Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 Móðurást Í Elliðaárdalnum mátti sjá hana Svanhildi í góða veðrinu að synda með ungana sína fögru. Ómar Kári Stefánsson Vísindamenn Ís- lenskrar efðagrein- ingar hafa unnið að rannsóknum á erfðum fjölmargra sjúkdóma á síðustu sautján árum og hafa lagt töluvert af mörkum til þess fjölda meingena sem hafa uppgötvast á því tíma- bili. Þeir hafa einnig öðlast mikið innsæi inn í það hvernig íslensk erfðamengi eru samansett og gætu þar af leiðandi sagt fyrir um það með mikilli vissu hvort ein- staklingar hýsi stökkbreytingar í genum sem geta leitt til illvígra sjúk- dóma eins og ákveðinna krabba- meina. Flest þessara krabbameina eru þess eðlis að þau deyða þann sem greinist með þau nema þau greinist snemma eða gripið sé inn í áður en þau greinast. Þar af leiðandi væri hægt að bjarga mannslífum ef hægt væri að bera kennsl á þá sem hafa stökkbreytingar sem auka líkur á þessum meinum. Ég hef bent heil- brigðisyfirvöldum á Íslandi á þann möguleika sem felst í getu okkar til þess að finna þessa arfbera en hef talað fyrir daufum eyrum eða málinu hefur verið vísað til nefnda sem hafa komist að raun um að réttast sé að gera ekkert og leyfa þessu fólki að deyja sínum drottni óáreitt vegna þess að áreitið af því að vita af hætt- unni vegi þyngra en möguleikinn á því að bjarga lífi þess. Þegar fræg bandarísk leikkona sem átti móður sem dó af völdum krabbameins í brjósti komst að því að hún væri með stökkbreytingu í BRCA1 sem fylgdu 87% líkur á því að hún fengi banamein móður sinnar og lét fjarlægja úr sér bæði brjóstin og sagði frá því í New York Times spruttu upp miklar umræður um brjóstakrabbameinsgen um allan heim og ekki síst á Íslandi. Það má leiða að því rök að umræðan á Íslandi standi á þremur fótum, í fyrsta lagi staðreyndum, í öðru lagi tilfinningum og í þriðja lagi skoðunum. Skoðan- irnar byggjast líklega jafnmikið á til- finningunum og staðreyndunum og er það ekki endilega slæmt. Við get- um hins vegar gengið úr skugga um að staðreyndirnar standi undir nafni eða séu réttar en til- finningarnar og skoð- anir eru bara; þær eru hvorki réttar né rang- ar. Vísindamenn ÍE gætu fundið í kringum 2.400 íslendinga sem bera stökkbreytingu í BRCA2-geninu sem styttir líf kvenna að meðaltali um tólf ár og karla um þrjú. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að landlæknir hafi látið hafa það eftir sér í viðtölum að við gætum þetta ekki. Það er að vísu rétt sem hann hefur sagt að það sé ákveð- in óvissa í ákvörðun á þessu, en það á við um allar mælingar, hvort sem þær eru gerðar í tengslum við lækn- isfræði eða ekki. Það mætti hins veg- ar minnka þá óvissu niður í næstum ekki neitt með því að arfgerðar- greina á nýjan leik alla þá sem við bærum kennsl á. ÍE gæti gert það fljótt og samfélaginu að kostnaðar- lausu. Ef þetta væri gert mætti bjóða þeim konum sem bera BRCA2- stökkbreytinguna og eru í bráðri hættu á því að fá brjóstakrabbamein upp á nákvæmt eftirlit og jafnvel að- gerð sem gæti minnkað krabba- meinshættuna niður fyrir meðal- áhættu þeirra sem bera ekki stökkbreytinguna. En til þess að við getum borið kennsl á einstaklinga þarf samfélagið að vilja það og leyfi þarf að fást frá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd. Öll gögn sem ÍE býr yfir eru á dul- kóðuðum kennitölum og hefur verið aflað til þess að vinna að vísindarann- sóknum, sem hafa hlotið leyfi Per- sónuverndar og Vísindasiðanefndar og það verða ekki borin kennsl á þatttakendur öðru vísi en í gegnum lykil sem er í forsjá Persónuverndar. Það eru einkum tvenn meginrök sem hafa heyrst gegn því að hafa beint samband við arfbera BRCA2- stökkbreytingarinnar. Í fyrsta lagi mætti leiða að því rök að það væri að vissu leyti brot á samningi milli ÍE og þátttakendanna ef gögn um þá væru notuð í klín- ískum tilgangi. Í annan stað eigi arf- berarnir rétt á því að vita ekki hvort þeir hýsi stökkbreytinguna. Þessar röksemdir lúta annars vegar að mik- ilvægum rétti þátttakendanna sem eiga að ráða mestu um það hvernig upplýsingar um þá eru notaðar og hin að mikilvægum rétti okkar allra til þess að hafa val um það hverju er snúið að okkur. Í báðum tilfellum er um að ræða mikilvægan rétt en í hvorugu tilfellanna rétt sem er án vafa mikilvægari en allt annað. Ég held því fram að í báðum tilfellum sé um að ræða rétt sem er trompaður af mikilvægi þess að geta bjargað lífi arfberanna sem eru í geigvænlegri hættu. Þetta er mín skoðun sem ég styð til dæmis með tveimur röksemd- um, annarri úr siðfræðinni og hinni úr hefð í íslensku samfélagi. Siðfræðiröksemdin: Ein af þeim spurningum sem siðfræðingar nota oft sem dæmi um skyldur sem á okk- ur hvíla er hvort að sá maður sem hrindi öðrum fram af bryggjunni þannig að hann drukkni sé sekari en sá sem stendur aðgerðarlaus á bryggjusporðinum og horfir á annan mann drukkna sem datt í sjóinn af eigin rammleik. Svarið er oftast að það sé í sjálfu sér ekki mikill munur. Okkur ber skylda til þess að bjarga lífi ef við getum það þótt það megi sjálfsagt deila um það hversu mikla áhættu okkur beri að taka við björg- unina. Samkvæmt þessu bæri þátt- takendunum í rannsóknum ÍE skylda til þess að bjarga lífi arfber- anna og réttur þeirra til þess að tak- marka notkun gagnanna hlyti að víkja. Í þessu tilfelli væri áhættan sem þátttakendurnir tækju nákvæm- lega engin. Dæmi úr Íslensku samfélagi: Ef rjúpnaskytta skilar sér ekki heim að kveldi sendum við leitarflokka eftir henni án þess að spyrja hana leyfis þótt reynslan sýni að það séu tölu- vert minni líkur á því að hún verði úti en að arfberi BRCA2-stökkbreyt- ingar deyi úr brjóstakrabbameini. Þetta gerum við vegna þess að okkur þykir réttur skyttunnar til þess að taka sjálf ákvörðun um framvindu mála léttvægur miðað við nauðsyn þess að koma henni til byggða. Við merkjum sígarettupakka með hót- unum um dauða eða alvarlega sjúk- dóma þótt ekki séu nema 14,5% líkur á því að einstaklingur sem reykir til langframa fái lungnakrabbamein og við brjótum þar með rétt þeirra reykingamanna sem ekki vilja vita. Þetta gerum við vegna þess að við vonumst til þess að með því að brjóta þennan rétt á hundrað prósentum reykingamanna getum við fækkað þeim og þar með minnkað þann fjölda sem felst í þessum 14,5%. En BRCA2 er ekki eina dæmið um erfðavísi með stökkbreytingu sem eykur mjög hættuna á banvænum sjúkdómi sem við gætum auðveld- lega staðsett meðal Íslendinga og á þann máta búið til forsendur fyrir því að bjarga mannslífum. Taflan hér að neðan er með sex dæmi úr krabba- meinsheiminum. Við erum þar að auki með mýmörg slík dæmi úr ann- ars konar sjúkdómum. Mín skoðun er sú að íslensk þjóð eigi að nýta sér þennan möguleika á því að bjarga sínum frá grimmum ör- lögum. Mér finnst að við eigum að láta einstaklinga vita frekar en að segja þeim að þeir geti leitað sér upplýsinga. Ég byggi þessa skoðun á röksemdunum hér að ofan og þeim ótta mínum að það verði of margir arfberar sem ekki hafi uppburði í sér til þess að leita upplýsinganna. Þessi ótti á rætur sínar í því að býsna stór hundraðshluti þeirra sem vita að þeir eru í brjóstakrabbameinsfjölskyldu hafa ekki látið arfgerðargreina sig jafnvel þótt þeim hafi verið ráðlagt að gera það. Mér finnst að sú skoðun að rétturinn til þess að vita ekki sé svo ríkur að hann komi í veg fyrir að hægt sé að gera þetta eigi rætur sín- ar í steinhjartanu en hér er ég að tjá skoðun sem byggist fyrst og fremst á tilfinningum. Eftir Kára Stefánsson »Mín skoðun er sú að íslensk þjóð eigi að nýta sér þennan mögu- leika á því að bjarga sín- um frá grimmum örlög- um. Kári Stefánsson Höfundur er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Að bjarga eða bjarga ekki mannslífum Stökkbreytingar í krabbameinsgenum á Íslandi BRCA2 -12 ár (konur) Brjóst 13-föld 2400 -3 ár (karlar) Eggjastokkar 15-föld Bris 7-föld BRCA1 Mjög sjaldgæft Brjóst óendanlegt óþekkt Eggjastokkar óendanlegt PALB2 -3 ár Brjóst 3-föld 600 BRIP1 -4 ár Eggjastokkar 8-föld 3000 Bris 3-föld PMS2 Mjög sjaldgæft Ristill 4 föld 720 Legbolur 10-föld MSH2/MSH6 -8 ár Ristill 10-föld 240 Legbolur 30-föld Áhrif á lífslíkur Áhættuaukning meðstökkbreytingu Fjöldi einstaklinga með breytingu (af 300 þús.)KrabbameinGen Leikkonan heims- þekkta Angelina Jolie hefur stigið fram og greint frá því að hún hafi látið fjarlægja bæði brjóst sín vegna þess að hún er með arfgengt meingen. Um 80 pró- sent líkur séu á því að hún fái brjósta- krabbamein, sem geti leitt hana til dauða langt fyrir aldur fram. Þetta hefur að sjálfsögðu vakið heimsathygli. Jolie segir að hún upplifi sig engu minni konu þrátt fyrir að bæði brjóstin hafi verið fjarlægð. Mik- ilvægast af öllu sé að geta verið með börnum sínum og fjölskyldu sem lengst með því að koma í veg fyrir að deyja um aldur fram. Mæli Angelina manna heilust. Nú er staðan sú að hér á Íslandi eru til einstakar upplýsingar um nær allar konur sem bera þetta meingen. Það er að sjálfsögðu skylda íslenskra yfir- valda að koma þeim upplýsingum til umræddra kvenna tafarlaust. Ég spyr mig hins vegar; ef Angelina Jolie hefði ekki stigið fram hefði þetta mál e.t.v. aldrei komið til umræðu í fjölmiðlum á Íslandi og skýrslur eða dulkóðaðar upplýsingar „rykfallið“ án þess að koma í veg fyrir yfirvof- andi hættu. Þar ráði ein- hver ríkisforsjá um hvað fólk megi og megi ekki vita um sitt eigið líf. Kári Stefánsson, for- stjóri Íslenskrar erfða- greiningar, segist hafa rætt við þrjá heilbrigðis- ráðherra um þetta mál og hvatt þá til aðgerða en án árangurs og að opinber nefnd, sem sérstaklega var skipuð vegna þess máls, hafi lagst gegn því að upplýsa viðkomandi konur um hættuna. Ég er ekki í nokkrum vafa um að við viljum öll vera vöruð við aðsteðjandi hættu við líf okkar eða barna okkar. Ég spyr að gefnu tilefni; veit ríkið eitthvað fleira sem snertir öryggi fólks í land- inu sem haldið er leyndu? Óhugnanlegur veruleiki á Íslandi í dag. Óhugnanlegur veruleiki Eftir Elínu Hirst Elín Hirst »Ég er ekki í nokkr- um vafa um að við viljum öll vera vöruð við aðsteðjandi hættu við líf okkar eða barna okkar. Höfundur er alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.