Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Nanna Rögnvaldardóttir hélt boð fyrir samstarfskonur þar sem kjúklingur var í forgrunni »32
MADRAS-LOKUR
Gúrka, röspuð og skorin í þunnar sneiðar
Madras-karrí eftir smekk
Mjúkt smjör
Hvítlauksspírur eða annað til skreytingar
Aðferð
Karríinu er hrært út í smjörið, sirka einni te-
skeið á móti tveimur matskeiðum af smjöri.
Skorpan er skorin af brauðinu. Smyrjið á brauð-
ið og raðið svo gúrkum ofan á. Tvær brauð-
sneiðar eða fleiri eru settar saman og búin til
loka. Hvítlauksspírurnar toppa svo samlokuna.
LASSÍ
Þessi uppskrift er fín í tvö glös.
2 dósir af hreinni jógúrt
1 vel þroskað mangó skorið í
bita
12 saffranþræðir
Aðferð
Saffran-þræðirnir eru bleyttir
upp í volgu vatni. Allt sett saman í
þeytara og blandað vel saman.
Þynnt með ísköldu vatni og sett í
glös á fæti.
H
ún er hugmynda- og
hæfileikaríkur mat-
gæðingur og ljós-
myndari sem elskar
að ferðast. Flókið er að koma
fingri nákvæmlega á það sem
hún gerir en í stuttu máli er gott
að leita til Áslaugar þegar tilefni
er til að slá í gegn með veislur
eða borðhald. „Uppáhaldið mitt
er að ferðast og er það al-
gjörlega mín næring. Það er
ótrúlegt hvað fæðast margar
hugmyndir á ferðalögum og þær
eru eins ólíkar og umhverfið,“ segir Áslaug. „Hálendið er magnað og þar
spretta upp stórar hugmyndir. Flatey færir mann einnig nær hjartanu og
þakklæti fyrir lífinu. Síðasta ferðalag var í Þykkvabæinn og það kom á
óvart hvað spratt margt í kollinn þar.“
Áslaug er nýlega komin heim frá Stokkhólmi og upplifði þar óborg-
anlegt frelsi með því að hjóla um borgina í tvær vikur. „Ég tala nú ekki
um gleðina að teygja sig eftir epli í trjánum þar, borðaði mörg á dag,“
segir hún kát. „Allt sem ég geri er innblástur úr ferðalögum, þá kemur
allt til manns sem kallað er á.“
Teboð tileinkað Englandsdrottningu
Uppskriftirnar á myndunum eru úr tveggja manna veislu með indversku
og bresku ívafi sem var haldin í tilefni af krýningarafmæli Elísabetar
drottningar. „Vinkona mín útbjó allan matinn og svo sátum við heilan dag
við borðið, drukkum te, kampavín og lassí. Madraslokurnar voru svaka-
lega góðar með mangólassí. Það fer síðan eftir hugarástandi hvort allt sé
eldað frá grunni, ég mæli með að stytta sér leið af og til en þá kaupi ég
samósur, pakoras og popadum á Austurlandahraðlestinni.“
Áslaug segir gaman að búa til stemningu heima við enda sé heimilið
hennar vinnustaður. „Hver veisla er sérsniðin fyrir hvert tækifæri og þá
rifjast upp fyrir mér veisla fyrir Mótettukórinn, þemað þar var þjóðhöfð-
ingjar. Ég fór í svaka stuð enda engin landamæri, sem hentaði vel. Þar
voru páfuglar, kamelhælar og fleira góðgæti. Veislan endaði síðan á
tveimur risabrjóstum, tileinkuðum Berlusconi og Suleiman í Ottómanveld-
inu, en hann var með hundruð kvenna í búrinu sínu.“Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Uppskriftin að Lassí kemur vel út í fallegu glasi á fæti.
Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir.
TILVALIÐ Í TEBOÐ
Indverjinn
í garðinum
Á DÖGUNUM HÉLDU TVÆR VINKONUR ENSKT TEBOÐ
FYRIR TVO MEÐ INDVERSKU ÍVAFI. ÁSLAUG SNORRADÓTT-
IR GEFUR LESENDUM SUNNUDAGSBLAÐSINS UPPSKRIFTIR
AÐ FRÁBÆRU TEBOÐSSNARLI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Þessar fínu Madras-lokur
er girnilegar á disknum og
hvítlauksspírurnar
skemmtileg skreyting.
Áslaug Snorradóttir er fagurkeri mikill.
Morgunblaðið/Eggert
Indverskt snarl