Morgunblaðið - 25.03.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Skráning í síma 560 1010 eða
á mottaka@heilsuborg.is
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is
JógaJógaJóga!
Vekjum upp líkamsvitundina
og uppskerum betri
líkamsstöðu, aukinn styrk
og betra jafnvægi til að takast
á við daglegt amstur.
Hefst 1. apríl
Þri. og fim. kl. 12:00-13:00
Kennari: Gyða Dís
Verð kr. 13.900.-
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Dómstóll í héraðinu Minja í Egypta-
landi dæmdi í gær til dauða 529
stuðningsmenn Mohameds Morsis,
sem sviptur var embætti forseta 3.
júlí í fyrra eftir ár í embætti. Réttar-
höldin hófust á laugardag og hafði
rétturinn aðeins komið saman tvisv-
ar þegar dómur féll.
Dómurinn á sér ekki fordæmi í
landinu og segja sérfræðingar líklegt
að honum verði hnekkt við áfrýjun.
Réttarhöldin eru hluti af herferð
gegn stuðningsmönnum Morsis.
Þúsundir þeirra hafa verið hand-
teknir og margir dregnir fyrir dóm.
Stuðningsmennirnir voru dæmdir
till dauða fyrir morð. Af hinum
dæmdu eru 153 í haldi. Hinir voru
dæmdir að sér fjarverandi og hefur
ýmist verið sleppt úr fangelsi, ganga
lausir gegn tryggingu eða eru í fel-
um.
Dómarnir hafa ekki öðlast gildi.
Þeim var vísað til múftans, sérfræð-
ings stjórnvalda og aðstoðarmanns
dómstóla um lögmál kóransins og
túlkun þeirra. Hingað til hefur hann
staðfest dauðadóma, að því er kemur
fram í fréttaskeyti frá AFP. Hægt er
að áfrýja til æðsta dómstóls landsins.
Mohamed Tousson, enn verjenda
hinna ákærðu, sagði að dómarinn
hefði keyrt dómsuppkvaðninguna í
gegn með offorsi vegna þess að hann
hefði reiðst kröfu annars verjanda
um að hann viki.
„Hann fullvissaði sig ekki einu
sinni um að þeir hinna ákærðu, sem
eru í haldi væru viðstaddir, fór að-
eins að hinum 51. úr hópi þeirra,“
sagði Tousson. „Einn lögmannanna
krafðist þess þá að hann viki. Hann
varð mjög reiður og frestaði rétti
fram að dómsuppkvaðningu.“
Í dag eiga að hefjast réttarhöld í
Minja yfir 700 manns til viðbótar fyr-
ir svipaðar sakir. Meðal hinna
ákærðu þar er Mohamed Badie,
æðsti trúarleiðsögu maður samtaka
Morsis, Bræðralags múslima.
Hinum ákærðu í báðum málum er
gefið að sök að hafa myrt lögreglu-
stjóra og reynt að myrða tvo til við-
bótar í mótmælum eftir að Morsi var
steypt.
529 stuðningsmenn Mohameds
Morsis dæmdir til dauða
Dómarinn sagður hafa keyrt úr-
skurð í gegn Verður líklega hnekkt
AFP
Sorg Ættingi eins þeirra, sem í gær voru dæmdir til dauða fyrir morð í
Minja, borg í samnefndu héraði í Egyptalandi, þerrar tár.
Malasíska flug-
félagið Malaysian
Airlines sagði að-
standendum
þeirra, sem voru
um borð í farþega-
vélinni, sem hvarf
8. mars, að gera
yrði ráð fyrir að
hún hefði farið í
sjóinn sunnarlega
í Indlandshafi og
vísaði til nýrrar greiningar gagna úr
gervihnöttum.
„Við vitum að engin orð, sem við
eða nokkur annar segir, geta linað
þjáningu ykkar,“ sagði í yfirlýsingu
frá flugfélaginu. „Við munum halda
áfram að veita ykkur aðstoð og
stuðning.“ Einnig kom fram að leit
yrði haldið áfram að vélinni og rann-
sókn á afdrifum hennar.
Forsætisráðherra Malasíu, Najib
Razak, sagði á blaðamannafundi í
gær að það tæki sig sárt að tilkynna
að „samkvæmt þessum nýju upplýs-
ingum endaði flug MH370 í suður-
hluta Indlandshafs“.
Hin nýja greining er frá gervi-
hnattafyrirtækinu Inmarsat, sem
nam síðustu rafrænu merki vélar-
innar.
Telja víst
að vélin
hafi hrapað
Najib Razak á
blaðamannafundi.
Ný greining gervi-
hnattaupplýsinga
Bandaríkjamenn lýstu í gær yfir
áhyggjum af liðsflutningum rúss-
neska hersins við landamæri Úkra-
ínu og sögðust hafa áhyggjur af því
að staðan gæti versnað. Fréttastofan
AFP hafði eftir bandarískum herfor-
ingja í gær að Rússar söfnuðu áfram
liði við úkraínsku landamærin.
Úkraínustjórn kallaði í gær her
sinn burt frá Krímskaga. Rússar
réðust í gær til uppgöngu í eitt síð-
asta úkraínska herskipið, sem þeir
höfðu ekki náð á sitt vald, og á
laugardag tóku þeir stöð flughersins
skammt frá Simferopol.
Liðsflutning-
ar vekja ugg
Mikið uppnám er í röðum franskra
sósíalista eftir að þeir guldu afhroð í
fyrri umferð sveitarstjórnarkosning-
anna í Frakklandi um helgina. Litið
er á úrslitin sem áfall fyrir François
Hollande forseta.
Hægri miðflokkurinn UMP fékk
47% atkvæða og Sósíalistaflokkur-
inn og bandamenn hans 38%. Mesta
athygli vakti fylgi Þjóðfylkingarinn-
ar, sem rekur andóf gegn Evrópu-
sambandinu og vill stemma stigu við
innflytjendum. Flokknum var spáð
0,9% fylgi, en hann fékk 5%. Jean-
Marie Le Pen stofnaði flokkinn og
dóttir hans, Marine, leiðir hann nú.
Lítil kosningaþátttaka, 38,72%,
þykir einnig áfellisdómur yfir ráða-
mönnum.
„François Hollande verður að
draga lærdóm af kosningaúrslitum,
sem greinilega var beint gegn hon-
um,“ sagði í vinstra blaðinu Libera-
tion. Niðurstaðan væri löðrungur í
andlit honum. Vinstri menn mynd-
uðu í gær kosningabandalag.
AFP
Sigurreifur Florian Filippot, einn af frambjóðendum Þjóðfylkingarinnar,
kemur til fundar í gær. Flokknum vegnaði margfalt betur en spáð var.
Franskir vinstri
menn í uppnámi
Egypsk yfirvöld hafa gengið hart
fram gegn Bræðralagi múslíma
eftir að Mohamed Morsi var steypt
af stóli. Þúsundir manna hafa ver-
ið handteknar og þar á meðal eru
nánast allir pólitískir forustumenn
þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá
mannréttindasamtökunum Am-
nesty International hafa 1.400
manns látið lífið þegar öryggis-
sveitir hafa látið til skarar skríða
gegn mótmæl-
endum úr röð-
um Bræðralags-
ins. Réttað er
yfir Morsi í
þremur málum,
meðal annars
fyrir að hvetja
til morðs mót-
mælenda fyrir
utan forsetahöllina þegar hann var
við völd.
1.400 manns hafa látið lífið
AÐFÖR AÐ BRÆÐRALAGI MÚSLÍMA
Mohamed Morsi