Morgunblaðið - 25.03.2014, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
✝ Einar Þór Ein-arsson fæddist
29. mars 1962.
Hans lést á líknar-
deild Landspítal-
ans í Kópavogi 13.
mars 2014.
Einar Þór var
sonur hjónanna
Einars Halldórs
Gústafssonar
brunavarðar, f.
6.2. 1938, og Sól-
veigar Maríu Gunnlaugsdóttur
húsmóður, f. 29.9. 1939. Systur
Einars Þórs eru tvær; Sigríður
Einarsdóttir flugstjóri, f. 17.2.
1958, börn hennar eru Sóley
María og Einar Páll, og Sigur-
rós Einarsdóttir þjónustu-
fulltrúi, f. 20.10. 1960, eigin-
maður hennar er Smári
Hauksson múrarameistari, f.
22.3. 1961 og dætur þeirra eru
Lilja og Linda.
Dóttir Einars Þórs og Theo-
dóru Stellu Hafsteinsdóttur er
Steinunn tuttugu hamingjurík
ár. Fyrstu fjögur árin ólst Ein-
ar Þór upp á Bjarnarstíg 11 en
flutti þaðan árið 1966 á
Kleppsveg 140 og síðar í Blá-
skóga 13. Hann stundaði
grunnskólanám í Langholts-
skóla og síðan húsasmíðanám
við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti. Árið 1984 hóf Einar Þór
störf sem slökkviliðsmaður hjá
Slökkviliði Reykjavíkur og
starfaði þar til ársins 1991
þegar hann réð sig til Stöðvar
2, nú 365 miðla. Þar starfaði
Einar Þór sem útsendinga-
stjóri í 23 ár eða þar til hann
lést.
Einar Þór hafði yndi af
fjalla- og veiðiferðum og átti
fjölskyldan saman ófáar úti-
legurnar vítt og breitt um
landið. Einar Þór var einnig
formaður í Félagi sumarhúsa-
eiganda að Minna-Mosfelli þar
sem þau hjónin voru að reisa
sér sumarhús.
Einar Þór, Steinunn og syn-
ir hafa átt heimili í Melgerði
19 á Kársnesinu í Kópavogi
síðan 1995.
Útför Einars Þórs fer fram í
Bústaðakirkju í dag, 25. mars
2014, kl. 15.
Ágústa Ósk, f.
21.7. 1982, sam-
býlismaður henn-
ar er Einar Hró-
bjartur Jónsson, f.
16.8. 1980, saman
eiga þau börnin
Ásgeir Atla, f.
11.1. 2010, og
Karenu Örnu,
16.11. 2012.
Einar Þór var
kvæntur Stein-
unni Þórhallsdóttur, f. 16.10.
1966, dóttur hjónanna Þór-
halls Halldórssonar, f. 21.10.
1918, og Sigrúnar Sturludótt-
ur, f. 18.4. 1929. Steinunn hóf
störf á auglýsingadeild Bylgj-
unnar árið 1988 og starfar
enn við auglýsingar hjá 365
miðlum. Synir þeirra eru
Steinar Þór, f. 20.10. 1997,
nemandi í Menntaskólanum í
Kópavogi, og Fannar Þór, f.
20.4. 2000, nemandi í Kárs-
nesskóla. Saman áttu þau
Elsku pabbi. Ég er ennþá að
reyna að átta mig á því að þú sért
farinn. Þetta sýnir manni hvað
maður er lítill og hefur litla stjórn
í þessum heimi. Ég get þó huggað
mig við að þú ert á góðum stað,
kominn með allan þinn fyrri styrk
og ert örugglega farinn að laga og
breyta einhverju þarna uppi.
Þrátt fyrir að hafa ekki verið
mikið hjá þér sem krakki á ég
fullt af yndislegum minningum
sem ég mun varðveita og segja
börnunum mínum frá. Sjúkrabíla-
og slökkvistöðvarminningar,
Frostafoldin á röndótta gorma-
beddanum, vikuferðalagið okkar
sem endaði með afmælisveislu
með allri familíunni og margar
fleiri yndislegar minningar. Ég
man ennþá svo vel eftir deginum
þegar þú kynntir mig fyrir nýju
kærustunni. Ég féll strax fyrir
henni. Enda ekki annað hægt. Þú
hafðir náð þér í gullmola af
stærstu gerð, hana Steinu þína.
Þið voruð sköpuð hvort fyrir ann-
að. Það var líka svo gaman að
fylgjast með þér með strákunum.
Þið voruð svo miklir vinir. Þú
lagðir þig sko fram við að vera
góður pabbi og mér sárnar að
hugsa til þess að fá ekki að sjá þig
meira í afahlutverkinu. Því þar
stóðstu þig sko líka vel. Ásgeir
Atli elskaði að koma og fá að leika
í ævintýragarðinum í Melgerði og
þú varst ekki lengi að laga og
græja hjólin og allt það dót sem
prinsinn vildi leika með. Þú varst
líka alltaf duglegur að hjálpa þín-
um og fengum við Einar svo sann-
arlega að njóta góðs af því þegar
við fluttum suður. Það þurfti „að-
eins“ að negla og saga í íbúðinni
okkar og þú varst ekki lengi að
bjóða fram aðstoð þína. Gerðir og
græjaðir eldhús og glugga á með-
an við fjölskyldan vorum ennþá
fyrir austan.
Mér fannst samband okkar
styrkjast með hverju ári. Við
ákváðum í sameiningu að í hvert
skipti sem við hugsuðum hvort
um annað tækjum við upp símann
og hringdum, þótt það væri ekki
nema til að segja hæ. Við vorum
þó misgóð að heyra í símanum,
tek það á mig.
Síðasta vikan í lífi þínu var erf-
ið en mér þótti einstaklega vænt
um að geta verið svona mikið hjá
þér.
Minningar um góðan mann,
yndislegan pabba og frábæran afa
lifa áfram.
Hvíldu í friði elsku pabbi.
Þín dóttir,
Ágústa Ósk.
Elsku bróðir margar góðar
minningar á ég um þig, ótal marg-
ar hafa komið upp í huga mér und-
anfarna daga, því við höfum ým-
islegt skemmtilegt brallað saman
um ævina..
Þú varst ekki hár í loftinu þeg-
ar ég dró þig út í alls konar vit-
leysu eins og þegar við bjuggum á
Bjarnastígnum þá vöknuðum við á
undan foreldrum okkar og lædd-
umst fram í eldhús og fórum að
hræra saman hveiti og sykur á
eldhúsgólfinu þú 1 og hálfs árs og
ég 3ja ára. Þetta gerðum við
nokkrum sinnum eða þangað til
krækja var sett á hurðina, þú
varst mjög rólegt barn en alltaf
tilbúinn að elta mig í því sem mér
datt í hug.
Þegar við fluttum svo á Klepps-
veginn þá kynntist þú Hákoni sem
bjó á hæðinni fyrir neðan okkur
og urðuð þið strax miklir mátar og
hélst þessi góði vinskapur þar til
Hákon lést þann 25.mars fyrir ná-
kvæmlega 9 árum síðan. Á
Kleppsveginum voru margir
krakkar og gaman að alast þar
upp, skipsskrokkarnir í fjörunni
heilluðu okkur mikið og vorum við
oft að kanna þá með tilheyrandi
hættum, einnig heillaði Viðey sem
við sáum út um gluggann á íbúð-
inni okkar og fórum við oft þangað
með nesti. Ég sé þig ljóslifandi
fyrir mér á hjólinu þínu í allri
drullunni í kringum blokkina, því í
nýbyggðu hverfi var allt ófrá-
gengið, þar varst þú í essinu þínu,
búinn að búa til langa hjólastíga
sem þið vinirnir hjóluðu eftir, svo
fékkst þú nýtt hjól frá Ameríku og
þá varst þú lang flottastur.
Í nokkur ár tókuð þú og fleiri
strákar að ykkur að safna í ára-
mótabrennu það var ykkur mikið
kappsmál að hafa hana sem
stærsta og hæg voru heimatökin
því pabbi var að vinna á sendibíla-
stöð og losað allt ruslið sem átti að
fara á haugana á brennuna, mikill
tími fór líka í að passa að ekki væri
kveikt í brennunni fyrir áramótin.
Á unglinsárunum man ég vel
eftir þér á skellinöðrunni þinni
sem þú þeystir á um hverfið, þetta
hjólaáhugamál endurvaktir þú
fyrir nokkrum árum með sonum
þínum þegar þið fenguð ykkur all-
ir motokrosshjól.
Þegar við Smári fórum að búa
tengdust þið fljótt góðum vináttu-
böndum því þið áttuð sameigin-
legt áhugamál báðir með mikla
bíladellu, vinskapur ykkar hefur
alltaf verið mikill, það voru ekki
svo ófá símtölin sem þið áttu við
hvern annan þegar þið þurftuð að
skiptast á skoðunum um þessi mál
og fleiri, eins og silungsveiði eða
stjórnmál, þið voruð oft eins og
verstu kjaftakerlingar.
Elsku bróðir þú varst svo dug-
legur í baráttu þinni við þennan
illvíga sjúkdóm og sýndir mikið
æðruleysi þegar þú fékkst þær
fréttir aftur og aftur að krabba-
meinið væri komið á nýja staði .
Þetta var búinn að vera langur og
strangur tími fyrir þig, Steinunni
og börnin þín, og foreldra okkar
sem tóku það mjög nærri sér að
horfa á drenginn sinn svona veik-
an, en þú varst orðinn svo þreytt-
ur undir lokin að þú gast einfald-
lega ekki meir. Elsku bróðir takk
fyrir allar skemmtilegu stundirn-
ar sem við áttum saman, ég veit að
þú ert komin til Hákons æskuvin-
ar þíns og þið hafið það gott í
Sumarlandinu.
Þín systir.
Sigurrós(Rósa).
Elskulegur bróðir minn er fall-
inn frá, langt um aldur fram, eftir
hetjulega baráttu við illvígan
sjúkdóm. Í veikindum sínum
sýndi hann mikið æðruleysi og
hugrekki við að prófa ýmsar
óhefðbundnar leiðir samfara hefð-
bundnum til að reyna að sigrast á
veikindum sínum. Um tíma urðu
jákvæð umskipti þegar æxlin
höfðu minnkað og vonin um bata
jókst til muna. En skyndilega
ágerðust veikindin og tóku yfir.
Við systkinin ólumst upp við
sundin blá þar sem mikið var um
nýbyggingar á 7. áratugnum.
Leikvöllurinn var blokkir í bygg-
ingu, Kleppstúnið og fjaran þar
fyrir neðan með tveimur skips-
flökum. Það má teljast heppni að
krakkaskarinn skyldi komast svo
til óslasaður í gegnum æskuárin
með allar þessar nýbyggingar
óvarðar. Minnisstætt er mér þeg-
ar ég var að vega salt á móti bróð-
ur mínum á einhverjum planka og
hann datt af. Hann fékk ryðgaðan
nagla í lófann og stóra systir
þurfti að draga naglann út til að
losa hann frá spýtunni. Við kom-
um bæði grátandi heim þannig að
móðir okkar vissi ekki í fyrstu
hvort okkar hafði slasast.
Einar Þór óx úr grasi, æfði fót-
bolta með Þrótti og nam húsa-
smíði. Bróðir minn var handlaginn
og hjálpsamur vinum og fjöl-
skyldu. Mér er það minnisstætt að
þegar ég fluttist að heiman og
vantaði rúm fannst honum það lít-
ið mál að smíða rúm fyrir systur.
Það voru eiginlega forréttindi að
eiga bróður sem var smiður og
hægt var að leita til með ýmis
vandamál.
Eftir nokkur ár í húsasmíði lá
leiðin inn fyrir dyr Slökkvistöðvar
Reykjavíkur þar sem hann vann
sem brunavörður í nokkur ár áður
en hann var ráðinn til Stöðvar 2
þar sem hann vann sem útsend-
ingarstjóri í rúm 20 ár og eign-
aðist marga góða starfsfélaga og
vini.
Stuttu eftir að Einar Þór hóf
störf á Stöð 2 kynntist hann ást-
inni sinni, Steinunni Þórhallsdótt-
ur, sem vann á Bylgjunni. Þau
eignuðust tvo syni, Steinar Þór og
Fannar Þór, en fyrir átti hann
dótturina Ágústu Ósk. Þau
bjuggu sér heimili í Melgerði 19
þar sem þau lögðu mikla vinnu í
endurbætur og gerðu að fallegu
og hlýlegu heimili. Þau nutu þess
að ferðast um landið og var ferð í
Veiðivötnin árlegur viðburður.
Þau áttu sér þann draum að smíða
sér sumarbústað á landi sínu við
Minna-Mosfell. Um Jónsmessuna
í fyrra, þegar bróðir minn greind-
ist með krabbamein, var allt bygg-
ingarefni í bústaðinn tilbúið til af-
hendingar. Af veikum mætti
reyndi bróðir minn að hefja bygg-
ingu bústaðarins. Vinir og ætt-
ingjar brugðust skjótt við og tóku
saman höndum við að reisa bú-
staðinn með þeim til að láta draum
þeirra rætast. Bróður mínum
fannst mikilvægt að hafa þetta
gæluverkefni til að vinna að í veik-
indum sínum og verður seint full-
þökkuð öll sú aðstoð sem bróðir
minn og mágkona fengu.
Elsku foreldrar, Steina, Stein-
ar Þór, Fannar Þór og Ágústa
Ósk, megi guð og englarnir vera
með ykkur. Missir ykkar er mikill.
Góðar minningar um góðan son,
eiginmann og föður munu lifa að
eilífu.
Elsku bróðir, hvíl í friði. Takk
fyrir allt.
Sigríður Einarsdóttir.
Nú er veikindastríði Einars
Þórs mágs míns lokið eftir níu
mánaða þrotlausa baráttu við
krabbameinið.
Hinn 13. júní í fyrra greindist
Einar Þór fyrst með krabbamein
sem lagði hann svo að velli hinn
13. mars síðastliðinn. Þetta var
mikil þraut fyrir hann og fjöl-
skyldu hans. Steina systir var
hans ómetanlega, trausta stoð og
stytta og einbeitt blés hún voninni
í fjölskyldu og vini, allt fram til
síðasta dags.
Nú tekur við nýr kafli í lífi
hennar og fjölskyldunnar. Stórir
atburðir eru framundan þar sem
yngsti sonurinn, Fannar Þór,
verður fermdur hinn 13. apríl
næstkomandi og það styttist í bíl-
prófið hjá þeim eldri, Steinari Þór.
Drengirnir þeirra Einar Þórs og
Steinu eru einstakir og afar vel
gerðir og eiga bestu mömmu í
heimi sem er vakin og sofin yfir
framtíð þeirra. Við fjölskyldan
munum öll leggja okkur fram um
að vera einnig til staðar fyrir þau.
Einar Þór og Steina voru frá
því þau kynntust fyrst fyrir tutt-
ugu árum miklir vinir. Á heimili
þeirra hjóna á Kársnesinu nostr-
aði Einar Þór öllum stundum við
húsið og garðinn enda þúsund-
þjalasmiður. Ófáar voru ferðir
fjölskyldunnar í útilegurnar þar
sem þau drifu sig oft með litlum
fyrirvara út í náttúruna, fyrst í
fellihýsinu og síðar í sérútbúnu
húsbílunum sem Einar Þór inn-
réttaði enda afar verklaginn og
laghentur. Einnig voru veiðiferð-
irnar sem Einar Þór og Steina
fóru með vinum sínum í Veiðivötn
fastur punktur á hverju ári og
mikill spenningur fylgdi þeim.
Fyrir nokkrum árum festu þau
hjónin svo kaup á landi á Minna-
Mosfelli í Grímsnesi þar sem
draumurinn var að byggja nota-
lega sumarhúsið. Fyrir ári fjár-
festu þau í gestahúsi sem átti að
rísa sem fyrsta skref að mun
stærra framtíðartakmarki. Þar
var Einar Þór í essinu sínu sem
formaður á sumarhúsasvæðinu og
lét til sín taka í öllum framkvæmd-
um og skipulagi.
Við fjölskyldan vottum elsku
Steinu, Fannari Þór, Steinari Þór
og Ágústu Ósk okkar dýpstu sam-
úð og treystum því að þið leitið til
okkar! Megi minningin um Einar
Þór lifa með okkur öllum.
Auður Þórhallsdóttir.
Einar Þór
EinarssonKær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SNORRI ÞORLEIFSSON,
Hörðalandi 18,
Reykjavík,
lést föstudaginn 21. mars.
Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 28. mars kl. 11.00.
Arndís Jónsdóttir, Arnaldur Valgarðsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurgeir Steingrímsson,
Sigrún Jónsdóttir, Stefán Magnússon,
Björk Jónsdóttir, Kjartan Jóhannsson,
Sturla Þór Jónsson,
Einar Örn Jónsson, Birna Ósk Hansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jóhanna Jónsdóttir, Bo Hedegaard Knudsen,
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GEIR ÞORSTEINSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hring-
braut föstudaginn 21. mars.
Eygerður Bjarnadóttir,
Þorsteinn Geirsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Örn Geirsson, Steinunn Hreinsdóttir,
Kristín Sigríður Geirsdóttir, Ársæll Þorleifsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
BIRNA GUÐMUNDSDÓTTIR
þroskaþjálfi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn 18. mars.
Útför fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtu-
daginn 27. mars kl. 13.00.
Eyjólfur Óskar Eyjólfsson,
Sigurveig Stella Eyjólfsdóttir, Andreas Christian Færseth,
Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson,
Sigurbjörg Eyjólfsdóttir, Kjartan Hrafn Matthíasson
og barnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÞYRI RAGNHEIÐUR
SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Sigtúni 31,
Patreksfirði,
lést fimmtudaginn 13. mars.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 28. mars kl. 13.30.
Helena Björk Gunnarsdóttir, Bjarni Jóhannesson,
Gunnar Örn Gunnarsson, Linda Björk Gísladóttir,
Brynjólfur Gunnarsson, Anna Birna Sæmundsdóttir,
ömmubörn og langömmubarn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
SVAVA HÖGNADÓTTIR
frá Syðra-Fjalli,
Hraunbæ 36,
lést föstudaginn 14. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Helga Friðriksdóttir,
Hrefna Kristín Hannesdóttir, Arnar Andrésson
Þorkell Gunnarsson, Jórunn Ingibjörg Kjartansdóttir,
Ólöf Högnadóttir,
Eysteinn Hreinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.