Akureyri - 21.11.2013, Page 10
10 21. nóvember 2013
Opið frá 18:00 - s:461-5858 - www.bautinn.is
Jólahlaðborð
Fiskréttir
Heitreyktur silungur með mangósósu
Grafinn lax með dillsósu og brauðsnittum
Lúxsussíld með rúgbrauði og eggi
Marineraðar rækjur í mangó-chilisósu
Kjötréttir
Kaldur hamborgarahryggur með rauðbeðusalati
Hangikjöt með kartöfluuppstúf
Villibráðarpaté með rifsberjahlaupi
Grafinn dádýravöðvi með trönuberjasósu
Heitir réttir
Grísapurusteik með heimalöguðu rauðkáli
Glóðarsteikt lambalæri með kryddhjúp
Villikryddaðar folaldamedalíur
Sykurbrúnaðar kartöflur
Steikt grænmeti
Soðsósa
Meðlæti
Ferskt blandað salat með
vínberjum og ristuðum fræjum
Laufabrauð
Desertar
Ris ala mande með karamellusósu
Marens ávaxta terta með súkkulaði
Verð 5.500 kr.
22. 23. 29. 30. nóv
7. 13. 14. des
10 | SÓKNARFÆRI
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Símar:
467 1205 - 467 1203 - 692 5060 - 869 4441
„Þróun á veiðarfærum er mikilvægur
þáttur í starfi netaverkstæða Ísnets.
Þegar veiðarfæri er þróað, annað-
hvort frá grunni eða eldri gerðir
veiðarfæra endurbættar, þá er í öll-
um tilfellum unnið með skipstjórum
fiskiskipa annars vegar og birgjum
félagsins hins vegar. Það er megin
markmið okkar að prófa þau veiðar-
færi sem við þróum í tilraunatanki
til að fá sem bestar niðurstöður um
veiðarfærin áður en þau eru fram-
leidd í raunstærð,“ segja þeir Birkir
Agnarsson framleiðslustjóri og Kári
Páll Jónasson rekstrarstjóri hjá Ísneti
en í október fór um 50 manna hóp-
ur frá Ísfelli til Hirtshals í Dan-
mörku þar sem ný dragnót og
rækjutroll frá fyrirtækinu voru
kynnt. Í hópnum voru innlendir og
erlendir viðskiptamenn félagsins,
ásamt fulltrúum frá Selstad, Mor-
gére og Garware Wall-Ropes og
starfsmönnum Ísfells. Hægt er að
segja að hópurinn hafi verið fjöl-
þjóðlegur þar sem gestir voru frá Ís-
landi, Grænlandi, Færeyjum, Dan-
mörku, Noregi, Frakklandi, Þýska-
landi, Kanada og Indlandi.
Ný dragnót lítur dagsins ljós
Starfsfólk Ísnets hefur undanfarna
mánuði þróað nýja gerð dragnótar.
Á meðan á þróunarferlinu stóð var
verkefnið unnið í samstarfi við skip-
stjóra á dragnótabátum. Megin
markmiðið var að hanna alhliða
dragnót sem væri létt í drætti og fari
vel í sjó. „Í hönnuninni var lögð
áhersla á góða lárétta og lóðrétta
opnun, styrk og góða endingu sem
og einfaldleika í allri meðhöndlun.
Meðal nýjunga í dragnótinni er ný
gerð af neti frá Garware sem heitir
SNG. Netið er ný kynslóð af Safír
neti sem er mun sterkara og nún-
ingsþolnara en hefðbundið PE net.
Með þessu neti er hægt að hafa efnið
grennra án þess að skerða styrk og
endingu. Þá var möskvastærð einnig
breytt frá hefðbundnum dragnótum
til þess að létta hana í drætti og gera
hana fisknari,“ segir Birkir en meðal
annarra nýjunga má nefna breyting-
ar á lögun á dragnótinni, fiskilínu,
höfuðlínu og fótreipi.
„Viðbrögð skipstjóra, sem voru
viðstaddir tankprófun á dragnótinni,
voru strax jákvæð og nú þegar er bú-
ið að panta hjá okkur dragnætur af
þessari gerð. Það var samdóma álit
viðstaddra að um vel heppnaða
hönnun væri um að ræða sem von-
andi á eftir að skila sér í auknu og
hagkvæmara fiskiríi,“ segir Birkir.
Ísnet 2967 Lukkutroll
Á undanförnum árum hefur Ísnet
unnið að þróun á svokölluðu Luk-
kutrolli til rækjuveiða í samstarfi við
Ómar Þorleifsson, skipstjóra á Sig-
urborgu SH frá Grundarfirði. Sigur-
borgin hefur notað Lukkutroll frá
árinu 2005 með ýmsum breytingum
sem gerðar hafa verið frá upphaflega
trollinu sem var 2512 möskva.
Nýjasta útfærslan af trollinu var
svo skoðuð í áðurnefndri tankferð til
Hirtshals en um er að ræða 2967
möskva troll og segja þeir Birkir og
Kári að mönnum hafi borið saman
um að trollið liti mjög vel út í
tanknum. Lukkutrollið hefur lengst
af verið eingöngu úr Safírneti, en í
nýja trollinu er auk þess notað
hnútalaust Dyneema net til að létta
það enn frekar í drætti. Í upphafi var
Lukkutrollið tveggja grandara og er
það ennþá valmöguleiki þó nýjasta
útgáfan sé þriggja grandara.
„Ísnet kynnti þetta troll á síðasta
ári fyrir öðrum viðskiptavinum og
hafa nokkur slík verið afhent undan-
farið, bæði úr Safírneti, Dyneema og
einnig venjulegu PE neti. Kúlurnar,
sem við mælum með á trollið, eru
svokallaðar Hydro kúlur frá Castro á
Spáni sem er nýjung hjá Ísneti. Þær
líta út eins og golfkúlur á yfirborð-
inu og eru hannaðar til að veita
minna togviðnám.
Þess má geta að trollið hefur ekki
einungis gefist vel við rækjuveiðar
heldur veiðir það grálúðu einnig vel
en núorðið má hirða þann fisk sem
kemur í rækjutroll með svokölluð-
um yfirpoka. Það má því segja að
Lukkutrollið sé alhliða troll sem tek-
ur bæði hátt og breitt og hægt er að
fá í öllum stærðum,“ segir Kári.
Ísnet 4200 Gigantus
„breiðskafa“ til rækjuveiða
Gigantus troll er einnig nýjung frá
Ísneti og var það hannað í samstarfi
við Selstad í Noregi. Meginmark-
miðið við hönnunina segja Birkir og
Kári að hafi verið hönnun á trolli
sem væri fyrst og fremst breitt og
létt í drætti en þyrfti ekki að taka
neitt sérstaklega hátt.
„Ísnet hefur þegar framleitt tvö
Gigantus troll fyrir grænlenska
rækjutrogarann Qaqqatsiaq og þau
voru að stærstum hluta gerð úr Saf-
írneti en þó var notað hnútalaust
Dyneema í hluta af yfir- og hliðar-
byrðum. Qaqqatsiag hefur náð góð-
um árangri með þessi troll og en
skipið dregur tvö 3960 möskva troll.
Við veiðarnar hafa bæði verið notað-
ir hefðbundnir botntrollshlerar eða
flottrollshlerum.“
isfell.is
Fylgst með prófunum á Lukkutrolli í tanknum í Hirtshals og áhuginn leynir sér ekki.
Rækjutroll Gigantus, 4200 möska.
Dragnót, 38 faðma.
Rækjutroll (Lukkutroll), 2967 möskva.
Dragnót, 38 fm í köstun.
Ísnet:
Ný hönnun á dragnót og Lukkutroll
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vinnuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
AÐSEND GREIN BALDVIN RINGSTED SKRIFAR
E ginn skandall
Annað slagið heyrast raddir utan
úr þjóðfélaginu um mikilvægi þess
að efla verkmenntun. Slíkur góðvilji
er okkur sem vinnum að þessum
málaflokki kærkominn en oftar en
ekki er slegið u af vanþekkingu.
N nýverið var boðað til fundar
innan atvinnulífsins hvar
yfirskriftin var á þann veg
að viðkomandi aðilar höfðu
áhyggjur af lítilli aðsókn í
verknám og þeirri spurn-
ingu varpað fram hvort sá
skortur hamlaði atvinnu-
uppbyggingu á svæðinu.
Það er skemmst frá því
að segja að aðsókn í verk-
nám við Verkmenntskólann á Akur-
eyri er með miklum ágætum. Um
400 nemar stunda þar verknám af
ý sum toga og má til dæmis nefna
að árl g inntak nýnema á grunn-
deild málm- og véltæknigreina er
ríflega 60 manns. Aðrar grunndeildir
eru einnig vel sóttar, það er helst að
eftir séu nokkur pláss í bygginga-
greinum en sá flokkur starfsgreina
fór einna verst út úr hruninu og ekki
von á öðru en að
eitthvað hægði
á nýliðun þar.
Þar hefur samt
verið ákveðinn
st ígandi á
undanförnum
árum og útlitið
er nokkuð gott.
Þessar upplýs-
ingar voru send-
ar fréttamanni
RUV í framhaldi
af frétt um of-
angreinda yfir-
skrift en engin
viðbrögð bárust
frá fréttastofu
allra landsmanna,
enda ekki um
neinn skandal
að ræða.
Fyrir kosn-
ingar heyrist
gjarnan að efla
þurfi verknám en
ég man ekki eftir
að þær hugmynd-
ir hafi verið út-
færðar af nokkru
viti. Slagorðið er
engu að síður
gott. Það má því
greina velvilja úr
ýmsum áttum en
minna um efndir,
minna um að þeir
sem hæst hrópa
kynni sér málin til hlítar.
Iðnfræðsla og önnur starfs-
menntun hefur staðið í skugga stóra
bróður, menntaskólans og enn þykir
mun fínna að hafa stúdentspróf en
sveinspróf. Angar af þessu viðhorfi
skjóta upp kollinum af og til og
má t.d. nefna að þegar ljóst varð
að Becromal kæmi með starfsemi
til Akureyrar var þáverandi iðnað-
arráðherra tíðrætt um kjörlendi
staðsetningarinnar vegna nálægðar
við Háskólann á Akureyri. Ekki var
minnst einu orði á VMA þó svo að
flestir iðnaðarmenn sem þar starfa
hafa hlotið sína menntun við þá
stofnun. Mér er ekki kunnugt um
hversu margir þar hafa stundað nám
við HA.
Ef við víkjum að upphafsspurn-
ingunni, hvort skortur á iðnaðar-
mönnum á svæðinu skapi mönnunar-
vandamál tel ég a það öndverða
eigi frekar við í flestum greinum,
þ.e. að atvinnulífið hafi ekki nógu
mörg nemapláss fyrir starfsnám.
Það er rífandi gangur í mörgum
greinum og má t.d. nefna að stál-
smiðaskortur hefur verið
viðvarandi á svæðinu en
VMA er samt sem áður með
langflesta stálsmiði í námi
af öllum framhaldskólum
á Íslandi . Það tekur rúm
4 ára að fullnema stálsmið
og hefur samstarf VMA og
Slippsins verið afar farsælt
og árangursríkt hvað það
varðar. Það hefur meðal annars orðið
til þess að fleiri stálsmiðir hafa lokið
sveinsprófi á síðustu 3 árum en ára-
tuginn þar á undan Aðrar greinar
hafa margar hverjar þurft að tak-
marka nemafjölda og án þess hluta
námsins sem fram fer á vinnustöðum
verður neminn ekki fullnuma.
Hér er kjarni málsins: atvinnu-
lífið og skólinn þurfa að vera sam-
stíga í að kortleggja þörfina á fag-
mönnum, það er
of seint að kalla
eftir fagmönn-
um í einhverri
grein ef þeir eiga
að mæta í vinnu
daginn eftir.
Þegar hafa ver-
ið stigin nokk-
ur skref í átt til
samstarfs og
samræðu þessara
aðila og er raun-
in góð. Samstarf
á fleiri sviðum
er í burðarliðn-
um og má ætla
að það leiði
til hnitmiðari
sóknar innan
hinna ýmsu sviða
starfsmennta.
Ef atvinnulíf
og stjórnmála-
menn vantar
r a u n v e r u l e g
áhyggjuefni að
vinna úr má segja
að alvarleg staða
sé að koma upp
í starfsmennta-
geiranum vegna
fjárveitinga til
framhaldsskól-
anna. Ekki fæst
fé til endurnýj-
unar tækjabún-
aðar. Það segir sig
sjálft að það er lítið vit í að kenna
verðandi rafeindavirkjum að gera
við myndbandstæki af því skólinn
fær ekki að kaupa geislaspilara, svo
tekið sé skiljanlegt en ósatt dæmi.
Ör þróun í vélbúnaði, tölvustýr-
ingar og framþróun í tækni hefur
ekki náð inn í skólana þar sem ekki
er til fjármagn til að kaupa litlar
kennsluvélar. Við höfum brugðist við
með því að leita til atvinnulífsins og
fá sérfræðinga til að kenna á þess-
ar vélar en það er skammtímalausn
vegna neyðar. Það væri fróðlegt að
fá yfirlýsingar um þessa vá innan
starfsmenntageirans og viðbrögð við
henni frá velunnurum þessa mála-
flokks.
Höfundur er kennslustjóri
tæknisviðs VMA
BALDVIN
RINGSTED
Fyrir kosn-
ingar heyrist
gjarnan að
efla þurfi
verknám en
ég man ekki
eftir að þær
hugmyndir
hafi verið
útfærðar af
nokkru viti