Akureyri


Akureyri - 01.11.2012, Blaðsíða 18

Akureyri - 01.11.2012, Blaðsíða 18
18 1. NÓVEMBER 2012 Gistihús Keavíkur (Bed&Breakfast Keavik Airport) Valhallarbraut 761 - 235 Reykjanesbæ Sími 426 5000 - gistihus@internet.is Frítt - Geymsla á bíl Frítt - Ferðir til og frá ugvelli Frítt - Þráðlaust internet Stór og þægileg herbergi Morgunmatur innifalinn Gervihnattasjónvarp Baðherbergi í öllum herbergjum Ódýr bílaþrif frá 1 til 6 manna herbergi Ertu að fara til útlanda? Afhverju ekki að losna við stress og læti og gista hjá okkur nóttina fyrir eða eftir ug? Við geymum bílinn fyrir þig frítt, skutlum þér á ugvöllinn og sækjum þig aftur. Oft er það ódýrara en bílageymslugjaldið á Leifsstöð. Hafðu endilega samband... www.bbkeavik.com AÐSEND GREIN ERNA INDRIÐADÓTTIR SKRIFAR Brýnast að efla fjárfest­ ingu og skapa atvinnu Alþjóðlega kreppan sem nú geisar hefur tekið sinn toll í okkar sam­ félagi síðustu fjögur árin og raunar miklu víðar í heiminum. Ríkisstjórn undir forystu Jóhönnu Sigurðar­ dóttur hefur glímt við afleiðingar hrunsins síðustu árin og þegar árangur hennar er mældur, verður að horfa fjögur ár aftur í tímann. Við okkur blasti þjóðar­ gjaldþrot með tilheyrandi óvissu um atvinnu og af­ komu. Stór hluti tekna ríkisins og heimilanna hvarf á einni nóttu, skuldir fyrirtækja og einstaklinga stökk­ breyttust og atvinnuleysi náði áður óþekktum hæðum. En flestir hljóta að vera sammála um að okkur hefur miðað vel á veg undir stjórn Jafn­ aðarmanna, að minnsta kosti metur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn það svo og Viðskiptaráð Íslands getur ekki neitað því að þokast hafi fram á við á ákveðnum sviðum. Þessari ríkis­ stjórn undir forystu Samfylkingar­ innar, hefur einnig tekist að koma í veg fyrir algert hrun í velferðar­ þjónustunni. Slíkt er ekki sjálfgefið. Einstaklingar og fyrirtæki hafa lagt hart að sér Það má ekki gleyma því að þessi árangur er ekki eingöngu ríkis­ stjórninni að þakka. Þessi árangur er verk þeirra þúsunda Íslendinga sem ganga til vinnu sinnar á hverj­ um degi, veiða fisk eða framleiða ál til að selja í útlöndum, elda mat ofan í erlenda ferðamenn sem borga fyrir sig með gjaldeyri. Þetta er líka verk kennaranna í skólunum sem stöð­ ugt eru að skera niður, heilbrigðis­ starfsmannanna sem hlaupa hraðar á hverjum degi og þeirra sem halda uppi samfélagi okkar frá degi til dags. Þetta er líka árang­ ur þess fólks sem leggur hart að sér til að standa í skilum þrátt fyrir hærri gjöld og hækkandi verð­ lag. Að ógleymdum öllum þeim sem reka lítil og stór fyrirtæki við erfiðar að­ stæður og gefast ekki upp, skapa bæði verðmæti og atvinnu. Þegar betur árar, á það að verða okkar fyrsta verk að leyfa þeim sem harðast hafa lagt að sér að njóta þess. Róm var ekki byggð á einum degi En endurreisn landsins tekur tíma, Róm var ekki byggð á einum degi og enn bíða mörg óleyst verkefni. Þar er brýnast að efla fjárfestingu og skapa atvinnu og það má aldrei gleymast að standa vörð um kjör þeirra sem lakast eru settir. Ég treysti Samfylk­ ingunni best í þeim verkefnum sem framundan eru og tel að flokkurinn eigi að ganga óbundinn til næstu kosninga. Ég býð fram reynslu mína og þekkingu til að taka þátt í þessum verkefnum og skora á alla Samfylk­ ingarmenn og stuðningsmenn flokks­ ins að kjósa í prófkjöri flokksins 9. Og 10. nóvember. Stuðningsmenn þurfa að vera búnir að skrá sig á heimasíðu flokksins fyrir 2. Nóvem­ ber, annars fá þeir ekki að kjósa. AÐSEND GREIN JÓNÍNA RÓS GUÐMUNDSDÓTTIR SKRIFAR Barátta fyrir betra lífi Nú um miðjan október kom út ný skýrsla: Farsæld, baráttan gegn fá­ tækt á Íslandi. Skýrslan er unnin af hópi fólks sem vill leita leiða til að bregðast við fátækt á Íslandi, safna upplýsingum um málið og vinna síð­ an aðgerðaáætlun byggða á upplýsingunum. Hópur­ inn bendir á að málefn­ anlega umræðu um það samfélagslega mein sem fátækt er, skorti, meira hafi farið fyrir æsilegri umfjöllun fjölmiðla um málefni einstaklinga. Eft­ ir efnahagshrunið hafi þó umræðan um fátækt komist upp á yfirborðið en ekki verið þögguð niður eins og gjarnan hafi verið áður vegna skammarinnar sem hún vakti. Tillögur starfshópsins eru m.a.: Að fram fari fræðsla um vel­ ferðarhugtakið með það að leiðar­ ljósi að leggja áherslu á styrkleika fólks en ekki veikleika og vangetu. Að áhersla sé lögð á mannréttindi, valdeflingu og félagsauð, með skil­ greiningu á grunnframfærsluviðmið­ um og þátttökuviðmiðum svo engin þurfi að búa við skort svo varanlegur skaði hljótist af né upplifa sig ein­ angraðan og án tilgangs fyrir sam­ félagið. Að leggja áherslu á fjölskyldur og félagslegan arf, rjúfa vítahring fátæktar með því að styrkja fjöl­ skylduna, hvetja til samheldni og bæta möguleika ungs fólks til náms. Að gera það eftirsóknarvert að vera virkur í samfélaginu, ekki síst fyrir ungt fólk, sem oft þarf að að­ stoða einstaklingsbundið til náms eða starfs og fylgja því eftir. Tillögur hópsins eru uppbyggilegar og sýna skilning á vandasömu verk­ efni. Opinberir aðilar þurfa að taka tillit til þessara til­ lagna í áætlanagerð sinni, bæði hvað stefnumótun og fjármagn varðar. Fátækt er veruleiki á Íslandi, lítið fjármagn hefur legið á lausu til að vinna markvisst gegn því samfélagslega böli sem fátækt er, þó að mörgu leyti hafi tekist að verja kjör þeirra sem verst standa. Nú er tímabært að vinna markvissa áætl­ un til að uppræta fátækt á Íslandi í víðusta skilningi þess orðs svo allir Íslendingar geti borið höfuðið hátt og lifað lífi sínu með reisn. Viðurkennum vandann, gerum áætlun um lausn hans og vinnum eftir henni, þannig eigum við að uppræta samfélagsmein og þannig eigum við að vinna að uppbyggingu fleiri málaflokka sem ekki eru í því horfi sem við viljum hafa þá. Höfundur er þingmaður og frambjóð- andi í prófkjöri Samfylkingarinnar ÞESSA DAGANA BÍÐA Norðlendingar á gulu ljósi eftir betri tíð. Völundur Jónína Rós Guðmundsdóttir Erna Indriðadóttir Lestu fréttirnar og ræddu málin á akv.is

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.