Akureyri - 21.11.2013, Page 22
22 21. nóvember 2013
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Tilgangur fundarins er að upplýsa og fara yfir þá stöðu sem blasir við á Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands vegna frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2014, þar sem
lagt er til að fjármagn til HNLFÍ vegna þjónustusamninga verði skorið verulega niður
umfram aðrar endurhæfingarstofnanir
Kynningarfundurinn er öllum opinn og eru félagsmenn hvattir
til að fjölmenna á fundinn og taka með sér gesti
Boðið verður upp á ljúffenga sjávarréttasúpu og brauðt
Dagskrá fundarins:
Setning fundar: Sigrún Jóna Daðadóttir, formaður NLFA
Fundarstjóri: Geir Jón Þórisson, varaforseti NLFÍ
Erindi flytja: Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri HNLFÍ
Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á HNLFÍ
Gunnlaugur K. Jónsson, forseti NLFÍ
Náttúrulækningafélag Akureyrar býður til opins kynningarfundar
um málefni Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands, í Hömrum,
Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 23. nóvember. kl. 11:45
Opinn kynningarfundur
um málefni HNLFÍ
í Hofi 23. nóv. kl. 11:45
www.nlfi.is - nlfa@simnet.is
Náttúrulækningafélag Akreyrar
Akureyrsk ungstjarna
Akureyrsk stúlka í 6. bekk, Eik Har-
aldsdóttir, hampaði í síðustu viku
sigurlaunum í Lundarskóla þegar
Gunnar Helgason leikari tilkynnti
henni fyrir framan starfsfólk og
nemendur að hún hefði sigrað í söng-
keppninni „Jólastjarna Björgvins“.
Leitin að stjörnunni er kennd við
Björgvin Halldórsson og fær Eik að
koma fram í desember með öðrum
(og fram að þessu þekktari) söng-
stjörnum í tvígang á stóru sviði.
„Ég trúði þessu ekki alveg strax,
en svo varð ég bæði hissa og ánægð
því ég bjóst ekki við að vinna,“ segir
Eik. Tíðindin komu henni tímabund-
ið úr jafnvægi en svo söng hún eins
og ekkert hefði í skorist fyrir allan
skólann.
„Ég tók þátt í Jólastjörnunni í
fyrra en komst ekki þá áfram og
var strax ákveðin að taka þátt aft-
ur,“ segir Eik.
Það mátti þó litlu muna að hún
missti af tækifærinu í ár, því aug-
lýsingin fór næstum framhjá fjöl-
skyldunni og var myndband sem
stóra systir tók upp af söng hennar
sent inn á síðustu stundu. „Ég reyndi
bara að gera mitt besta,“ segir Eik,
sem söng sig inn í hjörtu dómnefnd-
ar með laginu Þar sem allt grær úr
söngleiknum Litlu hryllingsbúðinni.
Haraldur Þór Eglsson, minjasafn-
vörður á Akureyri og faðir Eikar,
segir að fjölskyldan hafi orðið bæði
hissa og glöð þegar kom í ljós að
unga stúlkan hafði komist í úrvals-
hóp 10 stelpna af 500 þátttakendum.
„Það var í sjálfu sér mikill sigur,“
segir Haraldur.
Þá þurfti Eik að velja sér jólalag
með íslenskum texta en jafnframt
átti hún að læra íslenskan texta
við lagið Ben eftir Michael Jackson
og aðeins 4 dagar til stefnu. Eik
var hins vegar alveg ákveðin í að
velja „öðruvísi“ lag og varð Majone-
sjól með Bogomil Font fyrir valinu.
Svo var sungið alla daga fram að
áheyrnarprufunni. Í henni skemmti
Eik sér konunglega og fannst það
bara lítið mál að standa fyrir framan
atvinnusöngvara og mikið stuð að
syngja með með leikaranum Pálma
Sigurhjartarsyni.
„Ég bjóst ekki við að vinna, vonaði
það en hugsaði samt ekki mikið um
það. Mig langaði bara að taka þátt í
keppninni. Þetta verður bara ævin-
týri. Ég fæ að prófa að syngja á risa-
stóru sviði með öllum stjörnunum
fyrir framan fullt af fólki. Tvisvar,“
segir Eik.
Eik segist ætla að kaupa sér dag-
bók til að skrifa niður ævintýrið „svo
hún muni það alla ævi“.
En bannski er ævintýrið bara rétt
að hefjast? a
Ég tók þátt í
Jólastjörnunni í
fyrra en komst
ekki þá áfram
og var strax
ákveðin að
taka þátt aftur
FJÖLSKYLDAN Á GÓÐRI stundu skömmu eftir að úrslitin lágu fyrir.
EIK HARALDSDÓTTIR ER Jólastjarnan 2013. Hún fær að koma fram með Björgvini
Halldórssyni og mörgum öðrum þekktum stórstjörnum fyrir jólin. Völundur