Morgunblaðið - 14.01.2014, Page 2
EM 2014
Ívar Benediktsson
Álaborg
Enginn skyldi vanmeta landslið Ungverjalands um
þessar mundir þrátt fyrir að það hafi tapað með sjö
marka mun fyrir heimsmeisturum Spánverja í upp-
hafsleik B-riðils Evrópumótsins í handknattleik á
sunnudagskvöldið og þar áður legið fyrir Tékkum á
heimavelli í vináttuleik. Skemmst er minnast þess að
það voru Ungverjar sem lögðu Íslendinga á síðustu
Ólympíuleikum. Aðeins hálfu ári áður hafði íslenska
liðið unnið það ungverska örugglega á EM í Serbíu.
Ungverjar hafa í gegnum tíðina reynst íslenska
landsliðinu óþægur ljár í þúfu. Ekkert bendir til
annars en svo verði áfram enda er ungverska lands-
liðið sterkt þótt í það vanti besta handknattleiks-
mann landsins, Lázló Nagy. Gleymum því ekki að
einnig vantar Alexander Petersson í íslenska lands-
liðið svo dæmi sé tekið.
Fyrir Evrópumótið stillti Lajos Mocsai, landsliðs-
þjálfari Ungverja, taflinu upp þannig að gegn Spán-
verjum ættu Ungverjar enga möguleika á sigri en
gegn Íslendingum og Norðmönnum helmings mögu-
leika. Ungverskur blaðamaður sem ég ræddi við eft-
ir viðureign Spánverja og Ungverja sagði að ung-
verska liðið myndi leggja allt í sölurnar gegn
Íslendingum. Hann var að vísu ekki bjartsýnn á sig-
ur og sagði lið Ungverja eins og slegið út af laginu
eftir að ljóst varð að leiðtogi þess og besti leikmaður,
Nagy, gæti ekki tekið þátt í mótinu vegna meiðsla.
„Ef við töpum fyrir Íslendingum er ég hræddur um
að okkar bíði sömu örlög gegn Noregi. Einfaldlega
vegna þess að þegar ungverskir íþróttamenn sjá
vonina minnka þá gefa þeir oft eftir. Við erum ólíkir
ykkur frá Norðurlöndunum, sem gefist aldrei upp
fyrr en í fulla hnefana.“
Tíu leikmenn frá tveimur liðum
Ekki skal ég fullyrða að staðan sé svo einföld
varðandi ungverska liðið, sem er vel skipað þrátt
fyrir að Nagy vanti. Í 16-manna hópnum eru tíu leik-
menn sem leika annaðhvort með Pick Szeged eða
Veszprém, tveimur bestum liðum Ungverjalands, en
bæði leika þau í Meistaradeild Evrópu. Þjálfarinn er
eldri en tvævetur í faginu og undirbýr lið sitt af kost-
gæfni.
Helstu leikmenn liðsins eru: Roland Mikler, sem
átti á tíðum frábæra leiki á HM á Spáni fyrir ári. Ta-
más Mocsai, sonur þjálfarans, örvhent skytta, 196
cm á hæð, og þótt hann sé ekki eins sterkur og Nagy
ber að taka hann alvarlega. Mocsai yngri er reyndar
farinn að eldast, verður 36 ára þessu ári. Hann er
hins vegar reyndur eftir langa veru hjá þýskum lið-
um. Hann fluttist heim um áramótin eftir að hafa
fengið sig lausan frá Burgdorf. Mocsai hefur gengið
til liðs við Veszprém. Gábor Czászár er snöggur og
skemmtilegur leikmaður sem getur leikið sem leik-
stjórnandi og skytta hægra megin. Hann er liðs-
félagi Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar og Róberts
Gunnarssonar hjá franska meistaraliðinu París SG.
Czászár hefur oft reynst Íslendingum erfiður. Línu-
maðurinn Szabolocs Zubai er háll sem áll og þarf lít-
ið rými til þess að vinna á. Tveir leikmenn ungverska
liðsins leika í Frakklandi og einn í Þýskalandi.
Mocsai ekki ósáttur við tap
Eftir tapleikinn á móti Spánverjum í fyrrakvöld
sagðist Lajos Mocsai þjálfari ekki vera svo ósáttur
við úrslitin, sem er skiljanlegt í ljósi þess sem hann
sagði fyrir mótið. „Við erum með nokkra unga leik-
menn sem hafa litla sem enga reynslu af stórmót-
um,“ sagði Mocsai og benti m.a. á að þrátt fyrir sjö
marka tap hefði lið hans haldið jöfnu í síðari hálfleik
þar sem það þegar verið orðinn sjö marka munur í
hálfleik.
„Síðari hálfleikur gegn Spáni var mun betri en sá
fyrri. Við vorum ákveðnari og frjórri í sókn-
arleiknum,“ sagði Mocsai, sem auk þess að vera
landsliðsþjálfari er prófessor við íþróttafræðideild
háskóla í Búdapest.
Ungverska landsliðið leikur öðru vísi handknatt-
leik en það norska, sem íslenska landsliðið mætti í
fyrradag. Hins vegar munu að mörgu leyti gilda
sömu lögmál og áður. Liðið sem nær upp góðri
markvörslu og vörn fer með sigur af hólmi.
Ungverjar þurfa stig til þess að auðvelda sér leið í
milliriðil. Stig til íslenska landsliðsins mun tryggja
því keppnisrétt í milliriðli. iben@mbl.is
Morgunblaðið/Eva Björk
Álaborg Vignir Svavarsson fagnar Björgvini Páli Gústavssyni eftir að sá síðarnefndi var útnefndur maður leiksins í viðureign Íslands og Noregs á sunnudaginn.
Í dag klukkan 17.00 mætast Ísland og Ungverjaland í Gigantium-höllinni í Álaborg og þar er farseðillinn í milliriðilinn í húfi hjá báðum liðum.
Ekkert vanmat
Ungverska landsliðið er næsti andstæðingur þess íslenska Reynslan er fyrir
hendi Alltaf verið erfiðir Íslendingum Klókur og reynslumikill þjálfari
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2014
England
Aston Villa – Arsenal ............................... 1:2
Staðan:
Arsenal 21 15 3 3 41:19 48
Man.City 21 15 2 4 59:23 47
Chelsea 21 14 4 3 40:19 46
Liverpool 21 13 3 5 51:26 42
Everton 21 11 8 2 34:19 41
Tottenham 21 12 4 5 26:25 40
Man.Utd 21 11 4 6 35:24 37
Newcastle 21 10 3 8 29:27 33
Southampton 21 8 6 7 27:23 30
Hull 21 6 5 10 22:27 23
Aston Villa 21 6 5 10 20:27 23
Stoke 21 5 7 9 22:35 22
Swansea 21 5 6 10 26:30 21
WBA 21 4 9 8 23:28 21
Norwich 21 5 5 11 17:35 20
Fulham 21 6 1 14 22:46 19
West Ham 21 4 6 11 21:30 18
Cardiff 21 4 6 11 15:34 18
Sunderland 21 4 5 12 19:34 17
Cr.Palace 21 5 2 14 13:31 17
Ítalía
Sampdoria – Udinese .............................. 3:0
Birkir Bjarnason kom inn á sem vara-
maður á 66. mínútu hjá Sampdoria.
Inter Mílanó – Chievo Verona................. 1:1
Staðan:
Juventus 19 17 1 1 46:12 52
Roma 19 13 5 1 39:10 44
Napoli 19 13 3 3 41:20 42
Fiorentina 19 11 4 4 34:20 37
Inter 19 8 8 3 38:23 32
Hellas Verona 19 10 2 7 34:30 32
Torino 19 6 8 5 31:27 26
Parma 19 6 8 5 29:26 26
Lazio 19 6 6 7 23:26 24
Genoa 19 6 5 8 19:24 23
AC Milan 19 5 7 7 31:30 22
Sampdoria 19 5 6 8 22:27 21
Atalanta 19 6 3 10 20:29 21
Cagliari 19 4 9 6 19:28 21
Udinese 19 6 2 11 18:28 20
Chievo Verona 19 4 5 10 14:24 17
Sassuolo 19 4 5 10 21:41 17
Bologna 19 3 7 9 17:33 16
Livorno 19 3 4 12 16:33 13
Catania 19 3 4 12 13:34 13
Spánn
Villarreal – Real Sociedad ....................... 5:1
Staða efstu liða:
Barcelona 19 16 2 1 53:12 50
Atlético Madrid 19 16 2 1 47:11 50
Real Madrid 19 15 2 2 53:21 47
Athletic Bilbao 19 11 3 5 32:24 36
Villarreal 19 10 4 5 37:21 34
Real Sociedad 19 9 5 5 36:28 32
Sevilla 19 8 6 5 36:30 30
Valencia 19 7 2 10 26:31 23
Norðurlandsmót karla
A-riðill:
KA – Leiknir F ......................................... 5:1
Þór 2 – KF................................................. 2:0
B-riðill:
Þór – Dalvík/Reynir ................................. 7:0
KA 2 – Völsungur ..................................... 3:1
KNATTSPYRNA
A-RIÐILL, Herning:
Austurríki 1 1 0 0 30:20 2
Danmörk 1 1 0 0 29:21 2
Makedónía 1 0 0 1 21:29 0
Tékkland 1 0 0 1 20:30 0
Leikir í dag:
17.15 Makedónía – Tékkland
19.30 Austurríki – Danmörk
B-RIÐILL, Álaborg:
Spánn 1 1 0 0 34:27 2
Ísland 1 1 0 0 31:26 2
Noregur 1 0 0 1 26:31 0
Ungverjaland 1 0 0 1 27:34 0
Leikir í dag:
17.00 Ísland – Ungverjaland
19.15 Noregur – Spánn
C-RIÐILL, Árósum:
Serbía – Pólland.................................... 20:19
Frakkland – Rússland ......................... 35:28
Staðan:
Frakkland 1 1 0 0 35:28 2
Serbía 1 1 0 0 20:19 2
Pólland 1 0 0 1 19:20 0
Rússland 1 0 0 1 28:35 0
D-RIÐILL, Kaupmannahöfn:
Króatía – Hvíta-Rússland.................... 33:22
Svíþjóð – Svartfjallaland ..................... 28:21
Staðan:
Króatía 1 1 0 0 33:22 2
Svíþjóð 1 1 0 0 28:21 2
Svartfjallaland 1 0 0 1 21:28 0
Hvíta-Rússland 1 0 0 1 22:33 0
EM 2014
NBA-deildin
Sacramento – Cleveland .................... 124:80
Memphis – Atlanta ........................... 108:101
San Antonio – Minnesota................... 104:86
KÖRFUBOLTI
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna:
Egilshöll: Björninn – SR...................... 19.30
Í KVÖLD!
Arsenal komst
enn á ný í topp-
sæti ensku úr-
valsdeildarinnar
í fótbolta þegar
liðið lagði Aston
Villa á útivelli,
2:1, í gærkvöldi.
Jack Wilshere
og Oliver Giroud
komu Arsenal í
2:0 með mörkum
á 34. og 35. mínútu leiksins en
varnarleikur Aston Villa í báðum
mörkum verður ekki notaður á
kennslumyndböndum enska knatt-
spyrnusambandsins í framtíðinni.
Christian Benteke, sóknarmaður
Aston Villa, minnkaði muninn á
76. mínútu en Belginn öflugi hefur
lítið látið fyrir sér fara á leiktíð-
inni síðan hann fór illa með Arsen-
al í fyrstu umferð mótsins. Hann
komst nálægt því að jafna metin á
lokamínútunni en lét verja frá sér
skalla af stuttu færi.
Arsenal er sem fyrr segir í
toppsæti úrvalsdeildarinnar með
48 stig eftir 21 umferð, stigi á
undan Manchester City. Aston
Villa er í 11. sæti með 23 stig.
tomas@mbl.is
Arsenal aftur í toppsætið
Oliver
Giroud
Handknattleiksdeild Fjölnis ætlar að
senda meistaraflokk kvenna í fyrsta
skipti til keppni á Íslandsmótinu
keppnistímabilið 2015-2016, eða eftir
hálft annað ár. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu sem deildin sendi frá
sér í gær.
Haldinn var fundur 9. janúar með
öllum foreldrum og leikmönnum í 3.
og 4. flokki kvenna en það eru stúlkur
fæddar árin 1995 til 1999. Þar var
kynnt framtíðarsýn deildarinnar,
„Fjölnir 2016“ og samningar við 28
leikmenn voru undirritaðir.
Í tilkynningunni segir meðal ann-
ars: „Í stuttu máli þá gengur verk-
efnið út á að tímabilið 2015-2016 mun
handknattleiksdeild Fjölnis senda til
keppni samkeppnishæfan meist-
araflokk byggðan á uppöldum og efni-
legum leikmönnum. Þetta verkefni er
samstarf deildarinnar við leikmenn og
foreldra þar sem unnið er út frá fyrra
verkefni, „Fjölnir 2014“, sem hefur
haldið utan um karlastarfið síðustu
misseri. Allir þeir leikmenn eða 28
talsins sem sátu fundinn undirrituðu
samning og vel gekk að fá foreldra í
nefndir. Stjórnin lagði gríðarlega
áherslu á að fá stuðning foreldra,
enda verkefni sem þetta ógerlegt án
þeirra.“
Fjölnir með kvennalið 2015