn hefur
dregið sig út úr hópnum, enn sem
komið er. Heimir Hallgrímsson, að-
stoðarlandsliðsþjálfari, sagði við
Morgunblaðið að einfaldlega hefði
verið ákveðið að bæta Steinþóri í
hópinn. „Hann er með hæfileika
sem við teljum að geti nýst okkur í
leiknum gegn Slóveníu,“ sagði
Heimir. tomas@mbl.is
Steinþór
kallaður inn
í landsliðið
Steinþór Freyr
Þorsteinsson
Matthías Vil-
hjálmsson skor-
aði í gær sitt
fyrsta mark í
norsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu þegar
hann skoraði eitt
af þremur mörk-
um liðsins í 3:2
sigri á móti
Hönefoss. Matt-
hías, sem skoraði 18 mörk fyrir
Start í B-deildinni á síðustu leiktíð,
lék allan tímann með nýliðunum
sem og Guðmundur Kristjánsson.
Kristján Örn Sigurðsson stóð vakt-
ina í vörn Hönefoss en Arnór
Sveinn Aðalsteinsson sat á vara-
mannabekknum. gummih@mbl.is
Matthías
byrjar vel í úr-
valsdeildinni
Matthías
Vilhjálmsson
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Reglum um leyfilegan fjölda útlendinga var
breytt á ársþingi Körfuknattleikssambands Ís-
lands um helgina. Fjórir leikmenn með íslenskan
ríkisborgararétt þurfa að vera inni á vellinum í
einu en í vetur hafa þrír slíkir þurft að vera inni á
vellinum í einu í úrvalsdeild karla.
Sama regla verður í gildi í úrvalsdeild kvenna
og í 1. deild karla. Liðin geta hins vegar verið með
fleiri erlenda leikmenn á sínum snærum og á leik-
skýrslu. „Enn og aftur má segja að hreyfingin
skiptist í tvær fylkingar þegar kemur að útlend-
ingamálunum. Á síðasta þingi á Sauðárkróki fyrir
tveimur árum féll þessi tillaga á jöfnu og núna var
hún samþykkt með nokkurra atkvæða mun. Í
þessu máli má segja að hreyfingin skiptist í tvennt
og fylkingarnar eru svipað fjölmennar á þing-
unum,“ sagði Hannes Jón Jónsson í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann var endurkjörinn
formaður KKÍ á þinginu.
Reglur um leyfilegan fjölda erlendra leikmanna
hafa lengi verið þrætuepli í körfuboltanum hér-
lendis og Hannes segist vilja sjá meiri stöðugleika
í því umhverfi. „Mér finnst vera kominn tími til að
við í hreyfingunni séum með sömu reglurnar í ein-
hvern smátíma. Það er leiðinlegt að við séum að
breyta reglunum á hverju þingi. Ég vil sjá meiri
stöðugleika í þessu en tvö ár í senn því ég held að
það sé ekki gott fyrir hreyfinguna að við séum
alltaf að breyta þessu,“ bætti Hannes við.
Að öðru leyti bar helst til tíðinda á þinginu að
Fyrirtækjabikarinn verður á dagskrá í aðdrag-
anda Íslandsmótsins en ekki seint á árinu eins og
var til að mynda í vetur.
Erlendum leikmönnum fækkar
Færri slíkir mega vera inni á vellinum í einu á næstu leiktíð í körfunni
ÍÞRÓTTIR
Nú liggur fyrir hvaða lið eigast við í átta liða úrslitum
Íslandsmóts karla í körfuknattleik en úrslitakeppnin
hefst innan skamms. Fyrirfram má segja að sú rimma
sem ætti að verða jöfnust, og kannski erfiðast að reikna
út, sé rimma Stjörnunnar og Keflavíkur. Er það
kannski ekki skrítið þar sem þessi lið höfnuðu í 4. og 5.
sæti deildarinnar og munaði aðeins tveimur stigum á
þeim. Bikarmeistarar Stjörnunnar munu fá heima-
leikjaréttinn ef á þarf að halda.
Benedikt Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari KR,
mun mæta sínu gamla félagi í úrslitakeppninni. Páll
Axel Vilbergsson mun jafnframt mæta sínum gömlu fé-
lögum í Grindavík sem varð deildarmeistari. Benedikt
gerði KR að Íslandsmeisturum 2007 og 2009 en tók við
Þór í 1. deild haustið 2010. Páll Axel var fyrirliði
Grindavíkur þegar liðið varð Íslandsmeistari síðasta
vor en fór í Skallagrím síðasta sumar.
Þór Þ. og Snæfell enduðu með jafnmörg stig en Þór
fékk 2. sætið á innbyrðisviðureignum. Snæfell mætir
ungu og efnilegu liði Njarðvíkur sem spilað hefur vel að
undanförnu.
Eftirtalin lið mætast:
Grindavík – Skallagrímur
Þór Þorlákshöfn – KR
Snæfell – Njarðvík
Stjarnan – Keflavík
kris@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mætir Grindavík Páll Axel Vilbergsson tekur við Íslandsbikarnum fyrir hönd Grindvíkinga í fyrra.
Nú fer hann til Grindavíkur með Borgnesingum og reynir að slá Grindvíkinga út úr Íslandsmótinu.
Kempur fara á heimaslóðir
Spennandi rimma hjá
Stjörnunni og Keflavík
Íþróttir
mbl.is
Fótbolti Liverpool varð að sætta sig við ósigur gegn sprækum nýliðum South-
ampton í ensku úrvalsdeildinni. Meistaradeildardraumur Liverpool á enda? 6