Morgunblaðið - 25.03.2014, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Búsettur í Lundi í Svíþjóð, fjarri ættingjum og vinum, ætlarKjartan Kári Garðarsson Mýrdal ekki að gera of mikið úr af-mælisdegi sínum. „Ég er ekki mikið afmælisbarn og hef ekki
skipulagt neitt sérstakt fyrir afmælisdaginn. Fyrst og fremst er ég
að hugsa um námið sem tekur alltaf meiri tíma frá mér en ég
áætla,“ segir Kjartan en hann er í meistaranámi í stærðfræði í
Lundarháskóla.
Árið 2008 fór Kjartan til Suðaustur-Afríkuríkisins Mósambík þar
sem hann starfaði sem sjálfboðaliði á vegum samtakanna Alþjóðleg
ungmennaskipti. „Í Mósambík var ég að vinna á endurhæfingar-
heimili fyrir götustráka og sú reynsla hefur haft töluverð áhrif á
mig. Ég sé veröldina í allt öðru ljósi eftir dvöl mína í Mósambík og
hef fjarlægst aðeins efnishyggjuna og er þakklátari fyrir það sem
ég á.“ Áður en Kjartan fór í sjálfboðastarf til Mósambík var hann
kórfélagi í Hamrahlíðarkórnum en hann er talinn einn besti skóla-
kór landsins. „Ég hef ekki sungið mikið síðan ég hætti í kórnum en
mér hefur verið boðið að syngja með Íslendingakórnum hér í Lundi
en ekki látið verða af því enn,“ segir Kjartan sem hefur nóg að gera
í náminu auk þess að spila reglulega fótbolta. „Ég hef alltaf verið
mikill útivistarmaður og hreyft mig mikið. Hér eru margir Íslend-
ingar í námi, sérstaklega læknar í sérnámi og ég spila fótbolta tvisv-
ar í viku með Íslendingum búsettum hér.“
Kjartan Kári Garðarsson Mýrdal 28 ára
Afríka Kjartan Kári fór til Mósambík árið 2008 þar sem hann vann
sem sjálfboðaliði á endurhæfingarheimili fyrir götustráka.
Lífsglaður og söng-
elskur fótboltakappi
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Selfoss Sóley Freyja fæddist 23. júlí
kl. 11.10. Hún vó 3250 g og var 50 cm
löng. Foreldrar hennar eru Kristrún
Helga Jóhannsdóttir og Albert Rúts-
son.
Nýir borgarar
Blönduós Björn Steinar fæddist
24. júlí kl. 17.26. Hann vó 5.260 g og
var 59 cm langur. Foreldrar hans eru
Anna Margret Sigurðardóttir og
Sigurður Þorkelsson.
G
arðar er fæddur í Hafn-
arfirði 25.3. 1943 en kom
eins dags gamall að
Hellisholtum í Hruna-
mannahreppi og hefur
átt þar heima síðan. Hann ólst upp
við öll almenn sveitastörf þess tíma
og var fjögur ár í barnaskóla.
Garðar fór 16 ára í Tónlistarskóla
Árnesinga og lærði þar á klarinett í
þrjú ár. „Kennslan var nú ekki nema í
hálftíma, tvisvar í viku. Hins vegar
voru samgöngur strjálar á þessum
árum. Ég varð að notast við ferðir
mjólkurbílanna og gista á Selfossi í
hverri ferð. Þess vegna fór heill sólar-
hringur í hvern tíma.
Síðan fór ég í framhaldsnám. Fyrst
var ég einn vetur hjá Vilhjálmi Guð-
jónssyni, og síðan tvo vetur hjá Gunn-
ari Egilssyni.“
En samhliða tónlistarnáminu spil-
aði Garðar á harmonikku.
„Ég hef dáð hin seiðandi danslög
harmonikkunnar frá því ég man eftir
mér. Ég klökknaði oft þegar ég var
krakki og heyrði góða harmonikku-
Garðar Olgeirsson, bóndi og harmonikkuleikari – 70 ára
Hellisholt í Hrunamannahreppi Óvíða er fallegra bæjarstæði og heimtröð en hjá Garðari og Önnu í Hellisholtum.
Seiðandi harmonikku-
tónlist í Hellisholtum
Fjölskyldan Garðar og Anna, synir, tengdadætur, barnbörn og heimalningur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - ofnasmidja@ofnasmidja.is - sími 577 5177
Rafvirkjar og aðrir verktakar ath...
Ø68 mm dósabor í steinvegg á tilboði út mars.
- millistykki fyrir SDS borvélar fylgir með.
Vantar tennur á ykkar dósabora?
Viðgerðarþjónusta á notuðum dósaborum,
kjarnaborum og sagarblöðum.
16.890,-
Fullt verð kr. 21.113,- m/vsk