Morgunblaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 39
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2014
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Eftirtaldir munir verða boðnir upp að Suðurhrauni 3,
Garðabæ, aðstöðu Króks dráttarbíla, laugardaginn 25.
janúar 2014 kl. 12.00:
25% hlutafjáreign í félaginu Homo Habilis ehf.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
17. janúar 2014.
Sýslumaðurinn á Akranesi
Stillholti 16-18, 300 Akranesi, s: 444 0100
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp
að Suðurhrauni 3, 210 Garðabæ,
laugardaginn 25. janúar 2014 kl. 12:00:
AN-952 AR-539 LY-620 RJ-694
RJ-909 RV-J86 TV-197 AZ-393
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
17. janúar 2014.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, settur sýslumaður.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
17. janúar 2014.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Bæjarhrauni 18, 220 Hafnarfirði, s: 565 2400
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að
Suðurhrauni 3, Garðabæ, aðstöðu Króks
dráttarbíla, laugard. 25. janúar 2014 kl. 12:00:
AE-267 AO-894 BF-709 BM-869 BU-532
DB-131 DD-P88 KX-147 LJ-348 LS-221
LU-625 MM-081 MP-550 MX-370 ND-094
NG-906 NK-719 NK-977 NL-352 NP-647
NU-828 NZ-350 OG-G57 OL-155 OS-735
PA-949 PE-585 PG-127 PN-483 PU-796
PV-218 PY-486 PZ-U13 RE-096 RU-490
RY-504 SI-945 SJ-989 TR-F40 TY-847
UB-010 UL-609 VH-128 YP-233 ZZ-970
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Dalvegi 18, 200 Kópavogi, s: 560 3000
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að
Suðurhrauni 3, Garðabæ, Krókur bílastöð,
laugardaginn 25. janúar 2014 kl. 12:00:
AA-775 AE-225 AG-105 AG-701 AS-885 ATZ69
BV-850 DT-814 EH-692 EO-003 JD-405 JI-507
JN-022 JX-452 JY-421 KI-001 KJ-853 KK-382
KK-716 KO-830 KO-863 KR-692 KZ-023 LJ-473
LK245 LO-174 MG-847 MM-647 MMG MX-416
NJ-462 NK-450 NK-717 NP-090 NU-942 OE-555
OF-882 OH-997 OI-151 ON-027 OP-509 OU-338
OX-787 OX-V56 PA-388 PI-636 PJ-K16 RD-383
RF-K21 RG-038 RG-112 RJ-849 RK-759 SA-257
SE-443 SH-499 SJ-633 SKJÁR3 TF-757 TH-734
TN-230 TN-766 TY-199 TY-616 UA-492 UB-281
UG-369 UG-410 UU-075 UU-680 UY-082 VE-108
VI-038 VK-859 VT-166 VT-917 VX-978 VY-712
YE-670 YT-191 YT-937 YU-818 YV-759 YV-E61
YY-443 ZR-602 ZS-X72
Einnig verða boðnir upp eftirfarandi lausafjármunir:
NB-2209 bílalyfta Steinhoj og NB -22260 bílalyfta Steinhoj
Greiðsla við hamarshögg.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með
samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
17. janúar 2014.
Raðauglýsingar
Ertu að leita þér
að vinnu? atvinna
✝ Lilja Lár-usdóttir fædd-
ist 26. apríl 1937 að
Leysingjastöðum í
Austur-Húnavatns-
sýslu. Hún lést á
heimili sínu, Nest-
úni 4, að morgni
sunnudagsins 12.
janúar 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Lárus Jak-
obsson, f. 12.10.
1892 í Syðra-Tungukoti A-
Húnavatnssýslu, d. 27.2. 1967 og
Sigríður Jónsdóttir, f. 10.1. 1914
í Öxnatungu, V-Húnavatnssýslu,
d. 12.4. 1999. Systkini Lilju eru
Erla, f. 28.12. 1934, d. 10.12.
1983, Hannes, f. 11.4. 1940, Elín
Birna, f. 2.7. 1947, Inga Þóra, f.
31.7. 1949, d. 1.8. 2002. Lilja
giftist eftirlifandi eiginmanni
sínum, Theodóri Pálssyni frá
Sveðjustöðum, 12. desember
1957. Börn þeirra eru: 1. Sigríð-
ur L. T. Andresen, f. 15.9. 1957,
gift Lasse Klöv Andresen, f.
15.12. 1957, börn þeirra: Monica
Þeirra börn eru: Sara Linnéa, f.
27.5. 1998 og Viktor Theodor, f.
29.5. 2000. Lilja ólst upp á Leys-
ingjastöðum í Austur-
Húnavatnssýslu en flutti 11 ára
gömul að Uppsölum í Miðfirði.
Hún hlaut hefðbundna skóla-
göngu þess tíma. Gekk í gamla
skólahúsið að Sveinsstöðum, síð-
ar í farskóla á Skeggjastöðum í
Vesturárdal. Veturinn 1955-56
var hún í Kvennaskólanum á
Blönduósi. Síðan flytur hún að
Sveðjustöðum og hóf þar sinn
búskap með Theodóri. Lilja sótti
hin ýmsu störf utan bús. Hún
vann við Kjötvinnslu Sigurðar
Pálmasonar, Staðarskála og var
starfsstúlka í mötuneyti Laug-
arbakkaskóla og endaði sinn
starfsferil þar. Sumarið 2003
fluttu þau Theodór á Hvamms-
tanga. Lilja söng í kirkjukór
Melstaðar- og Staðarbakka-
sókna um árabil, var virkur
meðlimur í kvenfélaginu Iðju og
ungmennafélaginu Gretti. Einn-
ig söng hún með Sandlóunum og
var mjög ötul í starfi Félags
eldri borgara.
Lilja verður jarðsungin frá
Melstaðarkirkju í dag, 18. jan-
úar 2014 kl. 14.
Lilja Haland, f.
13.3. 1981, hennar
maður er Per Inge
Haland, f. 24.7.
1981 og þeirra
börn, Theodor, f.
16.10. 2006 og Jo-
nathan, 22.10.
2008. Hanne Krist-
ine Borgas, f. 24.1.
1985, gift Sigurd
Borgas, f.
24.2.1986. 2. Páll
Theodórsson, f. 1.3. 1960, sam-
býliskona Ásdís Þórisdóttir, f.
30. 1. 1966, börn þeirra eru Elva
Dögg, f. 24.3. 1990, í sambúð
með Halldóri Eiríkssyni, f. 29.9.
1988, sonur þeirra er Jóhann
Páll, f. 25.9. 2011 og Davíð
Freyr, f. 25.9. 1996. 3. Birgir
Theodórsson, f. 11.5. 1963, sam-
býliskona Kristín Ólöf Þórarins-
dóttir, f. 16.8. 1966. Börn þeirra
eru: Arnór Smári f. 1.7. 1994, og
Tinna Kristín, f. 5.12. 2007. 4.
Kolbrún Rut Theodórsdóttir, f.
8.12. 1970, sambýlismaður er
Gunnar Lundberg, f. 6.10. 1961.
Elsku amma. Nú er víst komið
að kveðjustund hjá okkur. Þú ert
komin á betri stað þar sem ég veit
að vel er tekið á móti þér.
Margar minningar koma upp í
hugann á svona stundu. Flestar
tengjast þær sveitalífinu á
Sveðjustöðum. Alltaf þegar mað-
ur kom í sveitina tókst þú á móti
okkur með nýbökuðu bakkelsi og
yfirleitt var það jólakakan þín
sem beið á borðum. Við eyddum
ófáum dögum í eldhúsinu að elda
og baka og vonast ég enn í dag
eftir að ná að baka jafn góða jóla-
köku og þú gerðir. Við eyddum
mörgum stundum saman í stof-
unni að prjóna yfir sjónvarpinu
og spjölluðum um alla heima og
geima. Þú hafðir alltaf mikinn
áhuga á því sem var að gerast í lífi
fjölskyldunnar þinnar og fylgdist
vel með okkur.
Ég gleymi því aldrei þegar ég
kynnti ykkur afa fyrir Halldóri.
Þið voruð svo ánægð að ég hefði
náð mér í bóndason úr Eyjafirði.
Þú sagði öllum sem það vildu
heyra að hann væri sko sauðfjár-
bóndi og úr Eyjafirðinum. Síðan
þegar við komum í heimsókn í
mars 2011 og tilkynntum ykkur
að við ættum von á barni varðst
þú svo glöð fyrir okkar hönd. Þú
fylgdist vel með okkur á með-
göngunni og þegar Jóhann Páll
lét svo sjá sig gladdi það mig
mjög mikið að þú varst í Reykja-
vík og gast komið með mömmu og
pabba upp á deild og séð hann. Þú
fylgdist vel með honum vaxa og
dafna og ég gleymi ekki gleðitár-
unum þegar þú sást hann labba í
fyrsta sinn. Við Halldór munum
passa að Jóhann Páll muni ekki
gleyma þér og þeim stutta tíma
sem þið fenguð saman.
Síðasta símtalið okkar verður
mér alltaf minnisstætt. Þú spurð-
ir mikið út í meðgönguna og tal-
aðir um hvað þú hlakkaðir til að
sjá krílið þegar það kæmi í heim-
inn. Þegar ég tilkynnti þér að við
Halldór hefðum trúlofað okkur á
aðfangadag sagðir þú mér hvað
þú værir stolt af mér og ég ætti
allt það besta skilið. Við töluðum
lengi um lífið framundan hjá mér
og litlu fjölskyldunni minni.
Ég hugga mig við það að núna
ertu komin á betri stað þar sem
veikindin hrjái þér ekki lengur.
Ég trúi því að þú komir til með að
vaka yfir mér og minni fjölskyldu
og passa upp á okkur. Ég mun
halda í allar góðu minningarnar
okkar saman og hlýja mér við
þær í gegnum sorgina.
Elsku amma, takk fyrir allt
sem þú hefur kennt mér og allar
stundirnar okkar saman. Þín er
sárt saknað.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þín.
Elva Dögg Pálsdóttir.
Mig langar að minnast
heiðurskonunnar Lilju Lárus-
dóttur með nokkrum fátæklegum
orðum. Ég hef verið nokkurs kon-
ar heimagangur á heimili þeirra
hjóna í Nestúni í allmörg ár og
eru þetta orðnar margar góðar og
gleðiríkar stundir í mínum huga.
Stundum voru þau í tómstunda-
starfi á efri hæðinni þegar ég
kom og þar af leiðandi ekki inni
hjá sér. Nokkrum sinnum lagði
ég mig þá í sófann og beið og var
þar sofandi þegar þau komu aft-
ur.
Lilja hafði mikið yndi af söng
og eins maður hennar, hann
Dúddi, voru þau bæði virk í kóra-
starfi hér í héraði um árabil. Oft
nokkuð voru fleiri söngfuglar
með mér í þessum heimsóknum
til þeirra hjóna, var þá mikið
sungið og veitinga notið að hætti
húsráðenda. Það var alveg ein-
staklega gaman að syngja fyrir
Lilju, sat hún þá oft í stólnum sín-
um brosandi, gjarnan með lokuð
augun og naut stundarinnar.
Lilja hafði einstaklega létta
lund, var ætíð jákvæð og glöð,
það var alveg sama hvar hún var
stödd þegar maður birtist en oft
heimsótti ég hana á Sjúkrahúsið
á Hvammstanga þegar hún
dvaldi þar vegna þess hve heilsu-
lítil hún var til margra ára. Nú
verða heimsóknirnar ekki fleiri til
þín en ég held áfram að koma til
Dúdda, fæ svo hina Lóuungana
stundum með og munum við þá
vafalaust taka lagið þér til heið-
urs.
Elsku Lilja, ég þakka þér inni-
lega allar þær góðu stundir sem
ég hef átt hjá ykkur hjónum, mín
var ánægjan. Hvíl í friði.
Kæri Dúddi, við fjölskyldan
sendum þér og öllu þínu fólki
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur, minningin um góða vinkonu
lifir.
Loftur Sveinn Guðjónsson.
Lilja Lárusdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku amma mín. Ég
mun alltaf minnast þess
góða tíma sem við höfum
átt saman og munt þú ávallt
eiga stað í hjarta mér.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Takk fyrir allt, elsku
amma. Guð varðveiti þig og
veiti þér hvíld og frið. Þinn
Davíð Freyr.
Fleiri minningargreinar
um Lilja Lárusdóttir bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur
messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organ-
isti er Hörður Áskelsson. Umsjón
barnastarfs Inga Harðardóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Símon H. Ívarsson leikur einleik á gítar.
Kammerkór Mosfellsbæjar syngur
undir stjórn Símonar H. Ívarssonar.
Barnastarf á sama tíma í umsjá Arnars
og Öllu Rúnar. Organisti Judith Þor-
bergsson. Prestur sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Lofgjörð-
arguðsþjónusta kl. 11. Séra Steinunn
Arnþrúður Björnsdóttir þjónar og Þor-
valdur Halldórsson sér um tónlistina.
Fermingarbörn aðstoða. Molasopi að
guðsþjónustu lokinni. Sunnudagaskóli
kl. 13 og létt hressing að venju að
stundinni lokinni.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Friðrik Schram prédik-
ar. Barnastarf í aldursskiptum hópum.
Kaffi eftir samkomu.
KAÞÓLSKA kirkjan |
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku
og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og
má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11, barnamessa kl. 12.15.
Virka daga messa kl. 18.30, lau. á
ensku kl. 18.30.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og má.-fi. kl. 17.30, fö. í Karmel-
klaustri kl. 17.30, lau. kl. 18.30 á
ensku.
Karmelklaustur, Ölduslóð í Hafnar-
firði | Messa kl. 8.30.
Kapellan Austurgötu 7, Stykkis-
hólmi| Messa kl. 10, lau. kl. 18.30 og
má.-fö. kl. 9 (nema 1. fö. í mán. kl.
7.30).
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14. og lau. kl. 18 á pólsku. (Í Njarð-
víkurkirkju kl. 9 á sunnud. á pólsku).
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og fö., lau. kl. 18. Má.-fi. í kapellu
Álfabyggð 4 kl. 17.45.
Þorlákskapella, Reyðarfirði |
Messa kl. 11. Virka daga er messa kl.
9. Fö. kl. 18 (fyrir börn). Lau. kl. 18 (á
pólsku).
Kapellan Lagarási 18, Egilsstöð-
um | Messa kl. 17. Má. kl. 17, þri. kl.
7.30, mi. kl. 17 (fyrir börn). 1. lau. í
mán. kl. 17 (á pólsku).
Kapellan Hafnarbraut 40, Höfn í
Hornafirði | Messa kl. 12, 2. og 4. sd.
í mánuði. Á pólsku: Þorlákshöfn: 1. sd.
í mánuði kl. 17, Akranesi (Akranes-
kirkju, Skólabraut 15): 2. sd. í mánuði
kl. 18, Hvolsvelli: 3. sd. í mánuði kl.
17, Selfossi: 4. sd. í mánuði kl. 17.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Félagar úr
Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir leiðir barnastarfið ásamt
Systu, Esther og Önnu Huldu. Messu-
þjónar lesa texta og súpuþjónar bera
fram rjúkandi veitingar að messu lok-
inni. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syng-
ur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors
kirkjunnar. Fermingarbörn vetrarins og
foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð
í messuna og taka nokkur fermingar-
börn þátt í helgihaldinu. Sunnudaga-
skólinn hefst í kirkjunni og heldur síðan
í Borgir. Umsjón með sunnudagaskól-
anum hafa Þóra Marteinsdóttir og Sól-
veig Anna Aradóttir. Að lokinni messu
verður fundur með fermingarbörnum
og foreldrum þeirra í Borgum.
KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í
Laugarneskirkju kl. 20. Séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédikar. Anna Sigríður
Helgadóttir syngur einsöng. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir söng við undir-
leik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir
er kaffi í safnaðarheimilinu.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldu-
messa kl. 11. Jóhanna Gísladóttir
æskulýðsfulltrúi leiðir stundina ásamt
þeim Snævari Andréssyni og Oddi
Bjarna sunnudagaskólaleiðbeinend-
um. Undirleik annast Jón Stefánsson
organisti. Kaffi og djús eftir messu!
LAUGARNESKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Aðalheiður Þor-
steinsdóttir leiðir tónlist ásamt Gerði
Bolladóttur söngkonu. Brúðkaupið í
Kana er þema dagsins og munu sunnu-
dagaskólabrúðurnar Aníta og Árni
ganga í það heilaga í sunnudagaskól-
anum. Umsjón með barnastarfi hafa
Hjalti Jón, Hrafnkell og Gísli. Prestur
Sigurvin L. Jónsson. Guðsþjónusta í
Hátúni 12 kl. 13. Guðrún K. Þórsdóttir
djákni leiðir stundina ásamt presti og
organista Laugarneskirkju. Meðhjálp-
ari Kristinn Guðmundsson. Fim. 23.
jan. Hádegismessa kl. 12. Örn Arnar-
son spilar á gítar og leiðir söng. Prestur
Sigurvin Lárus Jónsson. Súpa og sam-
félag eftir messu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Taize-guðs-
þjónusta kl. 20. Sr. Skírnir Garðarsson
þjónar fyrir altari. Kirkjukór Lágafells-
sóknar leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur. Jón Guð-
mundsson spilar á flautu. Sunnudaga-
skóli kl. 13. Umsjón Hreiðar og Arnhild-
ur.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr
Háskólakórnum leiða safnaðarsöng.
Organisti Gunnsteinn Ólafsson. Sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í
barnastarfinu. Umsjón Ása Laufey,
Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á
Torginu eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð-
vík | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar org-
anista. Meðhjálpari Pétur Rúðrik Guð-
mundsson.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Kór Seljakirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tómas
Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11.
Konur í Soroptimistaklúbbi Seltjarnar-
ness taka þátt í athöfninni. Sóknar-
prestur þjónar. Organisti er Friðrik Vign-
ir Stefánsson. Félagar úr Kammerkór
kirkjunnar leiða almennan safnaðar-
söng. Kaffiveitingar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur
Sigríður Rún Tryggvadóttir. Biblíusaga,
kirkjubrúður, leikur og mikill söngur
sem kórinn leiðir við gítarundirleik Guð-
rúnar Katrínar Árnadóttur. Gæðastund
fjölskyldunnar. Meðhjálpari er Jóhann
Grétar Einarsson. Kaffi í safnaðar-
heimilinu eftir guðsþjónustu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknar-
prestur annast prestsþjónustuna.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Kristín Þórunn
Tómasdóttir þjónar. Jóhann Baldvins-
son og kór Vídalínskirkju leiða tónlist
og söng.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Karlakór-
inn Stefnir syngur undir stjórn Julian M.
Hewlett. Prestur sr. Bragi J. Ingibergs-
son sóknarprestur. Sunnudagaskólinn
kl. 11. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á
öllum aldri, fer fram uppi í suðursal.