Morgunblaðið - 20.03.2013, Síða 4
Morgunblaðið/Golli
Byrjun Grétar Rafn Steinsson fagnar marki í sigrinum gegn Noregi í haust.
„Þurfa að gæta sín á
sóknarmönnum Slóvena“
Grétar Rafn hefur góða tilfinningu
fyrir leiknum í Ljubljana Er að kom-
ast af stað sjálfur eftir langa fjarveru
Landslið Íslands í undankeppni HM
Í byrjunarliði Komið inná Mörk
Birkir Bjarnason 4 0 1
Emil Hallfreðsson 4 0 0
Gylfi Þór Sigurðsson 4 0 1
Hannes Halldórsson 4 0 0
Ragnar Sigurðsson 4 0 0
Rúrik Gíslason 4 0 0
Aron Einar Gunnarsson 3 0 0
Grétar Rafn Steinsson 3 0 0
Kári Árnason 3 0 1
Alfreð Finnbogason 2 2 1
Ari Freyr Skúlason 2 1 0
Helgi Valur Daníelsson 2 0 0
Bjarni Ó. Eiríksson 2 0 0
Eggert G. Jónsson 1 2 0
Birkir Már Sævarsson 1 1 0
Sölvi Geir Ottesen 1 1 0
Jóhann B. Guðmundsson 0 3 0
Guðjón Baldvinsson 0 1 0
Kolbeinn Sigþórsson, Eiður Smári Guðjohnsen,Ólafur Ingi
Skúlason,Hallgrímur Jónasson,Hólmar Örn Eyjólfsson,Arnór S.
Aðalsteinsson,Steinþór F. Þorsteinsson,Gunnleifur Gunnleifs-
son og Ögmundur Kristinsson eru í hópnum í Slóveníu en hafa ekki
spilað í keppninni til þessa.
Er í hópnum í Slóveníu Er ekki í hópnum í Slóveníu
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Grétar Rafn Steinsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu og leikmaður
Kayserispor í Tyrklandi, segir að
félagar sínir í íslenska landsliðinu
þurfi að gæta sín á sókn-
armönnum Slóvena í leik þjóðanna
í undankeppni HM í Ljubljana á
föstudaginn.
Grétar er fjarri góðu gamni þar
sem hann er í eins leiks banni
vegna tveggja gulra spjalda í
keppninni. Auk þess er hann að
jafna sig af meiðslum í hné og
hefði ekki náð leiknum af þeim
sökum.
„Slóvenar eru með góða sókn-
armenn og okkar menn þurfa að
gæta sín á þeim. Ég hef séð dálít-
ið til framherjans þeirra hjá PSV
(Tim Matavz) sem lítur ágætlega
út en þetta er reyndar ekki hans
besta tímabil,“ sagði Grétar við
Morgunblaðið í gær en Matavz
hefur skorað 10 mörk fyrir PSV í
hollensku úrvalsdeildinni í vetur.
Gylfi hefur bætt
varnarleikinn
Hann kvaðst hafa góða tilfinn-
ingu fyrir leiknum og íslensku
leikmönnunum. „Gylfi hefur staðið
sig vel á kantinum hjá Tottenham
undanfarið og hefur bætt varn-
arleikinn sinn frá fyrstu leikjunum
þar. Núna erum við með tvo fram-
herja með frábæra hæfileika, Kol-
bein og Alfreð, og það væri gaman
að sjá þá spila saman frammi.
Birkir Bjarna hefur líka staðið sig
vel frammi og hann vinnur mikið
fyrir liðið. Síðan er ég ánægður
með að sjá Sölva aftur í liðinu.
Enda þótt hann hafi ekki spilað
mikið eða verið í hópi hjá FCK, er
hann gífurlega mikilvægur fyrir
landsliðið og varnarleik þess, sér-
staklega þar sem Kári er ekki
með,“ sagði Grétar Rafn sem hef-
ur leikið þrjá af fjórum leikjum
Íslands í undankeppninni en hann
missti af leiknum á Kýpur í sept-
ember vegna meiðsla.
Stefnir á að spila 1. apríl
Hann hefur nú verið frá keppni
vegna meiðslanna síðan í nóv-
ember, eða í fjóra mánuði, en er
að komast af stað með liði Kay-
serispor þessa dagana. „Já, ég
byrja að æfa með liðinu um
helgina og það er raunhæft að ég
geti spilað fyrsta leikinn eftir
landsleikjahléið. Ég er byrjaður
að gera flest en þarf að fínpússa
það og styrkja ákveðna hluti en ég
hef nýtt tímann mjög vel við að
byggja mig upp á ný. Ég finn að-
eins fyrir verkjum í hnénu ennþá
en það er eðlilegt eftir svona að-
gerð,“ sagði Grétar en næsti leik-
ur er 1. apríl, gegn Karabükspor á
útivelli.
Lið Kayserispor hefur lengst af
í vetur verið í grennd við fallsætin
í Tyrklandi en liðið tók mikla
rispu eftir áramótin, er nú í 9.
sæti af 18 liðum og aðeins fjórum
stigum frá Evrópusæti þegar átta
umferðum er ólokið.
„Við erum með mjög gott lið og
mætum toppliðunum á lokasprett-
inum. Ef allir eru heilir og bik-
arkeppnin þróast á hagstæðan
hátt fyrir okkur eigum við mögu-
leika á að komast í Evrópukeppni
eftir allt saman,“ sagði Grétar
Rafn Steinsson.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2013
Árin segja sitt1979-2013
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar
Gunnarsson notaði tímann í Slóven-
íu í gær til að rita nafn sitt undir
nýjan tveggja ára samning við Car-
diff City. Hann er nú samnings-
bundinn félaginu til ársins 2016.
Aron Einar gekk til liðs við Car-
diff frá Coventry sumarið 2011 og
hefur hann átt góðu gengi að fagna
með velska liðinu.
Aron hefur spilað 36 af 37 leikj-
um Cardiff í ensku B-deildinni á
leiktíðinni og hefur hann skorað 7
mörk eins og Heiðar Helguson.
Þeir eru markahæstir ásamt Peter
Whittingham. Cardiff á góða mögu-
leika á að komast upp í úrvalsdeild-
ina. Liðið trónir á toppnum með 75
stig, Hull er í öðru sæti með 68 stig
og Watford hefur 66 stig í þriðja
sæti en Cardiff á leik til góða.
Aron Einar er 23 ára gamall og
er uppalinn hjá Þór á Akureyri.
Hann hélt ungur að árum út í at-
vinnumennsku en árið 2006 samdi
hann við hollenska liðið AZ Alkma-
ar. Hann var þar til ársins 2008
þegar hann gekk til liðs við Cov-
entry en Cardiff festi kaup á honum
þremur árum síðar. gummih@mbl.is
Aron samdi
við Cardiff
Óvíst er hvort Valter Birsa, leik-
maður Torino á Ítalíu og einn af
reyndustu landsliðsmönnum Sló-
vena í knattspyrnu, getur spilað
gegn Íslendingum í Ljubljana á
föstudaginn.
Srecko Katanec þjálfari Slóvena
skýrði fréttamönnum frá því í gær
að hann hefði meiðst í leik með Tor-
ino og það myndi skýrast betur í
dag hvort hann yrði leikfær.
Birsa er 26 ára gamall vinstri
kantmaður og fjórði leikjahæstur í
hópi Slóvena með 58 landsleiki.
Hann var í byrjunarliði Slóvena í
öllum þremur leikjum liðsins á HM í
Suður-Afríku fyrir þremur árum.
Slóvenska liðið hefur æft í Koper
við Adríahafið frá sunnudegi en
kemur í dag til Ljubljana í lokaund-
irbúning sinn fyrir leikinn sem
hefst kl. 17 að íslenskum tíma á
föstudag. vs@mbl.is
Meiðsli í hópi
Slóvenanna
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska landsliðið sem Lars Lag-
erbäck teflir fram gegn Slóveníu í
Ljubljana á föstudaginn verður
breytt frá fyrstu fjórum leikjunum í
undankeppni HM sem fram fóru síð-
asta haust.
Alls er 21 leikmaður með í för í
Ljubljana en aðeins 12 þeirra hafa
tekið þátt í leikjunum fjórum, gegn
Noregi, Kýpur, Albaníu og Sviss.
Sex fjarverandi
Af þeim 18 sem hafa spilað í
keppninni eru sex fjarverandi. Þeir
Rúrik Gíslason, Grétar Rafn Steins-
son og Kári Árnason eru allir í leik-
banni og spila ekki í Ljubljana og
þeir Bjarni Ólafur Eiríksson, Egg-
ert Gunnþór Jónsson og Guðjón
Baldvinsson eru ekki í hópnum að
þessu sinni.
Nú eru hinsvegar mættir til leiks
þeir Kolbeinn Sigþórsson, Eiður
Smári Guðjohnsen, Ólafur Ingi
Skúlason og Hallgrímur Jónasson,
sem ekki komu við sögu í leikjunum
fjórum í haust, sem og Steinþór
Freyr Þorsteinsson, Arnór Sveinn
Aðalsteinsson og markverðirnir
Gunnleifur Gunnleifsson og Ög-
mundur Kristinsson.
Vantar fjóra úr síðasta byrj-
unarliði
Ef horft er á byrjunarliðið sem
spilaði síðasta leik í keppninni, gegn
Sviss á Laugardalsvellinum, vantar
fjóra leikmenn en það eru Kári,
Grétar, Rúrik og Eggert. Í staðinn
hefur Lagerbäck m.a. kost á að tefla
fram Sölva Geir Ottesen, Kolbeini,
Eiði Smára, Ólafi Inga og Hallgrími,
sem og þeim Aroni Einari Gunn-
arssyni fyrirliða sem var í banni
gegn Sviss og Helga Val Daníelssyni
sem missti af þeim leik vegna veik-
inda.
Ísland er með 6 stig eftir fyrstu
fjóra leikina í E-riðlinum, eins og
Albanía. Sviss er með 10 stig og
Noregur 7 stig í tveimur efstu sæt-
unum en Slóvenía og Kýpur eru með
3 stig.
Noregur og Albanía mætast líka á
föstudaginn og Kýpur tekur á móti
Sviss á laugardaginn. Eftir þá leiki
er undankeppnin hálfnuð.
Mikið breytt lið
spilar í Slóveníu
Níu í hópnum ekkert með í HM