Morgunblaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 20
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Velferðarráðuneytið gerir ráð fyrir
að reglugerðarbreytingar er varða
greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga
Íslands í sjúkraþjálfun, muni draga
úr útgjöldum vegna sjúkraþjálfunar
sem nemur 100 milljónum króna.
Þar af muni gjaldskrárbreytingar
spara ríkinu 75 milljónir króna og
tilvísunarskylda 25 milljónir króna.
Þetta kemur fram í svari velferð-
arráðuneytisins við fyrirspurnum
Morgunblaðsins um reglugerðar-
breytingarnar, sem tóku gildi um
áramótin, en í þeim felst m.a. aukin
þátttaka sjúklinga í kostnaði og skil-
yrði um skriflega beiðni frá lækni.
Í svarinu kemur fram að ráðu-
neytið telji þjónustustýringu í heil-
brigðiskerfinu nauðsynlega „til að
setja faglegar skorður við því hve-
nær unnt sé að efna til útgjalda með
greiðsluþátttöku hins opinbera“. Þá
er vísað í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar, þar sem m.a. kemur
fram að þjónustustýringin verði inn-
leidd í áföngum.
Læra af reynslunni
Sjúkraþjálfarar hafa gagnrýnt til-
vísunarskylduna harðlega og benda
m.a. á að ólíklegt megi teljast að
fólk sem þarf ekki á aðstoð að halda
leiti hennar, m.a. vegna kostnaðar.
Ráðuneytið segir það ekki hafa ver-
ið kannað hvort fólk nýti sér þjón-
ustu sjúkraþjálfara að óþörfu og að
erfitt væri að standa að slíkri könn-
un.
„Reynslan af reglugerðarbreyt-
ingunni verður því að leiða í ljós
hvort tilvísunarskyldan leiði til þess
að færri leiti til sjúkraþjálfara en
verið hefur og/eða hvort fólk leiti til
sjúkraþjálfara án tilvísunar og
greiði kostnaðinn að fullu,“ segir í
svari ráðuneytisins.
Sjúkraþjálfarar hafa einnig bent á
að tilvísunarskyldan muni leiða til
aukins álags og kostnaðar fyrir
heilsugæsluna en 12.000 manns
sóttu þjónustu sjúkraþjálfara án
beiðna bæði 2012 og 2013. Ef gengið
er út frá því að fullt gjald fyrir
heimsókn á heilsugæsluna sé 6.800
krónur, líkt og fram kemur í reglu-
gerð um ósjúkratryggða, og að
kostnaðarhlutur sjúklinga í heim-
sókninni sé 1.200 krónur, þá myndi
það kosta ríkið rúmar 67 milljónir
króna ef 12.000 manns sæktu heilsu-
gæsluna til að fá beiðni.
Spurningum um álag og kostnað
svaraði ráðuneytið þannig: „Ráðu-
neytið gerir ráð fyrir að margir
þeirra sem hafa leitað til sjúkra-
þjálfara án tilvísunar hafi engu að
síður farið til heilsugæslulæknis í
tengslum við veikindi sín. Það sé því
ofmat að reikna með því að þeir sem
áður hafa nýtt sér þjónustu sjúkra-
þjálfara án tilvísunar verði hrein
viðbót í komum á heilsugæslu.
Ráðuneytið hefur þó ekki útreikn-
inga sem staðfesta þetta.“
Telja þjónustustýr-
ingu nauðsynlega
Áætla að margir sæki heilsugæsluna óháð tilvísunarskyldu
Morgunblaðið/Frikki
Þjálfun Sjúkraþjálfarar eru mjög ósáttir við tilvísunarskylduna.
Stálin stinn
» Sjúkraþjálfarar undirbúa nú
að hætta að starfa eftir
rammasamningnum við
Sjúkratryggingar en hafa gefið
stjórnvöldum frest til 1. febrúar
til að koma til móts við þá.
» Á fundi sjúkraþjálfara og
heilbrigðisráðherra á miðviku-
dag lýsti ráðherra vilja til að
ræða mögulegar breytingar á
útfærslu reglugerðarinnar en
lagði áherslu á að ekki yrði
dregið úr þeirri aðhaldskröfu
sem kveðið er á um í fjárlögum.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2014
Dagur B. Eggerts-
son, borgarfulltrúi,
sækist eftir efsta
sæti á framboðs-
lista Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík og að vera í
forystu fyrir borg-
inni.
„Næstu ár verða mjög mikilvæg.
Leigumarkaðurinn er í ólestri og við
þurfum að hefja byggingu þrjú þús-
und nýrra leigu- og búseturétt-
aríbúða á næstu þremur til fimm ár-
um,“ segir m.a. í tilkynningu frá
Degi. „Við þurfum að bæta kjör
barnafjölskyldna og horfa á það sem
skiptir þær mestu máli, aðbúnað
barnanna okkar í skólum, leik-
skólum og frístundastarfi. Við þurf-
um að stuðla að jöfnum tækifærum
allra Reykvíkinga, fatlaðra og ófatl-
aðra, hinna eldri og hinna yngri, í
öllum hverfum og um alla borg.“
Sækist eftir 1. sæti
Sóley Tómas-
dóttir, borgar-
fulltrúi, hefur
ákveðið að bjóða
sig fram til að
leiða áfram lista
VG í Reykjavík.
„Á næsta kjörtímabili verður að
vinna áætlun um gjaldfrelsi fyrir
grunnþjónustu við börn. Það er ein-
kennileg hugmyndafræði að rukka
barnafjölskyldur um tugi og jafnvel
hundruð þúsunda á hverjum mán-
uði umfram útsvarið fyrir jafn sjálf-
sagða þjónustu og leikskóla og
skólamáltíðir. Nauðsynlegt er að
endurskoða ágenga nýtingu Orku-
veitunnar á Hengilssvæðinu og
beina orkuframleiðslu fyrirtæk-
isins í átt frá löngu úreltri stór-
iðjustefnu. Þá er brýnt að endur-
skoða velferðarþjónustu
borgarinnar frá grunni,“ segir m.a.
í tilkynningu frá Sóleyju.
Vill leiða lista VG
Kristín Erna Arn-
ardóttir óskar eft-
ir 4. sæti í forvali
Samfylking-
arinnar í Reykja-
vík sem fer fram 7.
og 8. febrúar.
„Borgin sinnir
mörgum mikilvægum verkefnum.
Eitt af þeim er að skapa atvinnulíf-
inu hvetjandi umhverfi. List og
skapandi greinar eru nú þegar
hluti af ímynd Reykjavíkur og á
þeim vettvangi eru ótal atvinnu-
möguleikar,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá Kristínu.
Kritín er nemandi á lokaári til
BA-prófs í stjórnmála- og fjölmiðla-
fræði í Háskóla Íslands. hefur lengi
starfað við kvikmyndagerð og verið
kosningastjóri fyrir Samfylkinguna
í Reykjavík.
Óskar eftir 4. sæti
Jón Finnbogason,
lögmaður, býður
sig fram í 4. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Kópavogi sem
verður 8. febrúar.
Í tilkynningu
segist Jón leggja áherslu á fjölgun
hagkvæmra íbúða fyrir ungt fólk til
að tryggja áframhaldandi búsetu
þeirra í Kópavogi ásamt ábyrgri
fjármálastjórn með markmið um
niðurgreiðslu skulda og lækkun
skatta á komandi árum.
Jón segist einnig telja afar mik-
ilvægt að stilla upp lista þar sem
sjálfstæðismenn snúi bökum saman
og starfi sem einn öflugur hópur á
komandi kjörtímabili.
Framboð í 4. sæti
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Toppaðu öræ
fatindana
Alla leið!
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Alla leið! Toppaðu öræfatindana með FÍ
Ferðafélag Íslands býður nú upp á metnaðarfulla æfingaráætlun
sem byrjar í febrúar og endar á því að ganga á Hvannadalshnúk
eða Hrútsfjallstinda í lok maí eða byrjun júní.
Akrafjall, Móskarðahnjúkar, Hekla, Fimmvörðuháls,
Hvannadalshnjúkur eða Hrútfjallstindar og átta önnur fjöll.
Tólf fjallgöngur, sex æfingatímar í Elliðaárdalnum og ganga á
annaðhvort Hvannadalshnjúk eða Hrútsfjallstinda.
Tveir mögulegir tindar í lokin og tvær helgar til að velja til að toppa.
Kynningarfundur í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6
kl. 20.00, 3. febrúar n.k.
Sjá nánar um „Alla leið“ á www.fi.is
Stjórnmálaflokkarnir velja nú
frambjóðendur á lista fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar.
Prófkjör árið 2014
Rafmagn fór af Fáskrúðsfirði um
tíma í gærmorgun. Bærinn komst
aftur í samband í gær, með varaafli
frá dísilrafstöð og um línu frá
Stöðvarfirði. Kerfið var þó veikt.
Raflínan á milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar er á vegum Lands-
nets. Slæmt veður var á heiðum og
ekki hafði tekist að finna bilunina
síðdegis í gær. Vegna slæmra að-
stæðna hafði ekki tekist að gera við
bilun á Vopnafjarðarlínu en vonast
var til að hún kæmist í lag um
helgina. Rafmagn er skammtað til
þeirra kaupenda sem eru með
samninga um ótryggða orku.
Ótryggt
rafmagn
Bilanir hjá Lands-
neti á Austurlandi
Raflínur Erfitt er að gera við bil-
anir vegna veðurs.
Utanríkisráðuneytið aðstoðar nú
fjölskyldu Íslendings, sem nýlega
var dæmdur í 11 mánaða fangelsi í
Kína.
Ráðuneytið hefur m.a. óskað eft-
ir leyfi til að heimsækja manninn í
fangelsi en það leyfi liggur ekki
fyrir.
Karlmaðurinn, sem er á fertugs-
aldri, hefur verið búsettur í kín-
versku borginni Dalian. Fram hef-
ur komið að maðurinn var
sakfelldur fyrir að hafa slegið
leigubílstjóra í andlitið snemma á
síðasta ári.
Afplánar 11
mánaða fang-
elsi í Kína
Konur voru 31% stjórnarmanna og
karlar 69% í fyrirtækjum með 50
starfsmenn eða fleiri í lok nýliðins
árs. Árið 2009 var hlutfall kvenna
20% í stjórnum slíkra fyrirtækja og
hlutfall karla 80%. Rúmlega helming-
ur þessara fyrirtækja, eða 152, upp-
fyllir skilyrði laganna um kynjahlut-
föll.
Kemur þetta fram í nýrri úttekt
sem unnin var af Creditinfo fyrir
Samtök atvinnulífsins og birt er á vef
samtakanna.
Kemur þar ennfremur fram að
ákvæðið um kynjakvóta í stjórnum
nær til hlutafélaga og einkahluta-
félaga þar sem starfa 50 starfsmenn
eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli. Í
þriggja manna stjórnum skal hvort
kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar
stjórnarmenn eru fleiri en þrír skal
hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en
40%. Ákvæðið öðlaðist gildi 1. sept-
ember 2013 og nær til 287 fyrirtækja
um þessar mundir.
Fjölga á konum í forystu
Í maí 2009 skrifuðu Samtök at-
vinnulífsins, Félag kvenna í atvinnu-
rekstri og Viðskiptaráð undir sam-
starfssamning um að fjölga konum í
forystu íslensks atvinnulífs. Var þá
sett markmið um að hlutfall hvors
kyns yrði ekki undir 40% í lok árs
2013. Á framkvæmd samkomulagsins
reyndi í raun aldrei því þegar á sama
ári var ljóst að vilji var fyrir því á Al-
þingi að setja kynjakvóta á stjórnir
fyrirtækja. Nú uppfylla 53% fyrir-
tækja skilyrðin, en í lok ársins 2009
var hlutfallið 23%, að því er fram
kemur á vef Samtaka atvinnulífsins.
Á undanförnum misserum hafa
Samtök atvinnulífsins unnið mark-
visst að því að jafna kynjahlutföll full-
trúa SA í stjórnum lífeyrissjóða. Af
27 aðalmönnum sem Samtök atvinnu-
lífsins skipa í stjórnir níu sjóða eru nú
15 konur en 12 karlar.
Konur eru 31%
stjórnarmanna
152 fyrirtæki uppfylla skilyrði laga
Morgunblaðið/Golli
Jöfn staða Löggjöf um kynjakvóta
í stjórnum nær til 287 fyrirtækja.