Akureyri


Akureyri - 21.11.2013, Side 13

Akureyri - 21.11.2013, Side 13
1321. nóvember 2013 BERGVIN LEIF GARÐARSSON OG PATRIK ORRI JÓHANNSSON úr 9. bekk í Giljaskóla eru sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu árið 2013. Leitinni lauk föstudaginn 15. nóvember. Dagurinn hófst á því að menntamálaráðherra fékk stutta kynningu á Grenndar- gralinu áður en gripurinn var falinn. Síðasta þraut fór í loftið kl. 15:30. Þátttakendur reyndu að finna rétt svör og gerðu það í kapp- hlaupi við tímann. Bergvin og Patrik voru fyrstir til að fá lokavísbendinguna sem vísaði á Gralið. Þeir voru mættir á veitingastaðinn Bryggjuna rúmum þremur klukkustundum eftir að þrautin birtist þar sem Grenndargralið beið þeirra. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim félögum sem og öllum hinum duglegu krökkunum sem fóru alla leið í þessari löngu og ströngu leit. Þeir eru allir sigurvegarar og eiga heiður skilinn fyrir frábæra frammistöðu. Með dugnaði sínum og áhuga eru þeir öðrum mikil fyrirmynd. Gralið verður geymt næsta árið í Giljaskóla en þetta er í annað skiptið á sex árum sem nemendur Giljaskóla vinna Leitina. Formleg afhending Gralsins fer fram mánudaginn 2. desember. Við óskum Bergvin og Patrik til hamingju með sigurinn. Hornsílaveiðar í Eyjafjarðará Fyrir nokkrum árum var ég stadd- ur í ljóðagöngu í Kristnesskógi og spurður hvort mér hefði ekki fundist yndislegt að alast upp við Kristnes. Ég gat ekki svarað spurningunni enda hafði ég ekki leitt hugann að þessu. Ég ólst náttúrulega bara upp þarna og veit ekki hvort þetta eru yndislegri æskuslóðir en aðr- ar. Þar fyrir utan getur maður að takmörkuðu leyti borið æskuslóðir sínar saman við æskuslóðir annarra. Eru ekki allar æskuslóðir yndisleg- astar svo framarlega sem æskuárin hafi verið það líka? Þær bara eru einhvern veginn þarna: æskuslóð- irnar, þangað til þær hætta að vera æsku-slóðir af því æskuárin eru að baki. Eftir það eru þær einfaldlega staður, nokkur hús eða umhverfi sem verða þessu endalausa áframhaldi og tilheyrandi breytingum háð. Eða reyndar og reyndar ekki. Því svo eru það hinar slóðirnar. Sem betur fer á maður í hugskotinu þessar vörður, þessar myndir sem enn koma upp úr kafinu. Og þær breytast ekki, þegar maður hefur á annað borð náð að rifja upp hvað Stóri steinninn var einu sinni stór. MEÐ KYRRUM KJÖRUM Á VESTURBAKKANUM Þegar ég fékk þessa spurningu voru æskuslóðirnar reyndar nær mér í tíma og rúmi en þessa dagana. Ég bjó á Akureyri og gat keyrt á 10 mín- útum að Kristnesi. Þar fyrir utan fannst mér svo stutt síðan ég bjó þar og ólst þar upp, að ég átti ekki til vott af nostalgíu til að mála þá mynd af svæðinu að það væri yndislegra en eitthvað annað sem ég hafði kynnst eða mun kynnast. En málin horfa að nokkru leyti öðruvísi við. Þetta er nefnilega nokkuð sérstakur stað- ur, Kristnes við Eyjafjörð. Þetta er kyrrlátur rólegheitastaður og þar gerast sjaldan tíðindi. Það eftir- minnilegasta, sögulega séð, er að á Kristneshæli var hægt og bítandi unninn fórnarsigur á Hvíta dauðan- um. Kristnes er og frægt fyrir að vera landnámsjörð Helga magra. Ekki má heldur gleyma að Vigdís Finnboga- dóttir kom þar í opinbera heimsókn á níunda áratugnum. Við Kristnes eru: jörð, þorp, hæli (nú spítali) og skóg- ur. Kristnesþorpið samanstendur af allnokkrum húsum, bæði einbýlis- og fjölbýlishúsum. Þegar ég ólst þar upp bjó þar fjöldi fólks en þegar ég flutti þaðan stóðu þar fyrst og fremst tóm hús. Kristneshæli var enda lagt niður á uppvaxtarárum mínum og sameinað Fjórðungssjúkrahúsi Ak- ureyri. Fyrir vikið var viðbygging hælisins, sem m.a. hýsir sundlaug og heitan pott í dag, lengi vel drauga- bygging. Þar voru nokkrar hæðir af nöktum óunnum steinsteypuveggj- um og staflar af steinull sem lengi vel stóðu ónotaðir. Kristnesskógur- inn var ræktaður af vistmönnum hælisins og var frá stofnun hælis- ins 1927 hugsaður til að efla heilsu sjúklinganna. Á árunum 1994-1999 voru þar lagðir nokkrir göngustígar sem gaman er að fara um nú til dags, en í minningunni var á uppvaxtar- árum mínum aðeins ein leið inn í skóginn. Þannig hefur nærumhverfi Kristneshælisins, þorpið og skógur- inn, breyst verulega á undanförnum þremur áratugum. KRISTNES/REYKHÚS, LÍKINDI/TENGSL Þó ég nefni fyrst Kristnes sem æsku- slóðir mínar, þá er þar með ekki nema hálfur sannleikurinn sagður. Staðreyndin er flóknari. Ég ólst nefnilega upp í húsinu Reykhúsum I eða Syðri-Reykhúsum í Eyjafirði, en húsið stendur á jörð Reykhúsa. Kristnes og Reykhús eru aðliggjandi jarðir. Á bænum Kristnesi ólst móðir mín, Rósa Sigríður Aðalsteinsdóttir, upp. Á bænum Reykhúsum dvaldist faðir minn, Brynjólfur Ingvarsson, mörg sumur á uppvaxtarárum sínum, en annars ólst hann upp í Reykjavík. Foreldrar mínir voru því nágrann- ar á sumrin og ólust upp saman að vissu leyti. En það er ekki nóg með það. Báðar ömmur mínar, Sigríður Hallgrímsdóttir og Aðalbjörg Stef- ánsdóttir, voru einnig nágrannar og leiksystur á uppvaxtarárunum. Þær deildu merkilegt nokk þeirri reynslu að eignast báðar fjögur börn, þar af þrjá stráka hvor og eina dóttur hvor. Enn fremur átti Sigríður föð- uramma mín bara þrjá bræður og af þeim eignaðist einungis einn þeirra eitt barn. Hinir bræður hennar tveir áttu engin börn. Aðalbjörg móður- amma mín átti bara þrjár systur og af þeim eignaðist einungis ein þeirra eitt barn. Hinar systur hennar tvær áttu engin börn. Og líkindin halda áfram sitt hvorum megin við bæjar- lækinn: Bróðir pabba tók við búinu og varð bóndi í Reykhúsum, bróðir mömmu tók við búinu og varð bóndi í Kristnesi. Þeir voru því bændur sitt hvorum megin við lækinn sem rann beint fyrir neðan húsið okkar. Margt er því líkt með sögum þessara fjöl- skylda sem voru og eru nágrannar. Foreldrar mínir bundu fjölskyldurn- ar tvær svo endanlega saman þann 17. júní 1966 þegar þau giftu sig, sex mánuðum áður en elsti bróðir minn, Ingvar Guðni, fæddist. Eftir að þau tóku saman og eignuðust börn reistu þau hús í Reykhúsum, stundum nefnt Reykhús I og stundum nefnt Syðri-Reykhús. Fyrir utan mig áttu þau fjóra stráka, semsagt alls fimm stráka. Þeir eru allir miklu eldri en ég, það munar 10 árum á mér og yngsta bróður mínum Brynjólfi. Ég tók því við öllu dótinu þeirra og fékk í arf ógrynni frásagna af uppátækj- um og afrekum bræðra minna, sem flest voru unnin í slagtogi við krakk- ana úr þorpinu eða frændfólkið af næstu bæjum. Allt Kristnessvæðið var sagnaveröld og undirlagt fortíð- inni: Pleimóland, strumpaland, lim- móland og tröllaland voru örnefni sem hétu eftir leikjum þessa hóps. Ég rétt náði að upplifa kvöldleikina, það er leikina sem krakkarnir fóru í á kvöldin í þorpinu – eina krónu, tvítví og vinkvink í pottinn. Þeir voru algengir á árunum 1985-1990. Svo dóu þeir út, held ég. GJÖFULUSTU MIÐIN En leikirnir eru mér ekki minnis- stæðastir af uppvaxtarárunum. Ekki heldur þegar mús beit mig í höndina í Reykhúsafjósinu og mér var skutlað í ofboði upp á spítala í stífkrampa- sprautu. Og ekki þegar ég skar mig á löppinni í indjánaleik við að stíga ofan á fiskabúrið hans Jonna bróður og þurfti að fara aftur á spítalann í sprautu. Eða þegar ég hljóp svo hratt niður brekkuna við Reykhúsafjósið að ég gat ekki stoppað og endaði í fjóshaugnum, fastur upp að hné í mykju þar til bróðir minn togaði upp úr sjálfheldunni. Mér er af einhverj- um ástæðum minnisstæðast þegar krakkarnir á næstu bæjum veiddu hornsíli í Eyjafjarðará með krukkum og litlum netum í kringum árin 1990- 1992. Smám saman varð til góður forði af hornsílum í plasttunnu við eitt húsið og þar syntu sílin eins og dálítið glitlausir litlir gullfiskar um einhverja tíð. Þetta endaði með því að þau drápust. Ég man bara eftir orðaskiptum á milli mín og veiði- mannanna um það hvar gjöfulustu hornsílamiðin lágu. Mér finnst eitt- hvað svo skemmtileg tilhugsun um að nokkrir krakkar úr þorpinu og af Reykhúsabæjunum hafi verið búin að kortleggja Eyjafjarðarána það vel að þau vissu hvar hægt var að moka upp hornsílum. NÆST STÆRSTA FJÖGURRA- LAUFASMÁRASAFN HEIMS Svo reyndar á ég aðra sambærilega draumkennda minningu. Á unglings- árunum, frá 1996-1999, lenti ég í því aftur og aftur að finna fjögurralaufa- smárabeð. Ég held að það séu um það bil 6 staðir sem ég get nefnt, annars vegar í Kristnesi eða við Kristnes- hæli og hins vegar á Reykhúsalóðinni þar sem ég fann sumar eftir sumar fjögurralaufasmára. Þeir uxu alltaf á sama stað og af því ég vissi hvar staðirnir voru gat ég týnt upp smára, ár eftir ár. Þetta uppátæki vatt upp á sig og brátt átti ég heilu hirslurnar af fjögurralaufasmárum, pressaða og þurrkaða í bókum. Þeir skiptu hundruðum og með mér vaknaði von um að komast kannski í heimsmeta- bók Guinness fyrir þetta fjögurra- laufasmárasafn. Sú von varð að engu þegar ég komst að því að fangi í Indi- ana í Bandaríkjunum átti stærsta staðfesta fjögurralaufasmárasafn í heiminum, en safnið taldi nokkur þúsund smára. Hann hafði fundið sín beð í fangelsisgarðinum og safnað þessu upp á nokkrum áratugum. Ég taldi mig eiga við ofurefli að etja og pakkaði því safninu í litla kassa sem ég á einhvers staðar ennþá. Hef einu sinni eða tvisvar reynt að leita uppi þessi sex beð sem ég fann á sínum tíma en hef ekki endurheimt þau ennþá. MYND AF MORGNI Þarna bjó ég mín uppvaxtarár, þar liggja mínar æskuslóðir. Ég var lengst af í næstsyðsta herberginu í Reykhúsum, við hliðina á eldhúsinu. Þegar ég vaknaði á sumrin á ung- lingsárunum blasti við mér þessi lagskipta mynd út um gluggann: Efst tróna Súlur, svo Kristnesskóg- urinn, þá hvítar byggingar hælisins og loks bílarnir á hlaðinu. Svo fylgja minningunni þung spor á fætur til að fá sér hunangshnetuseríós og mjólk. Reykjavík, 13. maí 2013. HJÁLMAR STEFÁN BRYNJÓLFSSON skrifar

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.