Akureyri - 21.11.2013, Page 13
1321. nóvember 2013
BERGVIN LEIF GARÐARSSON OG PATRIK ORRI JÓHANNSSON úr 9. bekk í Giljaskóla eru sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu
árið 2013. Leitinni lauk föstudaginn 15. nóvember. Dagurinn hófst á því að menntamálaráðherra fékk stutta kynningu á Grenndar-
gralinu áður en gripurinn var falinn. Síðasta þraut fór í loftið kl. 15:30. Þátttakendur reyndu að finna rétt svör og gerðu það í kapp-
hlaupi við tímann. Bergvin og Patrik voru fyrstir til að fá lokavísbendinguna sem vísaði á Gralið. Þeir voru mættir á veitingastaðinn
Bryggjuna rúmum þremur klukkustundum eftir að þrautin birtist þar sem Grenndargralið beið þeirra. Sannarlega glæsilegur
árangur hjá þeim félögum sem og öllum hinum duglegu krökkunum sem fóru alla leið í þessari löngu og ströngu leit. Þeir eru
allir sigurvegarar og eiga heiður skilinn fyrir frábæra frammistöðu. Með dugnaði sínum og áhuga eru þeir öðrum mikil fyrirmynd.
Gralið verður geymt næsta árið í Giljaskóla en þetta er í annað skiptið á sex árum sem nemendur Giljaskóla vinna Leitina. Formleg
afhending Gralsins fer fram mánudaginn 2. desember. Við óskum Bergvin og Patrik til hamingju með sigurinn.
Hornsílaveiðar í Eyjafjarðará
Fyrir nokkrum árum var ég stadd-
ur í ljóðagöngu í Kristnesskógi og
spurður hvort mér hefði ekki fundist
yndislegt að alast upp við Kristnes.
Ég gat ekki svarað spurningunni
enda hafði ég ekki leitt hugann
að þessu. Ég ólst náttúrulega bara
upp þarna og veit ekki hvort þetta
eru yndislegri æskuslóðir en aðr-
ar. Þar fyrir utan getur maður að
takmörkuðu leyti borið æskuslóðir
sínar saman við æskuslóðir annarra.
Eru ekki allar æskuslóðir yndisleg-
astar svo framarlega sem æskuárin
hafi verið það líka? Þær bara eru
einhvern veginn þarna: æskuslóð-
irnar, þangað til þær hætta að vera
æsku-slóðir af því æskuárin eru að
baki. Eftir það eru þær einfaldlega
staður, nokkur hús eða umhverfi sem
verða þessu endalausa áframhaldi
og tilheyrandi breytingum háð. Eða
reyndar og reyndar ekki. Því svo eru
það hinar slóðirnar. Sem betur fer á
maður í hugskotinu þessar vörður,
þessar myndir sem enn koma upp úr
kafinu. Og þær breytast ekki, þegar
maður hefur á annað borð náð að
rifja upp hvað Stóri steinninn var
einu sinni stór.
MEÐ KYRRUM KJÖRUM
Á VESTURBAKKANUM
Þegar ég fékk þessa spurningu voru
æskuslóðirnar reyndar nær mér í
tíma og rúmi en þessa dagana. Ég
bjó á Akureyri og gat keyrt á 10 mín-
útum að Kristnesi. Þar fyrir utan
fannst mér svo stutt síðan ég bjó þar
og ólst þar upp, að ég átti ekki til vott
af nostalgíu til að mála þá mynd af
svæðinu að það væri yndislegra en
eitthvað annað sem ég hafði kynnst
eða mun kynnast. En málin horfa
að nokkru leyti öðruvísi við. Þetta
er nefnilega nokkuð sérstakur stað-
ur, Kristnes við Eyjafjörð. Þetta er
kyrrlátur rólegheitastaður og þar
gerast sjaldan tíðindi. Það eftir-
minnilegasta, sögulega séð, er að á
Kristneshæli var hægt og bítandi
unninn fórnarsigur á Hvíta dauðan-
um. Kristnes er og frægt fyrir að vera
landnámsjörð Helga magra. Ekki má
heldur gleyma að Vigdís Finnboga-
dóttir kom þar í opinbera heimsókn á
níunda áratugnum. Við Kristnes eru:
jörð, þorp, hæli (nú spítali) og skóg-
ur. Kristnesþorpið samanstendur af
allnokkrum húsum, bæði einbýlis-
og fjölbýlishúsum. Þegar ég ólst þar
upp bjó þar fjöldi fólks en þegar ég
flutti þaðan stóðu þar fyrst og fremst
tóm hús. Kristneshæli var enda lagt
niður á uppvaxtarárum mínum og
sameinað Fjórðungssjúkrahúsi Ak-
ureyri. Fyrir vikið var viðbygging
hælisins, sem m.a. hýsir sundlaug og
heitan pott í dag, lengi vel drauga-
bygging. Þar voru nokkrar hæðir af
nöktum óunnum steinsteypuveggj-
um og staflar af steinull sem lengi
vel stóðu ónotaðir. Kristnesskógur-
inn var ræktaður af vistmönnum
hælisins og var frá stofnun hælis-
ins 1927 hugsaður til að efla heilsu
sjúklinganna. Á árunum 1994-1999
voru þar lagðir nokkrir göngustígar
sem gaman er að fara um nú til dags,
en í minningunni var á uppvaxtar-
árum mínum aðeins ein leið inn í
skóginn. Þannig hefur nærumhverfi
Kristneshælisins, þorpið og skógur-
inn, breyst verulega á undanförnum
þremur áratugum.
KRISTNES/REYKHÚS,
LÍKINDI/TENGSL
Þó ég nefni fyrst Kristnes sem æsku-
slóðir mínar, þá er þar með ekki
nema hálfur sannleikurinn sagður.
Staðreyndin er flóknari. Ég ólst
nefnilega upp í húsinu Reykhúsum
I eða Syðri-Reykhúsum í Eyjafirði,
en húsið stendur á jörð Reykhúsa.
Kristnes og Reykhús eru aðliggjandi
jarðir. Á bænum Kristnesi ólst móðir
mín, Rósa Sigríður Aðalsteinsdóttir,
upp. Á bænum Reykhúsum dvaldist
faðir minn, Brynjólfur Ingvarsson,
mörg sumur á uppvaxtarárum sínum,
en annars ólst hann upp í Reykjavík.
Foreldrar mínir voru því nágrann-
ar á sumrin og ólust upp saman að
vissu leyti. En það er ekki nóg með
það. Báðar ömmur mínar, Sigríður
Hallgrímsdóttir og Aðalbjörg Stef-
ánsdóttir, voru einnig nágrannar og
leiksystur á uppvaxtarárunum. Þær
deildu merkilegt nokk þeirri reynslu
að eignast báðar fjögur börn, þar
af þrjá stráka hvor og eina dóttur
hvor. Enn fremur átti Sigríður föð-
uramma mín bara þrjá bræður og af
þeim eignaðist einungis einn þeirra
eitt barn. Hinir bræður hennar tveir
áttu engin börn. Aðalbjörg móður-
amma mín átti bara þrjár systur og
af þeim eignaðist einungis ein þeirra
eitt barn. Hinar systur hennar tvær
áttu engin börn. Og líkindin halda
áfram sitt hvorum megin við bæjar-
lækinn: Bróðir pabba tók við búinu
og varð bóndi í Reykhúsum, bróðir
mömmu tók við búinu og varð bóndi
í Kristnesi. Þeir voru því bændur sitt
hvorum megin við lækinn sem rann
beint fyrir neðan húsið okkar. Margt
er því líkt með sögum þessara fjöl-
skylda sem voru og eru nágrannar.
Foreldrar mínir bundu fjölskyldurn-
ar tvær svo endanlega saman þann
17. júní 1966 þegar þau giftu sig, sex
mánuðum áður en elsti bróðir minn,
Ingvar Guðni, fæddist. Eftir að þau
tóku saman og eignuðust börn reistu
þau hús í Reykhúsum, stundum
nefnt Reykhús I og stundum nefnt
Syðri-Reykhús. Fyrir utan mig áttu
þau fjóra stráka, semsagt alls fimm
stráka. Þeir eru allir miklu eldri en
ég, það munar 10 árum á mér og
yngsta bróður mínum Brynjólfi. Ég
tók því við öllu dótinu þeirra og fékk
í arf ógrynni frásagna af uppátækj-
um og afrekum bræðra minna, sem
flest voru unnin í slagtogi við krakk-
ana úr þorpinu eða frændfólkið af
næstu bæjum. Allt Kristnessvæðið
var sagnaveröld og undirlagt fortíð-
inni: Pleimóland, strumpaland, lim-
móland og tröllaland voru örnefni
sem hétu eftir leikjum þessa hóps.
Ég rétt náði að upplifa kvöldleikina,
það er leikina sem krakkarnir fóru
í á kvöldin í þorpinu – eina krónu,
tvítví og vinkvink í pottinn. Þeir
voru algengir á árunum 1985-1990.
Svo dóu þeir út, held ég.
GJÖFULUSTU MIÐIN
En leikirnir eru mér ekki minnis-
stæðastir af uppvaxtarárunum. Ekki
heldur þegar mús beit mig í höndina
í Reykhúsafjósinu og mér var skutlað
í ofboði upp á spítala í stífkrampa-
sprautu. Og ekki þegar ég skar mig
á löppinni í indjánaleik við að stíga
ofan á fiskabúrið hans Jonna bróður
og þurfti að fara aftur á spítalann í
sprautu. Eða þegar ég hljóp svo hratt
niður brekkuna við Reykhúsafjósið
að ég gat ekki stoppað og endaði í
fjóshaugnum, fastur upp að hné í
mykju þar til bróðir minn togaði upp
úr sjálfheldunni. Mér er af einhverj-
um ástæðum minnisstæðast þegar
krakkarnir á næstu bæjum veiddu
hornsíli í Eyjafjarðará með krukkum
og litlum netum í kringum árin 1990-
1992. Smám saman varð til góður
forði af hornsílum í plasttunnu við
eitt húsið og þar syntu sílin eins og
dálítið glitlausir litlir gullfiskar um
einhverja tíð. Þetta endaði með því
að þau drápust. Ég man bara eftir
orðaskiptum á milli mín og veiði-
mannanna um það hvar gjöfulustu
hornsílamiðin lágu. Mér finnst eitt-
hvað svo skemmtileg tilhugsun um
að nokkrir krakkar úr þorpinu og af
Reykhúsabæjunum hafi verið búin
að kortleggja Eyjafjarðarána það vel
að þau vissu hvar hægt var að moka
upp hornsílum.
NÆST STÆRSTA FJÖGURRA-
LAUFASMÁRASAFN HEIMS
Svo reyndar á ég aðra sambærilega
draumkennda minningu. Á unglings-
árunum, frá 1996-1999, lenti ég í því
aftur og aftur að finna fjögurralaufa-
smárabeð. Ég held að það séu um það
bil 6 staðir sem ég get nefnt, annars
vegar í Kristnesi eða við Kristnes-
hæli og hins vegar á Reykhúsalóðinni
þar sem ég fann sumar eftir sumar
fjögurralaufasmára. Þeir uxu alltaf
á sama stað og af því ég vissi hvar
staðirnir voru gat ég týnt upp smára,
ár eftir ár. Þetta uppátæki vatt upp
á sig og brátt átti ég heilu hirslurnar
af fjögurralaufasmárum, pressaða
og þurrkaða í bókum. Þeir skiptu
hundruðum og með mér vaknaði von
um að komast kannski í heimsmeta-
bók Guinness fyrir þetta fjögurra-
laufasmárasafn. Sú von varð að engu
þegar ég komst að því að fangi í Indi-
ana í Bandaríkjunum átti stærsta
staðfesta fjögurralaufasmárasafn í
heiminum, en safnið taldi nokkur
þúsund smára. Hann hafði fundið sín
beð í fangelsisgarðinum og safnað
þessu upp á nokkrum áratugum. Ég
taldi mig eiga við ofurefli að etja og
pakkaði því safninu í litla kassa sem
ég á einhvers staðar ennþá. Hef einu
sinni eða tvisvar reynt að leita uppi
þessi sex beð sem ég fann á sínum
tíma en hef ekki endurheimt þau
ennþá.
MYND AF MORGNI
Þarna bjó ég mín uppvaxtarár, þar
liggja mínar æskuslóðir. Ég var
lengst af í næstsyðsta herberginu í
Reykhúsum, við hliðina á eldhúsinu.
Þegar ég vaknaði á sumrin á ung-
lingsárunum blasti við mér þessi
lagskipta mynd út um gluggann:
Efst tróna Súlur, svo Kristnesskóg-
urinn, þá hvítar byggingar hælisins
og loks bílarnir á hlaðinu. Svo fylgja
minningunni þung spor á fætur til að
fá sér hunangshnetuseríós og mjólk.
Reykjavík, 13. maí 2013.
HJÁLMAR STEFÁN BRYNJÓLFSSON
skrifar