Morgunblaðið - 15.04.2013, Qupperneq 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Belgía
Meistarakeppnin:
Anderlecht – Club Brugge .................. 1:1
Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 72
mínúturnar fyrir Club Brugge.
Anderlecht 36, Genk 35, Zulte Ware-
gem 34, Standard Liege 32, Club Brugge
31, Lokeren 27.
Umspil um Evrópusæti:
OH Leuven – Mechelen........................ 0:3
Stefán Gíslason lék ekki með Leuven.
Umspil um sæti í deildinni:
Beerschot – Cercle Brugge ................ 1:2
Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann
með Cercle Brugge
Staðan er 2:1 fyrir Cercle Brugge.
Danmörk
A-DEILD:
Esbjerg – Randers .............................. 4:0
Arnór Smárason lék allan tímann fyrir
Esbjerg og skoraði 2 mörk.
Theodór Elmar Bjarnason lék allan
tímann fyrir Randers en Elfar Freyr
Helgason sat á bekknum
Bröndby – SönderjyskE ..................... 0:3
Hallgrímur Jónasson og Eyjólfur Héð-
insson voru ekki í leikmannahópi Sönder-
jyskE.
Noregur
A-DEILD KVENNA:
Trondheims-Örn – Vålerenga ........... 2:0
Sandra Sif Magnúsdóttir kom ekkert
við sögu hjá Vålerenga.
Svíþjóð
Åtvidaberg – AIK ................................ 1:0
Helgi Valur Daníelsson lék fyrstu 76
mínúturnar fyrir AIK.
Gefle – Halmstad ................................. 2:0
Guðjón Baldvinsson lék fyrstu 32 mín-
úturnar fyrir Halmstad en Kristinn
Steindórsson fyrstu 73 mínúturnar.
A-DEILD KVENNA:
Kristianstad – Piteå............................. 1:1
Sif Atladóttir, fyrirliði, lék fyrstu 63
mínúturnar fyrir Kristianstad, Guðný B.
Óðinsdóttir kom inná á 63 mínútu og
Margrét Lára Viðarsdóttir kom inná 63
mínútu. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar
liðið.
Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan
tímann með Piteå.
Lengjubikar karla
A-DEILD, 1. riðill:
Fylkir – BÍ/Bolungarvík ..................... 1:1
Ásgeir Eyþórsson 45. – Alexander Veigar
Þórarinsson 63.
Fjölnir – Tindastóll .............................. 2:0
Júlíus Orri Óskarsson 16., Geir Kristins-
son 84.
Lokastaðan:
Víkingur Ó 7 6 0 1 18:4 18
FH 7 5 0 2 18:11 15
Fylkir 7 4 2 1 14:10 14
Grindavík 7 3 1 3 15:10 10
ÍBV 7 2 4 1 14:13 10
Fjölnir 7 1 2 4 7:13 5
BÍ/Bolungarví-k 7 1 2 4 4:12 5
Tindastóll 7 0 1 6 2:19 1
Víkingur Ó., Fylkir og FH fara í átta
liða úrslitin.
A-DEILD, 3. riðill:
Leiknir R. – KF .................................... 6:0
Ólafur H. Kristjánsson 12., Óttar Bjarni
Guðmundsson 15., Brynjar Hlöðversson
67., Sævar Freyr Alexandersson 70., 78.,
Hilmar Árni Halldórsson 75.
Lokastaðan:
KR 7 7 0 0 27:5 21
Stjarnan 7 4 1 2 18:12 13
Þór 7 3 2 2 18:20 11
Leiknir R. 7 3 1 3 18:16 10
Þróttur R. 7 3 0 4 14:14 9
Keflavík 7 2 2 3 13:16 8
Haukar 7 1 3 3 11:14 6
KF 7 0 1 6 3:25 1
KR og Stjarnan fara í 8-liða úrslit.
B-DEILD, 1. riðill:
HK – Sindri ........................................... 0:0
Víðir – Hamar ....................................... 0:3
HK 8, Afturelding 7, Sindri 7, Njarðvík
6, Hamar 6, Njarðvík 0.
B-DEILD, 2. riðill:
Grótta – Ægir........................................ 1:2
Kári – KV .............................................. 2:8
ÍR 12, KV 9, Grótta 6, Reynir S 6, Ægir
3, Kári 2.
B-DEILD, 3. riðill:
Huginn/Einh. – Fjarðabyggð............... 0:2
Magni – Höttur ..................................... 3:2
Magni 9, Fjarðabyggð 9, Leiknir F 7,
Höttur 4, Dalvík/Reynir 4, Huginn/Ein-
herji 1.
Lengjubikar kvenna
A-DEILD:
ÍBV – Þór/KA....................................... 1:2
Bryndís Jóhannesdóttir 36 - Lillý Rut
Hlynsdóttir 26., Kayle Gimsley 42.
FH – Valur ............................................ 0:9
Rakel Logadóttir 4., 43., Svava Rós Guð-
mundsdóttir 8., 41., 45., Elín Metta Jen-
sen 18., Dóra María Lárusdóttir 26.,
Laufey Björnsdóttir 54., Katrín Gylfa-
dóttir 63.
Valur 12, Breiðablik 9, Stjarnan 9, Þór/
KA 3, FH 3, ÍBV 0.
B-DEILD:
HK/Víkingur – Fylkir........................... 1:6
KR – Afturelding .................................. 2:3
Fylkir 9, Þróttur R. 4, Afturelding 4,
Selfoss 3, KR 3, Hk/Víkingur 0.
KNATTSPYRNA
að vinna strax leik á útivelli,“ sagði
Jón Heiðar ennfremur.
Haukar byrjuðu leikinn afar vel
og voru með tögl og hagldir fyrstu
15-20 mínúturnar. Sigurbergur
Sveinsson fór mikinn í sókninni og
Aron Rafn Eðvarðsson varði eins og
berserkur. ÍR-ingar unnu sig inn í
leikinn hægt og bítandi. Varnarleik-
urinn var góður og Kristófer F. Guð-
mundson sótti í sig veðrið í markinu.
ÍR var tveimur mörkum yfir í hálf-
leik, 12:10, og náði mest fimm marka
forskoti, 15:10, snemma í síðari hálf-
leik. Haukar jöfnuðu 19:19. Eftir það
var jafnt á öllum tölum til enda.
Haukar áttu síðustu sóknina sem
lauk með skoti Gísla J. Þórissonar
sem Kristófer varði.
Haukar fóru illa að ráði sínu í
leiknum. Þeim brást m.a. bogalistin í
fjórum vítaköstum og nokkrum opn-
um færum. Það er því alltof seint að
telja þá af í þessari rimmu þótt
heimaleikjarétturinn hafi tapast.
Of snemmt að
afskrifa Hauka
Kristófer varði síðasta skot leiksins
Á ÁSVÖLLUM
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Við mætum í Austurbergið á
þriðjudaginn til þess eins að vinna,“
sagði Matthías Árni Ingimarsson,
leikmaður deildarmeistara Hauka,
eftir eins marks tap fyrir ÍR, 24:23, í
fyrstu viðureign liðanna í undan-
úrslitum N1-deildar karla í hand-
knattleik á laugardag.
„Þessi sigur var afar mikilvægur
því fyrsta viðureignin í svona einvígi
skiptir mestu máli, ekki síst þar sem
Haukar töpuðu einnig á heimavelli í
undanúrslitum í fyrra á heimavelli,“
sagði Jón Heiðar Gunnarsson, línu-
maður ÍR, glaðbeittur með
sigurinn.
„Ég hef minni áhyggjur af leikj-
unum á heimavelli. Okkur hefur
vegna illa á útivelli á leiktíðinni og
því skiptir miklu fyrir sjálfstraustið
Ásvellir, undanúrslit í N1-deildinni,
fyrsti leikur, laugard. 13. apríl 2013.
Gangur leiksins: 3:0, 3:1, 6:2, 9:6,
9:10, 10:12, 10:15, 14:15, 15:19, 19:19,
19:20, 21:20, 21:22, 22:24, 23:24.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson
9/3, Gylfi Gylfason 4/1, Elías Már
Halldórsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 3,
Jón Þorbjörn Jóhannsson 2, Freyr
Brynjarsson 1, Þórður Rafn Guð-
mundsson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 12
(þar af 2 til mótherja). Giedrius Mor-
kaunas 7 (þar af 3 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur, þar af fékk
Tjörvi Þorgeirsson rautt spjald fyrir
leikbrot á 42. mín.
Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 10/5,
Björgvin Hólmgeirsson 4, Jón Heiðar
Gunnarsson 3, Davíð Georgsson 2,
Guðni Már Kristinsson 2, Ingimundur
Ingimundarson 1, Sigurjón F. Björns-
son 1, Ólafur Sigurgeirsson 1.
Varin skot: Kristófer F. Guðmunds-
son 19 (þar af 5 til mótherja). Seb-
astian Alexandersson 2/1 (bæði aft-
ur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson.
Áhorfendur: 1.592.
Staðan er 1:0 fyrir ÍR.
Haukar – ÍR 23:24
gekk líka eins og vel smurð vél þar
sem Ásbjörn Friðriksson fór á
kostum en leikstjórnandi Hafnar-
fjarðarliðsins stjórnaði ekki bara
leik sinna manna af mikilli festu
heldur skoraði hann tug marka í
öllum regnbogans litum. Frábær
leikmaður þar á ferð sem er farinn
að banka hressilega á dyr íslenska
landsliðsins að mínu mati.
Ekki er gott að átta sig á því
hvað varð þess valdandi að leikur
Framara hrundi eins og spilaborg í
seinni hálfleik. Alltént þá koðnuðu
liðsmenn Fram niður snemma í
seinni hálfleik og þeir köstuðu hvíta
handklæðinu inn á völlinn löngu áð-
ur en leikurinn var úti. Auðvitað
hefur það áhrif þegar þjálfarinn er
ekki til staðar en Einar Jónsson
var fjarverandi þar sem hann er
enn að glíma við eftirköst heila-
himnubólgu sem hann greindist
með á dögunum. Leikmenn Fram
geta þó ekki skýlt sér á bak við
fjarveru þjálfarans og þeir hljóta
að girða sig í brók fyrir næsta leik.
Ásbjörn fór illa
með Framara
FH stakk Fram af í seinni hálfleik
Morgunblaðið/Golli
Frábær Ásbjörn Friðriksson skorar eitt af tíu mörkum sínum.
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Það urðu ótrúleg kaflaskil í seinni
hálfleik í viðureign FH og Fram
þegar liðin áttust við í fyrstu
rimmu liðanna í undanúrslitum N1-
deildar karla í handknattleik í
Kaplakrika á laugardaginn. Þegar
hröðum fyrri hálfleik lauk þar sem
bæði lið gerðu sig sek um töluvert
af mistökum höfðu FH-ingar eins
marks forskot, 16:15. FH skoraði
þrjú fyrstu mörkin í seinni hálf-
leiknum og þar með má segja að
tónninn hafi verið gefinn. FH-ingar
tóku öll völd á vellinum. Þeir náðu
upp öflugum varnarleik og eitt
besta sóknarlið landsins, sem
Framarar hafa á að skipa, lenti í
stökustu vandræðum með varnar-
múr heimamanna þar sem þeir
Andri Berg Haraldsson og Ísak
Rafnsson voru fremstir á meðal
jafninga. Sóknarleikur FH-inga
Kaplakriki, undanúrslit í N1-deildinni,
fyrsti leikur, laugardaginn 13. apríl
2013.
Gangur leiksins: 1:1, 3:1, 4:5, 10:7,
10:10, 13:14, 16:15, 19:15, 20:15,
27:20, 30:23, 35:25, 36:27.
Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 10,
Einar Rafn Eiðsson 7/2, Þorkell
Magnússon 4, Ragnar Jóhannsson 3,
Sigurður Ágústsson 3, Logi Geirsson
3, Magnús Óli Magnússon 2, Halldór
Guðjónsson 2, Atli Rúnar Steinþórs-
son 1, Andri Berg Haraldsson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson
8, Sigurður Örn Arnarson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Fram: Jóhann Gunnar Ein-
arsson 7/2, Róbert Aron Hostert 6,
Stefán Baldvin Stefánsson 3, Sig-
urður Eggertsson 3, Ægir Hrafn
Jónsson 3, Garðar Sigurjónsson 2/1,
Haraldur Þorvarðarson 1, Sigfús Páll
Sigfússon 1, Stefán Darri Þórsson 1.
Varin skot: Magnús Erlendsson 5,
Björn Viðar Björnsson 7
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar
Guðjónsson, góðir.
Áhorfendur: 732.
Staðan er 1:0 fyrir FH.
FH – Fram 36:27
Kiel bætti enn einum titli í safn sitt í
gær þegar liðið varð þýskur bikar-
meistari í handknattleik í níunda
skipti og þriðja árið í röð. Kiel mætti
Flensburg í úrslitaleik í Color Line
höllinni glæsilegu í Hamborg og
fagnaði sigri, 33:30. Í undanúrslit-
unum á sama stað á laugardaginn
vann Kiel stórsigur á Melsungen,
35:23, og Flensburg hafði betur á
móti Hamburg, 26:25.
Flensburg var fjórum mörkum yf-
ir, 16:12, gegn Þýskalands- og Evr-
ópumeisturum Kiel eftir fyrri hálf-
leik en í seinni hálfleik sýndi Kiel
mátt sinn og megin. Kiel skoraði 9
mörk á móti 1 og eftir það var aldrei
spurning hvorum megin sigurinn
lenti. Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði 7 mörk fyrir Kiel og Aron Pálm-
arsson 5 en Ólafur Gústafsson sat á
bekknum hjá Flensburg allan
tímann.
„Það var smá basl á okkur í fyrri
hálfleik. Við gerðum of mikið af
tæknifeilum í sókninni en þrátt fyrir
að vera fjórum mörkum undir var ég
aldrei smeykur. Við sýndum það svo
í byrjun seinni hálfleiks hverjir ætl-
uðu að vinna leikinn og Flensburg
átti ekki möguleika,“ sagði Aron við
Morgunblaðið.
Aron varð þrefaldur meistari með
Kiel á síðustu leiktíð en liðið varð
Þýskalandsmeistari, Evrópumeist-
ari og bikarmeistari og á möguleika
á að endurtaka leikinn.
„Vonandi var þetta fyrsti titillinn
af þremur sem við vinnum á tíma-
bilinu. Við erum í góðri stöðu í deild-
inni og mætum Veszprém í átta liða
úrslitum í Meistaradeildinni. Ég met
það svo að við eigum góða möguleika
á þrennunni. Við förum í öll mót til
að vinna þau. Það eru skýr markmið
og við höfum alltaf sagt það. Við er-
um ekkert að fela það,“ sagði Aron
sem átti mjög góðan leik sem og
Guðjón Valur.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Kiel en liðið sækir Lüb-
becke heim á miðvikudag og fær svo
Veszprém í heimsókn á sunnu-
daginn. gummih@mbl.is
„Vonandi fyrsti af þremur“
Kiel varð þýskur bikarmeistari Aron
og Guðjón Valur voru atkvæðamiklir
AFP
Meistarar Liðsmenn Kiel fagna bikarmeistaratitlinum í Hamborg í gær.