Morgunblaðið - 25.03.2014, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
✝ Björg Ingvars-dóttir fæddist
31. maí 1926 á
Smyrlabergi í
Torfalækjarhreppi.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 15. mars
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Ingvar
Stefán Pálsson,
bóndi á Balaskarði
í Laxárdal í Austur-Húnavatns-
sýslu, f. 1895, d. 1968 og Signý
Benediktsdóttir, húsfreyja, f.
1900, d. 1991. Systkini Bjargar
eru Ástmar, f. 1923, d. 1977,
Elsa, f. 1932, d. 2007 og Geir-
laug, f. 1932. Björg giftist 31.
maí 1958 Guðmundi Þ. Þor-
1989. 2) Benedikt Ástmar, f.
1960, eiginkona hans er Helena
Gunnarsdóttir, f. 1964 og börn
þeirra eru Gunnar, f. 1995 og
Signý, f. 1999. Sonur Benedikts
er Guðmundur Snorri, f. 1981
og sambýliskona hans er Santa
Pikalova, f. 1988. Dóttir Guð-
mundar Snorra er Amelía
Björg, f. 2008. Björg ólst upp á
Balaskarði, naut þeirrar
kennslu sem bauðst í farskóla í
sveit á þeim tíma en var síðar að
auki einn vetur í Kvennaskól-
anum á Blönduósi. Næstu ár var
hún iðulega á Balaskarði að
sumri en vann að vetri ýmis
störf í Reykjavík eða fór á vertíð
í Garði. Heimilishald og barna-
uppeldi hvíldi síðan á herðum
sjómannskonu drjúga tíð en eft-
ir að drengirnir komust á legg
vann Björg ýmis störf verka-
kvenna í Keflavík til starfsloka.
Útför Bjargar verður gerð
frá Keflavíkurkirkju í dag, 25.
mars 2014, og hefst athöfnin kl.
13.
valdssyni, stýri-
manni og skipstjóra
í Keflavík, f. 1926,
d. 2011. Foreldrar
hans voru Þorvald-
ur Ólafsson, f. 1883,
d. 1949 og Andrea
Guðnadóttir, hús-
freyja, f. 1892, d.
1962. Þau Björg og
Guðmundur hófu
búskap sinn árið
1958 í Lyngholti 17
í Keflavík, bjuggu þar í 50 ár en
síðan á Njarðarvöllum 6 í Njarð-
vík. Börn Bjargar og Guð-
mundar eru : 1) Andrés Ingvar,
f. 1957, eiginkona hans er Berg-
ljót Kristinsdóttir, f. 1962 og
börn þeirra eru Benedikt Reyn-
ir, f. 1987 og Andrea Björk, f.
Elskuleg tengdamóðir mín,
Björg Ingvarsdóttir, hefur kvatt
þennan heim. Margar og góðar
minningar fara um hugann þegar
ég horfi til baka og er mér efst í
huga innilegt þakklæti fyrir að
hafa átt hana að, þessa mætu
konu. Hún var af þeirri kynslóð
sem vann verk sín í hljóði og var
einstaklega hógvær en var í
hjarta sínu ávallt staðföst og með
sterkar skoðanir. Björgu var
margt til lista lagt og allt sem hún
tók sér fyrir hendur gerði hún
óaðfinnanlega. Björg var einstak-
lega fróð og vel lesin enda bóklest-
ur hennar mesta yndi. Hún var
stálminnug og kunni ógrynni
ljóða. Hún naut þess að vera innan
um fólk og það var alltaf gaman að
koma til hennar og ræða við hana
um lífið og tilveruna.
Nær alla sína búskapartíð
bjuggu Björg og Guðmundur í
Lyngholti 17. Á hæðinni fyrir neð-
an bjuggu Steinunn, Þórhallur og
börn þeirra og myndaðist mikill
vinskapur á milli þessara tveggja
fjölskyldna sem hélst alla tíð. Eft-
ir að tengdafaðir minn lést var
fjölskylda Steinunnar sérstaklega
dugleg að líta til Bjargar og erum
við þeim þakklát fyrir tryggðina,
slíkur vinskapur er ómetanlegur.
Nú síðustu ár bjuggu þær Stein-
unn á sömu hæð á Njarðarvöllum
og gaf það Björgu mikið. Þær hafa
nú báðar kvatt þennan heim með
hálfsmánaðar millibili og ég veit
að þær vaka yfir okkur á góðum
og friðsælum stað.
Ég kveð tengdamóður mína
með hlýju og söknuði.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Helena Gunnarsdóttir.
Elsku amma í Keflavík. Takk
fyrir allar góðu minningarnar og
góðu stundirnar sem við áttum
saman. Þú tókst alltaf svo vel á
móti okkur með bestu vöfflum og
pönnukökum sem til eru og köld-
um epladjús til að drekka með.
Það var alltaf yndislegt að koma í
laufabrauð og á annan í jólum þar
sem allir spiluðu saman fimm-upp
og áttu góðar stundir saman. Þú
sagðir okkur margar skemmtileg-
ar sögur úr sveitinni og frá ferða-
lögum og sýndir okkur myndir og
þú mundir það alltaf eins og það
hefði gerst í gær.
Elsku amma, takk fyrir alla þá
hlýju og kærleika sem þú sýndir
okkur alltaf og allan þann stuðn-
ing sem þú veittir okkur í öllu sem
við gerðum. Þú verður alltaf fyr-
irmynd okkar og við munum alltaf
hugsa til þín.
Þín barnabörn,
Gunnar og Signý.
Í dag kveð ég Björgu Ingv-
arsdóttur, konu sem hefur fylgt
mér allt mitt líf. Árið 1958 fluttu
Björg og Guðmundur maður
hennar á Lyngholt 17, efri hæð,
sem þau festu kaup á af föður-
bróður mínum sem hann byggði
ásamt föður mínum og hófu þau
þar búskap. Sambúðin á Lyng-
holti 17 var einstök. Þar voru fjór-
ir drengir, tveir á hvorri hæð. Ég
og Andrés jafngamlir og Benni ári
eldri en bróðir minn Lárus. Margt
var brallað á æskuheimilum okk-
ar, t.d. var farið í cowboy-leiki og
fjallgöngu, þar sem labbað var
meðfram veggjum svo við dyttum
ekki fram af. Einnig voru mörg
börn í götunni okkar og alltaf nóg
að gera fyrir alla.
Sagt er að maður leiti aftur á þá
staði þar sem maður á góð æskuár
og árið 1996 flutti ég aftur í Lyng-
holtið ásamt eiginkonu minni og
börnum. Foreldrar mínir höfðu
flutt burt frá Lyngholti árið 1982
en þegar ég flutti aftur í götuna
bjuggu Björg og Gummi enn þar
og þá voru löngu burt fluttir synir
þeirra. Þá fóru ferðir mínar í
Lyngholt 17 til Björgu minnar að
verða fleiri aftur, þær ferðir sem
höfðu dvínað þegar ég var í burtu.
Björg var ljúf kona sem mér
fannst alltaf gott að koma til. Ég
kom og drakk kaffi með þeim
hjónum margar helgar eftir að ég
flutti á móti þeim í Lyngholtið og
þar til þau fluttu á Nesvelli. Á
Nesvöllum sameinuðust Björg og
móðir mín Steinunn aftur, er hún
móðir mín flutti þangað í septem-
ber 2011. Þær urðu samferða í
gegnum lífið, allt frá því að vera í
Lyngholti til Nesvalla. Móðir mín
lést 2. mars 2014 og Björg 15.
mars 2014. Vil ég þakka sonum
Bjargar, Andrési og Benna, fyrir
samfylgdina í gegnum æskuárin
og eru þetta ógleymanlegar minn-
ingar um liðna tíma sem ég hugsa
oft um.
Er ég var hjá Björgu minni,
fjórum dögum fyrir andlát henn-
ar, töluðum við mikið saman. Ég
sagði við hana að ég minntist þess
ekki að okkur Andrési hefði orðið
sundurorða. Sagði hún þá: „Jú,
einu sinni,“ þá hafði hún heyrt
eitthvert brölt inni í herbergi
Andrésar og kom hún inn til að at-
huga málin. Hafði þá beddi færst
frá vegg og lágum við Andrés á
gólfinu milli bedda og veggjar.
Björg spurði hvað komið hefði
fyrir. Þá varð fátt um svör og
sagði hún að það væri best að
Guðjón færi heim til sín á neðri
hæð hússins. Andrés sagði þá við
Björgu móður sína er ég var far-
inn: „Ég ætla aldrei að leika við
Gaua aftur.“ Klukkutími leið er
Andrés kom til móður sinnar og
sagði: „Ég ætla að fara til Gaua að
leika.“ Þessi dæmisaga lýsir því
hvernig æskuárin voru í Lyng-
holtinu, full af leik og góðum vin-
um.
Samvinna Steinunnar móður
minnar og Bjargar var einstök,
kannski vegna þess að þær voru
báðar ungar stúlkur úr sveit.
Minning um hjartahlýja og góða
konu mun lifa.
Guðjón Þórhallsson.
Björg
Ingvarsdóttir
Karl Guðmunds-
son, leikari og vinur
minn, var jarðsung-
inn mánudaginn 17.
mars sl. Við kynnt-
umst í erfisdrykkju 2007. Hann
hafði ekki heyrt allt sem prestur-
inn sagði í stólnum og úr varð að
hann bauð mér leiðsögn í fram-
sögu. Það var ekki hægt að hafna
slíku boði og í tvö ár hitti ég hann
vikulega á heimili hans. Það voru
virkilegar ánægjustundir. Við
skröfuðum og skeggræddum,
Kalli kenndi mér tjáningu og upp-
hitunaræfingar leikara. Hann
flutti mér ljóð svo unun var á að
hlýða. Síðan hlýddi hann mér yfir
hvert ljóðið á fætur öðru en mest
hlýddi hann mér þó yfir Gunnars-
hólma. Hann skoraði mig á hólm
að læra það utanbókar og það
gekk eftir. Langa kvæðið flutti ég
reiprennandi um skeið. Kalli hafði
hins vegar vit á að halda sinni
kunnáttu við. Einhverjum árum
seinna þegar ellikerling var farin
að sækja illa á hann gátum við allt-
af mæst í Gunnarshólma. Þar var
hann heima þó að ég væri orðin
honum ókunnug. Kalli var öðling-
ur, alltaf ljúfur, mikil tilfinninga-
Karl Jóhann
Guðmundsson
✝ Karl JóhannGuðmundsson
fæddist 28. ágúst
1924. Hann lést 3.
mars 2014. Útför
Karls fór fram 17.
mars 2014.
vera og viðkvæmur
að leikara sið, frá-
bær þýðandi og
naskur á góðan
texta. Stundum
greip hann til sagna-
gáfunnar og líkti
óaðfinnanlega eftir
fólki. Hann varð
reyndar frægur fyrr
á tíð fyrir að herma
afbragðsvel eftir
stjórnmálamönnum
og fleirum. Fyrst sá ég hann í leik-
ritinu Saumastofunni. Hommalegi
klæðskerinn sem gerði hann
frægan lifði einhvern veginn sínu
lífi í ímynd hans út á við. Hann
sagðist hins vegar ekki skilja í því
af hverju fólk hefði orðið svona
hrifið af þessum karakter.
Karl Guðmundsson er allur, ég
þakka honum ljúfa samfylgd og
góðar minningar um mætan mann
og bið Guð að veita honum sinn
frið og varðveita hann í sínu eilífa
ljósi. Fjölskyldu hans og vinum
votta ég innilega samúð og bið
Guð að hugga þau og blessa.
Bára Friðriksdóttir.
Fallinn er frá einn litríkasti
leikari Leikfélags Reykjavíkur,
Karl Guðmundsson eða Kalli
Gúmm, eins og hann var ævinlega
kallaður. Kalli var leikfélagsmað-
ur út í gegn og er óaðskiljanlegur
hluti af sögu félagsins á seinni
hluta síðustu aldar.
Hlutverk Karls Guðmundsson-
ar á löngum ferli eru mörg og eft-
irminnileg. Hann var einstakur
gamanleikari og skapaði margar
óborganlegar persónur – auk þess
sem hann var framúrskarandi eft-
irherma. Fyrsta hlutverk Karls
hjá Leikfélagi Reykjavíkur var
Whit í Músum og mönnum í Iðnó
1953. Margir minnast hans í hlut-
verki nafna síns, Kalla, í Sauma-
stofu Kjartans Ragnarssonar sem
sló svo rækilega í gegn í Iðnó á
áttunda áratugnum. Eins var Karl
frábær í Djöflaeyjunni sem sýnd
var í Skemmunni vestur á Melum
á níunda áratugnum og sömuleiðis
í Þrúgum reiðinnar í Borgarleik-
húsinu 1992.
Kalli elskaði texta, hann hafði
djúpan skilning á texta – sem var
augljóst öllum sem unnu með hon-
um í leikhúsinu og hann var mik-
ilsvirtur þýðandi. Margir muna
eftir Kalla á reiðhjólinu sínu þylj-
andi texta þar sem hann hjólaði
um borgina. Eins muna margir
samstarfsmanna eftir útkrotuðum
handritum Kalla þar sem hann
hafði undirstrikað, merkt
áherslur og athugasemdir á spáss-
íuna.
Kalli var brosmildur og hlýr,
honum þótti vænt um fólk og dáð-
ist að fólki. Hann var hvetjandi og
hrósaði óspart, ekki síst þegar
hann kom í leikhúsið á efri árum
og dásamaði unga leikhúsfólkið út
í eitt. Á sama tíma var Kalli sjálfur
fram úr hófi hógvær.
Karl Guðmundsson var mikil
manneskja og með þeim skemmti-
legri. Í hópi lék hann oft á als oddi,
hann hló dátt og sagði sögur.
Hann átti það til að vera utan við
sig og fallegar gamansögurnar af
Kalla eru óteljandi.
Við erum þakklát Kalla Gúmm
fyrir allt sem hann gaf Leikfélagi
Reykjavíkur, samstarfsfólki,
áhorfendum – og okkur hvoru um
sig.
Minningin um góðan og
skemmtilegan mann lifir.
Magnús Geir Þórðarson,
fráfarandi leikhússtjóri
Borgarleikhússins, Kristín
Eysteinsdóttir, verðandi leik-
hússtjóri Borgarleikhússins.
Stundum er það þannig í lífinu
að maður hittir fólk sem maður
getur engan veginn gleymt, sem
manni þykir vænt um um leið og
maður sér það. Einn slíkra var
Kalli. Ég kynntist honum ekki
bara í gegnum manninn minn,
Ævar R. Kvaran leikara, heldur
líka þegar ég lék dvergvaxið hlut-
verk í Iðnó í denn. Það var eitt-
hvað einstaklega fallegt í augun-
um á þessum manni, ekki bara
liturinn á þeim heldur það sem
endurvarpaði góðu innræti hans.
Samúðarkveðja til allra sem
tengdust Kalla og voru svo heppn-
ir að fá að elska hann og kynnast
honum.
Að eilífðarströnd
umvafin elsku,
frjáls ert farin
ferðina löngu.
Í englaveröld
andinn lúinn,
í föðurfaðmi
friðsæll hvílir.
Takk fyrir tímann
og tryggðarþelið
í mörgum mætum
minningum sem lifa.
Með vinarkveðju,
Jóna Rúna Kvaran.
Elsku Elvar minn,
amma Hrefna saknar
þín svo mikið. Það er
ósanngjarnt að ég
þurfi að sitja hér og
skrifa minningar um barnabarnið
mitt, en glaðværa og bjarta brosið
hans var svo fallegt. Elvar Örn
söng svo vel og hann var pínulítill
þegar hann söng fyrir mig jólalög-
in fyrst og kunni alla textana svo
vel. Einnig minnist ég vel hversu
mikill afastrákur hann var og allt-
af þegar afi Jenni, eða afi bank
Elvar Örn
Baldursson
✝ Elvar Örn Bald-ursson fæddist
12. nóvember 1982.
Hann lést 1. mars
2014. Útför Elvars
fór fram 12. mars
2014.
eins og hann kallaði
hann, byrjaði að smíða
fékk Elvar líka hamar
til að vera eins. Ullar-
sokkarnir sem ég hef
prjónað fyrir þig und-
anfarin ár þurftu að
vera stórir því þeir
þurftu að halda hita á
stórum og myndarleg-
um manni eins og
hann Elvar minn var.
Ég vissi vel að sokk-
arnir nýttust vel á meðan hann var
að vinna á sjónum, því duglegur
sjómaður var Elvar Örn. Litla
telpan þín hún Teresa Sól var
augasteinninn þinn enda myndar-
leg og falleg. Við biðjum góðan
Guð að geyma þig og varðveita.
Amma Hrefna og Sigurður
(Sissi).
Mín gamla vin-
kona, Edda, hefur
kvatt jarðvistina og
gengur nú á Guðs
vegum. Okkar
kynni hófust hjá MS-félaginu.
Við vorum þrjár vinkonur sem
allar höfðu fengið þá sjúkdóms-
greiningu. Við fundum ánægju og
létti með því að hittast og ræða
málin. Það gerðum við á Lyng-
haganum meðan Edda hélt þar
heimili. Það var blómum prýtt og
svo varð hún amma nöfnu sinnar.
Litla ömmustelpa fæddist í sept-
ember eins og afmælisgjöf til
ömmu. Hún flutti á Sjálfsbjarg-
Edda S.
Erlendsdóttir
✝ Edda S. Er-lendsdóttir
fæddist 25. sept-
ember 1947. Hún
lést 2. mars 2014.
Úför Eddu var gerð
12. mars 2014.
arheimilið Hátúni 12
og seldi íbúðina sína
svo Erlendur og
Steingrímur gætu
notið góðs af. Það var
svo gaman að hitta
Eddu á rafmagns-
hjólastólnum, gott að
komast um bæði úti
og inni. Við bjuggum
báðar í Hátúni 12,
sem er dvalarstaður
þeirra sem búa við
það mikla fötlun að þeir þurfa þá
þjónustu sem þar er veitt. Stöð-
ugt eftirlit og þjónusta frá hjúkr-
unarfræðingum, sjúkraliðum og
fleirum, fullt fæði og sjúkraþjálf-
un. Ég kveð vinkonu mína með
þakklæti fyrir allar góðar sam-
verustundir. Ég sendi sonum
hennar, systur og öllum öðrum
sem sjá að baki vinkonu eða
frænku mínar bestu kveðjur.
Hafdís Hannesdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
KARLS ÓMARS JÓNSSONAR
verkfræðings.
Ólöf Stefánsdóttir,
Stefán Karlsson, Sigurborg Ragnarsdóttir,
Kristín Karlsdóttir, Guðmundur I. Sverrisson,
Björn Karlsson, Rebekka Silvía Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér
samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar móður minnar,
SVÖVU GUNNARSDÓTTUR
frá Steinsstöðum,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða, dvalar-
og hjúkrunarheimilis, fyrir góða umönnun og umhyggju.
Kær kveðja.
Gunnar Jónsson.
✝
Elskulegur faðir okkar og bróðir,
ELLERT KRISTINN HALLDÓRSSON
frá Tjaldanesi,
lést mánudaginn 10. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnhildur, Hrafnhildur og Fanney Ellertsdætur
og Ólafur Halldórsson.