Monitor - 27.06.2013, Qupperneq 4
4 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Stefnan
er alltaf
að skora
M
yn
d/
Eg
ge
rt
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?
Ég held ég hafi verið fjögurra ára þegar ég byrjaði
að æfa og ég hef bara verið með boltann á tánum
síðan. Ég byrjaði að fara á völlinn með pabba ung
og eldri systkini mín voru líka í fótbolta.
Varstu „sett“ í fótbolta?
Nei, nefnilega ekki. Mér fannst þetta bara
skemmtilegt frá upphafi. Pabbi hefur rosalegan
áhuga á fótbolta og ég var alltaf jafn spennt að
fara með honum á völlinn og líklega hefur áhugi
minn kviknað út frá því. Ég held að mig hafi bara
langað að spila og ég var snemma farin að leika
mér með bolta.
Þurftir þú að æfa með strákum fyrst þú byrjaði
svona ung í fótbolta?
Ég þurfti þess aldrei. Það er svo flottur kvenna-
fótboltinn í Val. Við erum nokkrar sem ólumst upp
saman í boltanum og það var alltaf mikil sam-
keppni á milli okkar og það myndaðist rosalega
góð stemmning. Við erum ennþá þrjár eða fjórar
úr þessum hóp að æfa saman enn í dag, allar
upppaldar sem Valsarar, og það er ofboðslega
gaman. Ég er rosalega mikill Valsari og er ofboðs-
lega ánægð með mitt lið.
Áttu þér happatölu?
Ég hef flakkað svolítið á milli númera eftir að ég
byrjaði í meistaraflokk en fyrir það spilaði ég alltaf
í númer tíu. Bróðir minn var alltaf númer tíu og
líklega vildi ég vera eins en ég held að hann hafi
valið hana út af Maradona.
Þú varst markadrottning Pepsi-deildarinnar í
fyrra og ert einnig markahæst eftir leiki sumars-
ins með 11 mörk í 8 leikjum.
Ég er allavega markahæst sem stendur og stefni
að sjálfsögu á að halda því. Stefnan er auðvitað
alltaf að skora.
Hefurðu alltaf verið svona mikill markaskorari?
Já, eiginlega. Mig minnir að ég hafi byrjað mjög
sterkt þegar ég var lítil. Ég var sett fram strax
í upphafi og hef skorað í gegnum alla yngri
flokkana.
Nú ert þú ekki bara fótboltakempa heldur MR-
ingur í ofanálag. Skólinn hefur ekki beint það
orð á sér að vera auðveldur, hvernig fer námið
saman við fótboltann?
Ég valdi brautina Náttúrufræði II sem er kannski
aðeins auðveldari braut en Náttúrufræði I, það
er aðeins minni stærðfræði á minni braut en
auðvitað eru gerðar miklar kröfur til manns. Ég
valdi samt Náttúrufræði II út af valinu sem er
í sjötta bekk því ef maður er í fótbolta og hefur
spilað með landsliðinu getur maður fengið það
metið til eininga.
Þú stefndir þá alltaf að því að fara í landsliðið og
fá það metið?
Já, þannig lagað. Þegar ég byrjaði í skólanum
hafði ég spilað með U19-landsliðinu minnir mig
og maður fær einhverjar einingar fyrir það líka.
Tekst þér að eiga eitthvert félagslíf milli þess
sem þú lærir og spilar fótbolta?
Ég næ einhvern veginn alltaf að púsla þessu
saman. Á virkum dögum í vetur fór ég í skólann,
á æfingar og svo heim að læra og ef tími gafst til
hitti ég vinina en það var ekkert sjálfsagt. Maður
kallar þetta svo sem ekki fórn þegar maður er að
gera það sem manni finnst skemmtilegt en ég hef
alveg þurft að sleppa ýmsu í félagslífinu. Það er
samt bara eitthvað sem ég er búin að sætta mig
við og myndi ekki vilja breyta.
Þú varst valin í EM-hóp A-landsliðsins núna á
mánudaginn var, áttir þú von á að vera valin í
hópinn?
Maður vonar auðvitað alltaf það besta en ég
bjóst ekkert við því frekar. Ég var mjög stressuð en
mér líst mjög vel á það sem er framundan. Það er
afar gott að koma inn í þennan hóp, þetta eru svo
skemmtilegar stelpur. Það er oft talað um að kon-
ur séu konum verstar en ég sé það ekki í þessum
hóp. Þær eru allar orðnar svo þroskaðar og taka
manni opnum örmum en maður finnur eins fyrir
metnaðinum og áhuganum sem er fyrir hendi. Það
er æðislegt að vera hluti af svona hópi.
EM fer fram í Svíþjóð í júlí, kemur það ekkert illa
við sumarvinnuna?
Ég er að vinna hjá Batik sem sér um bolaprentun
og auglýsingavörur. Þeir hafa fullan skilning á því
þegar ég þarf að fara aðeins fyrr til að komast á
æfingar og svona sem er frábært. Ég þarf aðeins að
ræða við þá að ég þurfi frí þarna í júlí en ég held
að það verði ekkert mál.
Hvert stefnir þú í framtíðinni?
Ég er rosa spennt fyrir því að prófa að fara í
háskólanám í Bandaríkjunum þar sem fótbolta-
stelpur fá oft fullan skólastyrk. Svo er atvinnu-
mennskan líka stór draumur. Mér finnst atvinnu-
mennskan frábært tækifæri til þess að kynnast
heiminum.
ELÍN METTA Á 30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 010395
Fyrirmynd: Foreldrar mínir og Mia Hamm
Í ísbúðinni fæ ég mér: Ég fer yfirleitt í Vesturbæj-
arís og fæ mér lítinn bragðaref með jarðarberjum,
bláberjum og snickers.
Takkaskór: Nike Tiempo, svartir og appelsínugulir.
Uppáhalds lið í ensku: Chelsea.
Uppáhalds teiknimyndapersóna: Skógardýrið Húgó
Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen er Valsari í húð
og hár. Í fyrra skoraði hún 18 mörk í Pepsi-deildinni og í
júlí fer hún á sitt fyrsta stórmót með íslenska landsliðinu.
Monitor rabbaði við markadrottninguna um lífið í boltanum.