Morgunblaðið - 19.12.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 19.12.2013, Síða 1
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2013 ÍÞRÓTTIR Körfubolti Snæfell er á toppi Dominos-deildar kvenna en liðið æfir ekki allt saman. Sumar ekki búsettar í Stykkishólmi. Hildur telur Snæfell geta bætt sig. Lele Hardy er besti leikmaður deildarinnar. 2-3 Íþróttir mbl.is Alexander Petersson, sem ekki gef- ur kost á sér í íslenska landsliðið fyr- ir EM í Danmörku í janúar, skoraði þrjú mörk fyrir Rhein-Neckar Lö- wen þegar liðið lagði Balingen, 37:30, í þýsku 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi. Alexander, sem glímir við erfið meiðsli í öxl, treystir sér ekki í það álag sem fylgir stórmóti en hann bryður verkjalyf milli leikja í Þýska- landi eins og áður hefur verið greint frá. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað fyrir Löwen í gær- kvöldi sem komst upp að hlið Hamb- urg í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum. Guðjón Valur og Aron flottir Kiel burstaði Lemgo, 38:25, í gær- kvöldi og komst upp að hlið Flens- burg á toppi deildarinnar en læri- sveinar Alfreðs Gíslasonar eiga að auki leik til góða. Guðjón Valur Sigurðsson, sem til- kynnti í vikunni að hann yfirgefi liðið í lok tímabilsins, skoraði sjö mörk fyrir meistarana en hann var marka- hæstur hjá Kiel ásamt skyttunum Marko Vujin og Wael Jallouz. Aron Pálmarsson bætti við fjórum mörk- um auk þess sem hann stýrði leik liðsins stórvel að vanda. Kiel er með 32 stig eins og Flensburg en Flens- burg vann innbyrðis viðureign lið- anna á dögunum. tom as@mbl.is Alexander skoraði þrjú  Skyttan á ferðinni í sigurleik Ljónanna í gærkvöldi  Ellefu íslensk mörk í stórsigri meistara Kiel á Lemgo EPA Góður Alexander Petersson glímir við erfið meiðsli í öxl en skoraði þrjú. Í fyrsta skipti síðan 2005 mun Noregur ekki leika um verðlaun á stórmóti kvenna í handbolta eftir að lærimeyjum Þóris Hergeirs- sonar var skellt í átta liða úrslit- um af heimamönnum í Serbíu, 28:25. Norsku stúlkurnar höfðu mest fimm marka forskot í leiknum en spilamennska þeirra hrundi í seinni hálfleik og gengu þær serb- nesku á lagið. „Það var mikill barningur í leiknum og okkur vantaði meiri líkamlegan styrk. Við verðum því að fara heim og æfa meira,“ sagði Þórir Hergeirs- son við TV2 eftir leikinn. Ríflega 16.000 áhorfendur fylgd- ust með leiknum í gær en von- brigði þeirra norsku leyndu sér ekki í leikslok. „Það fór allt úr- skeiðis í seinni hálfleik sem úr- skeiðis gat farið. Draumurinn sem við lifðum fyrir er á enda. Ég veit ekki hvernig við græðum sárin,“ sagði sársvekkt Camilla Herrem, leikmaður norska liðsins, eftir leik. Gærdagurinn var viss sigur fyr- ir dönsku þjálfarastéttina því þrjú lið af þeim fjórum sem leika til undanúrslita, Danmörk, Pólland og Brasilía, eru öll undir stjórn danskra þjálfara. Brasilía vann spennuþrunginn sigur á Ungverjalandi í framleng- ingu, Pólland vann afar óvæntan sigur á firnasterku liði Frakklands og Danir lögðu Þjóðverja. Undan- úrslitin fara fram á morgun. tom- as@mbl.is AFP Tár á hvarmi Norsku stúlkurnar voru nær óhuggandi eftir tapið gegn Serbíu í átta liða úrslitum HM í gærkvöldi enda voru þær líklegar til afreka. Vonbrigði hjá Noregi  Heims- og ólympíumeistararnir úr leik í Serbíu eftir tap gegn heimamönnum  Mest fimm mörkum yfir en leikur þeirra norsku hrundi í seinni hálfleik Íslendingaslagur AZ Alkmaar og Heerenveen í 16 liða úrslitum hollensku bikar- keppninnar í fót- bolta í gærkvöldi endaði í víta- spyrnukeppni. Staðan að lokn- um venjulegum leiktíma var 1:1 en Aron Jóhannsson skoraði mark AZ. Hann kom bikarmeisturunum svo yfir á 105. mínútu í framleng- ingu en gestirnir í Heerenveen jöfnuðu metin í uppbótartíma, 2:2. Í vítaspyrnukeppninni skoruðu Aron og Alfreð fyrir sín lið en Jó- hann Berg var farinn af velli. Í bráðabananum varði Esteban Al- varado, markvörður AZ, 7. spyrnu Heerenveen og kom sínu liði áfram. Aron og Jóhann Berg skelltu Alfreð Aron Jóhannsson Marokkósku meistararnir Raja Casablanca komu mjög á óvart í gærkvöld þegar þeir sigruðu suður- amerísku meistarana Atlético Mi- neiro frá Brasilíu, 3:1, í undan- úrslitum heimsbikars félagsliða í knattspyrnu í Marrakesh í Mar- okkó. Glæsimark sem hinn gam- alkunni Ronaldinho skoraði fyrir Atlético, beint úr aukaspyrnu, dugði skammt. Það verða því Raja Casablanca og Evrópumeistarar Bayern Mün- chen sem leika til úrslita um heims- bikarinn á laugardaginn. Þetta er í fyrsta skipti sem lið frá arabaríki kemst í úrslitaleik heims- bikarsins og í annað sinn sem Afr- íkulið leikur til úrslita. vs@mbl.is Casablanca mætir Bayern í úrslitaleik

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.