Akureyri


Akureyri - 31.10.2013, Blaðsíða 24

Akureyri - 31.10.2013, Blaðsíða 24
V I K U B L A Ð – N O R Ð U R L A N D31. október 201341. tölublað 3. árgangur Njarðarnesi 8 - 603 - Akureyri - S:4624200 - car-x@car-x.is Hvað getum við gert fyrir þig á þegar aðstæður á borð við þetta skapast ? Tjónaskoðun - viðgerðir og málning - Bílaviðgerðir - Sala og viðgerðarþjónusta fyrir fjór, sexhjól og sleða - ...úúúps... Og hvað nú? Hafðu samband við CAR-X. Bjóðum uppá tjónaskoðun, réttingar og málningarvinnu auk þess að bjóða almennar bílaviðgerðir. Sala og viðgerðarþjónusta fyrir fjór- sexhjól og vélsleða. Car-X bifreiðaverkstæði - Njarðarnes 8 - 603 Akureyri- Sími 462 4200 - car-x@car-x.is 13.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS RÓS Þegar ég var 18 ára mennta- skólanemi þá fór ég sum- arlangt í fiskvinnu austur á fjörðum. Konurnar í frysti- húsinu voru oft harðar við okkar strákana, ráku á eftir okkur miskunnarlaust ef við vorum ekki nógu röskir. Ein var sérlega grimm, það var nánast ómöglegt að halda henni góðri, manni stóð hálf- gerður stuggur af henni. Þegar langt var liðið á sumar varð ég uppiskrópa með lestrarefni og ákvað því að fara í bóka- safn staðarins. Mér brá heldur við þegar ég sá að starfskona bókasafnsins var frystihús- daman grimma, ég skildi ekkert í því hvað ómenntuð fiskverkakona ætti erindi í þetta starf. Í hroka mínum ákvað ég að spyrja hana út í nokkrar vel valdar bækur, ég var jú menntaskólanemi og vel að mér í hinum æðri fræðum að eigin mati. Það er skemmst frá því að segja að hún kunni nánast bókasafnið utan bókar, leiddi um um allt safnið og sagði mér frá af inn- lifun og einlægri ánægju. Ég kom nokkrum sinnum eftir þetta og átti dýrðlegar stund- ir á safninu undir handleiðslu „ómenntuðu” fiskverkakon- unnar. Hún læknaði mig af menntahroka fyrir lífstíð. Við þetta má bæta að inni- stæðan fyrir menntahroka mínum var nú ekki meiri en svo að þegar ég kom þarna um vorið þá hélt ég að ýsa væri kvenþorskur...... UM DAGINN OG VEGINN JÓN ÓÐINN WAAGE SkrIFAr KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200 Úlpa Kr. 7.990.-

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.