Morgunblaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013 BÍLAR 7 • Stýrishlutir • Pakkningas • Ventlar • Vatnsdælur • Tímareimar • Knastásar • Legur • Stimplar Varahlutir sem þú getur treyst á! ett Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com VARAHLUTAVERSLU VÉLAVERKSTÆÐIÐ N Túrbínur í flestar gerðir bíla Frábært verð - örugg bifreiðaskoðun um allt land OKT. SKOÐUN ARMÁN 10 Þú gætir eignast nýjan Spark ef þú drífur bílinn í skoðun! Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des. eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chervolet Spark sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013. Aðalvinningur er splunkunýr Chevrolet Spark árg. 2014 HAPPDRÆTTI E igendur Mercedes-Benz- og Volkswagen-bíla í Þýskalandi hafa eiginlega veitt framleiðendum þessara bíltegunda ofanígjöf. Í nýrri könnun kom í ljós að þeir eru ekki ýkja ánægðir með bíla sína. Öðru máli gegnir um eigendur tveggja annarra eðalbílgerða, BMW og Audi. Samkvæmt nið- urstöðum könnunarinnar trónir BMW í efsta sæti á ánægjuvog bíl- eigenda og Audi er í öðru sæti. Má því segja að þýskur eigandi BMW sé ánægður bíleigandi. Fyrir könnuninni, sem fram fer árlega, stendur félag þýskra bif- reiðaeigenda, ADAC. Frá í fyrra hefur Mercedes fallið úr fjórða sæti í það sjötta og Volkswagen úr sjöunda í níunda. Í fyrra urðu BMW og Audi einnig í efstu tveimur sætunum á ánægjuvoginni. Þjóðverjar sem eiga Honda og Toyota eru einnig tiltölulega ánægðir með bíla sína og það sem bíleigninni fylgir því þessar gerðir urðu í þriðja og fjórða sæti í ár. Í þriðja sæti í fyrra varð Mini, sem er í eigu BMW, en er í ár í fimmta sæti. Útkoma Mercedes-Benz kemur á óvart því fyrirtækið hefur verið í talsverðri sókn og sent frá sér framúrskarandi bíla. Liggur við að segja að bílsmiðurinn hafi verið auðmýktur með sjötta sætinu á ánægjuvoginni. Að falla niður um tvö sæti frá í fyrra þykir benda til að stefna og þjónusta umboðsfyr- irtækja og Mercedes-verkstæða sé bíleigendum ekki að skapi. Og að þurfa að horfa á Honda og Toyota taka fram úr sér á heima- velli gerir illt verra. Svipaða sögu er af Volkswagen að segja; að falla úr sjöunda sæti í það níunda sýnir að fyrirtækið á mikið verk fyrir höndum til að eig- endur VW-bíla geti aftur tekið gleði sína. Í 25 efstu sætum ánægjuvog- arinnar urðu annars eftirtaldir bílar: 1. BMW, 2. Audi, 3. Honda, 4. Toyota, 5. Mini, 6. Mercedes-Benz, 7. Volvo, 8. Skoda, 9. VW, 10. Mazda, 11. Mitsubishi, 12. Nissan, 12. Dacia, 14. Smart, 15. Suzuki, 16. Kia, 17. Ford, 18. Seat, 19. Hy- undai, 20. Citroën, 20. Renault, 22. Opel, 23. Peugeot, 24. Chevr- olet og 25. Fiat. agas@mbl.is Eigendur BMW ánægðastir bíleigenda í Þýskalandi Mercedes-Benz og VW hrapa á ánægjuvoginni AFP Það hefur jafnan glatt bíleigendur að aka um á Mercedes-Benz, eins og þessum fallega bíl af gerðinni CLA220. Einhverjar blikur eru þó á lofti þar um meðal þýskra bíleigenda og hafa Toyota og Honda tekið þar fram úr. Hjálmar vernda oftast mótor- hjólafólk frá miklum höfuð- meiðslum þegar slysin verða, en hvað ef hjálmar geta komið í veg fyrir slys til að byrja með? Snjall- hjálmurinn Skully er einmitt til- raun í þá veru, hannaður og þró- aður af Marcus Weller. Marcus bjó fyrir nokkrum árum í Barcelona og notaði þá mótorhjól mikið til að komast á milli í borginni. Einn daginn lenti hann í slysi þegar hann var að leita eftir götumerk- ingum og náði ekki að forða sér frá bíl sem kom á hann. Í fram- haldinu ákvað hann að sjá hvað hann gæti gert til að auka öryggi mótorhjólafólks með hjálmi sem gæti veitt ökumanninum betri upplýsingar. Með Skully P1 fær kaupandinn 180° baksýnismynda- vél, Android-síma, GPS-leið- sögukerfi og fídusa eins og hröð- unarmæli, hallamæli og áttavita. Búnaðurinn er raddstýrður þann- ig að með einni skipun getur öku- maðurinn beðið um leiðsöguupp- lýsingar eða lagaval. Meðal þess sem verið er að þróa fyrir hjálminn er SOS búnaður sem lætur vita lendi ökumaður mótorhjólsins í slysi. Áætlað er að Skully P1 komi á markað næsta vor og kosti um það bil 120.000 kr. út úr búð í Bandaríkjunum. njall@mbl.is Snjallhjálmurinn Skully Snjallhjálmurinn Skully verndar þann sem hann ber gegn höfuð- meiðslum og veitir um leið ýmis konar upplýsingar og þjónustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.