Akureyri - 21.11.2013, Blaðsíða 24
V I K U B L A Ð – N O R Ð U R L A N D21. nóvember 201344. tölublað 3. árgangur
T A X F R E E J A F N G I L D I R 2 0 , 3 2 % V E R Ð L Æ K K U N . G I L D I R A Ð E I N S Á Ú L P U M D A G A N A 2 1 . – 2 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 3 .
TAX FREE
DAGAR 21.-24. NÓVEMBER
Tax free
AF ÖLLUM
ÚLPUM
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4890 / AKUREYRI@INTERSPORT.IS / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
Erum á
Vetrarhátí
ðinni
á Baldursn
esi
í gamla Eu
ropris hús
inu
við hliðina
á BYKO
Flottar úlp
ur frá
MCKINLEY
,
DIDRIKSO
NS,
ETIREL OG
FIREFLY
13.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
UM DAGINN OG VEGINN
SILJA BJÖRK
SKrIFAr
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
viðkemur rafhitun.
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
KYNFRÆÐSLA 101
Ég man eftir vandræðalegasta
grunnskólatíma lífs míns. Fimmti
bekkur, náttúrufræðistofan og
dönsk heimildarmynd um versta til-
finningarússíbana ævi okkar allra -
kynþroskaskeiðið. Skilaboðin voru
skýr og einföld: hormónar gera allt
vitlaust, stelpum blæðir út og strák-
ar verða djúpraddaðir.
Myndin, sem var gjörsamlega
barn síns tíma þegar ég sá hana
fyrir rúmum áratug, var eina kyn-
fræðslan sem ég fékk í grunnskóla.
Öll önnur vitneskja sem ég tileink-
aði mér kom frá áreiðanlegri upp-
sprettu netheimanna.
Ekkert var rætt um eðlilega kyn-
hegðun eða hvað það er að vera kyn-
vera. Aldrei var fjallað um það hvað
væri í lagi og hvað ekki – allaveg-
anna ekki í fleiri orðum en „aldrei
gera neitt sem þú vilt ekki gera“. Ég
vissi ekkert um flóru kynsjúkdóma
fyrr en í menntaskóla þegar flestir
jafnaldrar mínir voru löngu farnir
að stunda kynlíf, það þótti vand-
ræðalegt að kaupa smokka og enn
verra að versla dömubindi!
Þetta þótti mér miður í grunn-
skóla og þykir enn. Forvarnirnar
fólust í því að skella mynd í tækið,
tala niður til okkar eins og smá-
barna og sópa óþægilegu restinni
undir teppið. Með þessar örlitlu
upplýsingar fórum við beint heim á
netið og svo undrar eldri kynslóðin
sig á tilurð „klámkynslóðarinnar“...
Fyrirgefðu, en þið sögðuð okkur
aldrei neitt!
Ættum við ekki að taka okkur
saman í andlitinu og hætta að fela
þennan eðlilega hlut fyrir börnum og
unglingum? Þau eru ekki vitlaus. Kyn-
lífið er allstaðar, undan því verður ekki
komist. Og er ekki betra að strákarnir
viti allt sem vita þarf um tíðahringinn
og stúlkur viti allt sem vita þarf um
sæðisfrumur áður en þau klæða sig úr?
Er ekki betra að anda djúpt,
ræða þetta óþægilega mál og senda
unglingana okkar út í samfélag-
ið með fullmótaðar og heilbrigðar
hugmyndir um lystisemdir kynlífs-
ins? Jú, það held ég.