Morgunblaðið - 14.01.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.2014, Blaðsíða 2
EM 2014 Ívar Benediktsson Álaborg Enginn skyldi vanmeta landslið Ungverjalands um þessar mundir þrátt fyrir að það hafi tapað með sjö marka mun fyrir heimsmeisturum Spánverja í upp- hafsleik B-riðils Evrópumótsins í handknattleik á sunnudagskvöldið og þar áður legið fyrir Tékkum á heimavelli í vináttuleik. Skemmst er minnast þess að það voru Ungverjar sem lögðu Íslendinga á síðustu Ólympíuleikum. Aðeins hálfu ári áður hafði íslenska liðið unnið það ungverska örugglega á EM í Serbíu. Ungverjar hafa í gegnum tíðina reynst íslenska landsliðinu óþægur ljár í þúfu. Ekkert bendir til annars en svo verði áfram enda er ungverska lands- liðið sterkt þótt í það vanti besta handknattleiks- mann landsins, Lázló Nagy. Gleymum því ekki að einnig vantar Alexander Petersson í íslenska lands- liðið svo dæmi sé tekið. Fyrir Evrópumótið stillti Lajos Mocsai, landsliðs- þjálfari Ungverja, taflinu upp þannig að gegn Spán- verjum ættu Ungverjar enga möguleika á sigri en gegn Íslendingum og Norðmönnum helmings mögu- leika. Ungverskur blaðamaður sem ég ræddi við eft- ir viðureign Spánverja og Ungverja sagði að ung- verska liðið myndi leggja allt í sölurnar gegn Íslendingum. Hann var að vísu ekki bjartsýnn á sig- ur og sagði lið Ungverja eins og slegið út af laginu eftir að ljóst varð að leiðtogi þess og besti leikmaður, Nagy, gæti ekki tekið þátt í mótinu vegna meiðsla. „Ef við töpum fyrir Íslendingum er ég hræddur um að okkar bíði sömu örlög gegn Noregi. Einfaldlega vegna þess að þegar ungverskir íþróttamenn sjá vonina minnka þá gefa þeir oft eftir. Við erum ólíkir ykkur frá Norðurlöndunum, sem gefist aldrei upp fyrr en í fulla hnefana.“ Tíu leikmenn frá tveimur liðum Ekki skal ég fullyrða að staðan sé svo einföld varðandi ungverska liðið, sem er vel skipað þrátt fyrir að Nagy vanti. Í 16-manna hópnum eru tíu leik- menn sem leika annaðhvort með Pick Szeged eða Veszprém, tveimur bestum liðum Ungverjalands, en bæði leika þau í Meistaradeild Evrópu. Þjálfarinn er eldri en tvævetur í faginu og undirbýr lið sitt af kost- gæfni. Helstu leikmenn liðsins eru: Roland Mikler, sem átti á tíðum frábæra leiki á HM á Spáni fyrir ári. Ta- más Mocsai, sonur þjálfarans, örvhent skytta, 196 cm á hæð, og þótt hann sé ekki eins sterkur og Nagy ber að taka hann alvarlega. Mocsai yngri er reyndar farinn að eldast, verður 36 ára þessu ári. Hann er hins vegar reyndur eftir langa veru hjá þýskum lið- um. Hann fluttist heim um áramótin eftir að hafa fengið sig lausan frá Burgdorf. Mocsai hefur gengið til liðs við Veszprém. Gábor Czászár er snöggur og skemmtilegur leikmaður sem getur leikið sem leik- stjórnandi og skytta hægra megin. Hann er liðs- félagi Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Róberts Gunnarssonar hjá franska meistaraliðinu París SG. Czászár hefur oft reynst Íslendingum erfiður. Línu- maðurinn Szabolocs Zubai er háll sem áll og þarf lít- ið rými til þess að vinna á. Tveir leikmenn ungverska liðsins leika í Frakklandi og einn í Þýskalandi. Mocsai ekki ósáttur við tap Eftir tapleikinn á móti Spánverjum í fyrrakvöld sagðist Lajos Mocsai þjálfari ekki vera svo ósáttur við úrslitin, sem er skiljanlegt í ljósi þess sem hann sagði fyrir mótið. „Við erum með nokkra unga leik- menn sem hafa litla sem enga reynslu af stórmót- um,“ sagði Mocsai og benti m.a. á að þrátt fyrir sjö marka tap hefði lið hans haldið jöfnu í síðari hálfleik þar sem það þegar verið orðinn sjö marka munur í hálfleik. „Síðari hálfleikur gegn Spáni var mun betri en sá fyrri. Við vorum ákveðnari og frjórri í sókn- arleiknum,“ sagði Mocsai, sem auk þess að vera landsliðsþjálfari er prófessor við íþróttafræðideild háskóla í Búdapest. Ungverska landsliðið leikur öðru vísi handknatt- leik en það norska, sem íslenska landsliðið mætti í fyrradag. Hins vegar munu að mörgu leyti gilda sömu lögmál og áður. Liðið sem nær upp góðri markvörslu og vörn fer með sigur af hólmi. Ungverjar þurfa stig til þess að auðvelda sér leið í milliriðil. Stig til íslenska landsliðsins mun tryggja því keppnisrétt í milliriðli. iben@mbl.is Morgunblaðið/Eva Björk Álaborg Vignir Svavarsson fagnar Björgvini Páli Gústavssyni eftir að sá síðarnefndi var útnefndur maður leiksins í viðureign Íslands og Noregs á sunnudaginn. Í dag klukkan 17.00 mætast Ísland og Ungverjaland í Gigantium-höllinni í Álaborg og þar er farseðillinn í milliriðilinn í húfi hjá báðum liðum. Ekkert vanmat  Ungverska landsliðið er næsti andstæðingur þess íslenska  Reynslan er fyrir hendi  Alltaf verið erfiðir Íslendingum  Klókur og reynslumikill þjálfari 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2014 England Aston Villa – Arsenal ............................... 1:2 Staðan: Arsenal 21 15 3 3 41:19 48 Man.City 21 15 2 4 59:23 47 Chelsea 21 14 4 3 40:19 46 Liverpool 21 13 3 5 51:26 42 Everton 21 11 8 2 34:19 41 Tottenham 21 12 4 5 26:25 40 Man.Utd 21 11 4 6 35:24 37 Newcastle 21 10 3 8 29:27 33 Southampton 21 8 6 7 27:23 30 Hull 21 6 5 10 22:27 23 Aston Villa 21 6 5 10 20:27 23 Stoke 21 5 7 9 22:35 22 Swansea 21 5 6 10 26:30 21 WBA 21 4 9 8 23:28 21 Norwich 21 5 5 11 17:35 20 Fulham 21 6 1 14 22:46 19 West Ham 21 4 6 11 21:30 18 Cardiff 21 4 6 11 15:34 18 Sunderland 21 4 5 12 19:34 17 Cr.Palace 21 5 2 14 13:31 17 Ítalía Sampdoria – Udinese .............................. 3:0  Birkir Bjarnason kom inn á sem vara- maður á 66. mínútu hjá Sampdoria. Inter Mílanó – Chievo Verona................. 1:1 Staðan: Juventus 19 17 1 1 46:12 52 Roma 19 13 5 1 39:10 44 Napoli 19 13 3 3 41:20 42 Fiorentina 19 11 4 4 34:20 37 Inter 19 8 8 3 38:23 32 Hellas Verona 19 10 2 7 34:30 32 Torino 19 6 8 5 31:27 26 Parma 19 6 8 5 29:26 26 Lazio 19 6 6 7 23:26 24 Genoa 19 6 5 8 19:24 23 AC Milan 19 5 7 7 31:30 22 Sampdoria 19 5 6 8 22:27 21 Atalanta 19 6 3 10 20:29 21 Cagliari 19 4 9 6 19:28 21 Udinese 19 6 2 11 18:28 20 Chievo Verona 19 4 5 10 14:24 17 Sassuolo 19 4 5 10 21:41 17 Bologna 19 3 7 9 17:33 16 Livorno 19 3 4 12 16:33 13 Catania 19 3 4 12 13:34 13 Spánn Villarreal – Real Sociedad ....................... 5:1 Staða efstu liða: Barcelona 19 16 2 1 53:12 50 Atlético Madrid 19 16 2 1 47:11 50 Real Madrid 19 15 2 2 53:21 47 Athletic Bilbao 19 11 3 5 32:24 36 Villarreal 19 10 4 5 37:21 34 Real Sociedad 19 9 5 5 36:28 32 Sevilla 19 8 6 5 36:30 30 Valencia 19 7 2 10 26:31 23 Norðurlandsmót karla A-riðill: KA – Leiknir F ......................................... 5:1 Þór 2 – KF................................................. 2:0 B-riðill: Þór – Dalvík/Reynir ................................. 7:0 KA 2 – Völsungur ..................................... 3:1 KNATTSPYRNA A-RIÐILL, Herning: Austurríki 1 1 0 0 30:20 2 Danmörk 1 1 0 0 29:21 2 Makedónía 1 0 0 1 21:29 0 Tékkland 1 0 0 1 20:30 0 Leikir í dag: 17.15 Makedónía – Tékkland 19.30 Austurríki – Danmörk B-RIÐILL, Álaborg: Spánn 1 1 0 0 34:27 2 Ísland 1 1 0 0 31:26 2 Noregur 1 0 0 1 26:31 0 Ungverjaland 1 0 0 1 27:34 0 Leikir í dag: 17.00 Ísland – Ungverjaland 19.15 Noregur – Spánn C-RIÐILL, Árósum: Serbía – Pólland.................................... 20:19 Frakkland – Rússland ......................... 35:28 Staðan: Frakkland 1 1 0 0 35:28 2 Serbía 1 1 0 0 20:19 2 Pólland 1 0 0 1 19:20 0 Rússland 1 0 0 1 28:35 0 D-RIÐILL, Kaupmannahöfn: Króatía – Hvíta-Rússland.................... 33:22 Svíþjóð – Svartfjallaland ..................... 28:21 Staðan: Króatía 1 1 0 0 33:22 2 Svíþjóð 1 1 0 0 28:21 2 Svartfjallaland 1 0 0 1 21:28 0 Hvíta-Rússland 1 0 0 1 22:33 0 EM 2014 NBA-deildin Sacramento – Cleveland .................... 124:80 Memphis – Atlanta ........................... 108:101 San Antonio – Minnesota................... 104:86 KÖRFUBOLTI ÍSHOKKÍ Íslandsmót kvenna: Egilshöll: Björninn – SR...................... 19.30 Í KVÖLD! Arsenal komst enn á ný í topp- sæti ensku úr- valsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið lagði Aston Villa á útivelli, 2:1, í gærkvöldi. Jack Wilshere og Oliver Giroud komu Arsenal í 2:0 með mörkum á 34. og 35. mínútu leiksins en varnarleikur Aston Villa í báðum mörkum verður ekki notaður á kennslumyndböndum enska knatt- spyrnusambandsins í framtíðinni. Christian Benteke, sóknarmaður Aston Villa, minnkaði muninn á 76. mínútu en Belginn öflugi hefur lítið látið fyrir sér fara á leiktíð- inni síðan hann fór illa með Arsen- al í fyrstu umferð mótsins. Hann komst nálægt því að jafna metin á lokamínútunni en lét verja frá sér skalla af stuttu færi. Arsenal er sem fyrr segir í toppsæti úrvalsdeildarinnar með 48 stig eftir 21 umferð, stigi á undan Manchester City. Aston Villa er í 11. sæti með 23 stig. tomas@mbl.is Arsenal aftur í toppsætið Oliver Giroud Handknattleiksdeild Fjölnis ætlar að senda meistaraflokk kvenna í fyrsta skipti til keppni á Íslandsmótinu keppnistímabilið 2015-2016, eða eftir hálft annað ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem deildin sendi frá sér í gær. Haldinn var fundur 9. janúar með öllum foreldrum og leikmönnum í 3. og 4. flokki kvenna en það eru stúlkur fæddar árin 1995 til 1999. Þar var kynnt framtíðarsýn deildarinnar, „Fjölnir 2016“ og samningar við 28 leikmenn voru undirritaðir. Í tilkynningunni segir meðal ann- ars: „Í stuttu máli þá gengur verk- efnið út á að tímabilið 2015-2016 mun handknattleiksdeild Fjölnis senda til keppni samkeppnishæfan meist- araflokk byggðan á uppöldum og efni- legum leikmönnum. Þetta verkefni er samstarf deildarinnar við leikmenn og foreldra þar sem unnið er út frá fyrra verkefni, „Fjölnir 2014“, sem hefur haldið utan um karlastarfið síðustu misseri. Allir þeir leikmenn eða 28 talsins sem sátu fundinn undirrituðu samning og vel gekk að fá foreldra í nefndir. Stjórnin lagði gríðarlega áherslu á að fá stuðning foreldra, enda verkefni sem þetta ógerlegt án þeirra.“ Fjölnir með kvennalið 2015

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.