Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
Lengjubikar karla
A-DEILD, riðill 1:
Breiðablik – BÍ/Bolungarvík................. 1:1
Árni Vilhjálmsson 20. – Björgvin Stefáns-
son 65.
Keflavík – KR........................................... 1:2
Jóhann Birnir Guðmundsson 2. – Almarr
Ormarsson 1., Aron Bjarki Jósepsson 90.
Afturelding – Grindavík......................... 1:3
Elvar Ingi Vignisson 82. – Magnús Björg-
vinsson 18., 54., Daníel Leó Grétarsson 70.
Fram – ÍA ................................................. 0:1
Jón Vilhelm Ákason 69.
Staðan:
ÍA 2 2 0 0 4:0 6
Breiðablik 2 1 1 0 3:2 4
Grindavík 2 1 0 1 4:3 3
Keflavík 2 1 0 1 4:3 3
KR 2 1 0 1 5:5 3
Fram 2 1 0 1 4:4 3
BÍ/Bolungarvík 2 0 1 1 1:4 1
Afturelding 2 0 0 2 2:6 0
A-DEILD, riðill 3:
KV – ÍBV................................................... 1:3
Gunnar Wigelund 4. – Bjarni Gunnarsson
45., Gauti Þorvarðarson 71., Devon Már
Griffin 90.
Valur – Víkingur Ó.................................. 3:2
Haukur Páll Sigurðsson 21., 75., Mads
Lennart Nielsen 63. – Fannar Hilmarsson
11., Eyþór Helgi Birgisson 49.
Víkingur R. – Selfoss............................... 4:0
Sveinbjörn Jónasson 32., Viktor Jónsson
69., 81., Ívar Örn Jónsson 75. Rautt spjald:
Einar Ottó Antonsson (Selfossi) 43.
Staðan:
ÍBV 2 2 0 0 4:1 6
Víkingur R. 2 1 1 0 6:2 4
Haukar 1 1 0 0 7:1 3
Valur 2 1 0 1 3:3 3
Selfoss 2 1 0 1 3:5 3
Stjarnan 1 0 1 0 2:2 1
Víkingur Ó. 2 0 0 2 3:6 0
KV 2 0 0 2 2:10 0
Portúgal
Maritimo – Belenenses............................ 2:0
Helgi Valur Daníelsson lék fyrri hálfleik-
inn fyrir Belenenses en Eggert Gunnþór
Jónsson var ekki í leikmannahópi liðsins
sem sem er í 14. sæti af 16 liðum.
Austurríki
Rapid Vín – Grödig.................................. 0:0
Hannes Þ. Sigurðsson var á varamanna-
bekk Grödig sem er í 2. sæti deildarinnar.
Tyrkland
Genclerbirligi – Konyaspor ................... 2:2
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði
fyrra mark Konyaspor en var skipt af velli
á 76. mínútu. Lið hans er í 11. sæti af 18 lið-
um í deildinni.
Skotland
Hearts – Celtic ........................................ 0:2
Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í
leikmannahópi Celtic sem er með 24 stiga
forskot í deildinni.
Sviss
B-deild:
Vaduz – Locarno ..................................... 1:0
Þórður Steinar Hreiðarsson lék allan
leikinn með Locarno.
KNATTSPYRNA
Real Madrid situr nú eitt á toppi spænsku 1. deildarinnar
í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. Barcelona missteig
sig þegar liðið heimsótti Real Sociedad því heimamenn
sigruðu 3:1 og þar með er Barcelona áfram með 60 stig
líkt og Atlético Madrid sem tapaði á útivelli fyrir Osasuna,
en Real Madrid er komið með 63 stig í efsta sætið.
Madrídingar gerðu bara eitt mark í fyrri hálfleik á móti
Elche en bættu tveimur við eftir hlé, Gareth Bale með
annað og Isco hitt. Þetta var tíunda markið sem Bale
skorar fyrir Madrid á þessari leiktíð.
Alex Song kom Real Sociedad yfir gegn Barcelona með
sjálfsmarki á 32. mínútu en Lionel Messi jafnaði metin
fjórum mínútum síðar. Heimamenn bættu síðan við tveimur mörkum eftir
hlé og fögnuðu sigri.
Osasuna flaug upp um nokkur sæti í deildinni með 3:0 sigri á Atlético Ma-
drid í gærkvöldi. Heimamenn komust yfir strax á 6. mínútu með marki Ce-
judo, Armenteros bætti við marki á 21. mínútu og Torres því þriðja skömmu
fyrir leikhlé.
Cristiano Ronaldo er sem fyrr markahæsti leikmaður deildarinnar með 22
mörk en Diego Costa hjá Atlético er næstur með 21 mark. skuli@mbl.is
Madrídingar á toppinn
Það var enginn glæsibragur á leik Juventus þegar liðið tók
á móti Torino í grannaslag í ítölsku A-deildinni í knatt-
spyrnu í gær. Þar mættust efsta liðið, Juventus með 66 stig,
og liðið í 8. sæti, Torino með 36 stig, en það var vart að sjá
að það munaði þrjátíu stigum á þeim. Juventus hafði þó bet-
ur með marki frá Carlos Tévez á 30. mínútu og er með níu
stiga forystu á Roma sem á leik til góða, en liðið vann einnig
1:0 sigur um helgina, gegn Bologna á útivelli.
Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona halda upp-
teknum hætti og þeir brugðu sér til Livorno og unnu 2:3 og
eru í sjötta sæti deildarinnar. Emil var ekki í með Verona
þar sem hann var í leikbanni.
Lazio sem er í tíunda sæti deildarinnar með 35 stig, lenti í miklu basli á
heimavelli þegar liði fékk Sassuolo í heimsón, en það er í neðsta sæti deild-
arinnar með 17 stig. Það fór um stuðningsmenn Lazio þegar gestirnir jöfnuðu
1:1 á 72. mínútu leiksins. Það var þó ekki lengi því Miroslav Klose kom Lazio
yfir á 73. mínútu, en aftur jöfnuðu gestirnir, nú á 79. mínútu. Sigurmarkið kom
síðan sjö mínútum fyrir leikslok og leikmenn Lazio önduðu léttar.
Tveir leikir eru í deildinni í kvöld en þá tekur Parma á móti Fiorentina og í
Napólí verður Genoa í heimsókn. skuli@mbl.is
Naumur sigur Juve
Carlos
Tévez
Gareth
Bale
Það var mikil spenna á loka-
sprettinum í 50 km skíðagöngu
karla í Sotsjí í gær. Rússarnir
Alexander Leckov, Maxim Vy-
legzhanin og Ilia Cherniusov
og Norðmaðurinn Martin Jo-
hnsrud Sundby háðu ótrúlega
harða keppni á lokasprettinum
sem lauk með því að Leckov
kom fyrstur í mark á 1:46.55,2
klukkustundum og landar hans
rétt á efir, Vylegzhanin 0,7 sek-
úndum á eftir og Chernousov 0,8 sekúndum á eftir
og þurfti að skoða myndir til að skera úr um hvor
var á undan í mark. Norðmaðurinn kom síðan 1,0
sekúndu á eftir sigurvegaranum í mark. Ótrúlega
jafnt eftir heila 50 kílómetra. Næsti maður var
síðan 14,3 sekúndum á eftir. skuli@mbl.is
Þrefalt hjá Rúss-
um í 50 km göngu
Alexander
Leckov
Það voru Kanadamenn sem
fengu síðasta gullpeninginn
sem keppt var um á Ólympíu-
leikunum í Sotsjí í gær. Það
gerðu þeir með því að leggja
Svía 3:0 í úrslitaleiknum í ís-
hokkíkeppni karla. Kanada-
menn vörðu því titilinn frá síð-
ustu leikum.
Það var fyrst og fremst frá-
bær vörn Kanadamanna sem
skóp sigurinn og þeir skoruðu
eitt mark í hverjum leikhluta, fyrst Jonathan To-
ews, þá fyrirliðinn Sidney Crosby og loks Chris
Kunitz. Finnar urðu í þriðja sæti með því að
leggja Bandaríkjamenn 5:0. Þetta er í níunda
sinn sem Kanadamenn verða ólympíumeistarar í
íshokkí karla. skuli@mbl.is
Kanadamenn tóku
síðasta gullið
Sidney
Crosby
Rússar geta verið sáttir við
frammistöðu íþróttafólksins á
Vetrarólympíuleikunum sem
slitið var í Sotsíj í gær. Rúss-
neskir íþróttamenn fengu
bæði flest gullverðlaun á leik-
unum og líka flesta verðlauna-
peninga. Rúsar fengu 13 gull-
verðlaun og 11 silfurverðlaun,
sem er meira en nokkur önnur
þjóð og við þetta bættu þeir 9
bronsverðlaunum. Samtals
fengu þeir því 33 verðlaunapeninga.
Norðmenn komu í næsta sæti með 11 gull, 5
silfur og 10 brons og Kandamenn fengu 10 gull,
10 silfur og 5 brons. Bandaríkjamenn fengu næst-
flesta verðlaunapeninga, 28 talsins, 9 gull, 7 silfur
og 12 brons. skuli@mbl.is
Rússar fengu
flest verðlaun
Darya
Domracheva
ÓLYMPÍULEIKAR
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Austurríski skíðakappinn Mario Matt
varð ólympíumeistari í svigi og varð
þar með elstur allra til að sigra í svig-
keppni Ólympíuleika, en hann er 34
ára gamall. Svigkeppnin var því
söguleg, ekki bara vegna sigurs
Matts heldur skaust Norðmaðurinn
Henrik Kristoffersen í þriðja sætið
en hann er aðeins 19 ára og varð
þarna yngstur til að komast á verð-
launapall í svigi karla á Ólympíu-
leikum.
Brynjar kláraði
en Einar féll úr leik
Tveir íslenskir skíðamenn voru
meðal keppenda í sviginu. Brynjar
Jökull Guðmundsson varð í 36. sæti
af þeim 43 sem luku keppni en Einar
Kristinn Kristgeirsson missti úr hlið
um miðbik brautarinnar í síðari ferð-
inni og var þar með úr leik.
Eftir fyrri ferðina var Einar Krist-
inn í 49. sæti 7,34 sekúndum á eftir
Matt, sem var með besta tímann úr
fyrri ferðinni, og Brynjar Jökull var í
62. sæti, 10,15 sekúndum á eftir Matt.
Einar Kristinn var á fínni siglingu
þegar hann missti af hliðinu í seinni
ferðinni og hefði að öllum líkindum
náð í hóp þrjátíu bestu hefði hann náð
að ljúka ferðinni á svipuðum hraða og
hann hafði skíðað á fram að óhappinu.
Það voru gríðarleg forföll í sviginu
en 114 keppendur hófu keppni, 77
luku við fyrri ferðina sem þýðir að 38
féllu úr leik í fyrri ferðinni og í þeirri
síðari var svipað upp á teningnum því
þá féllu 32 úr leik.
Matt var með besta tímann eftir
fyrri ferðina og í þeirri síðari náði
hann sjötta besta tímanum og það
dugði honum til sigurs. Samanlagður
tími hans var 1.41,84 en heimsmeist-
arinn Marcel Hirscher frá Austurríki
varð að sætta sig við annað sætið,
0,28 sekúndubrotum á eftir og Norð-
maðurinn ungi var 0,83 sekúndu-
brotum á eftir Matt. Sá norski gerði
mjög vel því hann var með 15. besta
tímann eftir fyrri ferðina og náði
þriðja besta tímanum í þeirri síðari
og það dugði til að fá bronsið.
AFP
Kláraði Brynjar Jökull Guðmundsson á fullri ferð í erfiðri svigbrautinni í Sotsjí.
Sá elsti fagnaði sigri
Brynjar Jökull í 36. sæti í sviginu Einar Kristinn féll úr keppni í seinni ferð-
inni í sviginu Kristoffersen krækti í brons og er sá yngsti sem kemst á pall
Þýskaland
Hannover – Bayern München..................0:4
Eintracht Frankfurt – Werder Bremen .0:0
Wolfsburg – Leverkusen..........................3:1
Freiburg – Augsburg................................2:4
Hamburger SV – Dortmund ....................3:0
Mönchengladbach – Hoffenheim.............2:2
Nürnberg – Braunschweig.......................2:1
Stuttgart – Hertha Berlín ........................1:2
Schalke – Mainz.........................................0:0
Staðan:
Bayern M. 22 20 2 0 61:9 62
Leverkusen 22 14 1 7 39:25 43
Dortmund 22 13 3 6 51:27 42
Schalke 22 12 5 5 41:30 41
Wolfsburg 22 12 3 7 38:26 39
M’gladbach 22 10 5 7 39:28 35
Hertha Berlín 22 10 4 8 34:27 34
Augsburg 22 10 4 8 34:32 34
Mainz 22 10 4 8 31:35 34
Hoffenheim 22 6 8 8 46:46 26
Hannover 22 7 3 12 29:41 24
Nürnberg 22 4 11 7 27:37 23
E.Frankfurt 22 5 7 10 24:38 22
W.Bremen 22 5 7 10 25:46 22
Stuttgart 22 5 4 13 35:47 19
Hamburger SV 22 5 4 13 38:51 19
Freiburg 22 4 6 12 22:44 18
Braunschweig 22 4 3 15 16:41 15
B-deild:
Bochum – Fortuna Düsseldorf .............. 0:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Bochum sem er í 15. sæti af 18 liðum.
A-deild kvenna:
Bayern München – Turbine Potsdam... 1:2
Guðbjörg Gunnarsdóttir var í marki
Potsdam og lagði upp sigurmarkið með
löngu útsparki. Frankfurt er með 27 stig,
Potsdam 26 og Wolfsburg 25 í þremur efstu
sætunum.
ÞÝSKALAND