Morgunblaðið - 25.03.2014, Qupperneq 11
Ljósmyndir/Daníel Rúnarsson
Sól Fátt er meira afslappandi en róleg æfing í guðsgrænni náttúrunni þegar sólin skín yfir sumarmánuðina.
hreyfngar. „Með samhæfingu hugar,
hreyfingar og öndunar kemst á jafn-
vægi í líkamanum og heilsan batn-
ar,“ segir Qing en meðal námskeiða
hjá henni í Heilsudrekanum eru
hugrænar teygjugæfingar og leik-
fimi á borð við tai chi og qi-gong.
„Tai chi einkennist af afslöppuðum
og mjúkum hreyfingum sem þjálfa í
senn líkama og huga. Æfingarnar
hafa góð áhrif á miðtaugakerfið,
öndun, meltingu, svefn og styrkja
hjartað. Fólk á öllum aldri getur
stundað tai chi og það er aldrei of
seint að byrja.“
Æfing fyrir hvert
og eitt líffæri
Fæstir Íslendingar hugsa um
æfingu fyrir hvert og eitt líffæri. Öll
erum við vön hugmyndinni um að
þjálfa einstaka vöðva en líffæra-
æfingar eru okkur framandi.
„Heilsu-qi-gong er yfir fimm þúsund
ára gamalt æfingakerfi sem er í
stöðugri þróun. Þar fer saman qi,
sem merkir „lífskraftur“ og gong
sem merkir „nákvæmar æfingar“. Í
qi-gong er ákveðin æfing gerð fyrir
hvert og eitt líffæri,“ segir Qing og
bætir við að tilgangur kínversks
heilsu-qi-gong sé einfaldur og án
öfga. „Þetta er jafnvægi fyrir sálina
og líkamann. Í því liggur markmið
æfinganna. Þú leggur meira inn en
þú tekur út og átt varasjóð þegar þú
þarft að taka út. Bankinn á ekkert í
þessum sjóði, hann er algjörlega
þinn. Þetta er þitt hreyfiafl.“
Aldur og form ekki fyrirstaða
„Námskeiðin okkar eru fyrir
börn frá fjögurra ára aldri og upp
úr. Við erum með krakkahópa, ung-
lingahópa og fullorðinshópa. Hægt
er að fara í bæði einka- og hópatíma.
Þeir sem eru í slæmu formi eða
glíma við einhverja líkamlega kvilla
eiga sérstaklega að koma til okkar
en mestu skiptir að fólk taki fyrsta
skrefið að betra líferni og prófi sig
áfram með rólegum æfingum,“ segir
Qing en hún er í samstarfi við kín-
verskan íþróttaháskóla og hefur
fengið til sín kínverska gestakenn-
ara. „Einnig erum við í samstarfi við
íþróttafélagið Drekann og kepp-
endur frá Drekanum hafa náð mjög
góðum árangri í keppnum í kungfú
og heilsu-qi-gong á erlendum vett-
vangi.“
Æfingar Allir geta stundað æfingakerfin sem Dong Qing Guan kennir og
skiptir aldur þar engu máli enda mjúkar og flæðandi hreyfingar.
Heilsu-qi-gong er yfir
fimm þúsund ára gamalt
æfingakerfi sem er í
stöðugri þróun. Þar fer
saman qi, sem merkir
„lífskraftur“ og gong
sem merkir „nákvæmar
æfingar“.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Fyrirtækið Hundahólmi mun á
morgun kynna nýjan gleraugnaklút
sem skartar teikningunni „Sexy Dad
#1796“ . Teikningin er hluti af loka-
verkefni sem Karin Kurzmeyer og
Piret Uustal gerðu þegar þær voru
við Listaháskóla Íslands árið 2012
og kölluðu Very serious pictures
from Iceland. Verkefni þeirra sam-
anstóð af sextán myndum sem sýndu
íslensku þjóðarsálina á spaugilegan
hátt. „Við keyptum birtingarrétt á
myndunum og starf Hundahólma
hófst á útgáfu póstkorta með nokkr-
um myndanna. Nokkrar eru núna
líka fáanlegar á klútum og bolum en
þær eru allar birtar í kverinu Stra-
ight Stuff to go with Very serious
pictures from Iceland,“ segir Hildur
Petersen, ein af stofnendum Hunda-
hólma.
„Sexy Dad #1796“ hefur hingað
til aðeins verið í þessu kveri en verð-
ur nú hluti af vörulínunni Iceland
seen through foreign
eyes, en Hundahólmi hlaut hvatn-
ingarverðlaun The Reykjavík
Grapevine fyrir þá línu nú á
dögunum. Gleraugnaklúturinn
verður sýndur í Norræna Húsinu á
morgun á viðburði á vegum Fjöl-
breytu, félags kvenna í atvinnu-
rekstri og Hönnunarmars. Þar
munu konur koma saman og sýna
hönnun frá klukkan 16-19. Hægt
verður að nálgast klútinn í Iðu sem
er við Lækjargötu á Hönnunarmars.
Hundahólmi kynnir nýja vöru í Norræna húsinu á morgun
Barnavagninn Kynþokkafulli pabb-
inn sem verður á gleraugnaklút.
Kynþokkafullir feður á
gleraugnaklúta
Í kvöld klukkan 20 stendur Sögu-
félag Árnesinga fyrir fræðslufundi í
gestastofunni á Hakinu sem er við
útsýnisskífuna þar sem gengið er
niður í Almannagjá á Þingvöllum. Er-
indið flytur Torfi Stefán Jónsson,
sagnfræðingur, og nefnir hann það
„Friðun Þingvalla“. Allir sem áhuga
hafa eru velkomnir og er aðgangur
ókeypis. Í erindi sínu ræðir Torfi um
efni BA-ritgerðar sinnar sem fjallaði
um aðdragandann að friðun Þing-
valla og hvernig menn komust að
þeirri niðurstöðu að taka land undan
ræktun og nýtingu landbúnaðar yfir í
friðun svæðis sem eingöngu mátti
horfa á. Að sögn Torfa var hug-
myndin um friðun eða stofnun þjóð-
garðs á Þingvöllum enn einn angi á
leið Íslands til nútímans. Á sama
tíma var byrjað að huga að virkjun
vatnsaflsins, lagningu drykkjarvatns
til þéttbýlis, uppbyggingu á dreifi-
kerfi síma og fleira mætti telja. Nú
þykir næsta sjálfsagt að Þingvellir
séu þjóðgarður en umræðan var
löng, ströng og á margan hátt ekki
ólík þeirri sem er í dag.
Hvaða áhrif hafði friðun þjóðgarðsins?
Friðun Þingvalla leið til nútímans
Ljósmynd/Mats Wibe Lund
Þjóðgarður Séð norður yfir þjóðgarðinn á Þingvöllum á fallegum sumardegi.