Akureyri - 01.11.2012, Qupperneq 15
Erna Indriðadóttir
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Helena Þuríður Karlsdóttir
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir
Kristján L. Möller,
Ingólfur Freysson
Örlygur Hnefill Jónsson
Stjórnsýslufræðingur og upplýsingafulltrúi, Fjarðabyggð
Alþingismaður, Egilsstöðum
Lögfræðingur, Akureyri
Alþingismaður, Akureyri
Kennari, Akureyri
Alþingismaður, Siglufirði
Framhaldsskólakennari, Húsavík
Héraðsdómslögmaður, Þingeyjarsveit
Þau málefni sem ég legg áherslu á:
- Að nota skattaafslátt til að jafna aðstöðumun fólks á
landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Vil einnig bættar
samgöngur og grunnheilsugæslu um allt land.
- Að efla atvinnulíf í landinu og örva fjárfestingar til að unnt sé að
komast hjá frekari skattahækkunum.
- Að ljúka viðræðum við Evrópusambandið. Það þarf samning á
borðið til að unnt sé að greiða atkvæði um málið.
- Að standa vörð um kjör þeirra sem höllustum fæti standa í
samfélaginu.
- Að stuðla að faglegri vinnubrögðum á Alþingi.
Ég hef áralanga reynslu af starfi við fjölmiðla, stjórnunarreynslu
bæði í opinbera geiranum og atvinnulífinu og af störfum í
alþjóðlegu umhverfi.
Ég er 54 ára, fædd og uppalin í Hafnarfirði, móðir, amma
og sambýliskona. Ég er kennari og sérkennari. Kenndi á
Fljótsdalshéraði 1982 – 2009, en þá var ég kosin a þing. Enn er
mitt aðalheimili á Egilsstöðum. Lífið á landsbyggðinni er dýrmæt
lífsreynsla. Forysta í landstærsta sveitafélagi landsins á erfiðum
tímum, svo og störfin á þinginu frá 2009 hafa eflt mig mikið. Ég
hef einbeitt mér að velferðarmálunum í þinginu, stýri samráði um
yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks milli stjórnsýslustiga og á sæti
í starfshópi um endurskoðun á almannatryggingakerfinu.
Mikilvægustu verkefnin framundan eru að viðhalda þeim
jöfnuði sem náðst hefur í samfélaginu og auka markvisst lífsgæði
landsmanna.
Ég er 45 ára og búsett á Akureyri. Ég býð mig fram því ég vil taka
þátt í að móta farsælt og sterkt jafnaðar- og lýðræðissamfélag
sem einkennist af grunngildum jafnaðarstefnunnar. Ég hef haft
áhuga á stjórnmálum frá unga aldri. Ég hef víðtæka reynslu
af félagsstörfum og hef gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Samfylkinguna. Ég er mikil landsbyggðarkona og baráttumál mín
eru velferðar-, atvinnu-, samgöngu- og byggðamál.
Ég vil:
- Réttlátt samfélag velferðar og jöfnuðar
- Nýta tækifæri til atvinnusköpunar með skynsamlegum hætti
- Halda áfram samgöngubótum og gerð samgöngumannvirkja
- Vinna að hagsmunamálum landsbyggðarinnar
- Ljúka aðildarviðræðum við ESB
Ég óska eftir stuðningi í 3.-4. sæti.
Ég er í pólitík til að auka jöfnuð. Það á við um kynjajöfnuð,
kjarajöfnuð, en þó ekki síst byggðajöfnuð.
Ég er sannfærður um að heilbrigt samfélag byggist á jöfnuði, en
sjúkt samfélag stafi af ójöfnuði.
Tilraun fyrri valdhafa, frá því fyrir hrun, að slá Evrópumet í
ójöfnuði, mistókst hrapalega. Það er pólitík að hrinda annarri eins
aðför að íslensku samfélagi. Þá vakt vil ég standa.
Mestum tíma mínum á Alþingi hef ég varið í fjárlagagerð. Mínir
kraftar hafa farið í að snúa mesta fjárlagahalla lýðveldistímans í
jöfnuð.
Ég er stoltur af endurreisn landsins. Við höfum komið miklu í verk.
Þar segir fjölþætt uppbygging í Norðausturkjördæmi sína sögu.
Það sem aðrir gátu ekki í góðæri, gerðum við í kreppu.
Verk næstu ára er að byggja upp samfélag, ekki að sundra því
aftur.
Fædd árið 1973 á Felli við Bakkafjörð og þar ólst ég upp, yngst
í hópi 5. systkina. Foreldrar mínir voru Vilborg Reimarsdóttir
frá Kelduskógum í Berufirði og Sigurjón Jósep Friðriksson frá
Felli. Bý á Akureyri, á 2 börn, hund og hest. Er lærður sjúkraliði,
með BA gráðu í sálfræði og kennsluréttindi. Starfa sem
kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri, sit í Samfélags- og
mannréttindaráði, ásamt því að vera í stýrihóp um aðlögun
aðalnámsskrá að skólanámsskrám grunnskóla Akureyrar.
Hef starfað við ýmislegt t.d. í frystihúsum, við ræstingar, starfað
með öldruðum, fötluðum og í heimahjúkrun, verið fjósamaður og
fangavörður. Aðhyllist félagshyggju, og trúi einlægt á að jöfnuður
og jafnrétti séu lykilatriði í að skapa velferð og sátt í samfélaginu.
Ég býð mig fram í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðaustur-
kjördæmi til þess að fylgja eftir baráttumálum okkar:
- Höldum fast við velferðarstefnu í störfum ríkisstjórnar.
- Nýtum orkulindir á Norðausturlandi í þágu atvinnuuppbyggingar.
- Stórbætum samgöngur til alhliða framfara í atvinnu- og mannlífi.
- Tryggjum gerð Vaðlaheiðarganga, Norðfjarðarganga og Seyðis-
fjarðarganga.
- Byggjum upp mennta- og menningarstofnanir í kjördæminu.
- Setjum Norðurslóðamál í forgang, m.a. með Norðurslóðamiðstöð.
- Berjumst fyrir því að íbúar á landsbyggðinni njóti jafnræðis og
jafnréttis á við íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Bjartsýni, barátta og styrk forysta: Stöndum saman um jöfnuð og
atvinnu.
Nú er mikilvægt að fylgja eftir þeim góða árangri sem náðst
hefur við endurreisn efnahagslífsins í núverandi ríkisstjórn, undir
forystu Samfylkingarinnar.
Ég tel að jöfnuður í lífskjörum og jöfn tækifæri séu heilladrýgst
fyrir einstaklinga og samfélagið. Ég vil öfluga velferðarþjónustu
sem burðarás í samfélaginu þar sem menn vinna saman.
Alþingiskosningarnar munu snúast um það hvort við viljum
viðhalda jöfnuði eða óhefta frjálshyggju. Ég vil samfélag þar sem
jöfnuður ríkir.
Eftir að hafa starfaði í Samfylkingunni frá stofnun hennar, hef
ég nú ákveðið að gefa kost á mér í fyrsta skiptið í prófkjöri hér í
Norðausturkjördæmi.
Ég óska því eftir stuðningi ykkar í 3.- 6.sæti í væntanlegu prófkjöri.
Ég tel breytingar nauðsynlegar og að fólk úr kjördæminu sitji
á Alþingi. Ég hefi sem varaþingmaður komið mikilvægum
málum í gegn á Alþingi t.d. breytingu á refsiákvæðum
fiskveiðistjórnarlöggjafarinnar og á lögum um erfðafjárskatt.
Ég hefi alla tíð barist fyrir byggðamálum og sem fyrrverandi
stjórnarmaður og formaður Byggðastofnunar þekki ég þessi mál.
Ég vil að auðlindir landsbyggðar verði nýttar til að styrkja byggð,
atvinnu og eignir fólks þar og að ferðaþjónusta, siglingar um
norðurhöf og olíuvinnslu verði vaxtagreinar í framtíðinni og
saman styrki þetta heilbrigðis-, samgöngu- og menntamál og
velferð alla.
Ég óska eftir stuðningi til þessara brýnu verka.
2.
2. 1.
4-6. 3-4.
1-3. 1-6.
3-6.
SÓKN TIL BETRA
SAMFÉLAGS
SAMFYLKING.IS
Kosningaferlið
Kosning fer fram rafrænt frá 9. nóvember til klukkan 18:00
þann 10. nóvember.
Kosningarétt hafa flokksmenn og skráðir stuðningsmenn í
Norðausturkjördæmi. Kjörskrá lokar 1. nóvember.
Kosið er á xs.is og þar verða allar upplýsingar til að taka þátt í
netkosningu. Kjósandi fær kjörkóða í netbanka og getur þá kosið.
Hafir þú ekki aðgang að netbanka munu trúnaðarmenn liðsinna þér
með að fá kjörkóða.
Kjósa skal 6 frambjóðendur og raða þeim í sæti með númerum.
Kjörfundir 10. nóvember
Kynntu þér frambjóðendurna nánar á vefnum: Kjörstjórn:
Lára Stefánsdóttir, formaður, 896-3357
Unnar Jónsson
Dóra Fjóla Guðmundsdóttir
Trúnaðarmenn
Akureyri
Borgarfjörður Eystri
Breiðdalshreppur
Dalvík
Djúpivogur
Egilsstaðir
Eskifjörður
Eyjafjarðarsveit
Fáskrúðsfjörður
Grenivík
Grímsey
Hrísey
Húsavík
Kópasker
Laugar
Mývatn
Neskaupsstaður
Ólafsfjörður
Raufarhöfn
Reyðarfjörður
Seyðisfjörður
Siglufjörður
Stöðvarfjörður
Vopnafjörður
Þórshöfn
Pétur Maack
Kjörstjóri: Lára Stefánsdóttir
Ómar Bjarnþórsson
Ingvar Kristinsson
Bergþóra Birgisdóttir
Baldur Pálsson
Eydís Ásbjörnsdóttir
Rögnvaldur Símonarson
Íris Valsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Kjörstjóri: Lára Stefánsdóttir
Linda María Ásgeirsdóttir
Dóra Fjóla Guðmundsdóttir
8945894
8963357
8953533
8628877
8493439
8612164
8917018
6636857
8975641
6923701
8963357
8917293
6901036
4652112
6616292
6616292
6691060
8654324
8633361
8920919
8951136
8948933
8690117
8944530
8456826
Guðmundur Örn Benediktsson
Arnór Benónýsson
Arnór Benónýsson
Guðmundur R. Gíslason
Rögnvaldur Ingólfsson
Jónas F Guðnason
Þorvaldur Jónsson
Jón Halldór Guðmundsson
Ólafur Haukur Kárason
Björgvin Valur Guðmundsson
Ólafur K. Ármannsson
Ragnheiður Valtýsdóttir
Akureyri
Neskaupsstaður
Ólafsfjörður
Siglufjörður
Líklegt er að kjörfundir bætist við sjá nánar á www.xs.is
Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18
KREML
Anddyri Menntaskólans
á Tröllaskaga
Þormóðsbúð, hús björgunar-
sveitarinnar Tjarnargötu 18
10:00 - 17:30
13:00 - 16:00
13:00 - 16:00
10:00 - 17:30
9.-10. nóvember
Flokksval
Samfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi