Akureyri - 21.11.2013, Qupperneq 2
2 21. nóvember 2013
Einlægur á Alþingi
Hjálmar Bogi Hafliðason,
varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í Norð-
austurkjördæmi, lét mikið
að sér kveða þegar hann
sór trúnaðareið og settist í
fyrsta skipti inn á Alþingi
í vikunni.
Hann var ekki fyrr
mættur til þings en hann
gagnrýndi stjórnarand-
stöðuna fyrir að beita
sömu brögðum og hún
gagnrýndi síðustu stjórn-
arandstöðu fyrir. „Ég
nenni ekki að taka þátt í
þessu leikriti, sagði vara-
þingmaðurinn.
Þá bar svo við að
Hjálmar Bogi þakkaði
Svandísi Svavarsdóttur,
þingmanni VG, í ræðustóli
fyrir sérstaklega góða og
innblásna ræðu um nátt-
úruvernd í umræðu um
ný náttúruverndarlög. En
þar sem Hjálmar Bogi
hefur augljóslega ekki
haft mikla trú á að mikil
einlægni hafi ríkt á Alþingi
milli andstæðra fylkinga,
sá hann sérstaka ástæðu
til að taka fram að lof hans
til Svandísar væri ekki
kaldhæðni. a
Ný sending!
Steinsmiðja Norðurlands, Glerárgata 36, S: 466 2800
Lampar frá
4.900-
Hlýleg birta í skammdeginu
Mikið úrval - Frábært verð
Stjórnum því miður ekki veðrinu
Rekstraraðilar Kaffihússins Bjark-
ar hafa borið því við að óheppilegt
tíðarfar og ónógur snjómokstur hjá
Akureyrarbæ í Lystigarðin-
um hafi átt þátt í að svo fór
sem fór varðandi rekstur
kaffihússins Bjarkar. Ei-
ríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri á Akureyri
vísar þeirri gagnrýni á bug.
„Því miður hafa áætlan-
ir rekstraraðila kaffihúss í
Lystigarðinum ekki geng-
ið eftir. Hugsanlega hafa
einhverjir utanaðkomandi
þættir haft þar áhrif ásamt
öðrum mikilvægari þátt-
um. Akureyrarbæ hefur
því miður ekki enn tekist
að hafa stjórn á veðrinu
í sveitarfélaginu en sam-
kvæmt mínum upplýs-
ingum var fyrst byrjað
að sinna almennum snjó-
mokstri í garðinum eftir að
kaffihúsið var opnað. Við
könnumst ekki við kvart-
anir vegna þessa til bæjar-
ins,“ segir bæjarstjóri.
Spurður hvort rétt sé að
1912 Veitingar ehf, rekstr-
arfélag Sigurðar Guð-
mundssonar og Náls Trausta Frið-
bertssonar skuldi 3ja mánaða leigu
til bæjarins eins og heimild innan
bæjarkerfisins heldur fram, svarar
bæjarstjóri: „Ég hef því
miður ekki heimild til að
upplýsa um slíkt en samn-
ingar munu væntanlega
fara í gang á milli rekstrar-
aðilans og Akureyrarbæjar
um frágang málsins.“
Bæjarstjóri segir að
Stjórn Fasteigna Akur-
eyrarbæjar sé nú með
málið til umfjöllunar og
afgreiðslu. Málið sé einnig
á borði bæjarlögmanns og
unnið sé með það markmið
að lausnin „sé sem hag-
stæðust fyrir bæjarfélagið“.
VILL UMRÆÐU UM
HÆFI OG VANHÆFI
Sigurður Guðmundsson er
oddviti A-listans í bæjar-
stjórn og Njáll Trausti er
varabæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins. Hallur
Heimisson, formaður
Samfylkingarfélagsins á
Akureyri og stjórnarmað-
ur í Fasteignum Akureyrar,
segir að sú lína sem liggi
milli einstaklings og stjórnmála-
manns sé örfín. Margar spurningar
vakni vegna þeirrar stöðu sem upp sé
komin í málefnum Lystigarðshússins.
„Í því máli sátu kjörnir fulltrúar ansi
nærri borðinu og nærvera þeirra
getur orkað tvímælis. Ég hef áður
bent á hættu á hugsanlegum hags-
munaárekstrum. Umfjöllun um þetta
mál er fullnægjandi ástæða til að
taka umræðu um hæfi og vanhæfi
á vettvangi bæjarmála til ítarlegrar
umfjöllunar,“ segir Hallur.
Oddur Helgi Halldórsson, bæj-
arfulltrúi L-listans, hefur sagt að
aldrei hefði verið tekin ákvörðun um
svo stórt og dýrt hús og bærinn reisti
í Lystigarðinum ef rekstrartilboðið
sem nú virðist úr sögunni hefði ekki
komið til. Um það hvort hætta sé á
að bæjarfulltrúar sitji beggja megin
borðsins í máli eins og þessu svarar
bæjarstjóri að bæjarfulltrúar taki
aldrei þátt í ákvörðun um mál sem
snerti þá eða fyrirtæki þeirra.
„Í þessu tilviki var verkið boðið út.
Tilboð bárust nafnlaust til verkefn-
isliðs um framkvæmdina sem lagði
faglegt mat á tilboðin og lagði til
hvaða tilboð væri best að taka. Ekki
var ljóst hvaða aðilar ættu besta til-
boðið fyrr en eftir að þetta lá fyrir,“
segir Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri. a
Mikið agaleysi í umferðinni
„Ég rek mig á þetta á morgnana að
fólk er ómerkt alveg í hrönnum. Hvar
eru endurskinsmerkin?“ Spyr Har-
aldur Ævarsson atvinnubílstjóri.
Í frétt blaðsins í síðustu viku kom
fram gagnrýni á atvinnubílstjóra, að
þeir gættu ekki hagsmuna gangandi
umferðar og þá ekki síst skólabarna
sem skyldi. Haraldur segir að vel megi
brýna atvinnubílstjóra til betri siða
og aukinnar árvekni. Hann vill þó
benda á að umferðarmenning margra
gangandi vegfarenda sé ekkert til að
hrópa húrra yfir heldur. Endurskins-
merki vanti á bæði börn og fullorðna.
Hann sjái mörg dæmi þess í myrkrinu,
bæði kvölds og morgna, að fólk nenni
ekki að fara yfir gangbrautir heldur
stytti sér leið yfir götur, kannski að-
eins 10 metra frá næstu gangbraut.
„Maður verður oft bara reiður á
morgnana að sjá kannski ómerkt
svartklætt fólk hlaupandi um götur
alls staðar, það eru bæði krakkar og
fullorðnir , ég verð vitni að miklu
agaleysi,“ segir Haraldur.
Hann segir það „óskaplega ein-
földun“ að hnýta bara í atvinnubíl-
stjóra og bílstjóra yfir höfuð. „Þenn-
an vanda þarf að ræða.“ a
„Þetta er alveg
frábært“
„Aðstæður verða mjög góðar þegar
við opnum skíðasvæðið á morgun,
föstudag. Það er búið að snjóa tölu-
vert og það hefur verið kalt síðustu
daga. Miðað við árstíma er þetta al-
veg frábært,“ segir Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðumaður skíðasvæð-
isins í Hlíðarfjalli
Opnun svæðisins á morgun ber
upp á sama árstíma og í fyrra. Ljóst
er að margt skíðafólk er komið með
fiðring í tærnar en stundum hefur
fólk þurft að bíða eftir opnun fram
í miðjan desember.
Þegar rigndi í byggð fyrir þremur
vikum kyngdi snjó niðri í Hlíðarfjalli
á meðan. Þá varð til mjög þétt undir-
lag og verða flestar skíðaleiðir í fjall-
inu opnar frá og með morgudeginum.
„Það verður hægt að fara á toppinn,“
segir Guðmundur Karl kátur.
Nokkur hækkun hefur orðið á
gjöldum í skíðabrekkurnar milli
ára en á móti koma auknir not-
endamöguleikar. Vetrarkort á fullu
verði hækkar úr 30.000 krónum í
39.000 krónur en í fyrsta skipti í
skíðasögunni getur korthafi nú lánað
kortið hverjum sem er. Þannig getur
reykvískur skíðagestur fengið lánað
kort heimamanns ef svo ber við. a
Aðstoð fyrir fátæka hafin
Eins og fram hefur komið verð-
ur samstarf um jólaaðstoð milli
Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálp-
ræðishersins, Mæðrastyrksnefndar
Akureyrar og Rauða krossins við
Eyjafjörð. Aðstandendur vilja kom
því á framfæri að þeir sem þurfa
aðstoð geta hringt í síma 537 9050
milli kl. 11:00 og 13:00 á mánudegi,
þriðjudegi eða miðvikudegi fyrir 5.
desember. Í símtalinu verður bókað
viðtal þar sem fyllt er út umsókn og
láta skal fylgja staðgreiðsluyfirlit frá
skattinum. Um er að ræða kort sem
nota má í verslunum til matarkaupa
fyrir þá sem eiga lítið handanna á
milli.
Jólaaðstoðin hófst sl. mánudag,
18. nóvember.
Þeir sem fá úthlutun sækja kortin
sín miðvikudaginn 11. desember og
fimmtudaginn 12. desember kl. 13-
16. Auk þess er fatamarkaður og
jólagjafir fyrir umsækjendur og
fjölskyldur þeirra opinn 14. desem-
ber hjá Rauða krossinum á Akureyri,
Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðis-
hersins, Hrísalundi 1b.
Átakið nær frá Grenivík í austri
að Siglufirði í vestri. a
G
u
ðm
u
n
du
r
í f
ja
lli
n
u
EINS OG SJÁ má á þessari mynd sem tekin var nú í vikunni horfir í glæsilega skíðavertíð í Hlíðarfjalli.
EIRÍKUR BJÖRN
BJÖRGVINSSON
HALLUR
HEIMISSON.
ODDUR HELGI
HALLDÓRSSON
HJÁLMAR BOGI
HAFLIÐASON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR