Morgunblaðið - 03.09.2013, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2013
BÍLAR 5
maður vera ansi léttur í sætinu, og
vissi ekkert hvað myndi taka við.
Eftir góðan bremsukafla stuttu
seinna komu tveir þröngir hlykkir
þar sem stýrinu var sveiflað næst-
um 180° í hvora átt áður en að
komið var að beina kaflanum. Þar
gat maður haldið bensíngjöfinni í
botni í um það bil 12 sekúndur áður
en komið var að lægð í landslaginu
sem neyddi mann til að bremsa sig
niður úr 230 km hraða. Við tók af-
líðandi beygja á 160 km hraða inn á
beina kafla austurslaufunnar, þar
sem bíllinn náði 220 km hraða áður
en maður bremsaði af öllu afli í
smástund til að fá grip fyrir tvo
hlykki rétt áður en bílnum var skellt
niður í 80 km hraða í krappa vinstri
beygju fyrir ráskaflann. Þarna var
eini staðurinn í brautinni þar sem
að bíllinn yfirstýrði örlítið enda
beygjan ansi kröpp rétt fyrir botn-
gjöf að rásmarkinu.
Gripið nánast alltaf til staðar
ÚFF! Eins og þetta hefði ekki ver-
ið nóg upplifun var dæmið alls ekki
búið, og það var bara rétt að koma
að hádegi. Fyrir matinn var okkur
boðið upp á að prófa upptaksstýr-
inguna (Launch Control) á sér-
stakri æfingarbraut. Bíllinn var ein-
faldlega staðinn í botn á bæði
bremsu og bensíngjöf þar til mæla-
borðið fór að blikka, og þá sleppti
maður bremsunni. Bíllinn sá þá um
það sjálfur að hámarka kraft, grip
og skiptingar til að ná sem stystum
upptakstíma. Upplifunin sem slík
var einstök og frasinn um að þrýst-
ast aftur í sætið fékk algerlega nýja
merkingu. Sjálfskiptingin er með
tveimur kúplingum svo að næsti gír
er ávallt tilbúinn og ekki fræðilegur
möguleiki fyrir nokkurn mann að
vera fljótari að skipta um gír en
þessi sjálfskipting.
Seinni hluti þessarar brautar var
svigakstur gegnum keilur og fékk
undirritaður sérstakt leyfi til að
prófa tvo hringi án PSM-skrikv-
arnar. Kom það verulega á óvart að
finna hversu erfitt var að losa bíl-
inn, gripið sem hann hefur gegnum
afturhjólastýringuna og PTV-
spólstýringuna ásamt PDCC-
veltustýringunni er svo mikið að
maður saknar næstum þess að
hann yfirstýri ekki meira. Gripið
hefur líka þau áhrif að maður held-
ur að það sé næstum alltaf til stað-
ar sem gæti reynst skeinuhætt.
Enginn sparaksturskerra
Eftir hádegismat var skroppið í
reynsluakstur um sveitavegi og
hraðbrautir í nágrenninu og ósk-
uðum við Íslendingarnir eftir því að
fá að taka lengstu leiðina sem var í
boði. Fljótlega eftir að komið var út
fyrir brautina rákumst við líka á
eina gallann sem þessi bíll hafði,
svokallað Stop & Go sem algengt
er í bílum í dag og slekkur jafnvel á
þessum bíl á allt að 7 km hraða. Til
hvers er manni spurn, og sér-
staklega í þessum bíl? Í eina skiptið
sem bíllinn slökkti á sér á ferð var
einmitt þegar undirritaður var að
læðast að gatnamótum. Skjótast
átti af stað þegar færið gafst en
einmitt þá slökkti hann á sér á
versta tímapunkti. Í upphafi ferð-
arinnar hafði maður hugsað sér að
prófa bílinn á 300 km hraða á hrað-
brautinni en það reyndist ekki
hægt vegna mikillar umferðar. Við
gátum þó huggað okkur við það að
við áttum bæði hraðamet dagsins
meðal blaðamanna, 282 km á klst.
og einnig bensíneyðslumetið. Akst-
urinn var líka kannski enginn spa-
rakstur en alls fórum við með
næstum tvo bensíntanka sem hvor
tekur 68 lítra.
Takk fyrir mig!
Að akstursdegi loknum varð
okkur tíðrætt um hversu mikill of-
urbíll Porsche 911 Turbo S er, um
leið og hann má nota jafnhendis í
búðarsnattið og brautarakstur.
Spurningin sem við spurðum okk-
ur var þó kannski helst sú hvort
einhver myndi kaupa slíkan bíl
heima, engin er brautin þó að nóg
sé af búðunum. Verðmiðinn yrði
líklega eitthvað nærri 40 milljónum
sem er ekki á færi margra.
Til stendur þó að sýna slíkan bíl
hér á landi næstu helgi hjá umboð-
inu, Bílabúð Benna, um leið og
fagnað er 50 ára afmæli Porsche
911. Fyrir mitt leyti óska ég þeim til
hamingu með afmælið um leið og
ég þakka fyrir að vera kóngur einn
dag og fá að keyra þennan bíl við
þessar aðstæður, tækifæri sem
örugglega kemur ekki á hverjum
degi.
njall@mbl.is
Porsche 911 Turbo S Árgerð 2013
•3,8 lítrabensínvél
• 560hestöfl/750Nm
•7þrepaPDKsjálfsk.
• 20 tommuálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.605bsk
• Farangursrými: 375 lítrar
• 0-100km/sek: 3,1 bsk
•Hámark: 318km/klst
• Fjórhjóladrif
•Verð:Óuppgefið
•9,7L/100kmíblakstri
• Umboð:Bílab.Benna
•Mengunargildi:
227gCO2/km
Yfirlitsmynd yfir
Bilster Berg-
brautina sýnir beinu
kaflana.
TÍMAREIMAR
VARAHLUTAVERSLUN
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com
Gæðavara
á góðu verði
Kostir: Sjálfskipting, afturhjólastýring
Gallar: Stop & Go, til hvers? Of mikið grip?
Ekki óalgeng sjón með-
an á brautarakstrinum
stóð, snúningurinn í
botni og kúrfan fyrir.
Greinarhöfundur ekur niður
brekkuna í átt að Músagildr-
unni, tæknilega erfiðum kafla í
Bilster Berg-brautinni og þótt
víðar væri leitað.