Morgunblaðið - 18.03.2013, Side 6
ENGLAND
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Liverpool undir stjórn Brendans
Rodgers er enn lið í mótun. Það
vita allir. Aftur á móti voru leik-
menn liðsins búnir að upphefja
væntingar stuðningsmannanna
verulega undanfarnar vikur með
frábærri spilamennsku og flottum
úrslitum. Fyrir leikinn gegn nýlið-
um Southampton á laugardaginn
var Liverpool búið að vinna þrjá
deildarleiki í röð og hafði aðeins
tapað tveimur af síðustu tíu. En þá
kom enn og aftur skellur.
Mættu ekki til leiks
Liverpool-liðið hefur verið svolít-
ið í því þetta tímabilið að ná nokkr-
um góðum úrslitum í röð en tapa
svo leikjum sem það ætti með réttu
að vinna. Samanber tapleikurinn
ótrúlegi gegn WBA á heimavelli
sem kom í kjölfar nokkurra fínna
úrslita.
Í leiknum gegn West Brom var
Liverpool þó í það minnsta miklu
betri aðilinn í leik þar sem andstæð-
ingurinn fór vart yfir miðju. Það
flokkast sem slys en í gær mættu
Bítlaborgarstrákarnir ekki til leiks.
Heimamenn dönsuðu í kringum
gestina með fallegum fótbolta og
voru sanngjarnt yfir, 2:0, áður en
Phillippe Coutinho minnkaði mun-
inn í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Í stað þess að láta kné fylgja
kviði í seinni hálfleik og afgreiða
nýliðana var það Southampton sem
skoraði þriðja markið og gerði út
um leikinn þegar Jay Rodriguez
rölti í gegnum vörn Liverpool og
fékk tvö tækifæri, óáreittur, til að
skora. Barnalegur varnarleikur ef
varnarleik má kalla.
„Þetta var ekki líkt þeirri spila-
mennsku sem við höfum boðið upp á
undanfarnar vikur. Við byrjuðum
ekki leikinn fyrr en við vorum 2:0
undir. Við fengum á okkur ódýr
mörk sem er ólíkt okkur og við er-
um óánægðir með það,“ sagði
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri
Liverpool, svekktur eftir leikinn.
Bíðið rólegir
Tapið gegn Southampton um
helgina fer langt með að gera út
um meistaradeildardrauma Liver-
pool þetta tímabilið en það er eng-
inn heimsendir. Það er vont núna
en venst. Liðið átti aldrei að ná
meistaradeildarsæti, sérstaklega
ekki eftir byrjunina á tímabilinu.
Það er því ekki hægt að gráta það
sem átti ekki að vera mögulegt að
fá.
Rodgers er á réttri leið með liðið.
Hann er búinn að sigta út leikmenn
sem hann ætlar að kaupa í sumar til
að styrkja hópinn og vonandi fær
hann fjármagn til þess. Norður-
Írinn veit hvað hann er að gera.
Liðinu vantar bara meiri breidd til
að afreka stærri hluti og renna ekki
svona hryllilega á rassinn reglulega.
AFP
Svekktir Leikmenn Liverpool trúa vart eigin augum eftir að hafa fengið á sig þriðja markið gegn Southampton.
Enn verk eftir óunnið
Leikmenn Liverpool komu stuðningsmönnunum aftur niður á jörðina með
tapi gegn nýliðum Southampton Ekki í takt við gengi liðsins undanfarið
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2013
A-DEILD:
Tottenham – Fulham .............................. 0:1
Gylfi Þór Sigurðsson var tekinn af velli á
62. mínútu í liði Liverpool.
Tottenham – Fulham ................................0:1
Sunderland – Norwich..............................1:1
Man.Utd. – Reading..................................1:0
Aston Villa – QPR .....................................3:2
Southampton – Liverpool.........................3:1
Stoke – WBA .............................................0:0
Swansea – Arsenal ....................................0:2
Everton – Man.City ..................................2:0
Chelsea – West Ham................................ 2:0
Wigan – Newcastle................................... 2:1
Staðan:
Man.Utd. 29 24 2 3 69:31 74
Man.City 29 17 8 4 51:26 59
Chelsea 29 16 7 6 58:30 55
Tottenham 30 16 6 8 51:37 54
Arsenal 29 14 8 7 55:32 50
Everton 29 12 12 5 46:35 48
Liverpool 30 12 9 9 57:39 45
WBA 30 13 5 12 40:38 44
Swansea 30 10 10 10 40:38 40
Fulham 29 9 9 11 40:44 36
Stoke 30 7 13 10 27:35 34
Norwich 30 7 13 10 28:46 34
Newcastle 30 9 6 15 41:52 33
West Ham 29 9 6 14 32:43 33
Sunderland 30 7 10 13 33:42 31
Southampton 30 7 10 13 42:52 31
Aston Villa 30 7 9 14 31:56 30
Wigan 29 7 6 16 35:56 27
Reading 30 5 8 17 35:57 23
QPR 30 4 11 15 26:48 23
B-DEILD:
Sheffield Wed. – Cardiff ......................... 0:2
Aron Einar Gunnarsson lék allan tímann
með Cardiff og Heiðar Helguson fyrstu 87
mínúturnar.
Wolves – Bristol City............................... 2:1
Björn Bergmann Sigurðarson kom inná
á 38. mínútu í liði Wolves en Eggert Gunn-
þór Jónsson var ekki í leikmannahópi Úlf-
anna.
Blackburn – Burnley.................................1:1
Brighton – Cr.Palace ................................3:0
Derby – Leicester .....................................2:1
Barnsley – Watford...................................1:0
Blackpool – Peterboro ..............................0:1
Hull – Nottingham F. ...............................1:2
Ipswich – Bolton........................................1:0
Middlesbro – Birmingham .......................0:1
Staðan:
Cardiff 37 23 6 8 60:38 75
Hull 38 21 5 12 55:45 68
Watford 38 20 6 12 72:48 66
Cr.Palace 38 18 11 9 67:49 65
Nottingham F. 38 16 12 10 56:48 60
Leicester 38 17 8 13 59:34 59
Brighton 38 15 14 9 54:38 59
Bolton 38 14 12 12 55:50 54
Middlesbro 38 17 3 18 55:58 54
Leeds 38 14 10 14 49:54 52
Burnley 38 13 10 15 50:51 49
Birmingham 38 12 13 13 50:59 49
Derby 38 12 12 14 54:54 48
Charlton 38 12 11 15 46:52 47
Millwall 36 13 8 15 46:52 47
Huddersfield 38 12 11 15 40:64 47
Blackpool 38 11 13 14 53:52 46
Blackburn 37 11 13 13 45:48 46
Ipswich 38 12 10 16 36:55 46
Barnsley 37 12 8 17 47:58 44
Sheffield W. 37 12 7 18 41:52 43
Peterboro 38 12 6 20 55:64 42
Wolves 38 11 9 18 45:54 42
Bristol City 38 11 6 21 54:67 39
C-DEILD:
Brentford – Preston..................................1:0
Bury – Colchester .....................................1:2
Coventry – Hartlepool ..............................1:0
Crewe – Shrewsbury ................................1:1
Doncaster – Portsmouth ..........................1:1
MK Dons – Tranmere...............................3:0
Notts County – Scunthorpe .....................1:0
Oldham – Bournemouth ...........................0:1
Orient – Carlisle ........................................4:1
Stevenage – Sheffield Utd........................4:0
Walsall – Crawley .....................................2:2
Staða efstu liða:
Doncaster 38 20 9 9 54:37 69
Brentford 38 18 13 7 51:37 67
Sheffield Utd 37 17 14 6 50:33 65
Bournemouth 39 18 10 11 61:50 64
Swindon 37 17 12 8 61:29 63
Yeovil 37 19 6 12 59:45 63
Tranmere 39 18 9 12 55:42 63
Coventry 39 17 9 13 62:47 60
Walsall 39 16 12 11 58:53 60
Notts County 39 14 15 10 52:39 57
Orient 38 17 6 15 46:43 57
MK Dons 37 14 12 11 51:40 54
Crawley 37 14 11 12 48:50 53
Crewe 36 14 9 13 44:48 51
Stevenage 38 14 7 17 44:51 49
Preston 37 11 13 13 46:45 46
Carlisle 38 12 9 17 45:65 45
D-DEILD
Cheltenham – Rotherham ...................... 3:0
Kári Árnason var ekki í leikmannahópi
Rotherham.
Bikarkeppni kvenna
Lincoln – Chelsea .................................... 1:0
Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðars-
dóttir léku báðar með Chelsea. Edda bar
fyrirliðabandið hjá Chelsea.
Aston Villa – Liverpool .......................... 0:5
Katrín Ómarsdóttir lék með liði Liver-
pool.
ENGLAND
Barcelona – Rayo Vallecano ...................3:1
Lionel Messi skoraði tvö af mörkum
Barcelona og hefur þar með skorað í 18
deildarleikjum í röð.
Granada – Levante....................................1:1
Osasuna – Atl.Madrid ...............................0:2
Sevilla – R.Zaragoza .................................4:0
Málaga – Espanyol....................................0:2
Valencia – Real Betis ................................3:0
Real Madrid – Mallorca............................5:2
Getafe – Ath.Bilbao...................................1:0
R. Sociedad – R.Valladolid .......................4:1
Dep. La Coruna – Celta............................3:1
Staða efstu liða:
Barcelona 28 24 2 2 88:31 74
Real Madrid 28 19 4 5 71:27 61
Atl. Madrid 28 19 3 6 50:24 60
R. Sociedad 28 13 8 7 49:35 47
Valencia 28 13 6 9 41:40 45
Málaga 28 12 8 8 38:27 44
Real Betis 28 13 4 11 39:42 43
Getafe 28 12 6 10 38:44 42
Rayo Vallecano 28 13 2 13 37:46 41
Sevilla 28 11 5 12 43:40 38
SPÁNN
Pescara – Chievo ..................................... 0:2
Birkir Bjarnason lék allan tímann með
Pescara.
Roma – Parma...........................................2:0
Torino – Lazio............................................1:0
AC Milan – Palermo..................................2:0
Fiorentina – Genoa ...................................3:2
Napoli – Atalanta ......................................3:2
Pescara – Chievo .......................................0:2
Siena – Cagliari .........................................0:0
Bologna – Juventus...................................0:2
Catania – Udinese .....................................3:1
Staða efstu liða:
Juventus 29 20 5 4 57:18 65
Napoli 29 16 8 5 50:26 56
AC Milan 29 16 6 7 52:32 54
Fiorentina 29 15 6 8 53:35 51
Roma 29 14 5 10 60:49 47
Inter Mílanó 28 14 5 9 44:37 47
Lazio 29 14 5 10 37:35 47
Catania 29 13 6 10 39:36 45
Udinese 29 10 11 8 38:38 41
Sampdoria 28 10 6 12 35:33 35
Bologna 29 10 5 14 39:38 35
ÍTALÍA
A-DEILD:
M’gladbach – Hannover ...........................1:0
E.Frankfurt – Stuttgart...........................1:2
Leverkusen – Bayern M...........................1:2
Dortmund – Freiburg...............................5:1
Hamburger – Augsburg ...........................0:1
Hoffenheim – Mainz..................................0:0
Nürnberg – Schalke..................................3:0
W.Bremen – Greuther F. .........................2:2
Wolfsburg – F.Düsseldorf........................1:1
Staða efstu liða:
Bayern M. 26 22 3 1 69:11 69
Dortmund 26 14 7 5 60:31 49
Leverkusen 26 13 6 7 46:34 45
E.Frankfurt 26 11 6 9 39:37 39
Schalke 26 11 6 9 43:43 39
Mainz 26 10 8 8 33:29 38
M’gladbach 26 9 11 6 35:35 38
Hamburger 26 11 5 10 30:34 38
Freiburg 26 9 9 8 33:33 36
B-DEILD:
Bochum – Braunschweig........................ 0:1
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan tímann
í vörn Bochum.
ÞÝSKALAND
AZ Alkmaar – Ajax ................................. 2:3
Jóhann Berg Guðmundsson lék síðustu
10 mínúturnar fyrir AZ Alkmaar en Aron
Jóhannsson var ekki í leikmannahópnum.
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 56 mín-
úturnar fyrir Ajax.
NEC Nijmegen – Heerenveen................ 1:3
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tím-
ann með Nijmegen.
Alfreð Finnbogason lék allan tímann
með Heerenveen og skoraði fyrsta mark
liðsins.
Staða efstu liða:
Ajax 27 16 9 2 62:27 57
PSV Eindhoven 27 18 2 7 83:29 56
Feyenoord 27 17 5 5 53:33 56
Vitesse 27 16 6 5 55:31 54
Twente 27 13 8 6 44:25 47
Utrecht 27 13 6 8 40:31 45
Den Haag 27 8 12 7 42:48 36
NEC Nijmegen 27 10 6 11 36:46 36
Heerenveen 27 9 8 10 41:48 35
Heracles 27 8 10 9 52:53 34
NAC Breda 27 8 7 12 32:43 31
HOLLAND
FC Bayern náði um helgina 20
stiga forskoti í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu þegar það
lagði liðið í öðru sæti, Bayer
Leverkusen, 2:1, á útivelli.
Mario Gomez kom Bayern
yfir á 10. mínútu en Simon
Rolfes jafnaði metin á þeirri
75. Það gengur allt upp þessa
dagana hjá Bayern og þegar
liðið virtist ekki geta skorað
sjálft og tryggt sér sigurinn
sáu heimamenn um það fyrir gestina. Philipp
Wollscheid skoraði sjálfsmark þremur mínútum
fyrir leikslok.
Bayern þarf aðeins fimm stig til viðbótar til að
tryggja sér meistaratitilinn og getur liðið því
orðið meistari í Frankfurt 6. apríl. tomas@mbl.is
Bayern meistari
í byrjun apríl?
Mario
Gomez
Alfreð Finnbogason og félagar
í Heerenveen unnu fjórða sigur
sinn í röð í hollensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu um
helgina þegar liðið lagði Guð-
laug Victor Pálsson og félaga
hans í NEC Nijmegen, 3:1.
Alfreð skoraði eitt mark fyrir
sína menn og jafnaði þá leikinn
í 1:1. Þetta er 20. mark Alfreðs
í hollensku deildinni en hann er
næstmarkahæstur.
Eftir að vera nokkuð óvænt í fallbaráttu eru
sigrarnir fjórir búnir að lyfta Heerenveen upp í ní-
unda sæti deildarinnar en það er aðeins einu stigi
frá ADO Den Haag sem er í sjöunda sæti. Liðin í
sætum fjögur til sjö fara í umspil um þátttökurétt í
Evrópudeildinni. tomas@mbl.is
Alfreð hafði betur
gegn Victori
Alfreð
Finnbogason
Aron Einar Gunnarsson,
landsliðsfyrirliði í fótbolta,
spilaði sinn 200. deildarleik á
Englandi um helgina þegar lið
hans Cardiff lagði Sheffield
Wednesday, 2:0, á útivelli.
Sigurinn var kærkominn
fyrir topplið Cardiff sem hafði
ekki unnið í þremur leikjum í
röð. Það er nú með átta stiga
forystu á toppnum og níu stig
á liðið í þriðja sæti. Cardiff
stefnir hraðbyri upp í úrvalsdeildina.
Aron Einar er aðeins 23 gamall en hann er á
sínu fimmta tímabili á Englandi. Fyrstu þrjú voru
með Coventry. Hann hefur skorað 17 mörk á
þessum fimm árum, þar af sjö á yfirstandandi
leiktíð. tomas@mbl.is
Aron spilaði 200.
leikinn á Englandi
Aron Einar
Gunnarsson