Akureyri - 31.10.2013, Síða 6
6 31. október 2013
Akureyri
Draupnisgata 2
Sími 460 0800
Opið mánudaga–föstudaga kl. 8–18
PI
PA
R\
TB
W
A
·
S
ÍA
·
1
33
03
5
ronning.is | gorenje.is
42LA641V
42" LG EDGE LED
200Hz MCI
Edge LED, DVB-T2/C/S2, Full HD 1920x1080, Smart
TV, Cinema 3D, innb. wifi, Miracast, NFC Tac-On, 2nd
display, widi, Magic remote ready, Smart Home, Dual
Play, Triple XD Engine, Real Cinema 24p, Browser,
MHL, DLNA, 2nd display, USB Rec
Fullt verð: 279.995 kr.
Tilboðsverð: 219.995 kr.
47LN540V
47" LG Direct LED 100Hz MCI
Direct LED, DVB-T2/C, Full HD 1920x1080, Triple XD
Engine, Real Cinema 24p, MHL, Simplink, LAN, USB
Fullt verð: 199.995 kr.
Tilboðsverð: 189.995 kr.
YSP4300
Yamaha YSP Sound Projector
Flottasti YSP soundbarinn frá Yamaha.
Fullt verð: 314.995 kr.
Tilboðsverð: 279.995 kr.
32LN540U
32" LG Direct LED 100Hz MCI
Direct LED, DVB-T2/C/S2, HD Ready 1366x768,
Intelligent Sensor, Real Cinema 24p, MHL, USB
Fullt verð: 109.995 kr.
Tilboðsverð: 93.495 kr.
YHT298BL
Yamaha Home Theater in a Box
– RXV373
Heimabíómagnari ásamt NS-P20 hátölurum 5.1 saman
í kassa.
Fullt verð: 79.995 kr.
Tilboðsverð: 64.995 kr.
TækIN FRá LG OG YAMAHA FáST Nú
Hjá RöNNING, AkUREYRI
komdu og skoðaðu frábærar græjur fyrir heimilið!
42"
47" 32"
Yngsti kúabóndinn ræsti nýja ostalínu MS á Akureyri
Formlega hefur verið tekin í notk-
un ný og fullkomin vinnslulína til
ostagerðar hjá MS Akureyri. Áætl-
aður kostnaður við vinnslulínuna
auk tengdra framkvæmda í húsnæði
mjólkurstöðvarinnar, þ.m.t. 300 fer-
metra viðbyggingu fyrir lager, losar
einn milljarð króna. Það voru þau
Sara María Davíðsdóttir, bóndi á
Torfum og yngsti kúabóndinn á
samlagssvæði MS Akureyri, og osta-
meistarar mjólkurbúsins, Hermann
Jóhannsson og Bragi Egilsson, sem
formlega ræstu nýju ostalínuna sl.
föstudag.
DÖNSK OSTALÍNA
Samið var við danska fyrirtækið SPX
um hönnun og smíði á nýju línunni
– þ.m.t. ostatönkum og ostapressum
– inn í húsnæði MS Akureyri. Um
miðjan ágúst var hætt ostafram-
leiðslu með gömlu vinnslulínunni,
sem var meira en tuttugu ára göm-
ul, og í kjölfarið hafist handa við að
setja nýju línuna upp. Með henni og
skipulagsbreytingum á húsnæðinu
aukast afköst í ostaframleiðslu til
muna á Akureyri og framleiðslu- og
vöruflæði verður á allan hátt betra
og markvissara.
Ostagerð hefur alla tíð verið stór
þáttur í mjólkurvinnslu á Akureyri
– lengstaf undir merkjum Mjólkur-
samlags KEA, síðan Norðurmjólkur
og nú MS. Í ostagerðina fara á bil-
inu 60-65% af innveginni mjólk á
Akureyri, sem á þessu ári er áætluð
um 37 milljónir lítra. MS Akureyri
er og hefur lengi verið langstærsti
ostaframleiðandi landsins með um
40 tegundir osta og tengdra vara.
ÁTTA MILLJARÐA FJÁRFESTINGAR
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólk-
ursamsölunnar, sagði í ávarpi að
á undanförnum árum hafi Mjólk-
ursamsalan lagt í um 8 milljarða
króna fjárfestingar á núvirði til að
endurnýja aðstöðu, tæki og búnað í
mjólkuriðnaðinum. „Fyrirtækið er
að mestu í eigu íslenskra kúabænda.
Mjólkursamsalan er þeirra verkfæri
til afurðavinnslu og þjónustu við
markaðinn. Ef þessum fjárfesting-
um væri deilt niður á kúabú landsins
næmu þær um um 12 milljónum á
hvert bú. Þessar fjárfestingar eru
til marks um trú íslenskra bænda á
á framtíð íslenskrar matvælafram-
leiðslu. Með þeim hafa kúabænd-
ur náð fram mikilli hagræðingu í
vinnslunni. Þessar fjárfestingar eru
grundvöllur þess að tekist hefur
að lækka árlegan vinnslukostn-
að í mjólkuriðnaði um meira en 2
milljarða króna. Þær eru því arð-
bærar fyrir bændur og neytendum
í hag. Endurnýjun vinnslustöðva
Mjólkursamsölunnar er grundvöll-
ur hagræðingar en líka grundvöllur
áframhaldandi vöruþróunar, sem er
aðalsmerki Mjólkursamsölunnar. Við
munum sjá þess merki í vöruþróun
í ostaframleiðslu á næstu árum sem
byggir á þeirri traustu undirstöðu
sem hefur verið sköpuð með þessum
nýja og fullkomna búnaði á Akur-
eyri,“ sagði Einar Sigurðsson.
ÞÁTTASKIL Í SÖGU MJÓLKUR-
IÐNAÐAR Á ÍSLANDI
Egill Sigurðsson, stjórnarformaður
MS, sagði þegar hann ávarpaði gesti
í húsakynnum MS Akureyriv að þess-
ar vikurnar væri að ljúka víðtækri
endurskipulagningu og endurnýjun
í vinnslustöðvum fyrirtækisins um
allt land. „Hér í dag eru þáttaskil í
sögu mjólkuriðnaðar og í sögu Mjólk-
ursamsölunnar á Akureyri. Hér er
nú ræst fullkomnasta ostavinnsla
sem Íslendingar hafa átt. Hún leys-
ir af hólmi tæki sem komin voru á
þriðja áratug í aldri. Hér er unnið úr
um þriðjungi af heildarframleiðslu
mjólkur á Íslandi, um 37 milljón lítr-
um á ári,“ sagði Egill og bætti við að
með stofnun Mjólkursamsölunnar
árið 2007 hafi stefnan verið mörkuð
í endurskipulagningu mjólkuriðnað-
ar í þágu neytenda og bænda. Síð-
an hafi vinnslustöðvum fækkað og
þær orðið sérhæfðari. Á sama tíma
hafi öll flutningakerfi verið endur-
nýjuð. „Árangurinn er ótvíræður og
mjög mikil hagkvæmni hefur náðst
í þessari starfsemi, sem skilað hefur
verið til neytenda og bænda. Verð til
bænda fyrir hráefni hefur hækkað
verulega umfram almennt verðlag í
landinu vegna þess að aðföng þeirra
hafa hækkað mjög í verði eftir hrunið.
Þrátt fyrir það hefur tekist að halda
aftur af hækkunum á heildsöluverði
til neytenda. Það byggir á þeirri hag-
ræðingu sem náðst hefur í mjólkur-
iðnaðinum,“ sagði Egill Sigurðsson.
MIKIÐ FRAMFARASKREF
Kristín Halldórsdóttir, mjólkur-
bússtjóri MS Akureyri, sagði að
framkvæmdir við nýja ostalínu á
Akureyri hafi hafist sumarið 2012.
„Þá hófst verklegur undirbúningur,
nýjar skilvindur voru teknar í gagn-
ið í nóvember og strax um haustið
var tekin endanleg ákvörðun um
hvað ostagerðarbúnaðurinn skyldi
innihalda, stærð, umfang o.fl. Þá
var jafnframt ákveðið að byggja
við lagerhúsnæðið til að tryggja að
vinnsluflæði yrði sem best. Vinnslu-
salurinn hefur tekið miklum stakka-
skiptum og fengið verulega andlits-
lyftingu. Glæsileg ostagerðarlína
hefur verið endurnýjuð frá a til
ö, gerilsneyðingartæki, skilvindur,
ostatankar og pressur, söltunarkerfi,
lagerkassar fyrir ost, svo það stærsta
sé nefnt. Sá búnaður sem við höfum
nú tekið formlega í notkun er mikið
framfaraskref, jafnvel enn stærra
en við síðustu endurnýjun á tækja-
búnaði fyrir 22 árum síðan. Okkur
telst til að þetta sé í fjórða skipti sem
búnaður til ostagerðar er endurnýj-
aður hér á Akureyri,“ sagði Kristín
Halldórsdóttir við formlega ræsingu
nýju ostalínunnar. a
EKKERT OKUR!
„FISK kompaní er sælkeraverzlun og ber sig ekki saman við lágvöruverðs-
verslanir,“ segir Aðalsteinn I. Pálsson fyrir hönd nýju fiskbúðarinnar í Bón-
ushúsinu við Kjarnagötu á Akureyri.
Með því bregst Aðalsteinn við lesendadálki blaðsins en í síðustu viku
kom fram gagnrýni frá lesanda á verðlagningu í nýju fiskbúðinni á Akureyri.
Áður hafði í sama dálki komið fram einróma lof frá lesendum sem margir
hafa lýst þeirri skoðun að búðin sé frábært framtak.
Þótt búðin einbeiti sér að gæðum nefnir Aðalsteinn dæmi um að
þorskflök séu ódýrust í FISK kompaní af öllum fiskverslunum á Íslandi. Það
komi fram í nýjustu verðkönnun. ASÍ og getur Akureyri vikublað staðfest
þá niðurstöðu. Fráleitt sé því að halda fram að búðin stundi okur.
-ritstj.
ÞAÐ VAR GLATT á hjalla þegar tímamótin fóru fram síðastliðinn föstudag.