Morgunblaðið - 25.03.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
flottir í flísum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þó að öll stéttarfélög á vinnumark-
aðinum endurnýi kjarasamninga á yf-
irstandandi ári eru kjaradeilur óvíða
alvarlegri en innan menntakerfisins.
Stéttarfélög kennara á öllum skóla-
stigum frá leikskóla og upp á háskóla-
stigið, hafa sett fram kröfur um mikla
leiðréttingu launa en lítið hefur miðað
í samkomulagsátt.
Langir sáttafundir
Kennarar og aðrir félagsmenn
þessara stéttarfélaga eru tæplega tíu
þúsund talsins. Nemendurnir frá
leikskólaaldri og upp á háskólastigið
sem búa við vaxandi óvissu eða hafa
nú þegar orðið fyrir barðinu á verk-
fallsaðgerðum eru samtals rúmlega
eitt hundrað þúsund. Kjaradeilurnar
í skólakerfinu snúast því um nám og
störf þriðjungs allrar þjóðarinar.
Verkfall framhaldsskólakennara
hefur nú staðið í rúma viku og enn
virðist engin sátt vera í sjónmáli, þó
að eitthvað hafi miðað á löngum
sáttafundum í gærdag og fram á
kvöld.
Próftímabilið myndi lamast
Félag háskólakennara hefur dreg-
ið fram verkfallsvopnið og boðar
verkfall í Háskóla Íslands 25. apríl til
10. maí hafi ekki samist fyrir þann
tíma. Öll próftaka við HÍ og kennslu-
sviðið myndi lamast komi til verk-
falls. Háskólakennarar hafa ekki birt
tölur um launakröfur sínar en þeir
telja sig þurfa á umtalsverðri launa-
leiðréttingu að halda, þar sem mynd-
ast hafi mikið ójafnvægi í launaröðun
m.a. þar sem þeir hafi dregist aftur úr
miðað við launaþróun prófessora. Það
sem ríkið hafi boðið dugi hvergi til, að
sögn Jörundar Guðmundssonar, for-
manns félagsins. „Aðalvandinn er sá
að það er orðið mjög erfitt að ráða
fólk inn í nýjar stöður. Fólk vill ekki
koma til starfa fyrir þessi laun,“ segir
hann.
Telja sig þurfa 25-30% hækkun
Þunglega horfir í kjaradeilu
grunnskólakennara og sveitarfélag-
anna, þrátt fyrir viðræður hafi staðið
yfir um mögulegan kjarasamning til
ársins 2017, samhliða breyttu vinnu-
fyrirkomulagi. Þar er tekist á um
kröfu grunnskólakennara að laun
þeirra verði sambærileg við laun ann-
arra háskólamenntaðra starfsmanna
með sambærilega menntun, sem
jafngildir um 25 til 30% launahækk-
un. Þó að enn sé ekki farið að ræða at-
kvæðagreiðslu um boðun verkfalls
fer óvissan vaxandi um skólastarfið
fyrir nálægt 42 þúsund nemendur í
grunnskólum landsins.
Stíga þarf stór skref
„Það er alveg ljóst að leikskóla-
kennarar munu ekkert sætta sig við
minna en aðrar kennarastéttir,“ segir
Haraldur F. Gíslason, formaður Fé-
lags leikskólakennara. Kjarasamn-
ingurinn við sveitarfélögin losnar 30.
apríl. Haraldur segir launakröfur
leikskólakennara sambærilegar kröf-
um kennarastéttarinnar allrar. „Við
höfum sameiginlega kjarastefnu og
við miðum laun okkar við aðra sér-
fræðinga. Það er ljóst að það þarf að
stíga stór skref í þessum kjarasamn-
ingi til að fjölga leikskólakennurum.
Hækkun launa er stærsti þátturinn í
því,“ segir hann.
Öll skólastig í skugga kjaradeilna
Ekki sér fyrir endann á verkfalli framhaldsskólakennara Háskólakennarar munda verkfallsvopnið
Grunnskólakennarar ókyrrast Leikskólakennarar sætta sig ekki við minna en aðrar kennarastéttir
Morgunblaðið/Golli
Kennaradeilur Framhaldsskólakennarar eru þessa dagana á stífum fundum í húsakynnum ríkissáttasemjara.
Kjaradeilur kennara og fjöldi í skólunum
Háskóli Íslands Félagar í félagi háskólakennara Nemendur
920 14.000
Framhaldsskólar Félagar í Félagi framhaldsskólakennara Nemendur
1.800 25.000
Grunnskólar Félagar í Félagi grunnskólakennara Nemendur
4.600 42.000
Leikskólar Félagar í Félagi leikskólakennara Leikskólabörn
2.300 20.000
Samtals 9.620 101.000*
*Áætlaðar tölur um fjölda nemenda
Verði af verkfalli Félags háskólakennara í Háskóla
Íslands á próftímanum 25. apríl til 10. maí, mun það
hafa mikil áhrif á 14.000 nemendur HÍ. Það yrði mik-
il röskun á högum stúdenta að sögn Krístínar Ing-
ólfsdóttur, rektors HÍ, og mikil röskun jafnframt á
öllu starfi skólans. ,,Stúdentar hafa gert ráð fyrir að
taka sín próf á þessum tíma en það er alveg ljóst að
þau yrðu ekki haldin. Fyrir stúdenta setur þetta sum-
arið og haustið í uppnám varðandi sumarvinnu, varð-
andi greiðslur frá lánasjóði og varðandi framhalds-
nám,“ segir Kristín. Hún segir það mikið
hagsmunamál fyrir stúdenta og skólann í heild að samningar náist. ,,Það
er líka hagsmunamál fyrir skólann að laun séu samkeppnishæf,“ segir
hún. 920 einstaklingar eru í Félagi háskólakennara og var boðun verk-
falls samþykkt með 82,8% greiddra atkvæða. Það næði einnig til starfs-
manna í Landsbókasafni, á Keldum, í Árnastofnun og Raunvísindastofn-
un. Næsti sáttafundur verður í dag.
Mikil röskun á högum nemenda við HÍ
Verkfall framhaldsskólakennara hefur nú staðið yfir í rúma viku og eru
samningar enn ekki í sjónmáli. Verkfallið bitnar á rúmlega 20 þúsund nem-
endum en um 25.000 nemendur eru skráðir í framhaldsskóla landsins. Í
Verzlunarskólanum þar sem ekki er verkfall eru um 1.800 nemendur. Um
1.800 félagsmenn eru í Félagi framhaldsskólakennara. Búið er að halda á
fjórða tug samningafunda frá því að viðræður hófust í byrjun desember.
Framhaldsskólakennarar hafa farið fram á 17% launahækkun. Laun þeirra
standist ekki samanburð við laun annarra sérfræðinga með sambærilega
menntun og ábyrgð í störfum. Vilja þeir að launaþróun í framhaldsskólum
verði samningsbundið tengd við launaþróun annarra sérfræðinga með
sambærilega menntun og ábyrgð í störfum.
Verkfall í sjö daga og lausn ekki í sjónmáli
Útlitið er dökkt í kjaradeilu grunnskólakennara og ríkisins. Í viðræðunum
hafa verið skoðaðir möguleikar á gerð kjarasamnings til ársins 2017 en án
árangurs til þessa. Kennarar krefjast að laun þeirra verði sambærileg við
laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna með sambærilega menntun og
ábyrgð sem þýðir að laun þeirra þyrftu að hækka um 25 til 30% yfir samn-
ingstímann. Félag grunnskólakennara vísaði deilunni til sáttasemjara 18.
mars. Enn er þó ekki farið að ræða boðun verkfallsaðgerða. Félagið er fjöl-
mennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands með um 4.600 félagsmenn.
Nemendur í grunnskólum hér á landi eru nálægt 42 þúsund talsins.
Breitt bil en aðgerðir ekki verið ræddar
Félag leikskólakennara semur fyrir um 2.300 félags-
menn sem annast nærri 20 þúsund leikskólabörn um allt
land. Kjarasamningur leikskólakennara losnar 30. apríl.
Forsvarsmenn félagsins vilja ekki nefna ákveðnar
launatölur úr kröfugerð á þessu stigi. Haraldur F. Gísla-
son, formaður félagsins, segir staðreyndir sýna að
launaþróun kennarastéttanna hafi verið mun lakari en
annarra sérfræðinga. Launaskrið sé lítið sem ekkert
meðal kennara og bilið sem þurfi að brúa verði sífellt
stærra. Gera þurfi „stórar leiðréttingar“ í þessum samn-
ingum. „Það er óþolandi staða að þurfa að beita neyðar-
úrræðum til að þvinga fram slíkar leiðréttingar sem bitna á saklausu fólki,“
segir Haraldur. Boðað er til næsta samningafundar í dag.
Óþolandi að þurfa að beita neyðarúrræðum
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fulltrúar kennara og stjórnenda í
framhaldsskólum funduðu með
fulltrúum Sambands íslenskra
sveitarfélaga fram eftir kvöldi í
gær en Ólafur H. Sigurjónsson,
formaður Félags stjórnenda í fram-
haldsskólum, segir að viðræðunar
hafi eitthvað mjakast áfram.
„Okkur hefur unnist vel í dag.
Við erum að vinna í útfærslum
núna. Við eigum eftir að sjá betur
til lands með prósentur, annað er
langt komið,“ sagði Ólafur í gær-
kvöldi.
Samið til 2½ árs?
Aðalheiður Steingrímsdóttir, for-
maður samninganefndar Félags
framhaldsskólakennara, tekur und-
ir að viðræðum hafi miðað áfram.
Unnið hafi verið að samningstexta
sem hafi verið til umræðu á milli
aðila.
„Það er efnisleg vinna sem er í
sjálfu sér ágætt. Við erum hins
vegar ekki farin að sjá til lands
með kjarasamning. Það á ýmislegt
eftir að koma fram,“ segir hún.
Elna Katrín Jónsdóttir, fulltrúi í
samninganefnd FF, sagði í ávarpi í
verkfallsmiðstöð kennara í Fram-
heimilinu í gær að líklega yrði sam-
ið til tveggja og hálfs árs eins og
staðan væri núna.
Leiðrétting á launum væri for-
gangsatriði hjá samninganefndinni
og það „örlaði á skilningi mótaðil-
ans á að nauðsynlegt sé að horfast
í augu við þá staðreynd að launa-
skrið sé miklu minna innan fram-
haldsskólans en hjá öðrum stofn-
unum ríkisins“.
Aðalheiður staðfestir að verið sé
að ræða um samning til tveggja og
hálfs árs. Hún segist sannarlega
vona að það fari að sjást til lands í
kjaradeilunni.
„Við viljum ekki að þetta verði
langt verkfall,“ segir hún.
Samingsaðilar ætluðu að funda
aftur kl. 10 í dag.
Segir enn ekki sjást til lands
Nokkuð miðaði í kjaraviðræðum kennara og stjórnenda
framhaldsskólanna í gær Efnisleg vinna sögð í gangi
Morgunblaðið/Þórður
Viðræður Frá fundi deiluaðila í síð-
ustu viku. Viðræður þokast áfram.