Morgunblaðið - 25.03.2014, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Fyrsta ferming
vorsins var 22. mars
Á baksíðu Morgunblaðsins í gær,
þar sem greint var frá fermingu í
Grafarvogskirkju í fyrradag, sunnu-
daginn 23. mars, stóð að um fyrstu
fermingu vorsins hefði verið að
ræða.
Það er ekki rétt, því fyrsta ferm-
ing vorsins var daginn áður, laugar-
daginn 22. mars.
Þann daginn var t.d. fermt kl. 11 í
Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði og
fermdust þar 25 börn.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Síðir bolir
Verð 8.900
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Str. M-XXXL
Fleiri litir
Meyjarnar
Austurveri | Háaleitisbraut 68 | sími 553 3305
20% AFSLÁTTUR
ÚTSÖLUSLÁR KR.1.000 - 4.900
Vélar á verði
semgleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir,
bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur,
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um 1.500 manns, 70 ára og eldri,
hafa ekki sótt um ellilífeyri hjá
Tryggingastofnun þótt réttur til
greiðslna sé hugsanlega fyrir hendi.
Af því tilefni sendir Trygginga-
stofnun út bréf til landsmanna sem
eru eldri en 70 ára en hafa ekki sótt
um lífeyri til að vekja athygli þeirra
á mögulegum lífeyrisréttindum.
Miðast við 4,2 milljónir
Að sögn Þorgerðar Ragnarsdótt-
ur, framkvæmdastjóra samskipta-
sviðs hjá Tryggingastofnun, hafa all-
ir þeir sem eru orðnir 67 ára sem
hafa búið og starfað á Íslandi í tilskil-
inn tíma og eru með árstekjur undir
4.268.612 kr. rétt á ellilífeyri.
Séu tekjurnar hins vegar hærri,
vegna fjármagnstekna eða annarra
tekna, fellur rétturinn hins vegar
niður. Til að fá greiðslur þarf að
sækja um og skila tekjuáætlun.
Þorgerður vekur athygli á breyt-
ingum á lögum um almannatrygg-
ingar nr. 100/2007 sem samþykktar
voru á Alþingi 4. júlí 2013 en sam-
kvæmt þeim munu lífeyrissjóðs-
tekjur ekki lengur hafa áhrif á
grunnlífeyri almannatrygginga.
„Fólk sem átti ekki rétt á grunnlíf-
eyri fyrir breytinguna áttar sig e.t.v.
ekki á því að það getur átt það núna,
t.d. fólk með háar lífeyristekjur.“
Hækkar um 0,5% á mánuði
Þorgerður bendir jafnframt á að
hægt sé að fresta umsókn um lífeyri.
Við það hækki lífeyrir, tekjutrygg-
ing og heimilisuppbót um 0,5% fyrir
hvern mánuð sem frestað er í allt að
fimm ár, eða til 72 ára aldurs.
Hún bendir á að þótt réttur til líf-
eyris sé ekki fyrir hendi við 67 ára
aldur sé mikilvægt að fylgjast með
þróun tekna því réttindi geti skapast
þegar tekjur lækka.
Gætu átt rétt á lífeyri
Tryggingastofnun sendir nú bréf til um 1.500 einstaklinga
Fólkið er 70 ára og eldra Margir vita e.t.v. ekki rétt sinn
Morgunblaðið/Ómar
Á göngu Eldri borgarar eru hvattir
til að huga að réttindum sínum.
Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð tapa fylgi í
Reykjavík en Samfylkingin bætir við sig samkvæmt
könnun Gallup fyrir RÚV.
Samkvæmt könnuninni eykur Samfylkingin fylgi
sitt um sex prósentustig frá síðustu könnun sem gerð
var fyrir mánuði og mælist nú með 23,6%. Sjálfstæðis-
flokkur og Björt framtíð tapa hins vegar fimm pró-
sentustigum hvor flokkur. Sjálfstæðismenn njóta
23,6% stuðnings en Björt framtíð 22,7%.
Flokkarnir þrír fengju fjóra borgarfulltrúa hver yrði þetta niðurstaða
borgarstjórnarkosninganna í vor. Samfylkingin bætir þar við sig einum
manni en hinir flokkarnir tapa einum frá síðustu könnun.
Píratar bæta við sig fylgi og fengju tvo borgarfulltrúa. Stuðningur við
flokkinn mælist nú 13,6%. VG fengi áfram einn borgarfulltrúa en Dögun og
Framsóknarflokkurinn engan.
Samfylking með byr í seglum í borginni
samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup mbl.is