Morgunblaðið - 24.02.2014, Síða 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
„Valsmenn spiluðu fanta vel og á
sama tíma mættum við hreinlega
ekki til leiks og því fór sem fór,“
sagði Hanna Guðrún Stefánsdóttir
leikmaður Stjörnunnar í handknatt-
leik eftir að liðið tapaði sínum fyrsta
leik í Olísdeild kvenna. Það voru
Valskonur sem komu í heimsókn í
Garðabæinn og unnu öruggan sigur,
21:29.
Hanna sagðist aðspurð vera búin
að jafna sig á tapinu, en rætt var við
hana í gær. „Maður þarf að kunna að
tapa líka,“ sagði hún. „Annars er
þessi árangur okkar, að tapa ekki í
fyrstu átján umferðum deildarinnar,
vonum framar. Það var ótrúlegur ár-
angur hjá okkur að ná þessu,“ bætti
hún við.
Einn leikur í einu
Stutt er í næsta stórleik hjá
Stjörnunni því liðið mætir Gróttu í
undanúrslitum bikarsins á fimmtu-
daginn og nái þær sigri mæta þær
Val eða Haukum í úrslitum á laug-
ardaginn. Hanna ætlar væntanlega
að spila bæði á fimmtudag og laug-
ardag? „Það er auðvitað stefnan en
við erum ekki að hugsa neitt lengra
en fram á fimmtudag. Grótta er
spútniklið og hefur leikið vel í vetur
þannig að það er ekkert gefið og
þetta verður erfiður leikur eins og
allir leikir í bikar,“ sagði Hanna.
Með sigrinum komu Valskonur í
veg fyrir að Garðbæingar fögnuðu
deildarmeistaratitlinum, en það
verður nú líklegast bara um tíma því
þrjár umferðir eru eftir af deildar-
keppni kvenna og Stjarnan með
fjögurra stiga forystu á Val.
Mikilvæg stig til HK
HK vann mikilvægan sigur á KA/
Þór og komst þar með í þægilega
stöðu í áttunda sæti en hefðu
norðankonur farið með sigur hefðu
liðin verið jöfn með 12 stig. Leikur
liðanna var jafn í fyrri hálfleik og
staðan 14:14 þegar flautað var til
leikhlés en heimakonur höfðu síðan
undirtökin eftir hlé og sigruðu 28:22.
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir gerði
10 mörk fyrir HK og Gerður Arin-
bjarnar 8. Hjá KA/Þór var Martha
Hermannsdóttir með 11 mörk.
Naumur sigur ÍBV
Fylkir virðist vera að rétta úr
kútnum ef marka má úrslitin úr síð-
ustu leikjum, naumt tap fyrir ÍBV
um helgina, sigur á HK í umferðinni
þar á undan og naumt tap gegn
Fram þar á undan. Stigin þurfa þó
að komast í hús ætli liðið sér að ná
inn í úrslitakeppnina.
Fylkir var 10:7 yfir í hálfleik á
móti ÍBV um helgina og liði skoraði
13 mörk í síðari hálfleik sem hefði
átt að fara langt með að duga til þess
að fá stig en Eyjakonur gerðu hins
vegar 17 mörk í síðari hálfleiknum
og unnu 23:24 og eru í fjórða sæti
með jafn mörg stig og Fram. Marka-
hæst hjá Fylki var Patricia Szölösi
með sjö mörk og Vera Pálsdóttir
gerði sex, en hjá ÍBV gerði Vera Lo-
pes tólf mörk.
Haukar og Grótta gerðu jafntefli í
miklum markaleik sem endaði 33:33
eftir að Haukar voru 17:15 yfir í leik-
hléi. Markahæstar hjá Haukum voru
Karen Helga Díönudóttir og Marija
Gedroit með 9 mörk hvor en hjá
Gróttu var Anett Köbil með 9 og
þær Laufey Ásta Guðmundsdóttir
og Unnur Ómarsdóttir átta hvor.
Grótta hefði verið við hlið ÍBV og
Fram með sigri en er nú stigi á eftir
þeim og sjö stigum á undan Hauk-
um.
Þrjú mörk eftir hlé
Fram tók á móti Selfossi og sigr-
aði 28:15, en Safamýrarliðið var
lengi í gang því staðan í leikhléi var
12:12. Í seinni hálfleik hrukku
Framarar þó í gang og Selfyssingar
gerðu aðeins þrjú mörk eftir hlé og
eru í næstneðsta sætinu, stigi á eftir
KA/Þór og Fylki. skuli@mbl.is
Fyrsta tap Stjörnunnar
Valur sá um að fresta hátíðarhöldum Garðbæinga HK fékk mikilvæg stig
Naumur sigur ÍBV í Árbænum Selfoss gerði aðeins þrjú mörk eftir hlé
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lok, lok og læs Valskonur skelltu í lás í Garðabænum og Stjarnan tapaði sínum fyrsta leik.
Ekki var að sjá að forráða-
menn Knattspyrnusambands Ís-
lands hefðu brosað allan hring-
inn þegar myndavélum var beint
að þeim í örskamma stund með-
an dregið var í riðla í undan-
keppni Evrópumeistaramótsins í
knattspyrnu karla í Nice í gær-
morgun.
Enda ekki miklu að fagna svo
sem enda staðfesti annar lands-
liðsþjálfarinn, Heimir Hallgríms-
son, í samtali við mbl.is þegar
niðurstaðan af drættinum lá fyr-
ir að enginn úr íslensku sendi-
nefndinni í Nice hefði blásið til
fagnaðar.
Ekkert varð úr að draumur-
inn rættist um að mæta Eng-
lendingum. Listamennirnir frá
Hollandi verða andstæðingar ís-
lenska landsliðsins úr fyrsta
styrkleikaflokki.
Kannski var íslenska liðið ei-
lítið heppið að mæta Tékkum úr
öðrum styrkleikaflokki. Alltént
hefði andstæðingurinn úr þeim
flokki getað orðið óárennilegur,
s.s. gamlir kunningjar eins og
Króatar eða frændur okkar Sví-
ar.
Heppnin hefði þó verið með
okkur ef Ungverjar og Írar hefðu
„dottið“ inn í okkar riðil. Tyrkir
eru ekki spennandi kostur en
þeir verða andstæðingar ís-
lenska landsliðsins í upphafsleik
þess í riðlakeppninni og eins í
lokaumferðinni haustið 2015
þegar þeir verða sóttir heim til
Istanbúl
Vart er hægt að fara mikið
lengra austur á bóginn frá Ís-
landi til þess að leika fótbolta-
leik í undankeppni Evrópumóts
en alla leið Kasakstan. Það verk-
efni bíður íslenska landsliðsins
engu að síður í lok mars á næsta
ári. Þá verður runnið upp nýtt
fjárhagsár hjá KSÍ og Mogga.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
FERMINGAR
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega
glæsilegt.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
7. mars.