Morgunblaðið - 29.10.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.10.2013, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013 2 BÍLAR Þ að fer ekki endilega saman að hafa óbilandi áhuga á bílum og um- ferð og umferðarmenn- ingu. Sú er hins vegar raunin hjá Júlíusi Vífli Ingvarssyni, odd- vita Sjálfstæðismanna í Reykja- vík. Hann hefur lengi verið með bíladellu á alvarlegu stigi en núna, segir hann, eru umferð- armálin honum ofarlega í huga. Það á við um umferðarmenn- ingu, umferðaröryggi og um- ferðarflæði. Eitt og annað hefur verið gert til að auka umferð- arör-yggi, meðal annars á höf- uðborgarsvæðinu en það þarf meira til en verklegar breyt- ingar. „Fyrst og fremst verðum við auðvitað að líta í eigin barm. Við verðum fyrst og fremst að sýna ábyrgð,“ segir Júlíus Vífill. Of margar hraðahindranir Brugðist hefur verið við hrað- akstri og glannaskap með því að koma upp hraðahindrunum og fleira sem hindrar að öku- menn geti látið gamminn geysa. „Ég tel það geta verið gott víða en víða hafa menn far-ið allt of langt. Til eru ýmis úrræði sem nýtt eru víða um heim sem við höfum einhvern veginn ekki horft til.“ Í nýlegri skýrslu sem sjá má á vef Vegagerðarinnar kemur fram að hraðamyndavélar skili betri ár-arangri en hraðahindranir, auk þess sem þær eru hag- kvæmari. Að mati Júlíusar Vífils mætti nýta hraðamyndavélar skyn- samlegar en gert er í dag. „Það myndi vera betri lausn því þær auðvitað refsa þeim sem á að refsa en ekki öllum, eins og krappar hraðahindranir gera, þannig að þeir sem aka á venju- legum og skynsamlegum hraða verða líka að fara yfir hraða- hindranir en myndu vera lausir við það til dæmis ef upplýsingar birtust á upplýsingaskyltum um hættur framundan,“ segir hann og bætir við að ekki væri úr vegi að upplýsingar væri að finna um það, þegar ekið er á milli rauðra ljósa í miðbænum, að með því að aka hægar slyppi bílstjórinn við að stoppa á rauðu ljósi. Þar sem væru „grænar línur“ á milli ljósa væri að finna upp- lýsingar eða eitthvað sem gefur ökumanni vísbendingu um það. Þetta hefði ekki eingöngu betri áhrif á bílinn sjálfan heldur umhverfið því ef sífellt er verið að taka af stað, gefa í og bremsa eyðir bíllinn meira elds- neyti og mengar þar af leiðandi meira. „Sá sem er til dæmis að aka úr Grafarvogi, frá Strandvegi og niður í Skeifu, ekur sömu vega- lengd og sá sem fer frá Ána- naustum og í Skeifuna. En sá sem ekur ofan úr Grafarvogi eyðir um 30% minna eldsneyti af því að hann ekur í beinni línu, án þess að stöðva. Þar eru mis- læg gatnamót og hann þarf hvergi að stoppa á meðan sá sem kemur úr Vesturbænum þarf að stoppa á einum átta stöðum,“ segir Júlíus Vífill. Færri teppur og betra flæði Þó svo að ekki sé hægt að setja upp mislæg gatnamót alls staðar er hægt að gera eitt og annað til að umferðin gangi greiðlega fyrir sig og bílstjórar nái að halda jöfnum hraða. Júl- íus Vífill er sannfærður um að í borginni megi ganga enn lengra til að auka flæðið, til dæmis á morgnana þegar umferðaröng- þveiti verður víða. „Þá eru eig- inlega tómar akreinarnar í aust- urátt á Miklubrautinni á meðan akreinarnar í vesturátt eru full- ar. Væri ekki mögulegt að taka eins og aðra akreinina í austur- átt og nýta hana til að aka í vestur? Við sjáum þetta víða er- lendis, að það sé verið að skipta akreinum eftir tímum dags þannig að ákveðinn hluta dags- ins hefurðu tvær akreinar en þrjár þegar meiri þungi er.“ Þetta þarf ekki að vera flókið í framkvæmd. Erlendis er gjarnan notast við rafræna stýringu sem gerir þetta býsna auðvelt því þá er hægt að stýra þessu utan úr bæ. Hugmyndirnar eru margar og byggja flestar á góðu upplýs- ingaflæði og dálítilli breytingu á hugsunarhætti ökumanna. Hættulegustu gatnamótin Í Reykjavík eru flest hættuleg- ustu gatnamótum landsins. Júl- íus Vífill telur góðar líkur á að draga megi verulega úr slysa- hættu með markvissum aðgerð- um. „Hættulegustu gatnamótin eru ljósastýrð gatnamót eins og Grensásvegur–Háaleitisbraut og Kringlumýrarbraut á Miklubraut- inni og það eru þessi gatnamót sem við þurfum að horfa sér- staklega til. Auðvitað væri æski- legt að þarna væru mislæg gatnamót.“ Það kemur á óvart að umferð- arþyngstu gatnamót landsins eru ekki á meðal þeirra hættu- legustu. Á hverjum sólarhring fara 180.000 bílar um gatna- mótin á Sæbraut og Miklubraut. Þar fara tvöfalt fleiri um en á Kringlumýrarbraut og Miklubraut en eftir sem áður verða þar sjaldan alvarleg slys. Þau eru ekki ljósastýrð. „Gallinn við ljósastýrð gatnamót er sá að ökumenn aka oft hratt í gegnum þau af því að þeir treysta því að allir aðrir séu vakandi yfir því sem þeir eru að gera. Það er sérstaklega hættulegt þegar menn sjá græna ljósið fram- undan og fara að gefa í til að vera öruggir um að ná yfir á grænu ljósi.“ Með þetta til hliðsjónar má sjá hverju upplýsingaskilti myndu breyta. „Hafðu engar áhyggjur, þú nærð grænu ljósi. Aktu bara varlega. Það er nægur tími. Aktu bara á fjörutíu og þú munt ná þessu!“ segir Júlíus Vífill um mögulega útfærslu á hugmynd- inni. Það er ljóst að umferð- ardellan er komin til að vera hjá honum og fer hún vel með bíla- dellunni sem hefur nú þegar náð hámarki hjá Júlíusi Vífli Ingv- arssyni. malin@mbl.is Ökuþórinn Júlíus Vífill Ingvarsson Með ólæknandi umferðardellu Morgunblaðið/RAX Júlíus Vífill hefur lengi verið með bíladellu á alvarlegu stigi en núna eru umferðarmálin honum ofarlega í huga að eigin sögn. Það á við um umferðar- menningu, umferðaröryggi og umferðarflæði. „Fyrst og fremst verðum við auðvitað að líta í eigin barm. Við verðum fyrst og fremst að sýna ábyrgð.“ Morgunblaðið/Kristinn. Sýnt hefur verið fram á að árekstrum fækkar þar sem mislæg gatnamót eru gerð þar sem umferð er mikil. Þau vill Júlíus Vífill sjá á mótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.