Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Blaðsíða 19
28.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar
Orðið sem kom upp í hugann þegar ég sá fyrsta gullna
apann í Mgahinga-þjóðgarðinum var einfaldlega: Krútt!
Gullnu aparnir, sem finnast aðeins í fjöllunum á landa-
mærum Rúanda, Úganda og Kongó, eru í útrýming-
arhættu. Þeir halda til í stórum hópum og fara hratt yf-
ir. Helsta fæða þeirra er bambus og þeir eru snjallir við
að rífa utan af bambusreyrnum með smáum fingrum
sínum til að komast að safaríkasta hlutanum. Þessi smá-
vöxnu krútt eiga undir högg að sækja. Sífellt stærra
svæði er brotið til ræktunar sem hefur rekið þá hærra
upp í fjöllin. Þá hafa stríð í Úganda, þá Rúanda og loks
nú í Kongó orðið til þess að fækka þeim.
Það er þrautin þyngri að ná myndum af þeim. Þeir eru snöggir í hreyfingum og mjög varir
um sig. Þeir hafa gengið í gegnum aðlögun að mannfólki og eru því vanir því að fá heimsóknir.
Feldur þeirra er mjög sérstakur og litríkur.
Þeir yngri leika sér, hrinda hver öðrum niður úr trjánum og stökkva á milli greina í eltinga-
leik. Ég sest niður og fylgist með þeim. Það er auðvelt að gleyma sér því þeir eru sérlega líf-
legir og skemmtilegir. Fyrr en varir er tíminn úti. Klukkustund er liðin. Eftir viku koma aðrir
ferðamenn að skoða þessar gullnu gersemar fjallanna.
Gullnu aparnir eru fjörugir og hlaupa um bambusreyrinn af miklu öryggi.
Gullfalleg móðir með unga sinn.
GULLNU APARNIR ERU Í ÚTRÝMINGARHÆTTU
Gullin gersemi í fjöllunum
Morgunblaðið/Sunna
*„Górillur ógna ekkifólki, fólk ógnar þeim“