Morgunblaðið - 13.04.2013, Side 4
Í ZAGREB
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Karlalandsliðið í íshokkí lagði land undir fót í
gær og hélt til Zagreb í Króatíu. Fyrir dyrum
stendur keppni í A-riðli 2. deildar heimsmeist-
aramótsins. Ísland var gestgjafi riðilsins í
fyrra og þá hafnaði íslenska liðið í 4. sæti eftir
tvo sigra og þrjú töp.
Eins og í fyrra mætir Ísland landsliðum
Spánar, Króatíu og Serbíu. Ástralía kemur
niður úr B-riðli 1. deildar og Belgía kemur
upp úr B-riðli 2. deildar. Eistland fór upp í 1.
deildina í Laugardalnum í fyrra og Nýja-
Sjáland féll niður í B-riðilinn.
Fyrsti leikur Íslands er í fyrramálið klukk-
an 11 eða klukkan 13 að staðartíma. Leik-
urinn er mikilvægur en þá munu Íslendingar
takast á við Belga. Með sigri þar væri stórt
skrefið stigið í þá átt að tryggja áframhald-
andi veru í sterkari riðli 2. deildarinnar.
Belgía gæti reynst hættulegur andstæðingur
þó liðið sé að koma upp úr veikari riðlinum. Ef
úrslitin hjá liðinu í fyrra eru skoðuð þá vann
Belgía þjóðir eins og Ísrael, Kína og Búlgaríu
býsna sannfærandi. Það hefur Ísland svo sem
einnig gert á síðustu árum en þessi fyrsti leik-
ur keppninnar gæti hæglega orðið jafn og
spennandi.
Króatar sterkir
Í fyrra vann Ísland lið Serbíu í fyrsta skipti
5:3 með frábærri frammistöðu. Ísland á því
möguleika á móti þeim andstæðingi þó Serbar
eigi að vera sterkari á pappírunum.
Króatar verða mjög erfiðir á heimavelli en
Ísland tapaði 9:0 í Zagreb fyrir tveimur árum.
Í Laugardalnum í fyrra vann Króatía 5:1. Kró-
atar koma til með að berjast um að komast
upp um deild ef allt er eðlilegt en Ástralía er
svolítið spurningamerki. Ástralar hafa oft á
tíðum teflt fram leikmönnum sem uppaldir
eru í Kanada og búa yfir mikilli þekkingu á
íþróttinni. Styrkleiki Ástralíu kemur til með
að velta svolítið á því hversu margir „Kan-
adamenn“ spila með liðinu að þessu sinni.
Spánverjar voru mjög seigir hér heima í
fyrra. Liðið varðist afar vel og var með besta
markvörð keppninnar í markinu. Spánverja
vantar þó líklega herslumuninn til að komast
upp um deild en þeir verða erfiður andstæð-
ingur fyrir Ísland enda ekki hlaupið að því að
skora á móti þeim.
Birkir og Ingólfur ekki með
Ísland getur ekki teflt fram sínu sterkasta
liði í keppninni og sérstaklega er liðið í vand-
ræðum hvað varðar varnarmenn. Birkir
Árnason, fyrirliði Bjarnarins, meiddist í úr-
slitakeppninni og verður ekki með en hann
hefur verið fastamaður í landsliðinu í mörg
ár. Ingólfur Elíasson sem spilar í Svíþjóð
verður heldur ekki með en hann er framtíð-
armaður í vörninni og var með í síðustu tveim-
ur keppnum. Þá er Snorri Sigurbjörnsson
hættur og því vantar þrjá varnarmenn.
Auk þess hætti baráttujaxlinn Daniel Ädel
eftir keppnina 2011 og því má segja að varn-
arleikur liðsins breytist töluvert frá því í Zag-
reb fyrir tveimur árum þegar Ísland hafnaði í
3. sæti í sínum riðli. Enn einn varnarmaðurinn
Róbert Freyr Pálsson meiddist í oddaleik
Bjarnarins og SA Víkinga en hann er þó í
hópnum og getur vonandi beitt sér.
Snjöllustu sóknarmenn Íslands eru þó á sín-
um stað, Emil Alengård og Robin Hedström.
Auk þess hafa þeir Jón Benedikt Gíslason og
Björn Róbert Sigurðarson spilað vel í Dan-
mörku í vetur. Sóknarleikur liðsins ætti því að
geta verið nokkuð góður í keppninni.
Þrír nýliðar í hópnum
Þrír nýliðar eru í landsliðshópnum að þessu
sinni: Brynjar Bergmann, Steindór Ingason
og Snorri Sigurbergsson. Þá kemur Sigurður
Óli Árnason aftur inn í landsliðið eftir margra
ára hlé. Einnig kemur Egill Þormóðsson aftur
inn í liðið en hann gaf ekki kost á sér í fyrra.
Egill var valinn besti maður Íslands í keppn-
inni í Króatíu fyrir tveimur árum.
Bandaríkjamaðurinn David MacIsaac er
tekinn við þjálfun landsliðsins og honum til
aðstoðar verður landi hans, Darren Williams
Rumble.
Fyrsti leikurinn er mjög mikilvægur
Karlalandsliðið í íshokkí hefur leik á HM í Króatíu á morgun og mætir Belgum Skörð í vörn íslenska liðsins
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Það er loksins komið að því. Í dag
verður flautað til leiks í úrslitakeppni
N1-deildar karla í handknattleik þar
sem framundan er orrusta Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar á hand-
boltavellinum. Í undanúrslitunum
eigast við annars vegar deildarmeist-
arar Hauka og bikarmeistarar ÍR og
hins vegar FH og Fram. Til þess að
komast í úrslitarimmuna um Íslands-
meistaratitilinn þarf að vinna þrjá
leiki. Kl. 15 í dag tekur FH á móti
Fram í Kaplakrika og klukkan 17 eig-
ast við á Ásvöllum Haukar og ÍR.
Úrslitakeppnin á síðustu leiktíð
varð ekki eins og spennandi og vonir
stóðu til. HK-ingar komu í veg fyrir
það en þeir fóru hreinlega á kostum
þar sem þeir sópuðu Hafnarfjarðar-
liðunum Haukum og FH út með eftir-
minnilegum hætti og tryggðu sér Ís-
landsmeistaratitilinn í fyrsta skipti.
Liðin fjögur sem leika til úrslita í
ár hafa öll hampað titlinum eftirsótta.
FH hefur unnið titilinn 16 sinnum,
Haukar og Fram 9 sinnum og ÍR-
ingar státa af einum Íslandsmeist-
aratitli sem þeir unnu árið 1946 eða
fyrir 67 árum. Fram fagnaði titlinum
síðast árið 2006, FH varð Íslands-
meistari síðast árið 2011 og Haukar
urðu meistarar 2010 en Haukarnir
hafa átt ótrúlegri velgegni að fagna
síðustu árin en frá árinu 2000, þegar
þeir urðu Íslandsmeistarar í fyrsta
skipti í 57 ár, hafa þeir unnið Íslands-
meistaratitilinn 8 sinnum.
Haukar með sigurhefðina
Haukarnir, sem fögnuðu 82 ára af-
mæli sínu í gær, hafa beðið lengi eftir
úrslitakeppninni en eftir að hafa unn-
ið 12 af 13 fyrstu leikjum sínum í
deildinni var ljóst að þeir rauðklæddu
kæmust í úrslitakeppnina. Haukar
gáfu eftir á lokasprettinum og virtist
hugarfarið spila þar inn í eftir að hafa
haft yfirburði lengi vel í deildinni.
Þeir töpuðu fjórum af síðustu sjö
leikjum sínum en tókst engu að síður
að innbyrða deildarmeistaratitilinn.
Við brotthvarf Stefáns Rafns Sig-
urmannssonar misstu Haukarnir
mjög öflugan sóknarmann og hans
skarð hefur ekki verið fyllt. Ég trúi
samt ekki öðru en að Haukarnir mæti
vel stemmdir til leiks og vilji ná vopn-
um sínum á nýjan leik enda sig-
urhefðin er orðin rík hjá liðinu. Hauk-
arnir þurfa að fá stórskyttuna
Sigurberg Sveinsson í gang og takist
þeim það ásamt því að vörn og mark-
varsla verði í lagi eins og í mestallan
vetur eiga Haukar góða möguleika á
að komast áfram. Í huga leikmanna
Hauka kemur bara eitt til greina.
Þeir vilja kveðja Aron Kristjánsson
með stóra titlinum.
ÍR hefur skort stöðugleika
ÍR-ingar hafa sýnt í vetur að á góð-
um degi standast fá lið þeim snúning-
inn en þess á milli hefur liðið dottið
niður í meðalmennskuna. Stöðugleik-
ann hefur skort hjá Breiðholtsliðinu
og það er kannski ekkert skrýtið
enda liðið nýliði í deildinni. Íþrótta-
húsið í Austurbergi hefur reynst ÍR-
ingum afar sterkt vígi en þeir töpuðu
aðeins tveimur leikjum á heimavelli í
deildinni og í tvígang höfðu þeir betur
á móti Haukunum á heimavelli, í
deildinni og í bikarnum. Haukar
höfðu betur í tveimur leikjum í deild-
inni, í Austurbergi og á Ásvöllum og
staðan því 2:2 í leikjum liðanna í vet-
ur. Björgvin Þór Hólmgeirsson,
Sturla Ásgeirsson og Ingimundur
Ingimundarson eru þrír stærstu
póstarnir í ÍR-liðinu og afar mik-
ilvægt er fyrir Breiðhyltinga að þeir
verði í góðum gír. ÍR-ingar eru varla
orðnir saddir eftir bikarmeistaratit-
ilinn og nái þeir upp álíka stemningu
og á bikarúrslitahelginni gætu þeir
vel velgt Haukunum undir uggum.
Liðsheildin aðalsmerki FH
FH og Fram voru jöfnustu og
bestu liðin á síðasta þriðjungi deild-
arinnar. Bæði lið hrukku í mikið stuð
og unnu marga leiki í röð og þegar
deildinni lauk voru þetta „heitustu“
lið landsins. FH-ingar fóru hægt af
stað í haust og voru ekki sannfærandi
til að byrja með. Ekki bætti úr skák
að stórskyttan Ólafur Gústafsson
hvarf á braut þegar skammt var liðið
á tímabilið en FH-ingum til happs
endurheimtu þeir leikstjórnandann
Ásbjörn Friðriksson. Með hann í
broddi fylkingar ásamt markverð-
inum Daníel Frey Andréssyni náði
FH-liðið góðum dampi í sinn leik og
liðsheildin hefur verið eitt af að-
alsmerkjum liðsins á tímabilinu. FH-
ingar, sem unnu 12 af síðustu 14 leikj-
um sínum í deildinni, hafa leikið til úr-
slita um Íslandsmeistaratitilinn
undanfarin tvö ár og það ætti ekki að
koma neinum á óvart að þeir endur-
taki leikinn í ár en til þess þurfa þeir
að ryðja úr vegi öflugu liði Framara.
Fram eitt besta sóknarliðið
Framarar voru mjög brokkengir
framan af vetri og virtust ekki líklegir
til afreka. Meiðsli leikmanna settu
þar nokkurt strik í reikninginn en um
leið þeir gátu teflt fram sínu sterk-
asta liði sýndi Safamýrarliðið styrk
sinn. Fram hefur verið eitt besta
sóknarliðið í ár með Róbert Aron
Hostert, Sigurð Eggertsson og Jó-
hann Gunnar Einarsson sem að-
almenn og í vörninni er Ægir Hrafn
Jónsson tveggja manna maki. Fram-
arar þurfa virkilega á því að halda að
þeir nái að laða fram sitt besta.
Fram-liðið er vel mannað í flestum
stöðum og sjálfstraust leikmanna
liðsins ætti að vera í góðu lagi eftir 9
sigra í síðustu 11 leikjum sínum í
deildinni. Einar Jónsson þjálfari
Fram hefur náð búa til öfluga sveit í
Safamýrinni sem er til alls líkleg.
Útlit fyrir spennandi slag
Undanúrslitin í N1-deild karla hefjast í dag með leikjum í Kaplakrika og á Ásvöllum Barátta
á milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar þegar Haukar glíma við ÍR-inga og FH-ingar við Framara
Morgunblaðið/Kristinn
Lykilmenn Þeir Sigurbergur Sveinsson úr Haukum, Ásbjörn Friðriksson úr FH, Björgvin Þór Hólmgeirsson úr ÍR
og Jóhann Gunnar Einarsson úr Fram verða allir í stórum hlutverkum með sínum liðum í úrslitakeppninni.
Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Ómar
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013