Akureyri - 21.11.2013, Side 14
14 21. nóvember 2013
TILBOÐ - GESTAHÚS 36 m²
kr. 2.500.000,- án fylgihluta.
kr. 2.800.000,- með fylgihlutum
og byggingarnefndar teiknisetti.
Grunnmynd og nánari
upplýsingar á heimasíðu
volundarhus.is
Tvö svefnherbergi 5,1 m2 og 7,7 m2 og 3 m2 baðherbergi,18 m2 alrými og 11 m2 yfirbyggð verönd.
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
volundarhus.is · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA -ÚTSALA
Á GARÐHÚSUM
VH
/1
3-
05
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Allt að
20% afsláttur
líka af öðrum
garðhúsum sem til eru
á lagerAllt á að seljast · Fyrstur kemur fyrstur fær
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Verð nú kr. 289.900 - áður kr. 339.900
TILBOÐ - GARÐHÚS 8,5 m²
Verð nú kr. 259.900 - áður kr. 329.900
Verð nú kr. 179.900 - áður kr. 279.900
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7 m²
www.volundarhus.is
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 7,2m²
AÐSEND GREIN SIGURÐUR GUÐMUNDSSON & NJÁLL TRAUSTI FRIÐBERTSSON
Saga Kaffi Bjarkar
Vorið 2011 ákvað Akureyrarbær að
bjóða út rekstur kaffihúss í Lysti-
garðinum. Umsóknir voru undir
nafnleynd og bárust alls fjögur til-
boð í reksturinn. Tilboði frá einka-
hlutafélagi í eigu okkar undirritaðra
var tekið. Fasteignir Akureyrar (FA)
óskuðu í sínu útboði eftir tilboðum í
leigu á fermetra. Það er hversu háa
leigu tilboðsgjafar voru tilbúnir að
bjóða í hvern fm í húsinu. Okkar til-
boð hljómaði upp á 2.784kr/fm. Það
er samtals 417.600kr í mánaðarleigu.
Í framhaldinu var hafist handa við að
hanna húsið. Tilboð til byggingaraðila
voru síðan opnuð í desember 2011. Þá
kom í ljós að tilboðin voru hærri en
reiknað var með í kostnaðaráætlun
fyrir verkið. Það var sem sagt búið
að hanna of dýrt hús. Skilaboðin sem
við fengum hjá FA í framhaldinu voru
að það yrði ekki hægt að fara í ver-
kefnið nema að við hækkuðum við
okkur leiguna og ýmislegt annað yrði
sparað sem átti að vera hluti af leig-
unni. Sumt af því sem FA sparaði við
framkvæmdina lenti síðar í ferlinu
sem kostnaður á okkur leigutakana. Á
þessum tíma var búið að setja rúmar
5 milljónir í hönnun hússins.
Þarna var komið að einum erf-
iðasta tímapunktinum í þessu ferli.
Það er hvort við ættum að taka á
okkur auknar byrðar í gegnum leig-
una eða hætta við allt saman. Bærinn
var ekki tilbúinn að standa
við sinn hluta sem var að
reisa hús sem við myndum
leigja fyrir þann pening
sem við höfðum boðið á
sínum tíma. FA voru greini-
lega til í að hætta við verkið
þegar þarna var komið og
kostnaður af framkvæmd-
inni yrði þar með afskrif-
aður eða rúmar 5 milljónir
sem þá þegar var búið að
setja í hönnun hússins. Á
þessum tímapunkti gerðum
við okkar stærstu mistök í
öllu þessu ferli, það er að
halda áfram. FA ætluðu
greinilega ekki að axla
neina ábyrgð á sínum þætti
sem var að koma upp húsi
sem leigugreiðslur upp á rúmlega
400.000kr stæðu undir. Sú leiga er há
í öllu samhengi við húsaleigu á Ak-
ureyri á sama tíma. Í framhaldinu af
þessu hækkaði leigan mikið þannig
að í dag er hún tæplega 600.000kr á
mánuði eða um 3.300kr á fm.
Það er einnig ljóst að rekstrar-
áætlunin stóðst ekki heldur miðað
við þær væntingar sem voru uppi
varðandi sölu á veitingum til er-
lendra ferðamanna. Þá kannski
sérstaklega af farþegum erlendra
skemmtiferðaskipa sem sækja bæ-
inn heim. Það sem var aftur jákvætt
er hversu vel heimamenn hafa sótt
kaffihúsið og Lystigarðinn. Það
hefur verið langmikilvægasti við-
skiptamannahópurinn. Einnig var
ánægjulegt að heyra að heimamenn
sem höfðu ekki sótt garðinn heim
jafnvel í áratugi voru farnir að mæta
í hann með tilkomu kaffi-
hússins. Við teljum algjör-
lega ljóst að húsið hefur
styrkt garðinn í sessi sem
einn helsti viðkomustað-
ur ferðamanna sem sækja
Akureyri heim. Aldrei áður
hefur verið rekin veitinga-
sala í Lystigarðinum en í
útboðsgögnum er sagt að
um 100.000 gestir sæki
garðinn heim á hverju ári.
Í dag er ljóst að sú tala er
ekki rétt. Við unnum allar
okkar áætlanir miðað við
þær aðsóknartölur. Þetta
hefur vissulega haft áhrif
á afkomuna.
Í samskiptum okkar
við bæinn var talað um að
göngustígur í gegnum garðinn yrði
ruddur og aðgengi að húsinu yrði
greitt árið um kring. Snjómokstri og
hálkuvörnum var illa sinnt af bæj-
arins hálfu, aðgengi að húsinu varð
takmarkað og erfitt sem aftur kom
niður á nýtingu hússins og aðgengi
gesta að því og skapaði það mikil
vandamál í rekstrinum.
Í lok september höfðu undirritað-
ir samband við FA og vildum við fara
í gegnum þá stöðu sem væri kom-
in upp. Við áttum fund með fram-
kvæmdastjóra FA og fórum í gegnum
þessi mál, þar á meðal það leiguverð
sem væri á húsinu. Ekki var annað
að heyra á framkvæmdastjóran-
um að hann hefði fullan skilning á
málinu. Í kjölfarið ætlaði hann að
ræða við formann stjórnar FA og
leggja fram hugmyndir fyrir stjórn
FA. Okkar skilningur var síðan að
framkvæmdastjórinn myndi hafa
samband við okkur um framhaldið
en heill mánuður leið. Það var ekki
fyrr en örfáum dögum fyrir stjórn-
arfund í stjórn FA 1.nóvember síð-
astliðinn að hann hafði samband
og óskaði eftir punktum frá okkur
vegna málsins, það átti ekki að vera
formlegt bréf. Við urðum að sjálf-
sögðu við þeirri beiðni og sendum
framkvæmdastjóra FA punktana
í tölvupósti. Okkur til undrunar
virðist þessi tölvupóstur vera orðin
undirstaðan í frétt Akureyri viku-
blaðs um málið. Málefni þar sem
leigutaki hjá FA á í samningum við
félagið um sín leigumál.
Við viljum árétta það hér að við
höfum hvorki greitt okkur krónu í
arð né laun í þessu ferli. Hins vegar
berum við umtalsvert tap eða vænt-
anlega um 12-15 milljónir af þessu
ævintýri.
Okkar ósk var að klára þetta með
þeim hætti að við stæðum í skilum
við okkar birgja og engir stæðu eftir
með ógreidda reikninga og bregðast
þannig við áður en í óefni væri komið.
Að einhverju leyti má kannski
segja að þetta sé frekar óvenjuleg
leið miðað við hvað hefur verið hefð-
bundið á Íslandi. Í stuttu máli við
berum tjónið sjálfir. Aðrir munu ekki
bera skaða af málinu.
Trúnaðarbrestur af hálfu bæjar-
ins gerði það að verkum að við eigum
engan annan kost en að taka skellinn.
En húsið er risið og óskum við vænt-
anlegum rekstraraðilum velfarnaðar
í rekstrinum. Jafnframt þökkum við
viðskiptavinum, gestum og þeim sem
unnu með okkur fyrir frábær kynni
á þessum tíma í Kaffi Björk.
Njáll Trausti Friðbertsson
viðskiptafræðingur
Sigurður Guðmundsson
verslunarmaður
Trúnaðarbrestur af
hálfu bæjarins gerði það
að verkum að við eigum
engan annan kost en að
taka skellinn.
Bærinn var ekki tilbúinn að standa við
sinn hluta sem var að reisa hús sem við
myndum leigja fyrir þann pening sem við
höfðum boðið á sínum tíma.
NJÁLL TRAUSTI
FRIÐBERTSSON
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSIN