Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Olís-deild karla
ÍBV – Akureyri...................................... 27:22
Staðan:
Haukar 15 11 1 3 386:330 23
ÍBV 15 10 0 5 402:376 20
Valur 15 8 1 6 415:353 17
Fram 15 8 0 7 327:348 16
ÍR 15 8 0 7 408:402 16
FH 15 7 1 7 377:359 15
Akureyri 15 5 0 10 349:386 10
HK 15 1 1 13 330:440 3
Olís-deild kvenna
Stjarnan – Valur................................... 21:29
Mörk Stjörnunnar: Hanna G. Stefánsdóttir
6, Helena Örvarsdóttir 5, Sólveig Lára
Kjærnested 3, Jóna Margrét Ragnarsdóttir
2, Esther V. Ragnarsdóttir 2, Sandra Sif
Sigurjónsdóttir 2, Natalí Valencia 1.
Mörk Vals: Karólína Bæhrenz Lárudóttir
6, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Kristín
Guðmundsdóttir 4, Morgan Þorkelsdóttir 4,
Rebekka Rut Skúladóttir 3, Bryndís Wö-
hler Halldórsdóttir 3, Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir 3, Vigdís Birna Þorsteinsdótt-
ir 1.
Fram – Selfoss ...................................... 28:15
Mörk Fram: Marthe Sördal 9, Ragnheiður
Júlíusdóttir 7, Hekla Rún Ámundadóttir 5,
Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Hafdís Shi-
zuka Lura 2, Eva Þóra Arnardóttir 1, Krist-
ín Helgadóttir 1.
Mörk Selfoss: Hrafnhildur Hanna Þrastar-
dóttir 8, Þuríður Guðjónsdóttir 4, Hulda Dís
Þrastardóttir 1, Perla Ruth Albertsdóttir 1,
Carmen Palamariu 1.
HK – KA/Þór ........................................ 28:22
Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 10,
Gerður Arinbjarnar 8, Þórhildur Braga
Þórðardóttir 4, Sigríður Hauksdóttir 2,
Emma Havin Sardarsdóttir 2, Anna María
Guðmundsdóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1.
Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir
11, Katrín Vilhjálmsdóttir 3, Þórunn E. Sig-
urbjörnsdóttir 3, Laufey L. Höskuldsdóttir
2, Birta F. Sveinsdóttir 2, Arna K. Einars-
dóttir 1.
Fylkir – ÍBV .......................................... 23:24
Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 7, Vera Páls-
dóttir 6, Thea Imani Sturludóttir 5, Hildur
Björnsdóttir 2, Júlíja Zukovska 2, Auður
Guðbjörg Pálsdóttir 1.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 12, Telma Amado 3,
Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Kristrún
Hlynsdóttir 2, Ester Óskarsdóttir 2, Arna
Þyrí Ólafsdóttir 2.
Haukar – Grótta ................................... 33:33
Mörk Hauka: Karen Helga Díönudóttir 9,
Marija Gedroit 9, Viktoria Valdimarsdóttir
6, Ragnheiður Sveinsdóttir 3, Áróra Eir
Pálsdóttir 3, Gunnhildur Pétursdóttir 3.
Mörk Gróttu: Anett Köbli 9, Laufey Ásta
Guðmundsdóttir 8, Unnur Ómarsdóttir 8,
Tinna Laxdal 5, Lene Burmo 2, Guðný
Hjaltadóttir 1.
Staðan:
Stjarnan 19 16 2 1 561:408 34
Valur 19 14 2 3 539:382 30
Fram 19 14 0 5 481:405 28
ÍBV 19 14 0 5 503:469 28
Grótta 19 12 3 4 509:446 27
Haukar 19 9 2 8 503:471 20
FH 19 7 2 10 394:444 16
HK 19 6 2 11 420:446 14
Fylkir 19 4 2 13 422:489 10
KA/Þór 19 3 4 12 440:538 10
Selfoss 19 3 3 13 405:508 9
Afturelding 19 1 0 18 397:568 2
1. deild karla
ÍH – Selfoss............................................ 27:30
Hamrarnir – Fylkir............................... 36:25
Þýskaland
A-DEILD:
Wetzlar – Kiel ....................................... 24:35
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk
fyrir Kiel en Aron Pálmarsson ekkert. Al-
freð Gíslason þjálfar liðið.
RN Löwen – Magdeburg ..................... 32:26
Alexander Petersson skoraði 5 mörk fyr-
ir Löwen og Stefán Rafn Sigurmannsson
eitt. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar
liðið.
Eisenach – Emsdetten ......................... 26:28
Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir
Eisenach en Hannes Jón Jónsson er meidd-
ur. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið.
Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 4
mörk fyrir Emsdetten, Oddur Gretarsson 3
og Ernir Hrafn Arnarson 1.
Melsungen – Bergischer ..................... 34:29
Arnór Þór Gunnarsson skoraði ekki fyrir
Bergischer. Björgvin Páll Gústavsson ver
mark liðsins.
Staðan:
Kiel 23 21 0 2 753:612 42
Hamburg 23 18 1 4 747:671 37
RN Löwen 23 17 3 3 724:601 37
Flensburg 23 17 2 4 688:596 36
Füchse Berlín 23 16 2 5 669:584 34
Melsungen 23 13 2 8 689:659 28
H.Burgdorf 23 11 2 10 644:662 24
Lemgo 23 10 3 10 706:707 23
Magdeburg 23 10 2 11 658:657 22
N-Lübbecke 23 9 3 11 639:663 21
Wetzlar 23 7 3 13 592:623 17
Minden 23 6 4 13 612:657 16
Gummersbach 23 7 2 14 603:654 16
Göppingen 23 5 5 13 677:689 15
Bergischer 23 6 3 14 649:691 15
Balingen 23 4 5 14 622:686 13
Eisenach 23 5 1 17 592:710 11
Emsdetten 23 3 1 19 581:723 7
HANDBOLTI
Í HÖLLINNI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Haukar urðu á laugardaginn bik-
armeistarar kvenna í körfuknattleik
í sjötta skipti í sögu félagsins þegar
liðið sigraði Snæfell í úrslitaleiknum
í Laugardalshöll, 78:70. Haukar
sigruðu fyrst í keppninni árið 1984
en hafa unnið fjórum sinnum á síð-
ustu níu árum. Konunum úr Stykk-
ishólmi hefur ekki tekist að vinna
bikarmeistaratitilinn en liðið hefur
verið tvívegis í úrslitum á síðustu
þremur árum.
Snæfell, sem hefur leikið allra
liða best á Íslandsmótinu í vetur,
tók strax frumkvæðið í leiknum og
hafði ágætt forskot fram í annan
leikhluta. Haukum tókst að ná for-
ystunni fyrir hlé og héldu foryst-
unni út leiktímann þó munurinn á
liðunum væri aldrei mikill. Á loka-
kaflanum munaði litlu að Snæfelli
tækist að ógna Haukum verulega.
Chynna Brown setti þá niður tvö
vítaskot þegar rétt rúm mínúta var
eftir og minnkaði muninn niður í
73:69 en Brown gerði 31 stig í leikn-
um. Leikstjórnandinn Hildur Sig-
urðardóttir stal í kjölfarið boltanum
af Haukum og fór beint upp í ágætt
þriggja stiga skot en hitti ekki. Það
átti ekki fyrir Hildi að liggja þennan
daginn því hún hitti aðeins úr einu
af sautján skotum sínum í opnum
leik. Á hinn bóginn gaf hún sex
stoðsendingar og tók sjö fráköst.
Ásamt Brown var Hildur Björg
Kjartansdóttir best hjá Snæfelli
með 18 stig og 12 fráköst.
Lele Hardy sigursæl á Íslandi
Þessa úrslitaleiks verður sjálfsagt
minnst fyrir hreint magnaða
frammistöðu Lele Hardy, leik-
manns Hauka. Hardy er á sínu
þriðja tímabili á Íslandi og land-
vinningar hennar eru orðnir tölu-
verðir. Hún vann tvöfalt með Njarð-
vík fyrir tveimur árum og var þá
valin besti leikmaður úrslitakeppn-
innar. Hún virðist ennþá vera að
vaxa sem leikmaður og virðist geta
sýnt sínar bestu hliðar þegar mest á
reynir.
Í þessum úrslitaleik fengu Hauk-
ar framlag frá fleiri leikmönnum en
Snæfell og hafði það sjálfsagt sitt að
segja. Margir leikmanna Hauka
komust vel frá leiknum. Jóhanna
Björk Sveinsdóttir lék til að mynda
mjög vel með 8 stig og 7 fráköst en
hún var með á nótunum í upphafi
leiks þegar samherjum hennar gekk
illa.
Morgunblaðið/Ómar
Fögnuður Guðrún Ámundadóttir lyftir bikarnum á loft með samherjum eftir að hafa veitt honum viðtöku úr höndum Hannesar Jónssonar, formanns KKÍ.
Sjötti bikartitill Hauka
Laugardalshöll, Powerade-bikar
kvenna, úrslitaleikur, laugardaginn
22. febrúar 2014.
Gangur leiksins: 6:4, 10:6, 17:6,
21:11, 24:15, 27:31, 35:41, 41:47,
50:55, 54:59, 58:64, 65:69,
70:78.
Snæfell: Chynna Unique Brown
31/9 fráköst, Hildur Björg Kjart-
ansdóttir 18/12 fráköst/3 varin
skot, Hildur Sigurðardóttir 6/7
fráköst/6 stoðsendingar, Eva Mar-
grét Kristjánsdóttir 5, Helga Hjör-
dís Björgvinsdóttir 4, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 4/11 fráköst, Hug-
rún Eva Valdimarsdóttir 2.
Fráköst: 28 í vörn, 16 í sókn.
Haukar: Lele Hardy 44/14 frá-
köst/7 stolnir, Margrét Rósa Hálf-
danardóttir 10/7 fráköst/5 stoð-
sendingar, Jóhanna Björk
Sveinsdóttir 8/7 fráköst, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir 7/6 fráköst,
Íris Sverrisdóttir 3, Guðrún Ósk
Ámundadóttir 2, Dagbjört Sam-
úelsdóttir 2, Auður Íris Ólafsdóttir
2/4 fráköst.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jón
Bender.
Snæfell – Haukar 70:78
Snæfelli tókst ekki að brjóta ísinn Mögnuð frammistaða Lele Hardy
Fjórði sigur Hauka á síðustu níu árum Fleiri lögðu lóð á vogarskálarnar
Í EYJUM
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
Eyjamenn komu sér í þægilega
stöðu í toppbaráttu Olís-deild-
arinnar með sigri á Akureyri á laug-
ardag, 27:22. ÍBV er nú í öðru sæti,
þremur stigum á eftir toppliði
Hauka en þremur stigum á undan
Val, sem er í þriðja sæti. Annað sæt-
ið er mikilvægt enda tryggir það
heimaleikjarétt í úrslitakeppni Ís-
landsmótsins í vor.
Akureyringar héldu í við Eyja-
menn lengst af en segja má að tveir
leikkaflar, annar í fyrri hálfleik og
hinn í þeim síðari, hafi skilið að.
Fimm marka sigur Eyjamanna var
kannski heldur stór miðað við gang
leiksins en þó verðskuldaður. Akur-
eyri er nú í erfiðri stöðu og í raun
með bakið upp við vegg. Liðið er
fimm stigum á eftir FH í næstneðsta
sæti þegar sex leikir eru eftir. Því
dugir ekkert minna en sigur í næsta
leik, á heimavelli gegn ÍR, ætli liðið
sér að komast eitthvað ofar í töfl-
unni.
Þótt ÍBV hafi unnið er ekki hægt
að segja að liðið hafi spilað óaðfinn-
anlega í leiknum. Þeir skoruðu að-
eins fjögur mörk á fyrstu 20 mín-
útum leiksins en bættu upp fyrir það
og skoruðu 23 á næstu 40 mínútum.
En á meðan var varnarleikur þeirra
góður og markvarslan frábær en
Kolbeinn Arnarson, markvörður
Eyjamanna, varði rúm 46% þeirra
skota sem á markið rötuðu. Örugg-
lega hans besti leikur í vetur.
Íþróttahúsið í Vestmannaeyjum,
Olís-deild karla, laugardaginn 22.
febrúar 2014.
Gangur leiksins: 0:1, 2:4, 6:6, 9:6,
10:8, 11:8, 14:11, 16:16, 18:17,
22:18, 25:19, 27:22.
Mörk ÍBV: Róbert Aron Hostert 9,
Grétar Eyþórsson 5, Guðni Ingvars-
son 4, Agnar Smári Jónsson 3,
Theodór Sigurbjörnsson 3/1,
Magnús Stefánsson 2, Andri Heim-
ir Friðriksson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjarg-
arson 19 (þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Akureyri: Bjarni Fritzson
7/2, Þrándur Gíslason 4, Sigþór
Heimisson 3, Valþór Guðrúnarson
2, Gunnar Malmquist Þórsson 2,
Kristján Orri Jóhannsson 2, Hreinn
Hauksson 1, Halldór Logi Árnason
1.
Varin skot: Jovan Kukobat 4, Tom-
as Olason 4.
Utan vallar: 14 mín.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson. Góðir.
Áhorfendur: 250.
ÍBV – Akureyri 27:22ÍBV komið í
þægilega stöðu
Annar sigur á Akureyri á einni viku
Lele Hardy Hún skoraði 44 stig, tók 14 frá-
köst, gaf 3 stoðsendingar og stal boltanum
sjö sinnum af andstæðingunum. Hardy
skoraði 11 stig á síðustu þremur mínútum
fyrri hálfleiks þegar Haukar náðu frum-
kvæðinu.
Moggamaður leiksins