Morgunblaðið - 25.03.2014, Side 6
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meiningin var að gerð yrðu jarð-
göng úr Siglufirði yfir í Fljót í
framhaldi af gerð Héðinsfjarðar-
ganga, að sögn Trausta Sveinsson-
ar, bónda á Bjarnargili í Fljótum.
Eins samþykktu Fljótamenn og
hagsmunaaðilar göng til Siglufjarð-
ar á fundi með Vegagerðinni sem
haldinn var í Ketilási á sínum tíma.
Hann sagði nauðsynlegt að fá þessi
göng, annars væri hætt við að
Fljótin færu í eyði.
Trausti barðist mikið fyrir því að
gerð yrðu göng úr Fljótum í Siglu-
fjörð og eins úr Fljótum í Ólafs-
fjörð. Með því yrði vegalengdin á
milli Ketiláss í Fljótum og Siglu-
fjarðar 10 km í stað 25 km nú.
Jarðgöng myndu leysa Siglu-
fjarðarveg um Almenninga af hólmi
og spara mikinn kostnað vegna
snjómoksturs og stöðugs viðhalds á
veginum vegna jarðsigs. Eins
myndu Siglfirðingar losna við þun-
gaumferð í gegnum bæinn. Trausti
vill að farið verði í gerð þessara
jarðganga í stað þess að setja mikla
fjármuni í lagfæringar á Siglufjarð-
arvegi sem sé óvíst að takist.
Trausti segir að Fljótamenn vilji
fá jarðgöng frá Hraunum í Fljótum
og yfir í Skarðsdal í Siglufirði. Þeim
hugnist ekki hugmynd Vegagerð-
arinnar um göng frá Nautadal í
Fljótum yfir í Hólsdal í Siglufirði.
„Okkar hugmynd er miklu skyn-
samlegri. Við viljum ekki fá jarð-
göng inn í dýrmætt útivistarsvæði í
Nautadal. Þar er margt hægt að
gera í framtíðinni,“ sagði Trausti.
„Það yrði líka betra fyrir Siglfirð-
inga að fá nýjan veg fyrir skíða-
svæðið í Skarðsdal og veg upp fyrir
skógræktina. Hólsdalurinn er dýr-
mætur að eiga hann óspilltan til
framtíðar sem útivistarsvæði.“
Trausti sagði að með göngum frá
Hraunum myndi núverandi þjóð-
vegur í Fljótum nýtast og bæirnir
út með Miklavatni verða í þjóðleið í
stað þess að einangrast verði göng
lögð úr Nautadal. „Þetta er mikið
hagsmunamál fyrir Fljótin,“ sagði
Trausti. „Við erum orðin mjög tæp
með búsetu og það verður eitthvað
að gera.“
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Skarðsdalur í Siglufirði Þar er einn nyrsti skógur á Íslandi og einnig skíðasvæði Siglfirðinga. Nú er nægur snjór.
Vill fá jarðgöng sem fyrst
milli Fljóta og Siglufjarðar
Jarðgöng myndu leysa af hólmi viðhaldsfrekan Siglufjarðarveg um Almenninga
Jarðgöng á Tröllaskaga
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Hraun
Skarðsdalur
Hólsdalur
M
iklavatn
Fljótavík
Hé
ðin
sfj
.
Ól
af
sfj
.
Ólafsfjarðargöng
Héðinsfjarðargöng
Hugmyndir um jarðgöng
Fljót-Siglufjörður
Nautadalur
Lá
gh
eið
i
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
898 einstaklingar leituðu til bráða-
móttöku geðsviðs Landspítalans á
fyrstu tveimur mánuðum ársins. Yfir
sama tímabil í fyrra kom 791 einstak-
lingur. Þetta er
um 13,5% aukn-
ing milli ára. Í
þessum hóp eru
ýmist einstakling-
ar sem hafa leitað
þangað áður og
aðrir sem eru að
koma í fyrsta
skipti.
Að meðaltali
sækja 15 einstak-
lingar bráðamót-
tökuna dag hvern. Hún er opin alla
virka daga frá kl. 12 til 19, um helgar
og aðra frídaga frá 13 til 17. Þegar
þessarar þjónustu nýtur ekki við þá
geta sjúklingar leitað til bráðamót-
tökunnar í Fossvogi. Kalla þarf til
geðlækni sem er á bakvakt til að
sinna sjúklingnum. Að meðaltali leita
einn til fjórir einstaklingar með geð-
sjúkdóm þangað á sólarhring.
„Við líðum fyrir húsnæðismál spít-
alans eins og aðrir,“ segir Halldóra
Ólafsdóttir, yfirlæknir geðlækninga
á Landspítalanum, spurð út í fyrir-
komulagið á afgreiðslutíma bráða-
þjónustunnar. Hún segist vilja sjá
alla bráðaþjónustu á einum stað þar
sem starfrækt yrði geðteymi sem
tæki á móti sjúklingum. Í teikningum
að nýjum spítala er slíkt í kortunum.
Hún segir núverandi húsnæði óör-
uggt í þeim skilningi að það henti
ekki til þess að hafa einn lækni á
bráðavakt á kvöldin. „Sjónarmið okk-
ar til öryggis hafa breyst,“ segir
Halldóra. Þá sé einnig óheppilegt að
þeir sjúklingar sem koma á bráða-
móttökuna innritast með göngudeild-
inni. Þá geti skapast meiri spenna en
þyrfti að vera.
Spurð hvort það hafi ekki slæm
áhrif á þá sjúklinga að fara á bráða-
móttökuna í Fossvoginum segist
Halldóra ekki geta svarað því en ef-
laust sé lengri bið þar. „Ég hef ekki
fundið fyrir öðru en sjúklingunum
sem leita í Fossvoginn sé vel sinnt,“
segir Halldóra. „Ég vona að minnsta
kosti að sjúklingar með geðraskanir
fái jafngóða þjónustu þar og aðrir.“
Afgreiðslutíminn var lengri á
bráðaþjónustunni fyrir hrun eða allt
til kl. 23 á virkum dögum. Eftir hrun
var hagræðing. Halldóra segir að eft-
ir endurskipulagningu hafi þjónustan
orðið faglegri þar sem nú eru fleiri
fagaðilar á staðnum á hefðbundnum
afgreiðslutíma en áður var og sér-
fræðingur á bundinni vakt alla virka
daga á meðan opið er. Opið er á þeim
tíma þegar langflestir koma.
„Ég er ánægð með þetta eins og
þetta er, miðað við húsakost. Ég held
að þjónustan sé betri svona en hún
var. Ég hef þó lengi viljað sjá starf-
andi geðteymi á almennri bráðaþjón-
ustu. Best væri að hafa eina bráða-
þjónustu fyrir allan spítalann.“
Fleiri á bráðamóttöku geðsviðs í ár
13,5% aukning á bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans á fyrstu tveimur mánuðum ársins miðað við
2013 en 15 einstaklingar koma þangað daglega Geðsvið líður fyrir húsnæðisskort, segir yfirlæknir
Halldóra
Ólafsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Fólk Fleiri komu á bráðamóttöku geðsviðs í janúar og febrúar á þessu ári.
Samninganefndum Sjómannafélags
Íslands og Samtaka atvinnulífsins
miðaði ekkert áfram á fundi hjá ríkis-
sáttasemjara í gær vegna kjaramála
undirmanna á Herjólfi. Næsti samn-
ingafundur hefur ekki verið boðaður,
yfirvinnubann stendur enn og boðað
verkfall er enn í gildi. Ólafur William
Hand, forstöðumaður kynningar og
markaðsdeildar Eimskips, segir
enga lausn í sjónmáli og málið enn í
hnút eftir samningafund gærdagsins.
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Íslands, segir að þrátt
fyrir langan fund sé ekki kominn
sáttatónn í menn, þó fundurinn í gær
hafi verið skárri en fyrri fundir. „Það
var allavega setið eitthvað yfir þessu
og farið vel yfir þetta allt saman, en
ég ætla ekkert að segja til um í hvaða
átt það er.“
Ósáttir Vestmannaeyingar
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, vonar að lausn
finnist sem fyrst en yfirvinnubannið
veldur íbúum töluverðum óþæg-
indum. „Þetta er tenging okkar við
þjóðveginn og auðvitað veldur það
okkur óþægindum þegar hún rofn-
ar,“ segir Elliði og bendir á að bær-
inn verði einnig af tekjum þar sem
útgerðir landi annars staðar meðan á
yfirvinnubanninu stendur. „Afurðir
komast ekki með góðu móti frá Eyj-
um og við verðum af hafnargjöldum.“
Ekkert
gengur að
semja
Yfirvinnubann á
Herjólfi er enn í gildi
Morgunblaðið/Ómar
Siglingar Herjólfur tengir þjóðveg-
inn til Vestmannaeyja.
Hugmynd um gerð jarðganga
milli Hólsdals í Siglufirði og
Nautadals í Fljótum var rædd
þegar á 6. áratug 20. aldar, áður
en ákveðið var að gera Stráka-
göng og veg um Almenninga.
Gert var ráð fyrir 4,7 km göng-
um og um 150 m vegskálum við
báða munna.
Leggja þyrfti um 3 km veg í
Siglufirði og 2 km veg í Fljótum
að gangamunnunum.
Gömul hug-
mynd um göng
HÓLSDALUR - NAUTADALUR
„Það er ekki viðunandi að það sé
læknir á bakvakt sem sinni fár-
veikum einstaklingum. Öðru máli
gegnir ef fólk t.d. handleggsbrýtur
sig, þá fær það læknisaðstoð sam-
stundis. Þeir sem glíma við geð-
sjúkdóma eiga rétt á sambærilegri
þjónustu. Ég hef heyrt á félags-
mönnum mínum að þeim þyki erf-
itt að leita á bráðmóttökuna í
Fossvogi vegna þess að biðtíminn
er langur,“ segir Hrannar Jónsson,
formaður Geðhjálpar.
Hann segir stjórnendur spítal-
ans ekki á sama
máli, vegna
þess að fyrir-
komulagið er
með þessum
hætti.
Þá bendir
Hrannar á að
fleiri vilja kom-
ast í innlögn en
raunverulega fá.
Það sé stórt vandamál sem ekki
er leyst og mikilvægt að finna var-
anlega lausn á því.
Langur biðtími á bráðamóttöku
FORMAÐUR GEÐHJÁLPAR
Hrannar Jónsson