Morgunblaðið - 24.02.2014, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Spánn
Zaragoza – Valencia ........................... 95:89
Jón Arnór Stefánsson lék tæpar 14 mín-
útur og skoraði 2 stig fyrir Valencia.
Laboral Kutxa – Valladolid................ 84:67
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 6 stig
og tók 2 fráköst fyrir Valladolid á tæpum 25
mínútum sem hann lék.
KÖRFUBOLTI Sveinbirni, Moore og Matthíasi að
komast úr hinu andlegu hyldýpi í það
sóknarjafnvægi sem liðið þurfti svo á
að halda. Þessu máttu Breiðhylt-
ingar ekki við gegn liði eins og
Grindavík, liðið sem hvert manns-
barn vissi fyrirfram að myndi, í
versta falli, ná upp ágætum varn-
arleik. Von ÍR lá í líkamlega
„aggressívri“ vörn, sem aldrei sást.
ÍR-ingum til tekna segi ég: þeir
brotnuðu aldrei og með smá heppni
hefðu þeir getað gefið sér raunhæfan
möguleika á sigri. Til þess þurfti
varnarleikurinn að harðna töluvert í
seinni hálfleik; sóknarleikurinn
þurfti meira skipulag og menn þurftu
að stíga Grindvíkinga út í fráköstum.
Ekkert af þessu gerðist! Sökin er
ekki öll hjá ÍR hinsvegar, því þeir
áttu við ofurefli að etja í sérlega til-
búnum Grindvíkingum. Björgvin
Ríkharðsson og Hjalti Friðriksson
voru ljósin í myrkrinu, sem og bar-
áttuandi liðsins, sem aldrei slokkn-
aði.
Grindvíkingar voru hinsvegar sem
smurð vél; allir sem inná komu voru
vel undirbúnir og klárt að þarna fór
liðssigur af bestu gerð; Jón Axel var
að mínu viti hetja liðsins og var sá X-
faktor sem gerði liðinu kleift að halda
áhlaupum ÍR-inga innan velsæm-
ismarka með stórum körfum. Frá-
bær vörn hélt ÍR vel undir 40% nýt-
ingu; frákastabaráttan var glæsileg
og sóknarleikurinn alltaf yfirvegaður
og áræðinn. 117 framlagspunktar
gegn 77 hjá ÍR segir allt um liðsand-
ann. Grindavík spilaði alltaf eins og
sá sem valdið hefur og notaði þau
vopn sem búrið hafði að geyma;
budda ÍR-inga þurrkaðist upp jafnt
og þétt og það má með sanni segja að
dagsformið hafi komið, séð og sigrað.
Morgunblaðið/Ómar
Gleði Leikmenn Grindavíkur fagna eftir að hafa fengið í hendur sigurlaunin í Powerade-bikarnum í körfuknattleik eftir að hafa unnið ÍR.
Grindavík mun sterkari
Laugardalshöll, Powerade-bikar
karla, úrslitaleikur, laugardaginn 22.
febrúar 2014.
Gangur leiksins: 6:5, 12:10, 21:17,
28:21, 35:25, 39:29, 43:36, 45:40,
49:43, 57:51, 59:54, 63:57, 68:59,
73:61, 80:68, 89:77.
Grindavík: Earnest Lewis Clinch Jr.
20/6 fráköst/9 stoðsendingar, Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson 20/11
fráköst/3 varin skot, Jóhann Árni
Ólafsson 12/8 fráköst/7 stoðsend-
ingar, Ólafur Ólafsson 12/8 frá-
köst/5 stoðsendingar, Jón Axel Guð-
mundsson 10, Ómar Örn Sævarsson
8/5 fráköst, Þorleifur Ólafsson 7.
Fráköst: 33 í vörn, 8 í sókn.
ÍR: Sveinbjörn Claessen 18/4 frá-
köst, Hjalti Friðriksson 17/6 fráköst,
Björgvin Hafþór Ríkharðsson 12/4
fráköst, Nigel Moore 11/11 fráköst/7
stoðsendingar, Matthías Orri Sigurð-
arson 10/4 fráköst/5 stoðsendingar,
Ragnar Örn Bragason 9.
Fráköst: 21 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herberts-
son, Rögnvaldur Hreiðarsson, Eggert
Þór Aðalsteinsson.
Grindavík – ÍR 89:77
ÍR-ingar náðu aldrei upp dampi Meistararnir eins og vel smurð vél Þeir
léku eins og sá sem valdið hefur frá upphafi til enda Sterkur varnarleikur
Í LAUGARDALSHÖLL
Kristinn Friðriksson
sport@mbl.is
Á laugardaginn mættu Grindvík-
ingar ÍR-ingum í Laugardalshöllinni
og kepptu um næsteftirsóttasta bik-
ar í körfuknattleik á Íslandi. Stemn-
ingin var rafmögnuð á pöllunum, eins
og alltaf, og þrátt fyrir baráttu og
vilja ÍR-inga voru Grindvíkingar
nokkrum klössum fríðari og unnu
nokkuð öruggan sigur, 89:77, og eru
bikarmeistarar 2014 og afar vel að
titlinum komnir.
Bikarleikir snúast alltaf um liðs-
anda og dagsform, á þessu var engin
breyting; ÍR-ingar náðu aldrei upp
þeim dampi sem hefur fleytt þeim í
gegnum góða sigra í deildinni uppá
síðkastið. Lykilleikmenn voru læstir
inni í ógnvænlegu umhverfi bikar-
stemningarinnar allan leikinn. Vörn
Grindavíkur neitaði mönnum eins og
BLAK
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Tveir leikir voru í Neskaupstað í Mi-
kasa-deild kvenna í blaki um helgina
þar sem Þróttarar tóku á móti HK
úr Kópavogi. Fyrri leikurinn var á
laugardegi en sá síðari í gær, en
færa varð þá aftur um einn dag
vegna ófærðar og því tók það HK
lengri tíma að komast til Norð-
fjarðar og skarðið lokaðist á ný um
leið og HK var komið yfir það.
Heimastúlkur höfðu betur 3:2 í
fyrri leiknum (19:25, 23:25, 25:12,
25:13 og 15:7). HK náði hins vegar
að hefna fyrir sig í gær í leik sem var
jafnari og skemmtilegri. Lokatölur
þar 3:2 (19:25, 25:21, 23:25, 28:26 og
11:15). Þróttarar komust í 6-1 í
oddahrinunni en Kópavogskonur
neituðu að gefast upp og vönduðu
sig vel í uppgjöfum sem skiluðu stig-
um og staðan var 11:11. Þá fór Berg-
lind Gígja Jónsdóttir uppspilari HK
í uppgjafareitinn og næstu fjögur
stig féllu með HK og þar með sigur-
inn.
Með honum skaust HK aftur upp
fyrir Þrótt í annað sætið með 25 stig
en Þróttur er stigi á eftir en á toppn-
um situr Afturelding með 29 stig.
Á Akureyri lagði Þróttur úr
Reykjavík lið KA 3-1 (12:25, 25:21,
25:27 og 19:25). Þróttarar með 7 stig
en KA neðst með ekkert stig.
Karlalið þessara félaga mættust
einnig og þar voru líka leiknar fjórar
hrinur en norðanmenn höfðu betur
(25:14, 25:19, 7:25 og 25:20). KA er í
fjórða sæti með 19 stig en Þróttur
sæti neðar með 16. HK er með 48
stig í efsta sæti, Þróttur Nes. í
næsta með 30 og Stjarnan í því
þriðja með 29 stig, en á botninum
sigur Afturelding með 5 stig.
Tveir fimm hrinu leikir
Kvennalið HK lét ófært Oddsskarð ekki slá sig út af laginu
Morgunblaðið/Ómar
Sterk Berglind Gígja lék vel.
Danmörk
A-deild karla:
Mors-Thy – GOG.................................. 26:27
Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 5
mörk fyrir Mors-Thy.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir GOG.
A-deild kvenna:
SönderjyskE – Nyk ............................. 20:26
Ramune Pekarskyte og Karen Knúts-
dóttir leika með SönderjyskE. Stella Sig-
urðardóttir er frá vegna meiðsla. Ágúst Þór
Jóhannsson þjálfar liðið.
Noregur
A-deild karla:
Bækkelaget – Nötteröy ..................... 27:34
Hreiðar Levý Guðmundsson ver mark
Nötteröy.
Arendal – Bodö .................................... 25:19
Einar Ingi Hrafnsson skoraði 3 mörk
fyrir Arendal.
A-deild kvenna:
Tertnes – Levanger ............................ 33:24
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Tertnes.
Nína Björk Arnfinnsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Levanger.
Flint/Tönsberg – Stabæk................... 25:30
Brynja Magnúsdóttir skoraði 2 mörk
fyrir Flint/Tönsberg en Þorgerður Anna
Atladóttir lék ekki með liðinu.
Vipers Kristiansand – Fredrikstad... 34:25
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði 10
mörk fyrir Vipers Kristiansand og var
markahæst og besti leikmaður vallarins.
Oppsal – Storhamar ............................ 30:31
Alfreð Örn Finnsson þjálfar Storhamar.
Svíþjóð
Skuru – Sävehof .................................. 22:32
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði ekki
mark fyrir Sävehof.
BK Heid – Skånela IF ..........................20:26
Sunna Jónsdóttir skoraði 5 mörk fyrir
BK Heid.
Meistaradeild karla
París Handball – Vardar Skopje ....... 35:25
Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir
París og Ásgeir Örn Hallgrímsson 2.
Gorenje Velenje – Flensburg..............23:28
Ólafur Gústafsson var ekki í leikmanna-
hópi Flensburg.
KIF Kolding – Dunkerque ................. 26:23
Aron Kristjánsson þjálfar KIF Kolding.
Kielce – Wisla Plock............................ 38:30
Þórir Ólafsson skoraði ekki fyrir Kielce.
EHF-bikarinn
Constanta – Füchse Berlín ................. 31:31
Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse.
Ademar León – Burgdorf................... 30:30
Rúnar Kárason skoraði 4 mörk fyrir
Burgdorf.
Kristianstad – Nantes ......................... 23:27
Ólafur A. Guðmundsson skoraði 2 mörk
fyrir Kristianstad.
Gunnar Steinn Jónsson skoraði 1 mark
fyrir Nantes.
Þýskaland
B-deild:
Bad Schwartau – Grosswallstadt...... 31:19
Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 5 mörk
en Sverre Jakobsson fyrirliði náði ekki að
skora fyrir Grosswallstadt.
Hüttenberg – Aue................................ 28:29
Árni Þór Sigtryggsson skoraði 4 mörk
fyrir Aue, Bjarki Már Gunnarsson og Sig-
tryggur Rúnarsson skoruðu ekki. Svein-
björn Pétursson ver mark Aue og Rúnar
Sigtryggsson þjálfar liðið.
A-deild kvenna:
Bensheim – Koblenz/Weibern........... 21:26
Hildur Þorgeirsdóttir lék ekki með Ko-
blenz/Weibern vegna meiðsla.
HANDBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15
1. deild karla:
Smárinn: Breiðablik – ÍA..................... 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Kórinn: HK – Leiknir R............................ 18
Reykjavíkurmót kvenna, úrslitaleikur:
Egilshöll: Valur – Fylkir........................... 19
Í KVÖLD!
Jón Axel Guðmundsson Hann var hetja liðs-
ins og var sá X-faktor sem gerði Grindavík-
ur kleift að halda áhlaupum ÍR-inga innan
marka með stórum körfum. Þessi ungi mað-
ur var fremstur meðal jafningja í liði bikar-
meistaranna.
Moggamaður leiksins